Morgunblaðið - 22.01.1989, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ATVIMIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1989
#■
t
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Bifvélavirkjar
Stórt bifreiðaumboð óskar eftir góðum bif-
vélavirkjum. Góð laun í boði fyrir rétta menn.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
merktar: „B - 2633“.
Nýútskrifaður
byggingaverkfræðingur úr Háskóla íslands
óskar eftir vinnu fram að hausti.
Ýmislegt kemur til greina.
Upplýsingar í síma 622453.
Offsetljósmyndari
Góðu fyrirtæki vantar góðan og vanan offset-
Ijósmyndara, sem á auðvelt með að vinna
með öðrum, til starfa við litgreiningu (scanner).
Umsóknir, sem tilgreina starfsreynslu og
launakröfur, skal senda til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir kl. 12.00, fimmtudaginn 26. janúar
1989, merktar: „Litgreining 1“.
Farið verður með allar umsóknir er berast
sem trúnaðarmál.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Unglingadeild
Við deildina er laus til umsóknar 50% staða
félagsráðgjafa.
Reynsla af starfi með unglingum æskileg.
Félagsráðgjafamenntun eða sambærileg
menntun á sviði uppeldis- og/eða félagsmála
áskilin.
Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri í síma
622760 og yfirmaður fjölskyldudeildar í síma
25500.
Umsóknum skal skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, á eyðu-
blöðum sem þar fást, fyrir 1. febrúar.
Laus störf
Sérverslun (12)
Falleg sérverslun í Hafnarfirði óskar að ráða
afgreiðslumann til starfa sem fyrst. Vinnutími
frá kl. 13.00-18.00. Vinna á laugardögum
er ekki skilyrði. Lögð er áhersla á snyrti-
mennsku, þjónustulund og góða framkomu.
Símavarsla (16)
Heildsölufyrirtæki leitar að manni til starfa
við símavörslu, heilsdagsstarf, nýtt skipti-
borð, góð vinnuaðstaða. Ýmis tilfallandi verk-
efni, s.s. póstur, skjalaröðun o.fl. fylgir síma-
vörslunni.
Sendill (25)
Þjónustufyrirtæki í Reykjavík leitar að sendli
til að annast sendiferðir og ýmis létt störf,
vinnutími frá kl. 10.00-14.15. Starfinu fylgja
innkaup og framreiðsla á léttum hádegis-
verði. Nauðsynlegt að hafa bíl. Laust strax.
Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Viosamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., á eyðu-
blöðum sem liggja. frammi á skrrfstofu okk-
ar, merktar númeri viðkomandi sta.rfs.
Skrifstofumaður
Meinatæknafélag íslands óskar eftir starfs-
manni í 50% starf á skrifstofu félagsins.
Reynsla í skrifstofustörfum æskileg.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist Meinatæknafélagi ís-
lands, pósthólf 5435, 125 Reykjavík fyrir 1.
febrúar.
Svæfingalæknir
Staða svæfingalæknis við sjúkrahúsið í
Keflavík er hér með auglýst laus til umsókn-
ar. Um er að ræða 80% stöðu með bakvökt-
um. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið
störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veita framkvæmdastjóri
og yfirlæknar sjúkrahússins í síma 92-14000.
Framkvæmdastjóri.
„Page-maker“
Við leitum að starfsmanni til afleysinga-
starfa, sem hefur reynslu af notkun „page-
maker" forrits við uppsetningu á texta. Nauð-
synlegt er að viðkomandi hafi auga fyrir upp-
setningu og útliti- texta.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á
skrifstofunni frá kl. 9-5.
Afleysmga- og ráðnmgaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavörðustig la - 101 Reykjavik - Simi 621355
Vantar
Sölumenn
til starfa hjá heildverslunum og framleiðslu-
fyrirtækjum. Sala á:
★ Matvælum.
★ Tæknivörum til matvælaframleiðslu.
★ Hljómflutningstækjum.
★ Heimilistækjum.
★ Byggingavörum.
★ Fatnaði og vefnaðarvöru.
Leitað er að reyndum sölumönnum sem
geta starfað sjálfstætt. Vöru- og markaðs-
þekking nauðsynleg. Störfin fela í sér alhliða
sölu í gegnum síma og með persónulegum
heimsóknum, ennfremur innkaup og sam-
skipti við erlenda aðila.
Ritara
til starfa hjá heildverslunum og þjónustufyrir-
tækjum. Starfssvið:
★ Ritvinnsla.
★ Erlendar bréfaskriftir.
★ Skjalavarsla.
★ Gjaldkerastörf.
★ Móttaka
★ og fleira.
Leitað er að riturum á aldrinum 25-30 ára.
Versiunarmenntun. Góð enskukunnátta og
reynsla af skrifstofustörfum skilyrði.
Nánari upplýsingar veitir Holger Tórp á skrif-
stofu okkar kl. 10-12 og 13-15.
Skriflegum umsóknum skal skilað fyrir 27.
janúar.
Starfsmannastjórnun
Ráðningaþjónusta
FRUITI
Húsasmíðameistari
óskar eftir vinnu á eigin vegum, t.d. við
parketlögn, hurðarísetningar, uppsetningu á
innréttingum, minni háttar nýsmíði eða við-
hald.
Upplýsingar í síma 45885. Eggert.
félagsmAlastofnun reykjavíkurborgar
Heimilishjálp
Starfsfólk vantar til starfa við heimilishjálp.
Vinnutími eftir samkomulagi allt niður í 4 tíma
á viku.
Upplýsingar í síma 18800.
Iðjuþjálfi
Kristnesspítali óskar að ráða iðjuþjálfa að
nýrri endurhæfingadeild spítalans.
Iðjuþjálfuninni er ætlað pláss í rúmgóðu og
björtu húsnæði í fögru umhverfi. í upphafi
felur starfið í sér uppbyggingu á starfsem-
inni en síðan stjórnun hennar.
Upplýsingar um starfið veitir framkvæmda-
stjóri í síma 96-31100.
Kristnesspítali.
Sjúkrahúsið á Blönduósi
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Sjúkrahúsið á Blönduósi vill ráða í eftirtaldar
stöður:
★ Hjúkrunarfræðinga, bæði í fullt starf og
hlutastarf.
★ Sjúkraliða frá 1. mars.
Leitið upplýsinga um hvað við höfum að
bjóða ykkur hjá hjúkrunarforstjóra í símum
95-4206 og 95-4528.
NÁMSGAGNASTOFNUN
Sundaborg t - 104 Reykjavík - Símar 681888 og 681837
PÓSTHÓLF 5192 ■ 125 REYKJAVÍK
Tölvuvinnsla
- útgáfustörf
Námsgagnastofnun óskar eftir starfsmanni
til útgáfu- og ritarastarfa.
Helstu verkefni eru:
- Hreinritun handrita.
- Uppsetning og umbrot texta til prentunar,
unnið er á umbrotsforritið Page Maker.
- Önnur verkefni er tengjast útgáfustörfum.
Einnig þarf viðkomandi að geta sinnt almenn-
um ritarastörfum, s.s, bréfaskriftum á
íslensku, ensku og dönsku.
Leitað er að reglusömum starfsmanni með
reynslu og þekkingu af setningu handrita og
slíkri vinnu.
Kunnátta í meðferð Macintosh tölvu og for-
ritanna Word og Page Maker er nauðsynleg,
svo og góð kunnátta í íslensku, ensku og
dönsku. *,
Viðkomandi þarf að geta hafið störf hið
fyrsta.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og starfsreynslu sendist Námsgagnastofn-
un, Laugavegi 166, pósthólf 5192, 125
Reykjavík, fyrir 1. febrúar nk.
Farið verður með allar upplýsingar sem trún-
aðarmál.