Morgunblaðið - 21.01.1989, Síða 5
5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989
Á myndinni eru talið frá vinstri: Sigríður Harðardóttir ritstjóri,
Björn Þorsteinsson starfsmaður ritstjórnar, Orlygur Hálfdánarson
bókaútgefandi, Dóra Hafsteinsdóttir ritstjóri og Svavar Gestsson
menntamálaráðherra. Ráðherra heimsótti útgáfufyrirtækið fyrir
skömmu og kynnti sér gerð alfræðibókarinnar.
Örn og Örlygur:
Fyrsta íslenska al-
fræðibókin í vinnslu
Útgáfiikostnaður 75 milljónir króna
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlyg-
ur er með fyrstu islensku al-
fræðiorðabókina í vinnslu og út-
gáfukostnaður er áætlaður 75
milljónir króna. Bókin er byggð
á dönsku alfræðiorðabókinni
FAKTA- Gyldendals etbinds lek-
sikon. Ritstjórn hefur yfírfarið
um 40% af efíii verksins og áætl-
að er að allt árið 1989 fari í að
ljúka þeim 60% sem eftir eru.
Áætlað er að bókin verði um
1.700 blaðsíður með um 45 þús-
und uppftettiorðum.
Samkvæmt upplýsingum Örlygs
Hálfdánarsonar bókaútgefanda
hafa um 100 sérfræðingar unnið
við þýðingar á dönsku alfræðibók-
inni og nýsamningar og verður um
þriðjungur verksins séríslenskt efni.
Um síðustu áramót var 96% af efn-
inu komið frá sérfræðingum til rit-
stjórnar sem yfirfer efnið, samræm-
ir og býr til prentunar. Alfræðibók-
in veitir upplýsingar um jafnt al-
þjóðlegt sem íslenskt efni. Bókin
kemur nýyrðum á framfæri og höfð
hefur verið samvinna við orðanefnd-
ir. Einnig hafa nýjar orðanefndir
verið stofnaðar vegna vinnslu bók-
arinnar.
Skoðanakannanir Stöðvar 2 og DV:
Sjálfetæðisflokkur
stóreykur fylgið
Meirihluti andvígur stjórninni
Sjálfstæðisflokkurinn eykur
fylgi sitt mikið samkvæmt skoð-
anakönnunum DV og Stöðvar
2, en niðurstöður þeirra voru
birtar í gær. í könnun DV fær
flokkurinn fylgi 39,5% þeirra
sem afstöðu tóku, miðað við
27,2% í síðustu kosningum og
27,8% í síðustu könnun DV. I
könnuninni, sem Skáls gerði
fyrir Stöð 2, fær Sjálfstæðis-
flokkurinn 36,7%.
Ef miðað er við þau 54%, sem
afstöðu tóku í könnun DV, fær
Alþýðuflokkur 10,8% en fékk
15,2% í kosningunum og 15,5% í
síðustu könnun blaðsins. Fram-
sóknarmenn tapa, fá nú 19,8%
miðað við 24,1% í síðustu könnun,
en þeir fengu 18,9% í kosningun-
um. Alþýðubandalagið bætir við
sig frá síðustu könnun. Þá fékk
það 7,2% en fær nú 10,8% miðað
við 13,3% í kosningum. Fylgi
Kvennalista er nú 15,4%. í kosn-
ingunum var það 10,1% og í síðust
könnun DV 22,3%.
Fyigi Stefáns Valgeirssonar,
Flokks mannsins, Þjóðarflokks og
Borgaraflokks mældist vart í könn-
un DV. Stefán fékk ekki neitt,
Flokkur mannsins 0,3%, Þjóðar-
flokkurinn 1,5% og Borgaraflokkur
1,9%.
í könnun Skáís fyrir Stöð 2 tóku
59,5% afstöðu. Þar af fær Al-
þýðuflokkur 11,3%, Framsóknar-
flokkur 19,6%, Alþýðubandalag
12,9% og Kvennalisti 14,4%. Stef-
án Valgeirsson fær 0,6%, Flokkur
mannsins 1,0%, Þjóðarflokkurinn
0,4% og Borgaraflokkurinn 2,5%.
Skáís kannaði einnig stuðning
við ríkisstjórnina. Af þeim 86,7%,
sem afstöðu tóku, sögðust 60,6%
andvígir stjórninni en 39,4% fylgj-
andi.
Létust af
slysförum
erlendis
ÍSLENSKUR maður, Guðvarð-
ur Jósep Skúlason, lést í bílslysi
í Svíþjóð síðastliðinn laugar-
ðag. og í gær lést á sjúkrahúsi
í Barcelona á Spáni Valdimar
Þorvarðarson frá Grundfar-
fírði, en hann varð fyrir bíl þar
aðfararnótt laugardagsins.
Guðvarður var á ferð í bíl sínum
ásamt eiginkonu sinni og fimm
bömum á aldrinum eins til ellefu
ára. Hann lenti í árekstri við hann
bíl með fyrrgreindum afleiðingum.
Eiginkonan handleggsbrotnaði en
börnin sluppu við meiðsli að mestu.
Slysið átti sér stað á þjóðvegin-
um skammt fyrir utan bæinn
Enköping. Mikil hálka var á vegin-
um og er hún talin orsök slyssins.
Fjölskyldan hafði búið í nokkur ár
í Svíþjóð en maðurinn starfaði þar
hjá SAS flugfélaginu.
Valdimar var við nám í Dan-
mörku og var á Spáni í námsferð.
CHRYSLER
SÝNING í DAG
Ný sending komin af Chrysler árgerð 1989, mest selda
ameríska bílnum á íslandi síðustu árin.
Ríkulega útbúnir bílar á sérlega hagstæðu verði.
DODGE SHADOW TURBO
Sportlegir aksturseiginleikar og allur hugsanlegur
aukabúnaður. Verð kr. 1.164.800.-
PLYMOUTH SUNDANCE TURBO
W
Plymouth útfærsla af Shadow — hlaðinn aukabúnaði.
Verð kr. 1.187.200.-
JÖFUR - ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BIL
DODGE ARIES
Hinn sívinsæli Aries, vel útbúinn ameriskur fólksbíll á
sérlega hagstæðu verði. Verð kr. 974.200.-
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600
OPIÐ KL. 9-18 VIRKA DAGA,
13-17 LAUGARDAGA
2