Morgunblaðið - 21.01.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.01.1989, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989 / “ C.T T" , Í ii í ’ V ! "f I ia.i’IA TTM ■ : ' ú J. .IJ " Fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir 1989: Framkvæmdaþrótturinn # inikill og stjómunin markviss segir Davíð Oddsson borgarstjóri Fyrri umræða um Qárhagsáætl- un Reykjavíkurborgar fyrir árið 1989 fór fram í borgarstjórn á fimmtudag. Davíð Oddsson, borg- arstjóri, gerði grein fyrir áætlun- inni og sagði meðal annars, að það hljóti að vekja athygli, að á sama tima og ríkisvaldið treystir sér ekki til að ganga frá Qárlögum sinum án þess að auka álögur á borgarana og taka stórfelld lán, þá leggur Reykjavíkurborg fram sína íjárhagsáætlun án þess að hækka sína skatta og án þess að stefiia í stórkostlegar lántökur. Hann sagði enn fremur, að fjár- hagsáætlunin sýndi að meirihluti borgarstjórnar liti til allra átta þegar framkvæmdir borgarinnar væru ákveðnar. „Framkvæmda- þrótturinn er mikill, stjórnunin er markviss og árangurinn eftir því,“ sagði borgarstjóri. Sigurjón Pét- ursson, borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins, gagnrýndi áherslu meirihluta borgarstjórnar á „gæluverkefiii“. ^ Davíð Oddsson borgarstjóri fjallaði fyrst um tekjuhlið áætíunarinnar. Heildartekjur eru áætlaðar 8.800 milljónir og er það um 8,6% hækkun frá væntanlegri útkomu liðins árs. Útsvörin eru aðaltekjustofninn og er áætlað að þau verði 4.235 milljónir króna. Sagði borgarstjóri að reynslan af staðgreiðslu skatta hefði reynst sveitarfélögum hagstæð; innheimta hefði verið betri og útsvörin í meiri tengslum við verðlagsbreytingar. Staðgreiðslan hefði á síðasta ári skil- að borgarsjóði um 430 milljónum króna umfram áætlun. Hins vegar innheimtust eftirstöðvar ver en áður og sagði borgarstjóri að sumpart mætti vafalaust rekja það til ótíma- bærrar yfirlýsingar fyrrverandi fl'ár- málaráðherra um eftirgjöf á dráttar- vöxtum vegna vangreiddra opiberra gjalda. lög að vona, að þjóðin bæri gæfu til að sneiða hjá kollsteypu í efnahags- málum og treysta þvi að allir aðilar vinnumarkaðarins næðu samningum í tengslum við raunveruleikann. Hann sagðist ekki vera með þessum orðum að láta í ljós einhvem stuðningsvott við ríkisstjómina; hún hefði með auknum skattaálögum og öðrum ráð- stöfunum gert kjaramálin stórum erfíðari viðfangs en ella hefði mátt vænta. Sagði hann að gert væri ráð fyrir að launakostnaður borgarsjóðs í heild hækkaði um 10,9% en talið er að hann hafí hækkað um 31% milli áranna 1987 og 1988. Sagði hann síðan að það væri alvarlegt íhugunarefni hversu flóknir kjara- samningar væm yfírleitt orðnir og erfítt að meta áhrif þeirra. Viðhald mannvirkja Hann gagnrýndi borgarfulltrúa minnihlutans fyrir að hafa þyrlað upp moldviðri í kringum áformaðar fjár- veitingar til viðhalds mannvirkja borgarinnar og benti á, að gert væri ráð fyrir 11,5% hækkun á fjárveiting- um til slíkra verka miðað við frjár- hagsáætlun síðasta árs. í máli borgarstjóra kom fram, að gert er ráð fyrir að lægri upphæð verði varið til gatna- og holræsakerfísins heldur en raun varð á árið 1988. Aðalverkef- nið í umferðarmálum verður að ljúka við Bústaðaveg niður að Miklatorgi. Gert er ráð fyrir því að framkvæmd- ir við holræsi meðfram Ægisíðu verði hafnar á árinu og lokið verði við dælustöðina við Ingólfsstræti. Kallaði Davíð hreinsun á fjörum borgarinnar „mesta umhverfísátak, sem ráðist hefur verið í hér á landi“. Vakti hann síðan athygli á ráðgerðri hækkun á framlögum til félagsmála. Nemur hækkunin frá spá um útkomu síðasta árs um 474,7 milljónum króna, eða um 22,5 af hundraði. Er þetta lang- mesta hækkunin á einstökum gjalda- Morgunblaðið/Sverrir Davíð Oddsson borgarsfjóri ger- ir grein fyrir frumvarpi að fjár- hagsáætlun Reykjavikur fyrir árið 1989. flokki, bæði hlutfallslega og að fjár- hæð. Skuldir ríkissjóðs við borgarsjóð Davíð fjallaði nokkuð um skuldir ríkissjóðs við Reykjavíkurborg, sem hann sagði nema um 1.350 milljónum króna. Munar þar mestu um 578 milljóna skuld vegna þjóðvegagerðar í þéttbýli, 297 milljónir vegna grunn- skóia í borginni og 278 milljónir vegna heilsugæslustöðva og Grensás- deildar Borgarspítala. Sagði hann að borgarsjóður mætti allra síst við þessu nú; borgarbúum hefði fjölgað um ríflega 12.000 á síðustu 10 árum, þar af um 2.400 í fyrra, og því væri framkvæmdaþörf borgarinnar meiri en svo, að ríkissjóður gæti um ófyrir- sjáanlega framtíð haldið þessum fjár- munum. Borgarleikhúsið tekið í notkun í haust í máli borgarstjóra kom fram, að meðal helstu framkvæmda sem fyrir- hugaðar eru á árinu eru áframhald- andi framkvæmdir við Foldaskóla og Seljaskóla, fullnaðarfrágangur Vest- urbæjarskóla og stækkun Granda- skóla auk þess sem að reisa á 610 fermetra viðbyggingu við Hagaskóla. Hefla á framkvæmdir við húsdýra- garð í Laugardalnum og á að veija 40 milljónum til þess verkefnis. Taka á Borgarleikhúsið í notkun þann 21. október og sagði Davíð að fram- kvæmdir við það gengju vel. Ganga á frá þjónustukjama og íbúðum fyrir aldraða að Vesturgötu 7 og þjónustu- kjama við Grandavega en alls er ætlunin að veija 284 milljónum til framkvæmda í þágu aldraðra á árinu. Davíð sagði að gert væri ráð fyrir að veija 265 milljónum til fram- kvæmda við ráðhúsbygginguna. Hann sagði að framkvæmdir hefðu gengið mjög vel og rakalausar full- yrðingar um hið gagnstæða hefðu ekki staðist. Gert væri ráð fyrir því að skrifstofubyggingin verði að fullu uppsteypt í desember og borgar- stjómarhúsið í mars á næsta ári. Fyrirtæki borgarsjóðs í máli Davíðs kom fram, að tekjur Hitaveitu Reykjavíkur á árinu eru áætlaðar 1.810 milljónir króna og beinn rekstrarkostnaður 491 milljón. Til framkvæmda er ætlunin að veija 1.400 milljónum; 960 milljónum til Nesjavallaveitu, 161 milljón til aukn- ingar dreifíkerfís og framkvæmda við dælustöðvar og um 279 milljónum til bygingar vetrargarðs og útsýnishúss á Oskjuhlíð. Samkvæmt fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir að tekjur Rafmagn- sveitu Reylqavíkur af raforkusölu á árinu verði 2.156,4 milljónir króna. Sagði borgarstjóri, að vonast væri til, að raforkuverð frá Rafmagnsvei- tunni gæti enn haldið áfram að lækka, en það hefur lækkað um rösk 40% á undanfömum 5 árum. Húsatryggingar Reykjavíkur Útsvar í Reykjavík 6,7% Hann ræddi síðan um inheimtu- hlutfall útsvara í staðgreiðslu. Það 'verður 6,94%, sem er 0,24 % hærra en borgarstjóm hefur ákveðið að það verði í Reykjavík. Myndast þannig inneign hjá útsvarsgreiðendum í borginni, sem á að koma til endur- greiðslu, verðbætt en án vaxta, eftir mitt ár 1990. Borgarstjóri sagði, að tekið væri tillit til fjölgunar útsvars- greiðenda í Reykjavík, en borgarbú- um hefði fjölgað um 2.374 á síðasta ári og hefði þeim ekki fjölgað meira á einu ári síðan 1947. Hins vegar væri ekki gert ráð fyrir verulegum samdrætti í útsvarsstöfni. Fasteignaskattar em áætlaðir 1.400 milljónir króna og hækka um 25,9% frá síðasta ári. Miðast það við 28% framreikning á fasteignamati íbúðarhúsnæðis en 20% á mati ann- arra fasteigna. Hins vegar er miðað við óbreytt álagningarhlutfall. Tekjur af aðstöðugjöldum verða væntanlega 1.690 milljónir en reiknað er með að gatnagerðargjöld muni nema 250 milljónum króna. Framlag til borgarinnar úr jöfnun- arsjóði sveitarfélaga er áætlað 417,5 milljónir króna á þessu ári. Benti borgarstjóri á, að á ámnum 1974 til 1983 hefði Jöfnunarsjóðsframlagið numið 10 — 12% af heildartekjum borgarsjóðs á hvert. Nú væri hins vegar gert ráð fyrir að þetta hlutfall yrði 5%. Samningar í tengslum við raunveruleikann Davíð Oddsson vék þá að áætluð- um rekstrargjöldum borgarinnar á árinu. Þau verða 6.534,1 milljón króna og hækka þau um 10,2% frá áætlaðri útkomu síðasta árs. Hann benti á, að við gerð fjárhagsáætlunar- innar væri miðað við áætlað verðlag um áramótin og hún væri þvf lögð fram með nauðsynlegum fyrirvara um breytingar vegna mikillar óvissu í atvinnu-, verðlags- og launamálum. Sagði Davíð að hætt væri við þvf að borgin bæri skarðan hlut frá borði vegna meiri hækkunar útgjalda en tekna. Engu að síður yrði í lengstu Frumvarp að Ijárhagsáætlun 1989 6. janúar 1989. áœtlun Útkomuspá Frumvarp að áætlun Hlut- falls- 1988 1988 1989 hækkun Telguliðir borgarsjóðs: Útsvar +3.420.000.000 +3.850.000.000 +4.235.000.000 10.0 Fasteignagjöld + 1.120.000.000 + 1.112.000.000 +1.400.000.000 25.9 ByfisrinRarleyfi +11.200.000 +11.200.000 + 12.000.000 7.5 Kvöldsöluleyfi +5.900.000 +6.000.000 +7.300.000 21.7 Torgsöluleyfi +1.000.000 + 1.000.000 + 1.200.000 20.0 Lóðarleiga - íbh. +24.200.000 +24.000.000 +29.500.000 22.9 Lóðarleiga - iðnl. +62.400.000 +58.000.000 +71.300.000 22.9 Leiga af eignum +8.000.000 +8.300.000 + 10.000.000 20.5 Vaxtatekjur +32.000.000 +60.000.000 +53.000.000 + 11.7 Arður af fyrirt +310.641.228 +310.641.228 +372.207.029 19.8 Framl. úr Jöfnsj. +370.000.000 +370.059.862 +417.500.000 12.8 Aðstöðugjöld +1.486.000.000 + 1.544.000.000 +1.690.000.000 9.5 Þjóðvega- og bensínfé +65.000.000 +83.600.000 +85.000.000 1.7 Gatnag.gj. +310.000.000 +370.000.000 +250.000.000 +32.4 Dráttarvextir +250.000.000 +260.000.000 + 130.000.000 -50.0 óvissar tekjur +26.000.000 +26.000.000 +26.000.000 . Hl.bsj. af skipul.gj. +5.000.000 +5.000.000 + 10.000.000 100.0 +7.607.341.228 +8.099.801.090 +8.800.007.029 8.6 1) Útsvar. Miðað er við 6.7% útsvar af staðgreiðslustofni. 2) Fasteignagjöld. Miðað er við 28% framreikning á mati íbúðarhús- næðis en 20% á mati annarra fasteigna og allra lóða, eftir að fr am er komin 2.5% aukning, vegna endurmats og fjölgunar umfram af- skriftir. Álagning á íbúðarhúsnæði 0.421%, álagning á annað húsnæði 1.25% Afsláttur til lífeyrisþega um 6.5% af sköttum af íbúðarhúsnæði. Yfirlit um gjaldaliði borgarsjóðs. Fjárhags- Útkomu- áætlun spá Frumvarp 1988 x) 1988 1989 % Stjóm borgarinnar 355.229.253 373.063.036 407.201.796 9.2 Bruna- og almannavamir 42.804.467 47.276.877 48.031.912 1.6 Menningarmál 218.159.271 233.876.327 249.372.807 6.6 Skólamál 634.203.600 696.000.000 765.564.800 10.0 Æskulýðs-, tómstunda- og íþróttamál 258.343.286 252.703.606 279.576.000 10.6 Heilbrigðismál 227.447.807 226.652.178 260.022.425 14.7 Félagsmál og almannatrygg- 2.064.685.957 2.106.611.444 2.581.298.852 22.5 ingar Fasteignir 43.507.500 37.356.500 21.392.000 +42.7 Önnurgjöld 231.000.000 252.000.000 243.000.000 +3.6 Götur, sameiginlegur kostn. 51.590.000 60.800.000 58.324.000 +4.1 Nýbygging 742.150.000 757.600.000 704.500.000 +7.0 Viðhald 435.900.000 496.000.000 500.200.0O0 1.1 Umferðarmál 12.336.013 13.527.813 13.285.200 + 1.8 Hreinlætismál 213.058.503 232.640.187 257.995.416 10.9 Umhverfísmál 115.516.200 144.354.851 144.330.100 0 6.645.930.857 5.929.462.819 6.534.085.308 10.2 Fært á eignabreytingar 1.861.410.371 2.170.338.271 2.265.921.721 4.4 7.507.341.228 8.099.801.090 8.800.007.029 8.6 x) Að meðtöldum aukaQárveitingum á rekstri, alls kr. 72. 821.275. Borgarstjóri sagði að bruninn að Réttarhálsi 2 breyti öllum forsendum fjárhagsáætlunar Húsatrygginga Reykjavíkur. Verulegar bótagreiðslur falla á fyrirtækið, líklega að andvirði 75 til 100 milljónum króna. Borgar- sjóður stendur ábyrgur fyrir tjónabót- unum Húsatrygginga og og mun því líklega myndast skuld við borgarsjóð á árinu. Áætlunin miðast við kyrrstöðu Siguijón Pétursson borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins tók til máls fyrir hönd minnihlutans, að lokinni ræðu borgarstjóra. Hann fjallaði um nokk- ur atriði, sem hann sagði einkenna þessa fjárhagsáætlun og nefndi í því sambandi, að í henni væri ekki gert ráð fyrir því að nein verðbólga yrði á árinu, en verðbólga myndi hafa í för með sér útgjaldaaukningu. Sigutjón sagði að ekki væri heldur gert ráð fyrir nýjum stöðugildum hjá borginni, hækkuðum styrkjum til fé- lagasamtaka eða samdrætti í at- vinnustigi. Sagði hann að ef atvinnu- stig lækkaði um 1% þýddi það milli 55 og 60 milljón króna tekjusam- drátt hjá borginni. í raun væri gert ráð fyrir kyrrstöðu í fjárhagsáætlun- inni. Borgarfulltrúinn gagnrýndi ýmsa þætti áætlunarinnar og sagði að í mörgum málaflokkum væri naumt skammtað. Það ætti þó ekki við um „gæluverkefni" borgarstjóra, svo sem ráðhúsið. Hins vegar væru margir liðir eignabreytinga lækkaðir þrátt fyrir stækkun borgarinnar, ef miðað væri við áætlun um útkomu síðasta árs. Það ætti til dæmis við um fram- lög til skóla, Borgarbókasafns, stofn- ana aldraðra og íþróttastarfsemi. Siguijón Pétursson sagði að lokum, að hann liti ekki á Borgarleikhúsið sem „gæluverkefni" meirihlutans. Svo miklir fjármunir væru bundnir í þeirri byggingu, að óskynsamlegt væri að klára það ekki. Hins vegar væri „skopparakringian" á Öskuhlíð dæmi um slíkt verkefni. Það væri ekki verkefni Hitaveitunnar að reisa byggingu af því tagi. Sigfríð mat- reiðir á „22“ um helgina Sigfríð Þórisdóttir mat- reiðir fyrir gesti á veitinga- húsinu „22“, á Laugavegi 22 í Reykjavík um helgina. Á boðsólum verða réttir frá ýmsum löndum, samkvæmt frétt frá veitingahúsinu. Sigfríð er kunn fyrir mat- reiðslu sína á Krákunni, segir í fréttatilkynningunni. Réttirnir verða frá mörgum heimshom- um, þar á meðal frá Indónesíu, Kambódíu, Indlandi, Hawaii, Creole og Kína. Alþjóðlega bænavika SAMKOMA verður í kvöld, laugardag kl. 20.30. í Filad- elfíu. Alþjóðlegu bænavi- kunni lýkur svo á morgun, sunnudaginn 22. janúar, með guðsþjónustu í Fella- og Hólakirkju, kl. 14.00. Fuglalíf á Reykjanesi Fuglaveradarfélagið held- ur fræðslufiind, mánudaginn, 23. janúar nk. í stofu 101 í Odda, húsi hugvísindadeildar Háskólans og hefst hann kl. 20.30. Aðalefni fundarins verður fyr- irlestur Ólafs Einarssonar, líffræðings um fuglalíf á sunn- anverðum Reykjanesskaga. Leiðrétting 1 afinæliskveðju til dr. Jak- obs Jónssonar í Morgunblað- inu í gær í tilefni afinælis hans, varð misritun í niðurlagi greinarinnar. Rétt á máls- greinin að hljóða á þessa leið: Farsælt er að lifa þannig fram á efri ár eins og séra Jakob hef- ur gert, ætíð trúr sínum grund- vallarviðhorfum, jákvæðri af- stöðu til lífsins og einlægu trúar- trausti. Þessi orð hef ég ekki skrifað til að gera nákvæma grein fyrir æviatriðum og störfum séra Jak- obs, heldur til að óska honum hjartanlega til hamingju með afmælið og þakka honum trygga vináttu í gegnum árin. Leiðrétting MISRITUN varð í grein Eg- gerts Haukdal í blaðinu sl. fimmtudag þar sem rætt var um niðurskurð á framkvæmd- afé. Þar átti að standa: „Er hér um að ræða á 9. hundrað milljón- ir króna“, en ekki á 9. milljarð króna. Leiðrétting I fréttatilkynningu . frá sendiráði vestur-þýska sam- bandslýðveldisins i Morgun- blaðinu i gær var sagt frá því að sendiherra sambandslýð- veldisins, Hans Herman Ha- ferkamp, og kona hans hafi í umboði forseta sambandslýð- veldisins heiðrað tvo íslend- inga með æðsta heiðursmerki sambandslýðveldisins, þá dr. Geir R. Tómasson tannlækni og Karl Eiríksson forstjóra. Segir þar að Geir sé formaður Alexander von Humboldt- félagsins á íslandi. Svo er ekki, hann er ritari í stjóm þess. Frumkvæðið að heimsóknum þýskra vísindamanna til íslands hefur stjóm félagsins jafnan haft.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.