Morgunblaðið - 05.02.1989, Side 2

Morgunblaðið - 05.02.1989, Side 2
mm 2 FRÉTTIR/INNLENT c*«t HAúSKEr? .3 siuoAcnjni'ítTs ŒaAjavíuoaoM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1989 Við munum ljúka þessu um helgina - segir Steingrímur Hermannsson „VIÐ munum Ijúka þessu nú um helgina," sagði Steingrimur Hermanns- son forsœtisráðherra við blaðamann Morgunblaðsins laust eftir hádegi í gær, að afloknum löngum fundi sex ráðherra ríkisstjóraarinnar. Fundurinn hófst kl. 9 í gærmorgun og kl. 11.30 gengu ráðherrar Al- þýðuflokksins af fundi, tál þess að bera ákveðin ágreiningsefiii undir þingflokk Alþýðuflokksins, en aðrir ráðherrar funduðu áfram. eir sem sátu þennan fund voru Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Sigurðsson, ráðherrar Alþýðu- flokks, Ólafur Ragnar Grímsson og Svavar Gestsson, ráðherrar Alþýðu- bandalags, og Steingrímur Her- mannsson og Halldór Ásgrímsson, ráðherrar Framsóknarflokks. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins miðaði vel í samkomulagsátt á þessum vinnufundi ráðherranna í gærmorgun, en ráðherrar Alþýðu- flokksins gátu ekki fallist á ákveðna þætti og viku af fundi til þess að bera ágreininginn undir þingflokk sinn. Fundur sömu ráðherra var að nýju boðaður kl. 15 i gær, en eins og áður segir kvaðst forsætisráð- herra ætla að ljúka þessu nú um helgina. Á sama tíma og ráðherramir sex funduðu í gærmorgun í fundarher- bergi forsætisráðuneytisins sátu þeir Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, Birgir Ámason, að- stoðarmaður viðskiptaráðherra, Þor- steinn Ólafsson, efnahagsráðunautur forsætisráðherra, og Már Guð- mundsson, hagfræðingur flármála- ráðherra, á fuhdi á efri hæð stjómar- ráðsins. Þeir vildu ekkert segja um fund sinn eða niðurstöður hans að honum loknum. Ljóst er að ekki er fullt samkomu- lag um það meðal þingmanna stjóm- arflokkanna að Borgaraflokkurinn gerist aðili að þessu stjómarsam- starfi. Þjóðviljinn greinir frá því ( frétt í gær að Hjörleifur Guttorms- son, þingmaður Alþýðubandalagsins, hafi lýst sig andvígan viðræðum við Borgaraflokkinn á þingflokksfundi í fyrradag. Borgaraflokkurinn: Morgunblaðið/Bjami Að leik ísnjónum Ákvörðun um Jjátttöku í ríkisstjóraiimi seinkar Selfoaai. „EINS og stendur eru ekki forsendur fyrir þvi að leggja málið fyr- ir aðalstjórn flokksins til endaniegrar ákvörðunar," sagði Júlíus Sólnes formaður Borgaraflokksins, við upphaf flokksráðstefiiu og aðalstjórnarfundar flokksins í gær, um stöðu viðræðna varðandi þátttöku Borgaraflokksins f ríkisstjóra. Hann sagði að stjómarflokk- arnir hefðu til skoðunar athugasemdir flokksins við sfðasta svar Steingríms Hermannssonar. Júlíus sagði að reiknað hefði ver- ið með því að unnt væri að taka ákvörðun á aðalstjómarfundinum um þátttöku í ríkisstjóm en nú væri eingöngu unnt að skýra frá gangi mála og fá fram viðbrögð aðalstjómarmanna. Það hefði verið illa farið með tímann í þessu máli og það væri sök stjómarflokkanna. Hann sagði að ef jákvæð við- brögð kæmu frá stjómarflokkunum á meðan á fundinum stæði þá væri unnt að hefja alvömviðræður í dag, sunnudag. Niðurstöður úr þeim við- ræðum mætti svo leggja fyrir þing- flokksfund og fund aðalstjómar á mánudagsmorgun til endanlegrar ákvörðunar áður en þing kæmi saman. „Við höfum náð saman í mörgum málum," sagði Júlíus. Hann sagði einnig að þótt borgaraflokksmenn hefðu ekki verið með í að móta efnahagsráðstafanimar þá vissi for- sætisráðherra um þeirra áherslur. — Sig. Jóns. Engar vísindaveiðar í ár gætu þýtt endalok hvalveiða Hafrannsóknastofiiun undirbýr nú síðasta hluta Qögurra ára hvalarannsóknaáætlunar sinnar. í sumar er fyrirhuguð umfangsmikil hvalatalning með skipum og flugvélum á Norður-Atlantshafi, í samvinnu við ýmsar þjóðir. Og einnig er gert ráð fyrir að veiddar verði 80 langreyðar og 10 sandreyðar, eins og á sí ðasta ári. Veiðamar eru mikilvægur hluti vísindaáætlunarinnar, því hún byggir ekki aðeins á líffræðilegum rannsóknum á ýms- um sýnum, heldur er öll rann- sóknaáætlunin fjármögnuð með hvalveiðunum. Hvalur hf. greiðir ákveðna upphæð í rannsóknasjóð fyrir hvem hval sem veiddur er og allur umframhagnaður, sem kemur af sölu hvalaafurða, rennur í þennan sjóð. Nú er mikill þrýstingur á stjórn- völd að gefa ekki út vísindaveiði- leyfi í sumar vegna áhrifa mót- mæla grænfriðunga í Evrópu og Bandaríkjunum á sölu á fískafurð- um okkar. Ráðherrar hafa raunar gefið í skyn að þetta komi til greina. Jóhann Sigurjónsson sjávarlíf- fræðingur hjá Hafrannsókna- stofnunar segir að auðvitað séu fyrirliggjandi gögn frá síðustu þremur árum, en verði vísinda- veiðunum hætt núna þýði það ein- faldlega að stofnunin muni ekki ljúka þeirri áætl- un sem hún ætl- aði að fram- kvæma. Slíkt muni auðvitað skaða rann- sóknaáætlunina, auk þess sem hætta væri á, að ekki fáist fjármagn til að ljúka öðrum rannsóknum, svo sem hvalatalningunni, sem íslendingar hafa haft frumkvæði að. Vorið 1990 mun Alþjóðahval- veiðiráðið meta á grundvelli fyrir- liggjandi rannsóknagagna, hvort hvalastofnamir þoli að banni við hvalveiðum í atvinnuskyni, sem staðið hefur frá árinu 1985, verði aflétt. íslensk stjómvöld Iíta svo á, að hvalir séu nýtanleg auðlind og stefna að því að sannfæra Al- þjóðahvalveiðiráðið um að aflétta hvalveiðibanninu. Og rannsóknir Hafrannsóknastofnunar miða að því að varpa ljósi á veiðiþol hvala- stofnanna í framtíðinni. Japan og Noregur hafa einnig gert sérstakt átak við rannsóknir á hvölum, sem hvort tveggja gera ráð fyrir vísindaveiðum. Þannig veiddu Norðmenn 30 hrefnur sl. sumar og ætla að veiða hrefnu aftur í sumar, en þeirra rannsókn- ir eru þó fyrst og fremst aðferða- fræðilegar. Jap- anir veiddu í fyrra rúmlega ~ 300 hrefnur í eftir Gu&mund Sv. Hermannsson Suður-íshafí og em nú að veiða svipaðan fjölda BAKSVID Niðurstöður í hvalatalningu ís- lendinga, Norðmanna, Færey- inga, Dana og Spánveija á Norð- ur-Atlantshafí 1987 benda til þess, að sögn Jóhanns Siguijóns- sonar, að langreyðastofninn telji milli 6.000 og 7.000 dýr, og hrefnustofninn um 20.000 dýr, sem þýði að þeir þoli vel ein- hveija veiði. Niðurstöður um sandreyði vom ekki marktækar þá, vegna þess að talningin fór fram á tíma þeg- ar sandreyðurin er ekki komin á miðin, og því verður lögð áhersla á sandreyði í leiðangrinum í sum- ar. Vísindnefnd hvalveiðiráðsins reynir sífellt að leggja heildarmat á hvalastofnana, þótt lítið sé um ný rannsóknargögn frá öðram þjóðum en íslendingum. Hafrannsóknastofnun stefnir að því að næsta vor liggi fyrir allar niðurstöður úr rannsóknum stofnunarinnar undanfarin Ijögur ár. Það er auðvitað augljóst, að þeim mun meiri upplýsingar sem íslenskir vísindamenn geta lagt á borð hvalveiðiráðsins, þeim mun meiri möguleikar em á að hval- veiðibanninu verði aflétt, og í því tilliti em hvalarannsóknirnar, og þar með veiðamar í sumar, mikil- vægar. En þótt þeir telji sig geta sýnt fram á að hvalastofnar þoli veið- ar, munu sjálfsagt aðrir líta svo á að heildarmati á stofnstærð hvalategunda sé ekki lokið, og leggja til að veiðibannið verði framlengt. Um það gæti orðið erfíð barátta, ef Islendingar telja sér á annað borð fært að stunda hvalveiðar í atvinnuskyni. Áróður grænfriðunga og al- menningsálit víða verður sjálfsagt áfram gegn hvalveiðum þótt sann- að sé að nóg sé af hvölum í sjón- um. Því má leiða líkur að því, að ef stjórnvöld ákveða að gefa ekki út leyfí fyrir veiðum í sumar, sé það ákveðin vísbending um, að hvalveiðar í atvinnuskyni verði ekki hafnar aftur hér við land. Sjávarafurðakynn- ing í Tókýó: Linda átti hug og hjörtu Japana Tókýó. Frá Hirti Gíslasyni, blaðamanni Morgunblaðsins. LINDA Péturs- dóttir, ungfrú heimur, dró á eft- irminnilegan hátt athyglina að ís- landi og islenzk- um sjávarafurð- um á mikilli mat- vælasýningu f Tókýó f gær. Linda átti hug og hjörtu flestra þátttakenda, sem voru hátt á ann- að þúsund. Þeir þyrptust f kring um hana til þess að fá eigin- handaráritanir, myndir og til að fá teknar myndir af sjálfiun sér með henni. Ingólfur Skúlason, framkvæmdastjóri Icelandic Fre- ezing Plants, dótturfyrirtækis SH f Grimsby, lýsti mikilli ánægju sinni með frammistððu Lindu og þá athygli, sem hún dró að fiskin- um frá fyrirtækinu. Matvælakynning þessi var á veg- um risafyrirtækisins Nidshirei, en það er stærst á sínu sviði í Japan og selur hundruð tegunda af matvæl- um, einkum frystum. Fyrirtækið kynnti í gær nýjungar í vöruúrvali sínu á þessu ári. Bar þar mikið á íslenzku afurðunum. Ingólfur Skúlason sagði að hér væri um að ræða afar áhugaverðan markað, sem gæti skilað fyrirtækinu mikilli sölu, gengi dæmið upp. Fulltrúar Nidshirei lýstu í samtali við Morgunblaðið mikilli ánægju með afurðimar frá íslandi og töldu mögu- leika þeirra hér á þessum stærsta fiskmarkaði heims verulega. Menn og minkar: Bílarnir fastir í Álftafirði Laugarhóli, Bjarnarfirði. MENNIRNIR sem eru að flytja 799 minka frá Borgarfirði vestur f ÖnundarQörð, og lentu f hrakn- ingum á SteingrímsQarðarheiði aðfaranótt fimmtudagsins, sátu fastir f Álftafirði f gærmorgun. Þeir bændumir Birkir Guðmunds- son á Hrauni í Önundarfírði og Bjöm Bjömsson á Þómstöðum á Ingjalds- sandi höfðu minkana á tveimur bflum. Þeir fylgdu bflalest yfir SteingrímsQarðarheiði á eftir snjó- ruðningstækjum frá Hólmavík eftir hádegið á föstudaginn. Snjóruðningstækin fylgdu bflalest- inni í Mjóafjörð, en snem þá við til Hólmavíkur. Bflalestin lenti síðan í erfíðleikum vegna ófærðar í Skötu- firði, og þegar komið var að mynni Álftaíjarðar snemma ( gærmorgun festust bflamir alveg. Snjómðnings- tæki héldu til móts við bílalestina frá ísafirði fyrir hádegi í gær. SHÞ Biluní prentvél VEGNA bilunar sem varð í prentvél Morgunblaðsins að- faranótt laugardags kom fylgi- blaðið Menning/Listir ekki út með blaðinu. Þessi bilun á hins i , vegar ekki að hafa áhrif á dreif- ingu Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.