Morgunblaðið - 21.01.1989, Qupperneq 32
32
M I p MJ ViAh ,ts UOOACOIA011AJ 0107'
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. 3.
AJR 1989
fclk í
fréttum
ROLLING STONES
Jagger og félagar á sviðinu
Mick Jagger, Keith Richards,
Mick Taylor og Ron Wood,
allir úr hljómsveitinni Rolling Sto-
nes, tóku þátt í óundirbúnum hljóm-
leikum með ýmsum stjömum í
Waldorf Astoria hótelinu í New
York á dögunum. Aðeins Charlie
Watts og Bill Wyman sátu heima.
Hljómsveitin er nú orðin 25 ára
gömul en hefur ekki farið í hljóm-
leikaferð síðan árið 1982 og ekki
tekið upp hljómplötu síðan 1986.
Heyrst hefur að mikið ósamlyndi
sé á milli Micks Jaggers og gítar-
leikarans Keiths Richards og að
hljómsveitin ætli að binda enda á
ferilinn með kveðjuhljómleikum
síðar á þessu ári. Mick Jagger gaf
þó í skyn á tónleikunum í New
York að hljómsveitin ætti ekki eftir
að syngja sitt síðasta á næstunni.
„Þeir myndu ekki nenna þessu ef
ekki væru jafn miklir peningar í
veði,“ sagði Pete Townshend á
hljómleikunum. „Við megum þakka
fyrir að Mick skuli hafa svona dýr-
an smekk."
Ekkert ósamlyndi er á milli Micks Jaggers og Keiths Richards eftir þessari mynd að dæma, en hún
var tekin þegar félagarnir veittu verðlaunum móttöku á óundirbúnum hljómleikum í New York.
Tina Tumer faðmar Jagger sinn að sér á hljómleikunum i Waldorf
Astoria hótelinu í New York. Þar sungu þau saman lögin „Honky
Tonk Woman“ og „I Can’t Tum You Loose.“
SÖGULEG MEGRUN
Sameiginlegt mark
mið er 400 kíló
Kynlíf? Hver? Við? Ertu eitt-
11 hvað verri? Heldurðu að við
séum loftfimleikapar?" Slík voru
svör heimsins feitasta kærustupars
er þau voru spurð um daglegt líf
og heilsufar. Slíkum spumingum
eru þau Brenda, 30 ára og 190 kfló
að þyngd, og Michael, 24 ára og
vegur 457 kfló, vön að svara. Þau
hittust fyrir ári og með þeim tókust
miklir kærleikar. Þau dvelja nú á
sjúkrahúsi í New York í Banda-
ríkjunum í þeim tilgangi að grenn-
ast, samanlagt um 400 kfló.
„Ég hef misst 20 kíló á tveimur
mánuðum. Það er sérstakur megr-
unarkúr sem læknamir hér fyrir-
skipa en Brenda hefur sína eigin
uppskrift. Hún léttist á síðasta ári
um 60 kfló. Við óhlýðnumst reyndar
læknum og kjósum að nota eigin
aðferðir. Drekkum mikið af vatni
og lifum á vítamíni,“ segir Michael.
Saga þeirra er ótrúleg. Brenda
hafði komið fram í sjónvarpsþætti
þar sem hún útskýrði hvemig 60
kíló runnu af henni. Michael varð
umsvifalaust ástfanginn af henni.
Hann hringdi til sjónvarpsstöðvar-
innar, fékk númerið og bauð stúlk-
unni heim til sín þar sem hann bjó
með móður sinni (180 kíló). Brenda
kom og féll strax fyrir Michael sem
verið hafði rúmliggjandi í fjölda
ára. Þau ákváðu að deila lífinu sam-
an en Brenda vildi að sjálfsögðu
koma Michael út úr húsinu. Til
þess þurfti 30 grannvaxna menn
og krana sem færði manninn á risa-
stóran pallbfl og í sjúkrahúsið þar
sem þau em nú. Hann er enn rúm-
liggjandi og Brenda er ekki fær um
að standa. lengur á fótunum en 4-5
tíma dag hvem.
Þegar Michael var aðeins 7 ára
Vó hann 70 kfló. Hann hætti í skóla
þegar hann var tíu ára gamall, enda
þá orðinn 120 kfló að þyngd. Kenn-
aramir vom smeykir um Michael
og sögðust þá ekki geta tekið
ábyrgð á baminu. Og næstu árin
þyngdist hann gegndarlaust. „Ég
hef reiknað það út að á næstu þrem-
ur ámm geti ég grennt mig um 300
kfló. Þá verður líf í tuskunum hjá
okkur. Við ætlum að gifta okkur
og eignast böm,“ segir Michael og
er gott í honum hljóðið, enda hefur
hamingjan heimsótt hann. Brenda
ætlar að losa sig við 100 kíló, sem
sé samanlagt 400 kflóa megmnar-
kúr. Skyldi engan undra þegar þau
segjast bíða í ofvæni eftir þeirri
stund er þau geti farið að hreyfa
sig eins og flest annað fólk!
Loni Ander-
son í bobba
Leikkonan Loni Anderson er
víst þekkt fyrir að láta aldr-
ei nokkum mann sjá sig fyrr
en hún hefur sett upp sinn dag-
lega andlitsfarða. Samkvæmt
heimildum var það því hrein
hörmung er henti hana hér um
daginn. Snemma morguns, áður
en farðinn var kominn á sinn
stað, hafði Loni skroppið út í
garðinn fyrir utan hús sitt. Því
miður varð henni það á að læsa
sig úti. Nágrannamir sáu þó
fljótlega hver var þama á ferð
og Iánuðu konunni síma. Og
ekki bara síma, andlitsfarða
þurfti einnig að lána Loni —
með tilliti til þess að lásasmiður-
inn átti erindi að húsi hennar.
Michael og Brenda.
\
„...SÍÐAN ERU
LIÐIN MÖRG ÁR"
Módel 79 á Britnklóarballi!
Nú er tækifærid til að uppiifa aftur ball
með einhverri albestu stuðhljómsveit allra
ffrna - í Broadway.
Hver man ekki eftir lögunum Skólaball,
Nína og Geiri, Rock'n Roll öll mín bestu
ár, Síðasta sjóferðin, Eitt lag enn,
Þjóðvegurinn, Upp í sveit o. fl. o. fl. o. fl.
Á miðnætti verður
Módel 79 með
þrumu sýningu á
HIND íþrótta- og
sundfatnaði frá
Bikarnum, Skóla-
vörðustíg 14.
Bjóddu þér d ball
með BRIMKLÓ!!!
ElSCACWAy
. . . af t u r s e tn d ð u r
’ Aldurstakmark 20 ár.
Miðaverð kr. 750,-