Morgunblaðið - 21.01.1989, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.01.1989, Blaðsíða 37
>ser ffAuwAi is sitoaíihaouí r gktajsvtjoíjom MORGUNBLÁÐÍÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989 37 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS 1 uJ>w 'U tr einum degi, þar að auki þarf nú meira að moka víða annars staðar en í Reylg'avíkurborg. Mennimir sem moka snjó af sam- göngukerfí landsmanna vita í smá- atriðum til hvers þeir eru og hvem- ig þeir eiga að gera það sem þarf að gera. Þeir hafa margir sótt vinnuvélanámskeið Iðntæknistofn- unar og hugleitt þessi mál þar, auk þess að njóta leiðsagnar reyndra vinnufélaga og verkstjóra sinna. Þeim er ljóst að þeir em á kostnað skattgreiðenda í verkinu og þvi hafa þeir hagsmuni fjöldans að leið- arljósi. Þeir vita að þeir gætu mokað miklu meira með meiri mannafla og fleiri tækjum. En þeir hugsa ekki um hvað þeir gætu ef þeir hefðu hitt og ef þeir hefðu þetta. Þeir sníða sér stakk eftir þeim að- stæðum sem em og framkvæma kraftaverk daglega eftir þörfum fyrir hreina smáaura ef miðað er við margt annað í þjóðfélaginu. Margir snjómokstursmenn vinna við skilyrði sem ekki henta heybrók- um eða meðalmönnum. í takmörk- uðu skyggni og með misgóðum tækjum ryðja þeir okkur hinum braut, jafnt á strætum borgar sem ijallvegum. Sum staðar er unnið við ógn af snjóflóðum og hengiflugi, raunvemlega við tvísýnar aðstæð- ur, enda hafa þeir margir komist í hann krappan. í nútíma þjóðfélagi er þetta orðin svo sjálfsögð þjón- usta að margir meta hana ekki neitt sérstaklega, nema hún bregð- ist. Snjómokara landsins vil ég þó kveðja með þeirri hughreystingu að tugir þúsunda íslendinga kunna að meta þjónustu þeirra. Flestum vegfarendum hlýnar í bijósti að sjá gulu blikkljósin; ljósið sem segir að verið sé að þjóna okkur, tryggja okkur greiðari og hættuminni för. En gulu blikkljósin segja okkur vegfarendum einnig að framundan séu menn og tæki að störfum, ljós- ið er bæn um aðgát og tillitssemi. Vegfarendur ættu að auðvelda snjómokstur og tryggja eigið öryggi með því að forðast að vera nærri snjómoksturstækjum, sérstaklega ekki aftan við tækin, og víkja vel. Hugsið til snjómokstursins sem fer fram á nóttunni áður en bfllinn er skilinn eftir á óheppilegum stað þar sem hann er í tjónahættu og tefur mikilvæg verkefni í þágu almenn- ings í landinu. Með baráttukveðju til snjómokst- ursmanna. S. Svavarsson. Forst.m. vinnuvélanám- skeiðs Iðntæknistofnunar. Þessir hringdu .. Hættuleg- fjármálastefiia SpariQáreigandi hringdi: „Það hefur-varla farið framhjá neinum að nú ætlar ríkisstjómin að seilast f sparifé landsmanna, með öðrum hætti virðist ekki fært að halda áfram núverandi óstjóm ríkisQármála. Óskadraumur Ólafs R. Grímssonar, og þá væntanlega Jóns Baldvins sem kominn virðist í eina sæng með honum, er að sparifé landsmanna taki að brenna upp eins og gerðist fyrir nokkmm árum. Slíkt er ábyrgðar- leysið meðal þeirra sem mest hafa völdin. Þeir sem safnað hafa skuldum í góðærinu eiga að sleppa við að borga þær en hinir sem eitthvað hafa lagt til hliðar eiga' að tapa því. Eins og fram kemur í frétt Morgunblaðsins hinn 16. janúar hefur Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, tekið upp hanskann fyrir sparifjáreig- endur og bent á hversu hættulega stefnu Olafur R. Grímsson hefur tekið. Aðrir bankastjórar hafa lítið látið til sín heyra og virðast ekki líta á það sem hlutverk sitt að vemda sparifé almennings. Það hlýtur hver maður að sjá að ef spariféð fer að brenna upp í bönk- unum mun fólk þegar taka það út og hætta að leggja fyrir. Fólk fyigist betur með f þessum málum en áður og ætti fjármálaráherra ekki að ala þá von í bijósti að hann geti komið aftan að fólki í þessu máli. Það verður verst fyrir stjómarflokkana sjálfa ef þeir eyðileggja það sem áunnist hefur í að fá fólk til að leggja eitthvað til hliðar, það munu þeir sjá í næstu kosningum." Góð útvarpssaga Kona hringdi: „Ég vil bæði þakka Ríkisút- varpinu og skamma það. Miðdeg- issögumar hafa verið ákaflega lélegar, nema sagan Móníka á Merkigili sem lesin var fyrir skömmu. Það hlýtur að vera hægt að velja skemmtilegri sögur. Út- varpsleikritin era sérlega leiðin- leg, á þeim er hvorki upphaf né endir. Hins vegar koma margir góðir þáettir frá Akruejrri. Músfk- þættir Svanhildar era skemmti- legir." Læða Grábröndótt fímm mánaða gömul læða fór að heiman frá sér að Klapparstíg 28 hinn 22. desem- ber. Vinsamlegast hringið í síma 28630 ef hún hefur einhvers stað- ar komið fram. Lyklar Fjórir húslyklar á hring fundust í Kópavogi um áramótin og era tveir lyklanna merktir með bláum lit. Upplýsingar í síma 604100 Rocol smurefni fyrir vélar í matvælaiðnaði R0C0L hvít smurolía 5 í 5 lítra brúsum ROCOL hvít smurfeiti í 400 gr túpum fyrir smursprautur ROCOL hvit smurfeiti i 4,5 kg brúsum ROCOL hvít smurolía í 454 gr úðabrúsum ROCOL hvít keðju- og drifolía í 454 gr úðabrúsum ROCOL smurefnin innihalda aðeins leyfileg efni somkvæmt matvæla- og lyfjaeftirliti Bandarikjanna og eru samþykkt af bandarískum yfirvöldum til notkunar í matvælaiðnaói, þar sem hætta er á snertingu við matvæli. ROCOL smurefnin eru því algjörlega skaðlaus þótt þau komist í snertingu við matvæli. Þau eru vatnsþolin, smyrja mjög vel og eru bragð-, lyktar- og litlaus. Veljum ROCOL gæðanna vegna. Leitið nánari upplýsfnga. G.J. FOSSBERG VÉLAVERZLUN HF. Skúlagötu 63 Símar 18560 - 13027 Ekki sama hvort karl eða kona les Til Velvakanda. Ég hlustaði á ljóð vikunnar sunnudaginn 15. þ.m. en það var Söknuður, hið undurfagra ljóð Jó- hanns Jónssonar. Matthías Viðar Sæmundsson flutti mjög góðan formála í máli og myndum. Þegar að ljóðinu kom fannst mér ekki koma til greina annað en heyra karlmannsrödd, mjúka og hljómmikla sem staðgengil skálds- ins. Hvers vegna las ekki Matthías Viðar sjálfur. Herdís Þorvaldsdóttir er ágæt leikkona en konurödd átti ekki við þama. Auk þess er Herdfsi margt betur til listar lagt en lesa ljóð. Áður hafði hún lesið ljóð vik- unnar, Vögguþulu eftir Lorka. Það er nú stundum svo um ljóð og sög- ur að ekki er sama hvort karl eða kona les þegar sögumaður segir sjálfur frá. Þarf þá sá sem flytur að koma í hans stað hvort heldur hann er karl eða kona og skiptir þá miklu að rétt sé í hlutverk skip- að svo trúverðugt sé á að hlýða. Ljóðaunnandi Útsala útsala II § m IA / mxJjip j /o

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.