Morgunblaðið - 21.01.1989, Page 36

Morgunblaðið - 21.01.1989, Page 36
‘36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989 ©1967 Univarxl Pr»»a Syndicata „þetta. er mynol um Houdiní ■" Ást er... ... að bjóða honum í bílferð. TM Reg. U.S. Pal Off.—all rights reserved • 1989 Los Angeies Times Syndicate Þú myndir skilja þetta ef þú sæir konuna hans ... I I | f i í j HÖGNI HREKKVÍSI I- Snjómokstur í Reykjavík Athugasemd við skrif Víkveria Til Velvakanda. Greinahöfundur sem skrifar í Morgunblaðið undir nafninu Víkveiji skrifar daglega í blaðið og um marga málaflokka. Ég efa ekki að hann er lesinn af mörgum, enda um ágætar hugleiðingar að ræða, oft og tíðum. í Morgunblaðinu í morgun, 17. janúar, fannst mér þó Víkveiji skjóta óþarflega föstu skoti í saklausa sem eru snjómoksturs- menn Reykjavíkurborgar. Víkveiji hefur lent þama í hinu alkunna vandamáli 'þess sem þarf að skila grein daglega og gefst honum því ekki alltaf tími til að gaumgæfa það sem hann skrifar. Víkveiji lenti í að þurfa að gera annaðhvort fá sér jeppa eða fá sér skóflu og moka sig í gegnum snjó- ruðning sem moksturtæki borgar- innar skildu eftir við útkeyrslu frá bifreiðageymslu hans. Á hveijum vetri má líta hliðstæða gagnrýni um snjómokstur borgarstarfs- manna og yfirleitt er því ekki svar- að enda myndi það æra óstöðugan að elta ólar við það þekkingarleysi á eðli málsins sem jafna einkennir siík skrif. Það sem vantar upp á í þessum skrifum er beinlínis að fara fram á að snjómokstursmennimir taki snjóruðningana í vasana og fari með þá heim til sín. Það er ekki hægt að velta fyrir sér hvort snjómokstur á einhveiju tilteknu svæði er mikill og/eða góð- ur án þess að velta líka fyrir sér hvaða mannafli og tækjakostur er til verksins. Það er ótrúlegt en eigi að síður satt að allt gatnakerfí Reykjavíkurborgar var mánudags- morguninn 16. janúar hreinsað á 8 stundum af 7 vörubflum með snjó- tönn. Þeir óku á þessum 8 stundum samtals 812 km. Aðeins 7 starfs- menn og verkstjóri sáu um að hreinsa 100.000 manna borg. Vinn- an hefst hjá þessum hversdags- hetjum kl. 4 á morgnana, þá spretta þeir upp úr heitu og notalegu rúm- inu, ræsa tmkkana og ryðja eitt stykki höfuðborg á augnabliki. Við, hinir venjulegu vegfarendur, eigum þessum mönnum mikið að þakka og við vitum að þeir íjármun- ir sem fara í snjómokstur koma þúsundfaldir til baka í fækkun slysa og greiðari samgöngum, sem aftur stuðla að bætri tímanýtingu í at- vinnulífinu. Ég hef unnið víða til sjávar og sveita, en ég hef ekki séð að aðrir geri jafn mikið hvað þá meira en áðumefndir snjómokarar. Ég efast um að skattgreiðendum í Reykjavík sé nægjanlega ljóst hvað margt í rekstrinum hjá Reykjavíkurborg er í rauninni vel gert og ódýrt. Það eru sömu mennimir sem malbika götunar okkar á sumrin og hreinsa af þeim snjóinn á vetuma. Þetta em aðeins 14 menn í allt, sem halda starfsemi gangandi eftir þörfum í 20 stundir á sólarhring, helga daga sem rúmhelga. Þjóðarhag væri bet- ur komið ef enginn gerði minna en þessir menn. Þessir piltar sem fást við þessa mikilvægu vinnu heyra ekki oft þakkir vegfarenda fyrir störf sín, enda hafa þeir öðrum hnöppum að hreppa en að taka við blómum. Mér þætti þó ekki til of mikils mælst að öflugasti fjölmiðill landsins, Morgunblaðið, léti það ógert að væna þá um greindarskort, þó þeir gerðu ekki hlé á vélmokstri einn daginn fyrir skömmu til að hand- moka innkeyrsluna hjá Víkveija. Hefur Víkveiji leitt hugann að því hve mörg gatnamót og hve margar innkeyrslur eru í Reykjavík- urborg. Bara í götunni sem ég bý eru a.m.k. 150 innkeyrslur og gatnamót og er gatan sú fjarri því að vera með þeim stærri í borg- inni. Þær aðstæður sem Víkveiji gerði að kvörtunarefni eru á mörg þúsund stöðum í borginni. Ekki ætla ég Víkveija svo tilætlunarsam- an að bara eigi að moka snjóruðn- inginn sem lendir við hans inn- keyrslu. Þær þúsundir sem hafa hliðstæð vandamál greiða væntan- lega skatta líka og teldu sig eiga vísan stuðning í þessum efnum ekki síður en sá er skrifar í Morgun- blaðið ef á að fara sinna því að keyra burtu ruðningá frá innkeyrsl- um. Þó okkar skeleggi og djarfi borg- arstjóri tæki þá ákvörðun að fram- kvæma svo fáránlega athöfn sem brottkeyrsla á ruðningum við allar innkeyrslur er, þá væri allur véla- floti landsmanna hvergi nærri næg- ur í það verkefni. En sem betur fer gæta kosnir fulltrúar okkar Reyk- víkinga peninganna betur en svo að þeir hendi þeim í slíka þarfleysu. Það tæki daga og það marga daga. En snjómokstur er verkefni sem þarf að leysa strax ef það á að koma að gagni. Flestir verða að komast í vinnuna á hveijum morgni og þeim þætti það tæplega þess virði að bíða eftir að einhver her- deild kæmi einhvem næstu daga og tæki frá þeim snjóinn. Þeir gætu að vísu notað biðina til að skrifa nöldur um seinagang í snjómokstri á meðan. Venjulegt fólk veit að skóflur fást í byggingarvöruverslunum og vandamálið er leyst á 5 til 10 mínút- um, heilsan batnar og skattanir hækka ekki að nauðsynjalausu. Margar hendur vinna létt verk, það er hægt að ryðja frá öllum inn- keyrslum í borginni á sama hálftím- anum með handskólfum, en allar vinnuvélar landsins (sem til þessa brúks henta) megnuðu það ekki á Yíkverji skrifar Fyrir nokkrum vikum skrifaði Víkveiji um þann hrikalega vanda sem starfsfólk í miðbænum á við að stríða vegna skorts á bíla- stæðum. Það er illmögulegt að stunda vinnu þar um slóðir án þess að eyða löngum stundum í leit að stæði fyrir bflinn. Öðru hveiju eru menn þó hólpnir og finna stæði fljótlega, en það verður erfíðara og erfiðara með mánuði hveijum. Þetta er tímafrekt, kostnaðarsamt vegna sífellds hringaksturs, en þó fyrst og fremst mikið álag á taugar og skap. Það alversta er, að ástandið fer versnandi en ekki batnandi. Fleiri og fleiri stæði fara undir stöðu- mæla vegna háværra kvartana kaupmanna í miðbænum. Úr þeim vanda hafa borgaiyfírvöld þó leyst að mestu nema á háannatímum. Höfuðvandinn eru bflastæði fyrir þá sem vinna í miðbænum og þurfa langtímastæði, frá því klukkan 8 á morgnana til klukkan 5 síðdegis. Það þýðir ekkert fyrir borgaryfír- völd að benda á aukinn stæðis- flölda, því þau eru miðuð við stutt- an stanz. Starfsfólkið getur ekki hlaupið úr vinnu með reglulegu millibili til að borga í stöðumæla. XXX Stormsveitir stöðumælavarða hafa gert ástandið enn verra en verið hefur. Samvizkusemin er að drepa þá, en því miður er til lítils að láta reiðina bitna á þeim. Eins og réttilega hefur verið bent á af talsmönnum borgarinnar þá eru þeir aðeins að gegna skyldu sinni. En að hveijum skyldi reiðin þá beinast? Höfuðábyrgðina bera að sjálfsögðu kjörin yfirvöld — borgarfulltrúar (meirihlutinn) vald- ir af borgarbúum sjálfum. Man nokkur eftir því að þeir hafi haft á stefnuskrá sinni fyrir síðustu kosn- ingar að leggja starfsfólk fynr- tækja í miðbænum í einelti og gera því erfitt að stunda vinnu sína? Eða bera kannski borgarfulltrúamir enga ábyrgð? Eru það kannski embættismenn borgarinnar sem vandræðunum valda? Það væri eftir öðm — þeir vilja ef til vill ekki vera minni menn en kerfiskarlamir (og -kerlingamar) í þjónustu. ríkisins sem kemur ekkert við hvað pupull- inn er að pípa. XXX Fyrr í vetur benti Víkveiji á, hversu öngþveitið í miðbænum myndi versna þegar snjóar legðust yfir. Það hefur komið í Ijós. Lítið er gert eins og fyrri daginn til að halda bflastæðum opnum. Víða er ekki unnt að nota þau vegna hálku og ruðninga. Þá bólar ekkert á ákvörðun borg- aryfirvalda um að breyta tvístefnu- akstursgötunum Öldugötu og Bám- götu í einstefnuakstursgötur í því skyni að fjölga þar bflastæðum. Það hefur verið í athugun og undirbún- ingi mánuðum saman. Akvörðunar- taka um jafn flókið og margslungið vandamál virðist þurfa sinn tíma. Meðgöngutíminn er eins og hjá fflum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.