Morgunblaðið - 21.01.1989, Page 23
Jón Sigurðarson um viðræður við Sovétmenn:
Trúi ekki öðru en þeir
uppfylli lægri mörk
viðskiptabókunarmnar
VIÐRÆÐUR forráðamanna Álafoss hf. og Sovétmanna um kaup
þeirra síðarnefiidu á ullarvörum á þessu ári hefjast í Moskvu 30.
þessa mánaðar. Jón Sigurðarson, forstjóri Álafoss, segist vongóð-
ur um að þær geti gengið vel.
„Það er ljóst að það skiptir okk-
ur gífurlega miklu máli að þessar
viðræður gangi upp tiltölulega
fljótt, til að framleiðsla upp í samn-
inginn geti farið fram á þeim tíma
sem annars er lítið að gera hjá
okkur,“ sagði Jón í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Ég trúi ekki
öðru en að Sovétmenn uppfylli
lægri mörk viðskiptabókunar land-
anna að þessu sinni," sagði Jón
Sigurðarson í gær. Skv. viðskipta-
samningi þjóðanna vantaði í fyrra
þtjár milljónir dollara upp á að
Sovétmenn uppfylltu viðskipta-
bókun landanna, og „það er óvið-
unandi fyrir ísland," sagði Jón.
Fari svo að sovéska ríkisfyrir-
tækið kaupi fyrir þá upphæð sem
eru „neðri mörk viðskiptabókunar-
innar“ eins og Jón orðar það munu
þeir kaupa ullarvörur frá Álafossi
fyrir 5 milljónir dollara á yfir-
standandi ári.
Samvinnusambandinu. Hann
sagðist vonast til að um aukningu
yrði að ræða í kaupum samvinnu-
sambandsins frá því í fyrra, en
þá keypti það ullarvörur fyrir 3
milljónir dollara frá Álafossi.
--------------- Frá Ólafsfirði
Qlafsfjörður:
Ekki fallist á sameiningu
fry stihúsanna að óbreyttu
Atvinnutryggingasj óður frestaði afgreiðslu umsóknar frystihósanna
Jón sagði að í ferðinni til
Moskvu um mánaðamótin yrði
einnig rætt við menn hjá sovéska
Tveir árekstr-
ar í liálkunni
MJÖG hált var á Akureyri í gær.
Tveir árekstrar urðu I bænum
og var það „furðu vel sloppið
miðað við ástandið“ að sögn
varðstjóra hjá lögreglunni. Eng-
inn meiddist í þessum árekstrum
og bílarnir skemmdust ekki mik-
ið.
væri að gefa grænt ljós á sameining-
una. „Við teljum m.a. að það þurfi
að koma til endurmat á stöðunni,
ekki síst sem lýtur að eignamati,
bæði hvað varðar mat á eignum í
heild og einstaka eignum,“ er haft
eftir Gunnari. Hann segir að þó
stjóm Atvinnutryggingarsjóðs hafi
frestað afgreiðslu málsins hafi hún
„síður en svo lokað dyrum á fyrir-
greiðslu til sameinaðs frystihúss í
Olafsfirði".
Siglingamálastofiiuii:
Qryggismál eyfírskra
skipa er í góðu lagi
SKIP sem bera einkennisstafina
EA, og eru gerð út í Eyjafirðin-
um, komu best allra skipa á
landinu út úr öryggisskoðun
Siglingamálastofhunar og verða
eigendur skipa með þessa ein-
kennisstafi heiðraðir sérstak-
lega.
Von var á Magnúsi Jóhannes-
syni, siglingamálastjóra, til Akur-
V.
eyrar í gær þar sem hann ætlaði
að veita hlutaðeigandi viðurkenn-
ingar vegna þessa, en þar sem ekki
var flogið var athöfn þeirri frestað
þar til á morgun, sunnudag.
Umrædd skoðun sem Siglinga-
málastofnun framkvæmir fer fram
minnst einu sinni á ári og er mjög
víðtæk.
KA-menn heiðra Þorvald
Knattspyrnudeild KA heiðraði Þorvald Örlygsson, einn leik-
manna félagsins, í vikunni. Þorvaldur var kjörinn Knattspyrnu-
maður Akureyrar í fyrra og varð auk þess þriðji markahæsti
leikmaður 1. deildarinnar og hlaut þar með bronsskó Adidas.
KA-menn færðu Þorvaldi að gjöf innrammaða mynd af honum í
Ieik, sem Rúnar Þór Bjömsson Ijósmyndari Morgunblaðsins á
Akureyri tók í sumar. Á rammanum var skjöldur með áletrun
þess efhis að Þorvaldur væri handhafi bronsskós Adidas keppn-
istímabilið 1988. Þess má geta að Þorvaldur er nú á leið til Vest-
ur-Þýskalands þar sem hann mun leika með utandeildarliði í
vetur, til að komast í sem besta æfingu fyrir sumarið, en hann
leikur aftur með KA á sumri komanda.
STJÓRN Atvinnutryggingarsjóðs ákvað á fiindi sínum sl. miðvikudag
að fresta afgreiðslu umsóknar frystihúsanna tveggja í Ólafsfirði,
vegna hugsanlegrar sameiningar fyrirtækjanna. Ástæða þess að af-
greiðslu málsins var frestað var sú að fyrir fundinum lá neikvæð
umsögn samstarfsnefiidar banka og sjóða, Fiskveiðasjóðs, Byggða-
stofiiunar og viðskiptabanka um sameininguna. Þessir aðilar geta
ekki fallist á sameiningu frystihúsanna að óbreyttu.
Samstarfsnefndin telur að miðað
við hugmyndir heimamanna um
sameiningu yrði skuldasetning nýja
fyrirtækisins of mikil og eignir þess
of hátt metnar.
Morgunblaðið náði ekki í Bjarna
Kr. Grímsson, bæjarstjóra á Ólafs-
firði, í gær þar sem hann var ekki
í bænum. Dagur hefur eftir honum
í gær að þrátt fyrir afstöðu sam-
starfsnefndar banka og sjóða og
stjómar Atvinnutryggingarsjóðs til
sameiningar frystihúsanna, sé hug-
myndin um sameininguna alls ekki
úr sögunni. „Við erum á fullu að
vinna að ákveðnum tillögum í ljósi
þessarar afstöðu. Það þurfa að koma
til einhvetjar breytingar frá fyrri
hugmyndum," hefur Dagvr eftir
Bjama. Hann segir að ekki megi
láta deigan síga í þessu máli, „það
á að reyna til þrautar að koma þessu
heim og saman. Vonandi skýrast
málin í næstu eða þamæstu viku,“
segir Bjami.
Gunnar Hilmarsson, stjómar-
formaður Atvinnutryggingarsjóðs,
segir í Degi að það hafi verið álit
stjómarmanna sjóðsins að grund-
völlur að rekstri nýs fyrirtækis væri
að óbreyttu ekki það góður að unnt
Frá vinstri^Gunnar Kárason stjórnarmaður, Þorvaldur Örlygsson
og Ólafur Ólafsson gjaldkeri knattspyrnudeildar.