Morgunblaðið - 22.01.1989, Page 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1989
ERLEIMT
INNLEIMT
Vextir hækka
Bankar hækkuðu vexti af inn-
og útlánum sínum á fostudag.
Ríkisbankamir hækkuðu innláns-
vexti sína um 2% og útlánsvextina
um 1-2%. Sverrir Hermannsson,
bankastjóri Landsbankans, segir
að vaxtahækkunin sé sigur gegn
ríkisstjóminni, sem vildi vexti
óbreytta.
Sameining
tryggingafélaga
Forsvarsmenn Brunabótafé-
lags íslands og Samvinnutrygg-
inga hafa tilkynnt að rekstur fé-
laganna verði sameinaður í nýtt
hlutafélag, sem þeir segja að verði
stærsta tryggingafélag hérlendis.
Með sameiningunni vonast félögin
til að ná fram verulegri hagræð-
ingu og Iækkun tilkostnaðar í
rekstri. Þá hefur verið tekin end-
anleg ákvörðun um sameiningu
Sjóvátryggingafélags íslands og
Almennra trygginga, en vinna við
undirbúning sameiningarinnar
hefur staðið yfír undanfarið.
Banaslys í Hvalfirði
Fullorðin hjón létust í umferð-
arslysi, er bifreið þeirra fór út af
veginum undir Fossárhlíð í Hval-
fírði síðastliðinn sunnudag. Bif-
reiðin, sem rann til í mikilli hálku
á veginum, steyptist fram af veg-
brúninni og endaði í sjónum 30-40
metram neðar. Hjónin vora Iátin
er lögreglan kom á vettvang
skömmu eftir að slysið varð.
Skipsstrand við Grindavík
Danska skipið Mariane Dani-
elsen strandaði við Grindavík á
föstudagskvöld.
Skipið hafði tekið
niðri í innsigling-
unni fyrr um dag-
inn, og þegar lóðs-
inn var farinn frá
borði á útleið, tók
það strikið beint upp
í fjöra. Þyrla Land-
helgisgæzlunnar
bjargaði áhöfíiinni.
Flugleiðir kaupa þriðju
Boeing 737-400 þotuna
Stjóm Flugleiða hefur ákveðið
að festa kaup á þriðju þotunni af
gerðinni Boeing 737-400 og verð-
ur hún afhent í mars 1990, en
félagið fær afhentar tvær þotur
af þessari gerð í vor. Flugleiðir
hafa á hálfu öðra ári samið um
smíði fímm nýrra þotna að verð-
mæti tæplega 10 milljarðar króna.
Skipverja bjargað á
síðustu stundu
Skipveija á
Ágústi Guð-
mundssyni GK,
Pétri Asgeiri
Steindórs-
syni, var
bjarg-
að úr sjónum á
síðustu stundu
eftir að hann
dróst útbyrðis með netafæri. Náð-
ist skipveijinn um borð í gúmmí-
bát frá Stafnesi GK sem var nær-
statt, en þyrla Landhelgisgæsl-
unnar flutti hann síðan á Borg-
arspítalann, þar sem hann náði
sér fljótlega eftir volkið.
Vopnaðir unglingar
réðust inn á
unglingaheimili
Fjórir vopnaðir og grímuklædd-
ir unglingar réðust inn á ungl-
ingaheimili við Efstasund í
Reykjavík aðfaramótt fímmtu-
dags, og höfðu þeir einn ungling
sem þar var í gæslu á brott með
sér. Lögreglan hefur haft upp á
einum þeirra er réðust inn á heim-
ilið og einnig þeim er numinn var
á brott þaðan.
ERLENT
Bush sver
embættíseið
George Bush
sór á föstudag
embættiseið for-
seta Banda-
rílqanna. Bush er
41. forseti
Bandaríkjanna
og tekur við af
Ronald Reagan
sem verið hefur við stjómvölinn
undanfarin átt ár og er vinsælast-
ur allra fráfarandi forseta Banda-
ríkjanna í 40 ár. Hátíðahöldin
vegna embættistökunnar hófust á
miðvikudag og stóðu fram á laug-
ardag. Búist er við því að Bush
komi til með að fylgja svipaðri
stefnu og Reagan en hann þykir
boða meiri varfæmi í samskiptum
við Sovétmenn en forveri hans.
Mótmæli í Tékkóslóvakíu
Þúsundir manna komu saman á
Wenceslas-torgi í Prag á sunnudag
til að minnast námsmannsins Jans
Palachs, sem brenndi sig til bana
16. janúar 1969 til að mótmæla
innrás Sovétmanna. Mótmælin
héldu áfram út vikuna og beittu
sveitir öryggislögreglu táragasi,
vatnsdælum og kylfum til að dreifa
mannfíöldanum.
Einhliða fækkun
kjamavopna
Edúard Shevardnadze, utanrík-
isráðherra Sovétrflganna, skýrði
frá því að Sovétmenn hefðu afráð-
ið að fækka skammdrægum kjam-
orkuvopnum sínum í A-Evrópu er
hann ávarpaði fulltrúa á fram-
haldsfundi Ráðstefnu um öryggi
og samvinnu í Evrópu á fímmtu-
dag. Hann tiltók hins vegar ekki
hversu umfangsmikil fækkunin
yrði en Sovétmenn njóta mikilla
yfirburða á þessu sviði vígbúnaðar.
Pólskir kommúnistar deila
Miðstjóm pólska
kommúnista-
flokksins sam-
þykkti á aðfara-
nótt fimmtudags
að heimila starf-
semi frjálsra
verkalýðsfélaga
með mjög
ákveðnum skilyrðum. Þessi tillaga
olli mikilum deilum innan flokksins
og að sögn pólskra fjölmiðla hót-
aði Wojciech Jaruzelski flokks-
Ieiðtogi að segja af sér legðust
fundarmenn gegn þessum breyt-
ingum.
Nýr lögmaður í Færeyjum
Flokkamir íjórir sem myndað hafa
nýja stjóm í Færeyjum náðu á
þriðjudag samkomulagi um að
Jógvan Sundstein, formaður
Fólkaflokksins, tæki við embætti
lögmanns Færeyja.
Marcos að dauða kominn
Lögfræðingur
Ferdinands
Marcosar, fyrr-
um einræðis-
herra Filippseyja,
skýrði frá því á
miðvikudag að
Marcos væri að
dauða kominn og
gæti ekki svarað til saka í dóms-
máli sem höfðað hefur verið gegn
honum í Bandaríkjunum.
Quayle sver embættiseiðinn
Dan Quayle sór á föstudag embættiseið varaforseta Bandaríkjanna. Qua-
yle sem er 41 árs gamall er fæddur í Indíanapolis í Indíana-ríki í Banda-
ríkjunum. Hann bauð sig fram til setu í fulltrúadeild Bandaríkjaþings
árið 1976 og vann óvæntan sigur. Tveimur áram síðar var hann endur-
kjörinn. Árið 1980 bauð hann sig fram í kosningum til öldungadeildarinn-
ar og náði kjöri. Hann vann aftur sigur er hann sóttist eftir endurlqori
sex áram síðar en sem varaforseti verður hann forseti öldungadeildarinn-
ar og kemur það í hlut ríkisstjóra Indíana að tilnefna mann í hans stað.
Eiginkona hans Marilyn er varaforsetanum á vinstri hönd en við hlið
hennar standa tvö böm þeirra hjóna, Corinne og elsti sonurinn, Tucker.
Öryggismál á Evrópuþmginu:
Hvatt til aukinna sam-
skipta við Islendinga
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
í vikunni samþykkti Evrópuþingið
í Strasborg ályktun um mikilvægi
Norðurlanda í öryggi og vörnum
Verstur-Evrópu. I ályktuninni er
lögð áhersla á mikilvægi þessara
landa fyrir stöðugleika í álfíinni
og þeim tilmælum er beint til ráð-
herranefnda Evrópubandalagsins
(EB) að þær efli samskipti banda-
lagsins við Island á öllum sviðum.
*
Alyktunin var samþykkt í kjölfar
umræðu um skýrslu sem
spánski þingmaðurinn Perinat Elio
lagði fram. í henni er gerð grein
fyrir stöðu öryggis- og vamarmála
í norðanverðri Evrópu og leidd rök
að því að Norðurlöndin hafí úrslita-
þýðingu fyrir vamir Vestur-Evrópu.
Bent er á að ef til þess kæmi að
Islendingar og Norðmenn yrðu aðilar
að EB yrði það ómetanlegt framlag
til einingar í Evrópu og myndi efla
samstöðu EB og Átlantshafsbanda-
lagsins. í ályktun þingsins segir að
í ljósi mikilvægra öryggishagsmuna
og vegna sögulegra tengsla beri að
auka samskiptin við ísland og Fær-
eyjar og Grænland sérstaklega hvað
varðar efnahagsþróun, umhverfís-
vernd og menningarsamskipti.
Mikil kirkju-
sókn í Noregi
Tekur allri ann-
arri menningar-
starfsemi fram
Norínform
ÞAÐ hefur komið dálítið á
óvart, að í Noregi er kirkjusóku
meiri en nemur samanlagðri
aðsókninni að kvikmyndahús-
um, leikhúsum og knattspyrnu-
völlum. Samkvæmt tölum firá
norsku hagstofúnni sótti nærri
helmingur landsmanna ein-
hvers konar guðsþjónustu á
síðasta ári og tíundi hver tók
þátt í 10 trúarathöftium eða
fleiri.
Hagstofan upplýsir einnig, að í
fyrra hafí 29% Norðmanna
farið í leikhús, 14% hlýddu á kon-
serta og 16% sóttu annars konar
tónleika. Listsýningar drógu til sín
28% þjóðarinnar, 27% sóttu söfn
og 46% fóru einhvem tíma í kvik-
myndahús á árinu.
Samkvæmt upplýsingum norska
kvikmyndasjóðsins vora seldar á
síðasta ári 12,4 milljónir aðgöngu-
miða að kvikmyndasýningum og
þegar aðsóknin er mest, á sunnu-
dögum, fara allt að 50.000 manns
í bíó. Ein milljón manna sá leiki í
fyrstu og annarri deild norsku
knattspymunnar, hálf önnur millj-
ón fór í leikhús eða í óperana og
þijár milljónir manna komu í eitt-
hvert þeirra 500 safna, sem era
landinu. Samtals er hér um að
ræða 17,9 milljónir manna eða
nákvæmlega sama fjölda og tók
þátt í starfsemi þjóðkirkjunnar og
fríkirkjunnar á árinu 1987.
Ef tekið er tillit til starfsemi
annarra, kristinna trúfélaga er
augljóst, að kirkjulífið er miklu
umfangsmeira en öll önnur menn-
ingarstarfsemi í landinu.
Heilsuleysi Svía veldur at-
vinnurekendum áhyggjum
Þrátt fyrir langlífi þjóðarinnar er Qöldi veikindadaga hvergi meiri
StokkhóLmi. Reuter.
SVÍAR, sem verða allra karla
og kerlinga elstir, eru einnig
þeir, sem oftast e_ru frá vinnu
vegna veikinda. Á árinu 1987
tapaðist 23,1 vinnudagur að
jaftiaði á hvern launþega vegna
sjúkleika og bendir allt til, að
heilsufarinu hafi hrakað tölu-
vert síðan, sænskum atvinnu-
rekendum til mikillar áhyggju.
etta er mjög alvarleg þróun,
sagði Per Zetterquist, tals-
maður sænsku vinnuveitendasam-
takanna, SAF. „Þótt menn meini
vel með auknum tryggingabótum,
sumarleyfi og bamsburðarleyfí þá
era takmörk fyrir því hvað fyrir-
tækin geta þolað mikið vinnu- og
framleiðnitap."
Þegar Svíinn
leggst veikur sér
tryggingastofnun-
in um að borga
honum 90% fyrri launa allt frá
fyrsta degi og langflest fyrirtæki
sjá um þau 10%, sem upp á vant-
ar. Samkvæmt upplýsingum frá
tiyggingunum námu sjúkrabætur
á síðasta ári 20 milljörðum skr.
eða 157 milljörðum ísl. kr. Þegar
svo þess er gætt, að til stendur
að auka sumarleyfíð um viku, úr
fímm í sex, getur útkoman orðið
sú, að hver einasti launþegi verði
frá vinnu í rúmlega níu vikur á ári.
Þegar skoðaðar eru veikinda-
skýrslur fyrir nokkur ár kemur í
ljós, að samband virðist vera með
atvinnuleysi á hveijum tíma og
fjölda veikindadaga. Á árinu 1983
þegar 3,5% vinriufærra manna
vora án atvinnu vora veikindadag-
ar að meðaltali 18 á hvern laun-
þega en síðan hefur þeim fjölgað
og hafa aldrei verið fleiri en nú
þegar atvinnuleysið er 1,1%. Tals-
menn verkalýðsfélaga og vinnu-
veitendur líta hins vegar ólíkum
augum á ástæðuna.
„Krafan um aukna framleiðni
á uppgangstímum í iðnaði veldur
því, að fólk gengur of nærri sér.
Af því stafa veikindin og vinnu-
slysin,“ sagði Jan Edling, starfs-
maður sænska alþýðusambands-
ins. Vinnuveitendur halda því hins
vegar fram, að all-
ar þessar bætur
ýti undir fjarvistir
og „veikindi".
Þrátt fyrir fleiri
veikindadaga hafa lífslíkur Svía
aukist jafnt og þétt á síðustu ára-
tugum. Til jafnaðar verða sæn-
skir karlmenn 74,2 ára og konurn-
ar 80,2. Era Svíar í hópi þriggja
langlífustu þjóðanna.
Skammvinnu veikindin
verst
Það era einkum skammvinn og
skyndileg veikindi, sem eru at-
vinnurekendum erfíðust, enda
geta þeir ekki búið sig undir þau
í veikindafríi?
og neyðast því til að hafa fleiri á
launaskrá en annars væri þörf
fyrir.
I nýrri skýrslu, sem er að koma
út frá vinnuveitendasambandinu,
er einmitt bent á þessa nýju þró-
un, þessi fyrirvaralausu og
skammvinnu veikindi meðal Svía.
Þar kemur fram, að algengast sé,
að fólk leggist í fjóra daga og
virðist sem tiltölulega lítill hópur
eigi stóran hluta veikindadag-
anna. 1987 var helmingur sæn-
skra launþega veikur í Qóra daga
eða skemur en 35% aldrei.
BAKSVID