Morgunblaðið - 21.01.1989, Qupperneq 38
38
r
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
KNATTSPYRNA
Viðeyingafélagið
Aöalfundur Viöeyingafélagsins verður
haldinn í Síöumúla 17 sunnudaginn
22. janúar og hefst kl. 15.00.
Venjuleg aöalíundarstörf.
Stjórnin.
Múrarar
múrarar
Veggprýði hf., sem er umboós- og
þjónustuaðili fyrir sto utanhúss-
klæðningarefnin, óskar eftir að komast
í samband vió múrara sem víðast ó
landinu, er óhuga hafa ó að kynna sér
meðferð og ósetningu sto utan-
hússklæðningarinnar.
Opid laugardag og sunnudag
ffrá kl. 13.00-17.00.
VEGGPBYÖÍS
Bíldshöföa 18 (Bakhús)
112 Reykjavík - Sími 673320
Sala getraunaseðla lokar kl. 14:45 á laugardögum.
3. LEIKVIKA - 21, JANÚAR 1989 11 ■ 2
Leikur 1 Arsenal - Sheff. Wed.
Leikur 2 Coventry - Wimbledon
Leikur 3 Liverpool - Southampton
Leikur 4 Luton - Everton
Leikur 5 Middlesbro - Tottenham
Leikur 6 Newcastle - Charlton
Leíkur 7 Nott. For. - Aston Villa
Leikur 8 Q.P.R. - Derby
Leikur 9 West Ham - Man. Utd.
Leikur 10 Biackburn - Chelsea
LeikurH Cr. Palace - Swindon
Leikur 12 Oxford - Leeds
Símsvari hjá getraunum eftir kl á laugardögum er 91-84590 og - Munið hópleikin 17:15 84464 n
fWotgmifrEiifttfr
Gódan daginn!
Mætir Omar
með hjálminn?
Stórmót í innanhússknattspyrnu á morgun
STÓRMÓT Samtaka íþrótta-
fréttamanna og Adidas fer
fram í íþróttahúsinu á Seltjarn-
arnesi á sunnudaginn. Mótið
hefst kl. 13 og keppa átta af
bestu liðum landsins.
Liðunum er skipt í tvo riðla. í
A-riðli leika KR, Grótta, KA
og FH. í B-riðli leika Fylkir, Valur,
Akranes og Fram.
Hið víðfræga Stjömulið Ómars
Ragnarssonar mun mæta úrvalsliði
íþróttafréttamanna í „sýningar-
leik.“ kl. 17.25. Lið Ómars er skip-
að frægum köppum sem eru þó
flestir þekktir fyrir annað en knatt-
spyrnu.
„Ég er að safna liði og það verð-
ur að sjálfsögðu „Stjömulið." Þar
verðum við. bræðumir, ég og Jón,
Hemmi Gunn og Magnús Ólafsson.
Þú ættir kannski að hafa hann feit-
letraðan því hann er svo stór,“ sagði
Ómar og hló.
„Nú svo er ég að leggja snömr
fyrir Ladda, Jón Pál og þá feðga
Albert og Inga Bjöm. Það gengur
hinsvegar erfiðlega að ná í þessa
menn og væri gott ef þeir hefðu
samband við mig,“ sagði Ómar.
Á vellinum verða þeir bræður
Ómar og Jón og einig sonur Óm-
ars, Þorfinnur, en hann leikur með
liði íþróttafréttamanna.
Leikið verður 2x7 mín. í riðlakeppn-
inni og verður tímaseðilinn þessi:
Kl.
13.00 KR-Grótta
13.15 KA-FH
13.30 Fylkir-Valur
13.45 Akranes-Fram
Spurnlngin er hvort að Ómar mæti
með hjálminn til að að brjótast í gegn-
um starkan vamarmúr íþróttafrétta-
manna.
14.00 Grótta-FH
14.15 KR-KA
14.30 Valur-Fram
14.45 Fylkir-Akranes
15.00 KA-Grótta
15.15 FH-KR
15.30 Akranes-Valur
15.45 Fram-Fylkir
Tvö efstu liðin í riðlinum komast
í undanúrslit. Úrslitaleikurinn verð-
ur svo leikinn kl. 18.
AMERÍSKI FÓTBOLTINN
San Fransico er
sigurstranglegra
Mætir Cincinnati í úrslitaleiknum í NFL-deildinni
ÚRSLITALEIKURINN í
ameríska fót boltanum, hinn
svokallaði „Super Bowl“-leik-
ur, fer fram í Miamiborg á
morgun. Leikurinn er á milli
San Fransico 49ers og Cin-
cinnati Bengals og erfyrr-
nefnda liðið talið sigurstrang-
legra, enda leikið mjög vel und-
anfarna tvo mánuði.
Keppnistímabilið hefur verið
nokkuð ólíkt hjá þessum liðum.
Cincinnati byijaði keppnistímabilið
með miklum látum og vann fyrstu
sex leiki sína, síðan
Gunnar fór að halla undan
Valgeirsson fæti hjá liðinu, en
skrifar þegar í úrslita-
keppnina kom small
leikur þess saman að nýju. San
Fransico byijaði ekki sérlega vel,
eftir fyrstu 11 umferðimar hafði
liðið tapað fímm leikjum, en þá fór
liðið í gang og hefur spilað geysi-
lega vel undanfarna tvo mánuði.
Cincinnati byggir leik sinn upp á
NBA-úrslit
Midvikudagfur:
Detroit - New Jersey Nets....103:90
76ers - Boston Celtics......115:104
Dalias Mavericks - Denver....102:92
Miiwaukee - Chariotte.......118:106
Golden State - New York.....133:119
L.A. Lakers - L.A. Clippers..111:90
Fimmtudagur:
Phoenix Suns - Charlotte....126:112
Cleveland - Indiana.........113:106
Chicago - Miami Heat........112:108
Washington - San Antonio....116:112
Sacramento - New York.......112:106
Seattle - Houston...........124:108
sterkum hlaupumm og vöm San
Fransico mun eflaust einbeita sér
að því að stöðva þá, einkum hinn
skemmtilega „Ickey" Woods. Hann
er þekktur fyrir að taka mjög
skemmtileg dansspor þegar hann
skorar og það vilja leikmenn 49ers
örugglega ekki sjá í Miami.
Styrkleiki San Fransico fellst í
frábærri leikstjóm kastarans Joe
Montana. Montana hefur leikið frá-
bærlega undanfarnar vikur. Hann
meiddist á miðju keppnistímabili en
hefur nú náð sér af þeim meiðslum.
Þetta verðu þriðji úrslitaleikurinn
sem San Fransico leikur á þessum
áratug og stjómaði Montana liði
49ers í báðum fyrri leikjunum sem
unnust. Aðal kantmaður (en þeir
grípa einkum sendingamar) 49ers,
Jerry Rice, meiddist á æfíngu í
Miami á mánudag og er ekki ör-
uggt að hann leiki. Montana sagði
brosandi við blaðamenn í gær að
hann myndi draga Rice inn á leik-
völlinn kvað sem það kostaði á
sunnudag!
Veðbankar telja San Fransico
sigurstranglegra í leiknum og sam-
kvæmt kokkabókum þeirra á 49ers
að vinna með fimm stigum. Þrátt
fyrir að bannað sé að veðja á fót-
boltaleiki í Bandaríkjunum (fyrir
utan Nevadafylki) er talið Banda-
ríkjamenn eyði 2.5 milljörðum dala
(125 milljarða króna) í ár á þennan
leik. Það er nánast þjóðaríþrótt að
veðja á úrslitaleikinn á vinnustöðum
í Bandaríkjunum og hefur lögregla
lítið aðhafst þótt margir fari lítt í
felur með veðstarfssemi í kringum
þennan leik.
íuémR
FOLK
■ BALDUR Maríusson var
kjörinn formaður Knattspymu-
ráðs Reykjavíkur á ársfundi ráðs-
ins á fimmtudagskvöld. Baldur og
Eiríkur Helgasoii voru í kjöri og
sigraði Baldur 32:10 í kosning-
unni. Hann tekur við af Gísla Sig-
urðssyni, sem gaf ekki áfram kost
á sér. KRR færði Gísla stóra styttu
fyrir vel unnin störf um árabil, en
Gísli gaf KRR bikar, „Gíslabikar",
sem keppt skal um í Reykjavíkur-
móti 1. flokks.
■ ÁSTRALSKA sjónvarpsstöð-
in Network Seven“ hefur keypt
Olympíusýningarréttinn til Ástr-
alíu árið 1992 og greiddi fyrir með
33,3 milljón dollurum. Áður hafði
NBC náð réttinum til Banda-
ríkjanna og reitt fram 416 milljón
dollara.
■ DIEGO MARADONA hefur
tilkjmnt forráðamönnum Napólí að
hann ætli að taka sér tíu daga frí
frá keppni og æfingum. „Ég er að
sálast í bakinu og verð að taka það
rólega," sagði kempan við frétta-
menn. Napólí leikur á útivelli gegn
Sampdoria um helgina og má illa
við að leika án snillingsins, en liðið
er tveimur stigum á eftir Inter sem
skipar efsta sætið.
■ TVEIMUR breskum kylfing-
um hefur verið meinað að keppa á
Trinidad Open golfmótinu. Þeir
heita Simon Bishop og Jeremy
Bennett, en Bishop vann_ einmitt
mótið fyrir tveimur árum. Ástæðan
sem gefin hefur verið er sú að þeir
hafí tengsl við Suður-Afríku. Fé-
lagamir vom rasandi af bræði,
sögðu að þeir hefðu ekki komið til
forboðna landsins í átta ár og og
aldrei hefði staðið til að fara þang-
að aftur.
■ BRIAN CLOUGH, hinn litríki
framkvæmdastjóri Nottingham
Forest komst heldur betur í frétt-
imar eftir að lið hans hafði gersigr-
að QPR 5:2 í 8 - liða úrslitum deild-
arbikarkeppninnar í vikunni. í leiks-
lok mddust um 300 áhorfendur inn
á völlinn og urðu þá margir undr-
andi að sjá stjórann spretta á fætur
og fljúgast á við unglinga. Sjónar-
vottur sagði Clough hafa orðið laus
höndin við að minnsta kosti fjögur
ungmenni og slíkt flokkaðist undir
skrílslæti. Ef einhver hefði átt að
lumbra á fólkinu þá hefði það verið
lögreglan sem raunar fjölmennti inn
á völlinn og gerði einmitt það. Sjálf-
ur segist Clough hafa orðið
áhyggjufullur og óttast mjög að
áhangendum liðanna lysti saman.
Hann hefði einungis ætlað að leggja
löggunni lið. Reiknað er með því
að aganefndin taki málið fyrir fljót-
lega og má gera ráð fyrir því að
stjórinn skapstóri fái einhvers konar
refsingu fyrir athæfið. Kokhraustur
að vanda lýsti Clough því yfír að
hann myndi ekki hika við að gera
slíkt hið sama ef staðan kæmi upp.
Ekki er líklegt að yfirlýsingin verði
honum til framdráttar er aganefnd-
in afgreiðir málið.
Um helgina
Körfuboltl
íslandsmótið, sunnudag
Þór-ÍBK........Akureyrikl. 20
UMFG-KR...Grindavík kl. 20
Valur-UMFT..Valshúsi kl. 20
IS-Haukar.Kennarah. kl. 20
UMFN-ÍR....Njarðvík kl. 20
Blak
í dag kl. 14.30 leika í 1. deild karla
KA og Þróttur Neskaupstað á Akur-
eyri og strax á eftir sömu lið í 1. deild
kvenna. Kvennalið Þróttar R. og
Víkings leika í Hagaskóla kl. 14.
Fijálsar
Meistaramót íslands innanhúss hefst
í Laugardalshöll og Reiðhöllinni kl.
11.20 í dag, en keppni I Baldurshaga
hefst kl. 13.30 í dag og kl. 10 á morg-
un. Þá verður einnig keppt í Laugar-
dalshölt kl. 13.30.
Námskelð
í dag kl. 10-18 heldur Knattspymu-
þjálfarafélag fslands þjálfaramámskeið
í Garðaskóla, Garðabæ. Þráinn Haf-
steinsson, íþróttakennari, leiðbeinir.
C