Morgunblaðið - 21.01.1989, Qupperneq 40
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
EIGNA
DÐIIIM!
27711
MJN; G H 0 IT SSTB Æ T I 3
Swiw Kristinsson, sðlusljóri - Þotteifur Guímuiidss«i, söhim.
&áfdtfurHa)li)órsson.kidr.-U(WsteinnBcckM..sim<123M
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Erlendu fisk-
markaðarnir:
Meira fæst
fyrir karfa
enþorskinn
FREMUR óvenjulegt ástand hef
ur ríkt á fiskmörkuðunum I Bret-
landi og Þýzkalandi að undan-
förnu. Að jafhaði gefur fisksalan
í Bretlandi meira af sér en í
Þýzkalandi, en það er alveg
öfiigt nú. Venjuleg fæst hæsta
verðið fyrir þorsk og ýsu en nú
gefa karfinn og ufsinn mest af
sér. Meðalverð úr skipalöndun-
um í Þýzkalandi var til dæmis í
þessari viku allt að 36 krónum
hærra en í Bretlandi.
Þorlákur ÁR seldi á mánudag
124 tonn í Bremerhaven fyrir sam-
tals 11,6 milljónir króna. Meðalverð
~var 93,80. Þorskur í afla hans fór
á 75,25 krónur, ýsa á 118,06, karfi
á 105 og ufsi 73. Daginn eftir seldi
Víðir HF á sama stað 200 tonn.
Heildarverð var 18,6 milljónir
króna, meðalverð 93,17. Verð á
helztu tegundunum var nánast það
sama og hjá Þorláki. Loks seldi
Viðey RE 190 tonn í Bremerhaven
á fimmtudag. Heildarverð var 18,8
milljónir króna, meðalverð 99,06.
Engin ýsa var í aflanum, en þorsk-
ur fór á 83,74, ufsi á 83,25 og
*-- karfi á 105,03.
Jón Baldvinsson RE seldi í Hull
á mánudag samtals 192 tonn.
Heildarverð var 14,4 milljónir, með-
alverð 74,83. Nánast allur aflinn
var þorskur, sem að meðaltali fór
á 73,88. Ýsa, 1,5 tonn, fór á 144
og grálúða, 1,3 tonn á 112,39. Á
miðvikudag seldi Gjafar VE 84,5
tonn í Hull. Heildarverð var 5,4
milljónir, meðalverð 63,43. Uppi-
staða aflans var þorskur, sem fór
á 61,35. Ýsa, 7,8 tonn, fór á 97
krónur. Loks seldi Ottó Wathne NS
128 tonn í Grimsby á miðvikudag.
Heildarverð var 9,4 milljónir, með-
alverð 73,78. 105 tonn voru af
.. þorski, sem fór að meðaltali á 76,63
jMrónur.
Verð fyrir gámafisk í Bretlandi
var misjafnt. 18 tonn af kola fóru
á 135 krónur kflóið, ýsan, 130 tonn,
fór á 123 krónur og þorskur, 342
tonn, á 76 krónur.
Rfldsbankaniir hækka
innlánsvexti um 2%
Niðurlæging- fyrir ríkisstjórnina, segir Sverrir Hermannsson
Morgunblaðið/Þorkell
Á strandstað í gærkvöldi. Ljóshnötturinn, sem ber í frammastrið efst til hægri, er þyrla Land-
helgisgæzlunnar. Á litlu myndinni má sjá er tveir úr áhöfninni fagna því að hafa fast land undir
fótum. Björgunarþyrlan er í baksýn.
Danskt flutningaskip strandaði við Grindavík:
Skipinu siglt upp í fjöru
DANSKA flutningaskipið Mar-
iane Danielsen strandaði skammt
utan við innsiglinguna í
Grindavikurhöfh um kvöldmat-
arleytið í gærkvöldi. Svo virðist
sem skipinu hafi verið siglt beint
upp í fjöru og að sögn þeirra,
sem höfðu talstöðvarsamband
við skipstjórann virtist þeim
hann vera undir áhrifúm áfeng-
is. Reyna átti að ná skipinu á
flot á flóðinu í nótt ef aðstæður
leyfðu og var togarinn Júpíter
kominn á strandstað i gær-
kvöldi. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar var einnig kölluð til og
flutti hún skipverja frá borði, að
undanskildum yfirmönnunum
Ijórum sem neituðu að fara frá
borði.
Mariane Danielsen er 2.600 tonn
að stærð með 12 manna áhöfn, þar
af eru 8 Filippseyingar en yfirmenn-
imir fjórir eru danskir. Hingað kom
skipið frá Englandi að lesta mjöl.
Skipið kom til Grindavíkur í gær-
morgun og vildi þá svo slysalega
til að það tók niðri í innsiglingunni
í höfnina. Við það kom gat á tvo
af jafnvægistönkum. Var þá ákveð-
ið að sigla skipinu til Akureyrar og
gara við skemmdirnar þar.
Bjarni Þórarinsson hafnsögu-
maður í Grindavík segir að hann
hafí lóðsað skipið út úr höfninni.
Virtist allt í stakasta lagi um borð.
Hinsvegar segir- hann að rétt eftir
að hann var farinn frá borði hafi
skipinu verið siglt beint upp í fjör-
una austan við bæinn.
BANKARÁÐ Landsbankans ákvað hækkun vaxta af inn- og útlánum
sínum í gær. í Búnaðarbanka var ákveðið að hækka vexti á kvöld-
fiindi bankaráðs á fimmtudag. Aðrir bankar skiluðu einnig ákvörðun-
um um vaxtahækkanir til Seðlabanka, nema Útvegsbankinn sem
hyggst ákveða vaxtahækkun í dag. í Landsbankanum hækkuðu vext;
ir á almennum sparisjóðsbókum um 2%, en á útlánum um 1%. í
Búnaðarbanka hækkuðu vextir á almennum bókum um 1,8% og á
óverðtryggðum útlánum um sama hlutfall. Sverrir Hermannsson,
bankastjóri Landsbankans, segir að vaxtahækkun Landsbankans sé
alger sigur í baráttu sinni við fjármálaráðherra, sem lýsti sig andvíg-
an vaxtahækkunum ríkisbankanna, og niðurlæging fyrir ríkisstjórn-
ma.
Samkvæmt heimildum Morgun-
biaðsins urðu töluverðar deilur á
bankaráðsfundum ríkisbankanna
milli bankaráðsmanna stjómar-
flokkanna og bankastjóra, um það
hversu mikil vaxtahækkunin ætti
að verða. í báðum tilfellum mun
hafa náðst samkomulag um mála-
miðlun. Fundurinn í bankaráði Bún-
aðarbankans var langur, og að sögn
Friðjóns Þórðarsonar, varafor-
manns ráðsins, urðu töluverðar deil-
ur og skoðar.askipti á fundinum.
Iljá Búnaðarbanka hækkuðu
innlánsvextir á sérkjarabókum um
4,75% og 5%. Vextir á verðtryggð-
um útlánum Iækka hins vegar úr
8% í 7,75%. í Landsbanka hækka
vextir á Kjörbók um 4,25%.
Flestir bankar voru óvenjuseinir
að skila ákvörðunum um vexti til
Seðlabankans í gær, en nýtt vaxta-
tímabil hefst í dag. Ástæðan fyrir
seinkuninni var að Hagstofan beið
með að birta nýja byggingarvísitölu
þar til eftir klukkan 16. Lánskjara-
vísitala er reiknuð meðal annars
út frá byggingarvísitölu. Bygging-
arvísitalan hækkaði um 3,3% frá
miðjum desember.
„Þetta er niðurlag fyrir ríkis-
stjórnina eins og það gerist flat-
ast," sagði Sverrir Hermannsson
er hann var spurður hvaða þýðingu
vaxtahækkun Landsbankans hefði.
„Þessi ákvörðun var tekin á fagleg-
um grunni. Við gerum ráð fyrir að
vextirnir verði endurskoðaðir eftir
tíu daga. Verðbólgan er meiri en
við héldum og þetta er allt komið
á fljúgandi ferð.“
„Ég nenni ekki að elta ólar við
orðháka," sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra er orð
Sverris voru borin undir hann.
„Þetta er frekar niðurlæging fyrir
Sverri því að hann hefur boðað
mikla vaxtahækkun en fékk þriðj-
ung af henni, ef ég skil rétt. Nafn-
vaxtahækkunin var ekki mikil, en
ég tel að vextirnir hefðu átt að
vera óbreyttir. Menn verða að
mæla verðbólguna á meira en einum
mánuði. Bankamir hafa aldrei
fengist til að lækka vexti í hvelli,
þótt verðbólga hafi verið nánast í
núlli."
Björgunarsveitin í Grindavík var
strax kölluð út. Reyndu menn frá
henni að komast um borð af sjó og
fóru út í björgunarbátnum Oddi V.
Gíslasyni. Þeir urðu hinsvegar frá
að hverfa vegna mikils brims. Skip-
stjórinn á Mariane sendi út beiðni
um að fá dælur um borð þar sem
mikill leki væri kominn í vélarrúm
skipsins. Þyrla Landhelgisgæslunn-
ar var send frá Reykjavík með
dælur og slökkviliðið í Grindavík
kom einnig á strandstað með dæl-
ur. Um það leyti var björgunarsveit-
in að undirbúa að skjóta fluglínu
um borð en síðan var tekin ákvörð-
un um að nota þyrluna til að flytja
skipveija frá borði. Skipveijarnir
átta vom komnir í land um ellefu-
leytið og gistu þeir á Flughótelinu
í Keflavík í nótt.