Morgunblaðið - 21.01.1989, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989
15
janúar. Afmælis félaganna verður
síðan minnst með ýmsum hætti á
árinu. Hátíð yngri deildanna verður
í Háskólabíói 11. febrúar, 29. apríl
verður haldin ráðstefna um efnið
hvað er að vera lútherskur og í vor
er ráðgert að efna til sérstakrar
gróðursetningar á félagssvæðinu
við Holtaveg. Næsta haust er síðan
ráðgert að hefja vetrarstarfið með
opnu húsi á sem flestum starfs-
stöðvum félaganna og hinar ýmsu
deildir munu minnast afmælisins á
fundum sínum. En hvað segja for-
mennimir um framtíðina?
Sjáið þið fyrir ykkur önnur 90
ár með blómlegu starfi?
-Næstu 90 árin verður kannski
starfað á annan hátt en hingað til
- því tilboð um félagsstarf og sam-
keppni um bömin hefur aukist og
mun aukast. Það má kannski líta á
það sem styrk félaganna að hafa
haldið í við þessa samkeppni með
hefðbundnu starfi sínu en við höfum
líka starfsaðferðir og áherslur í
starfínu til endurskoðunar á hveij-
um tíma. Þar nýtist vonandi áfram
hinn breiði flokkur félagsmanna til
þess að leggja sameiginlega á ráðin
og prófa sig áfram með nýjungar
sem koma starfi KFUM og KFUK
til góða og þjóna því markmiði fé-
laganna að boða trúna á Jesú Krist
og kalla æskuna til fylgdar við
hann, segja þau Málfríður og Am-
mundur að lokum.
JÓNAS GÍSLASON og
JÓHANNES TÓMASSON
tóku saman.
Starfsemi KFUM
og KFUK
Starf félaganna í Reykjavík er
umfangsmikið og fjölbreytt. Starfs-
stöðvar eru sex og sú sjöunda er í
byggingu, auk starfs, sem unnið er
í nágrannabæjunum.
Aðaláherslan er lögð á bama- og
unglingastarf, en deildir þess eru
milli 20 og 30. KFUM og KFUK
starfa í náinni samvinnu við Sam-
band íslenskra kristniboðsfélaga og
Kristilegu skólahreyfinguna.
Starfsstöðvar KFUM og KFUK í
Reykjavík og nágrenni eru á eftir-
töldum stöðum:
Amtmannsstígur 2B
Þar eru aðalstöðvar félaganna,
skrifstofur, samkomusalur og
Biblíuskólinn. Þar starfa þijár
bamadeildir.
Auk þess er þar skrifstofa Sam-
bands íslenskra kristniboðsfélaga og
Kristileg skólasamtök halda þar
vikulega fundi.
Holtavegnur
Þar hafa félögin til umráða rúm-
gott svæði með leikvöllum, þar sem
mikið starf er unnið á sumrin, hald-
in leikjanámskeið fyrir _böm og
leikjakvöld fyrir unglinga. Á vetuma
starfa þar tvær bamadeildir, ein
millideild og ein unglingadeild.
Langagerði 1
Þar er leikskóli félaganna til húsa
auk tveggja bamadeilda og einar
unglingadeildar.
Maríubakki í Breiðholti
Þar starfa tvær bamadeildir og
ein unglingadeild.
Safnaðarheimili
Seljasóknar
í Seljasókn hefur tekist samstarf
með söfnuðinum og félögunum, sem
fá að starfrælq'a tvær bamadeildir
og tvær unglingadeildir í safnaðar-
heimilinu.
Hlaðbær 2 í Árbæjarhverfi
Þar starfa tvær barnadeildir.
Suðurhólar 35 í Breiðholti
Þar er félagsheimili í byggingu
og vonandi verður hægt að taka
hluta hússins í notkun síðar á þessu
ári.
Lyngheiði 21, Kópavogi
Þar starfa tvær bamadeildir, tvær >
millideildir, ein unglingadeild og ein
eldri deild.
Sandgerði
Þar starfa tvær yngri deildir og
ein unglingadeild í grunnskólanum.
Biblíuskóli
KFUM og KFUK starfrækja
Biblíuskóla, þar sem fólki gefst kost-
ur á að fræðast um Biblíuna, helstu
atriði kenninga evangelísklútherskr-
ar kirkju og kristilegt starf. Kennsl-
an fer fram í stuttum námskeiðum.
Skólinn er öllum opinn.
Utan Reykjavíkur starfa KFUM
og KFUK á eftirtöldum stöðum:
Hafiiarfirði
Akranesi og
Akureyri
í Vestmannaeyjum störfuðu fé-
lögin um margra ára skeið, en starf-
ið þar liggur niðri um sinn.
Landssamband
Árið 1978 var stofnað Landssam-
band KFUM og KFUK. Annast það
ýmis sameiginleg mál félaganna.
Formaður þess er nú séra Jónas
Gíslason prófessor.
Hjónin séra Bjarni Jónsson og frú Áslaug Ágústsdóttir, formenn KFUM og KFUK í áratugi ásamt
Geir Hallgrimssyni þáverandi borgarstjóra.
„Kom ... og hjálpa oss“
Seinasti áratugur 19. aldar og
fyrsti áratugur þessarar aldar
voru miklir umbrotatímar í is-
lenzku þjóðlífi. Lokaþáttur sjálf-
stæðisbaráttunnar var að heQast
og menn voru ekki á eitt sáttir
um hvaða leið væri greiðust að
markinu, sem allir voru þó sam-
mála um: Frjálst og sjálfstætt
ísland!
Kirkjan í andbyr
Þessa umróts gæti einnig á
kirkjulegu sviði. Kom þar einkum
þrennt til:
1. Ýmsum þótti kirkjan of háð
dönskum stjómvöldum, enda voru
leiðtogar kirkjunnar í hópi æðstu
embættismanna þjóðarinnar. Þess
vegna töldu margir, að aðskilnaður
ríkis og kirkju yrði báðum til góðs.
2. Hitt kom líka til, að róttæk
áhrif náðu miklu fylgi meðal
íslenzkra stúdenta í Kaupmanna-
höfn. Var það sama þróun og víða
í Evrópu á þessum árum.
3. Loks hafði trúfrelsi verið inn-
leitt á íslandi með stjómarskránni
1874 og þar með var afnumin ein-
okunaraðstaða þjóðkirkjunnar í trú-
arefnum. Þegar kom fram yfir 1890
fóm fulltrúar ýmissa kirkjudeilda
að leggja leið sína til íslands og
boða kenningar sínar.
Það var því hart sótt að íslenzku
þjóðkirkjunni um seinustu aldamót
og forvígismenn hennar snerust að
vonum til vamar.
Bréfið
En hvað var helzt tii ráða þjóð-
kirkjunni til vamar?
Þá var það, að forstöðumaður
Prestaskólans, Þórhallur Bjamar-
son, síðar biskup, ritaði bréf ungum
íslenzkum stúdent, sem hafði verið
við nám í Kaupmannahöfn, en frétzt
hafði, að hann væri að mestu hætt-
ur námi, enda önnum kafinn í fé-
lagsstarfi Kristilegs félags ungra
manna þar í borg.
í bréfinu hvatti forstöðumaður-
inn unga stúdentinn til þess að
koma heim til íslands, þar sem
hann gæti gengið á Prestaskólann
um leið og hann hæfist handa um
kristilegt starf meðal barna í
Reykjavík. Þau hlytu að standa
hjarta hans nær en dönsk böm.
Bréfið barst stúdentinum unga á
tímamótum í lífi hans. Honum var
sjálfum orðið ljóst, að hann yrði að
taka ákvörðun um framtíð sína.
Átti hann að halda áfram námi eða
snúa sér alfarið að starfi í KFUM?
Hann var í miklum vafa um,
hvort væri rétt. Hann lagði því
málið fram fyrir Guð í bæn og bað
hann um að sýna sér eitthvert tákn
um, hver vilji hans væri í þessu efni.
Hann varð ókvæða við bréfið
fyrst er hann las það, en uppgötv-
aði þá, að bréfið var ritað sama
kvöldið og hann hafði háð bænabar-
Ljósrit af fyrsta prentaða fúnd-
arboði Kristilegs unglingaQelags
i febrúar 1899, eins og það hét.
áttu sína frammi fyrir augliti Guðs.
Svo fór að lokum, að ungi stúd-
entinn taldi þetta svar Guðs við
bænum sínum. Hann hlýddi því og
sneri heim til íslands.
Þessi ungi stúdent var Friðrik
Friðriksson og þetta er ytra tilefni
þess, að hann stofnaði KFUM og
KFUK á íslandi árið 1899.
íslenzka kirkjan kallaði
Friðrik til starfa
Það var því íslenzka þjóðkirkjan
sem kallaði Friðrik til þess að stofna
félögin.
Minnir þetta óneitanlega á frá-
söguna í Post. 16, en þar segir: „Og
um nótt vitraðist Páli sýn: Maður
nokkur makedónskur stóð hjá hon-
um og bað hann og sagði: Kom
yfir til Makedóníu og hjálpa oss!“
Friðrik stofnaði KFUM 2. janúar
1899 og KFUK 29. apríl sama ár.
Var því næsta eðlilegt, að í fyrstu
stjóm félagsins voru skipaðir marg-
ir af forvígismönnum íslenzku kirkj-
unnar, enda flestir félagsmenn enn
of ungir til þess að geta tekið að
sér stjómarstörf.
Brátt kom í ljós, að Þórhallur
Bjamarson hafði metið stöðuna
rétt, er hann ritaði þetta örlagaríka
bréf. Sókninni gegn íslenzku þjóð-
kirkjunni var hmndið og ég hygg,
að fátt hafi reynzt áhrifaríkara
kirkjunni til vamar á þessum ör-
lagaríka tíma en starf KFUM og
KFUK.
Félögin hafa frá upphafi verið
mikilvægur þáttur í starfi þjóðkirkj-
unnar, þar sem mest áherzla hefur
verið lögð barna- og unglingastarf.
Þau starfa á kenningargmndvelli
evangelísk-lútherskrar kirkju og
vilja standa vörð um játningar
hennar.
Þegar spíritisminn og róttækar
stefnur í guðfræði fóm að hafa
áhrif innan kirkjunnar, urðu félögin
bijóstvörn þeirra, sem vildu varð-
veita kenningargmndvöll kirkjunn-
ar óbreyttan.
Óbreytt köllun í dag
KFUM og KFUK vilja á 90 ára
afmæli sínu enn halda fast við upp-
haflega köllun sína að boða íslenzk-
um æskulýð fagnaðarerindið sam-
kvæmt kenningargrundvelii ís-
lenzku þjóðkirkjunnar. Félögin em
sjálfstætt og ftjálst leikmannastarf
innan kirkjunnar og starfa með
henni, en lúta eigin stjórn.
90 ára em alllangur starfstími
félaga á Islandi. Þótt rétt sé á tíma-
mótum sem þessum að skyggnast
um öxl o g minnast horfinna leiðtoga
til eftirbreytni horfum við þó fyrst
og fremst fram á veginn. Verkefnin
em sízt minni nú en við stofnun
félaganna. Umrótið í samtíðinni er
geysimikið. Þau vilja enn sem fyrr
einbeita sér að því að boða íslenzk-
um æskulýð trúna á Drottin Jesúm
Krist sem frelsara sinn og Drottin,
sem við eigum að þjóna í öllu lífi
okkar.
Guð gefi KFUM og KFUK trú-
mennsku í þessu köllunarstarfi, svo
að þau megi enn um ókomin ár
eins og hingað til veita blessun inn
í líf þúsunda íslenzkra ungmenna.