Morgunblaðið - 21.01.1989, Side 9
viAt’VtAÍ* .!(.& í»-)A.CÍílA.OuAii HIdAJHnuOMÚM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989
9
Átt þú spariskírteini ríkissjóðs
sem eru innleysanleg núna?
Kauptu ný skírteini
með 6,8% til 7,0% ársvöxtum
í stað eldri skírteina.
Sala og innlausn fer fram í
Seðlabanka Islands.
SPARIFJÁR-
EIGENDUR
INNLAUSN ELDRI
SPARISKÍRTEINA
RÍKISSJÓÐS
10.01.’89
10.01. ’89
10.01. ’89
10.01. ’89
10.01. ’89
Tökum innleysanleg Spariskírteini ríkissjóðs
sem greiðslu fyrir Einingabréf, Skammtíma-
bréf, ný Spariskírteini eða önnur verðbréf.
FRAMTÍÐARÖRYGGI
í FJÁRMÁLUM
1975-1
1985- lA
1986- lA 3 ár
1986- lD
1987- lA 2 ár
4,25%
7%
7%
0% (lokainnlausn)
6,5%
KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar, stmi 91-686988 og
Rádhústorgi 5, Akureyri, sími 96-24700
ajLk
Tvöfaldir dagpeningar þingmanna:
Erum margsinnis búin
að vinna fyrir þessu
- viö erum engir venjulegir kontóristar segir Guörún Helgadóttir
________ .... Pöli hmra fvlcia alls konarskyldur sem - Aörir
starfsmenn ta erum engir venjulegir kontó
Hroki eða eitthvað annað?
Guðrún Helgadóttir, forseti Sameinaðs þings, á viðtal við DV í
fyrradag. Þar segir hún „ekkert eðlilegra" en að þingmenn og
ráðherrar hafi helmingi hærri dagpeninga en aðrir opinberir
starfsmenn. „Ég held að fólk skilji ekki,“ segir þessi hógværi
þingfulltrúi Alþýðubandalagsins, „að við erum engir venjulegir
kontóristar!"
Staksteinar staldra við þetta efni í dag sem og grein eftir Gest
Guðmundsson í Helgarblaði Þjóðviljans.
„Ekkert eðli-
legra“
Dagblaðið Vísir sagði
í frétt í vikunni að al-
þingismenn fái „helmingi
hærri dagpeninga vegna
ferða sinna erlendis en
aðrir opinberir starfe-
menn“. DV spyr Guð-
rúnu Helgadóttur um
ástæðu þessa. Hún svar-
ar:
„Eg er satt að segja
orðin dauðleið á þessum
söng . að alþingismenn
eigi helzt ekki að hafa
iaun og því síður dag-
peninga á ferðalögum
erlendis. Við erum marg-
sinnis búin að vinna fyrir
þessu."
Hún heldur áfram:
„Alþingismenn og ráð-
herrar hafe hærri dag-
peninga en aðrir starfe-
menn og það er ekkert
eðlilegra. Alþingismenn
og ráðherrar eru einu
launþegamir á íslandi
sem aldrei fe greidda
yfirvinnu. Þegar við er-
um að ferðast erlendis
erum við yfirleitt á fimd-
um sem standa oft fram
á nætur. Þessar fimdar-
setur eru ólaunaðar eins
og allir vita. í fimduniun
liggur auðvitað mikil
vinna. Við erum ekki i
selsköpum allan
timann . . .**
Á fyrirfólk að
snæðaápylsu-
börum?
Guðrún Helgadóttir
áfram:
„Störfinn alþingis-
manna og ráðherra
fylgja alls konar skyldur
sem aðrir opinberir
starfemenn alls ekki
hafiu Við erum að koma
fram fyrir hönd þjóðar-
innar. Það eru opinberir
starfemenn ekki að gera.
Á þessu er eðiismunur.
Auk þess er islenzka
þjóðin tæplega svo skyni
skroppin ennþá að hún
viþ'i láta þingmenn sína
borða á pylsubörum þeg-
ar þeir ferðast erlendis.
Alþingi hefiir sett metn-
að sinn í að þingmenn
búi á almennilegum hót-
elum erlendis. Það er
ekki talinn mikill mynd-
arskapur á þvi að þing-
menn séu að kúldrast í
einhveijum kytrum . . .
Ég held að fólk skilji
ekki að við erum engir
veiyulegir kontóristar."
Að tala „upp“
eða „niður“ til
fólks
Hér skal ekki lagður
dómur á skoðanir þessa
þingmanns Alþýðu-
bandalagsins. Töluð orð
dæma sig oftast sjálf. Sú
jafiuiðarmennska sem
fi-am kemur i máli þing-
forsetans er hinsvegar
saga út af fyrir sig.
Ummæli Guðrúnar
kunna að vekja spum-
ingu um, hvort þingmenn
tali „upp“ eða „niður“ tíl
almennings, kjósenda og
skattgreiðenda, sem þarf
nú að axla sjö milQarða
króna nýja ársskatta,
samhliða skertum kaup-
mætti á krepputfmum.
Máske tekur fólk hinum
nýju sköttum sem sól i
hádegisstað, enda má
það ekki vera „svo skyni
skroppið ... að vilja
láta þingmenn sfna borða
á pylsubörum".
Dagsbrúnarmaðurinn
og Sóknarkonan verða
að gera sér grein fyrir
því, eins og Guðrún
Helgadóttir, „að við
(þingmenn og ráðherrarj
erum engir veryulegir
kontóristar"!
„Forystu-
ímyndirí
„sjó“-stíl“
Gestur Guðmundsson,
dálkahöfimdur á Þjóð-
vilja, (jallar nu. i nýju
helgarblaði um fimda-
herferð formanna
A-flokkanna, Jóns Bald-
vins Hannibalssonar og
Ólafe Ragnars Grímsson-
ar. Hann segir mx:
„Ég tel reyndar að
islenzkum sósíalistum sé
ekki hollt að hafe öilu
lengur fbrystufmyndir i
„sjó“-stíl. Meðal almenn-
ings má merkja eftir-
spum eftir öðrum for-
ystustfl, sem felst ma. i
einlægni og að talað sé
við kjósendur eins og
jafiiingja, sem verða að
leysa vandamálin með
stjómmálamönnum.
Bæði Steingrímur
Hermannsson og forysta
Kvennalistans eiga vin-
sældir sínar að töluverðu
leyti að þakka slfkum stfl,
hvort með sinum hætti.
Það er svo annað mál,
að þessi stfll þjónar
stjómmálareftium
Steingrimi sem sauðarg-
æra, með góðri aðstoð
íslenzkra fjölmiðla-
manna sem kunna ekki
að veita stjómmálamönn-
um aðhald . . . Þessi
bakhlið hinna einlægu
stjómmálamanna breytir
þvi ekki að almenningur
hefur vaxandi óbeit á
refeskap f stjómmálum.
Þjóðin verður á margan
hátt upplýstari með
hveijum degi, og al-
menningur lærir að vera
gagnrýninn áþær imynd-
ir, sem fjölmiðlar, aug-
lýsingaiðnaður og áróður
halda að honum.
Tfmi landsfeðra i
fslenzkum stjómmálum
er löngu liðinn, timi
frekjuhundanna er að
líða undir lok, og fiugeld-
ar „sj6“-kallanna hafe
bráðum kastað sfðustu
birtu sinni á vetrarhimin-
inn . . .“
„Glöggt er gestsaug-
að“. Máske reynizt Gests-
augað svo i þessu tilfelli.
Tino Constantinó
á Hótel Borg, sunnudagtnn 22. janúar kl. 14.00.
Englendingurinn Tino Constantinó,
margfaldur heims- og evrópumeistari
sýnir það nýjasta í hárskurði
og hárgreiðslu.
Allt hársnyrttfólk velkomió.
Samband hárgreibslu- og hárskerameistara.