Morgunblaðið - 21.01.1989, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ DAUGARÐAGUR railt JANÚAR 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Tvíburi og Vatns-
beri
Tvíburi (21. maí — 20. júní)
og Vatnsberi (21. janúar —
19. febrúar) eru merki sem
eru að sumu leyti lík en að
öðru leyti ólík.
Hugmyndir og
félagslíf
Það líka er að bæði þurfa að
fást við félagslega og hug-
myndalega lifandi viðfangs-
efni til að viðhalda lífsorku
sinni. Þau þurfa að taka virk-
an þátt í félagsstörfum eða
vinna þar sem margt fólk er
í nánasta umhverfí. Þau hafa
bæði ríka þörf fyrir að tjá sig
og ræða málin.
Breytileiki og
staöfesta
Það sem hins vegar er helst
ólíkt er að Tvíburinn er sveigj-
anlegur persónuleiki, er eirð-
arlaus og skiptir oft um skoð-
un á mönnum og málefnum
og breytir um persónulegan
stíl á meðan Vatnsberinn er
fastur fyrir og óhagganlegur.
Pœlingar
Einkennandi fyrir samband
þessara merkja er lifandi um-
ræða, margs konar vitsmuna-
iegar pælingar og hressilegt
félagslíf. Það jákvæða við
þessi merki saman er að þau
reyna að leysa mál sín með
skynsamlegri umræðu og vilja
vera yfirveguð og jákvæð í
viðhorfum. Þau búa því ekki
til vandamál og lenda varla í
óskiljanlegum deilum eða
varpa órökréttum ásökunum á
milli sín. Tvíburi og Vatnsberi
eru einfaldlega of skynsöm
merki.
Skortur á spennu
Helsta hættan í sambandi
þessara merkja er að spennu
getur skort á milli þeirra. Þau
eru bæði það rökföst og skyn-
söm að þau hætta fljótt að
koma hvort öðru á óvart. Það
getur því gerst að þau verði
fljótlega leið hvort á öðru og
þurfi að sækja annað til að fá
örvun.
Köld
Þar sem þessi merki eru
„skynsöm" og orka þeirra
huglæg er hætt við að þau
þori ekki, eða vilji ekki, takast
á við tilfinningamál. Því er
hætt við að samband þeirra
verði „kalt“ og að ekki sé tek-
ist á við tilfínningahnúta sem
hugsanlega þarf að leysa.
íloftinu
Önnur möguleg.skuggahlið er
sú að saman verði þau mikið
í „loftinu" og hugmyndir verða
það margar og háfleygar að
illmögulegt verði að fram-
kvæma þær. Þau geta því
þurft að gæta þess að hafa
jarðbundið raunsæi i lagi.
Frelsi
Til að vel gangi þurfa þessi
merki að gefa hvort öðru
svigrúm til að fást við eigin
mál. Þau eru bæði frelsis-
elskandi og er illa við bönd
og utanaðkomandi höft. Þau
þurfa því að virða frelsi hvort
annars. Það er því ágætt að
þau séu ekki alltaf með nefið
hvort ofan í málum annars.
Menningarlíf
Að lokum má geta þess að
Tvíburi og Vatnsberi geta gert
margt verra en það að taka
virkan þátt í félagslifi og vera
mikið á ferðinni. Þau ættu því
að sækja leikhús, stunda
menningarlif, ferðast o.þ.h.
Stöðug hugmyndaleg örvun
er mikilvæg fyrir þau bæði.
Þegar öllu er á botninn hvolft
eiga þessi merki vel saman.
Þegar vel tekst til ríkir á milli
þeirra gagnkvæmur skilning-
ur, hressileiki, jákvæðni og
bjartsýni í viðhorfum.
GARPUR
niiMiiiiiiiiiinniiiiiiiiiniiiiiiiiinnniMniinnnnniiiinmwwimiintminimiiiiinnninnninniiininiinniiniiiiiiin .. 1 ........ 1 ■"
GRETTIR
BEST AD GA )
TIL VEÐORS
/ HMM.V11ZVIS7 VERA ÖEST )
vs AE> HALPA 5l6VIE>R0fyilP )
LEIÐINLEGT FRAMAKI
AF PEGI 03 LÍKUR A f>UNG-
LVNPI MBO KÖFLU/V1 ER LlÐA
[7AV?e> 9-29
BRENDA STARR
bsætla að
SEGTA UNGFJÍU
STAJSI? TTZÁ
MlNNl AjyJU
tseree>
FlG/NkUENN/.
STjÓfZN —
/VteUWANNA
NÚhJA EZUAA
UiO HA/vt/K>6:t_'
sfaoar./ én
FORlVBRaR.
OtCKAR
HAFBU AOGA /*1E& HEAIAIt
SP/N. KJAFTAÞLABUR
GETUR SÖK/CT SKÚTUL/HI.
UÓSKA
FERDINAND
Ég verð að skrifa ritgerð Hún er um sjóræningja. Ég get skáldað afgang-
um „Gulleyjuna“ .. .veistu Meira þarf ég ekki að vita. inn ...
um hvað hán er?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
í leik Polaris og Flugleiða í
undankeppni Reykjavíkurmóts-
ins sögðu bæði NS pörin sex
grönd á þessar hendur:
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ D75
VD42
♦ ÁDG
♦ ÁKDG
Vestur Austur
J 111 J
♦ 4
Suður
♦ ÁKG
▼ Á95
♦ 9862
♦ 854
Eftir opnun suðurs er von-
laust að halda aftur af norðri. Á
öðru borðinu gengu sagnir þann-
ig:
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 tígull
Pass 2 lauf Pass 2 grönd
Pass 6 grönd Pass Pass
Pass
Útspil: hjartagosi
Hvemig er best að spila?
Þrátt fyrir 33 punkta á milli
handanna era aðeins 9 beinir
tökuslagir. Hinir þrír verða að
koma á tígul. Kóngurinn verður
því að liggja fyrir svíningu, helst
þriðji eða annar með tíunni. En
hjartaliturinn gefur þó vissa
aukamöguleika. Fyrir utan þá
von að austur eigi kónginn ann-
an eða vestur G10 blankt, er
hugsanlegt að ná fram kast-
þröng ef þannig liggur í spilun-
um:
Norður ♦ D75 *D42 ♦ ÁDG ♦ ÁKDG
Vestur Austur
♦ 9642 ♦ 1083
VG1087 II VK63
♦ K4 ♦ 10753
♦ 973 Suður ♦ ÁKG TÁ95 ♦ 9862 ♦ 854 ♦ 1062
Lykilspiiamennskan er að
dúkka hjartagosa. Vestur skiptir
væntanlega yfir í lauf og þá era
innkomumar á spaða notaðar til
að svína tvisvar í tígli. Austur
stenst svo ekki þrýstinginn þeg-
ar laufin era tekin, verður að
fara niður á hjartakónginn
blankan eða henda tígultíunni.
í reyndinni átti vestur kóng-
inn Qórða í tígli svo spilið tapað-
ist á báðum borðum.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í Dieren í Hollandi
í ágúst kom þessi staða upp (
skák alþjóðlegu meistaranna Me-
ulders, Belgíu, sem hafði hvítt
og átti leik, og Hartoch, Hol-
landi. Svartur var of gráðugur f
síðasta leik, hann seildist f peð
með 24. — Bf6xd4?
25. Hxd4! - Hxd4, 26. Df6! og
svartur gafst upp, því 26. — Re8
er svarað með 27. Bxd4 og hvítur
vinnur mann.