Morgunblaðið - 05.02.1989, Page 35

Morgunblaðið - 05.02.1989, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ar ■ ^ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1989 35 KARLAR Sitthvað — karlmenn eða karlmenn Við gengum út að aftan. Ekki veit ég hvers vegna. Alger mistök. Þvi að móttökunefndin beið að framan. Ég sá hana strax. Ég sá líka, að hún sá okk- ur. Ég sá hana fórna höndum og taka á rás. Heil breiða af flaks- andi frökkum og barðastórum höttum. (Ah, svona eru þeir fyrir austan, hugsaði ég.) Ráð- herra, kona ráð- herra, aðstoðarráðherra, skrif- stofustjóri ráðherra, siðameistari ráðherra, sendiherrar, túlkar, fréttamenn, kvikmyndatöku- menn, hljóðupptökumenn — allir á harðahlaupum. Vélin úr fókus, hoppandi á öxl kvikmyndatöku- mannsins. Hljóðneminn gapandi upp í vindinn. Það rigndi. Við vorum að stíga i neðsta þrepið. Sumarfagur blómvöndur flaug beint í fangið á mér. Allir fóru að hlæja. Það hafðist. (Mér fannst ég hafa komið þarna áð- ur.) Að þessu sinni var ég við öllu búin. Með varalitinn (vopnið) i vasanum og í skósíðu pilsi — enda hávetur. Hér voru heldur engir hermenn. Hér voru aðeins frakkaklæddir borgarar. Þeir horfðu djúpt í augu viðmælenda (kvennanna) undan slútandi hattbörðum. Með skegg á efri vör og óræðan svip í andlitinu. (Svei mér þá — maður fékk í hnén.) — Og ekki nóg með það. Ég ætlaði að heilsa með handabandi (eins og venja er heima í Reykjavík). Þá gripu þeir fjálglega um hönd mína, horfðu enn fastar í augu mér og lutu fram yfir hana. Eg fann heitan andardráttinn hrislast upp eftir handleggnum. Skeggbroddarnir stungust mjúk- lega inn í hörund mitt. Varirnar staðnæmdust i kitlandi kossi. Þeir lyftu hægt höfði og horfðu í augu mér — með fyrirheit í aug- unum. (Hver hefði ekki fengið i hnén?) Eftir þijátiu og tvo kossa og þijátíu og tvö „uppörvandi" augnaráð stóð ég á brauðfótum og átti enga ósk heitari en að landar mínir færu að ganga með hatt. Og í huganum sagði ég „far- vel, Ameríka". Jafnvel borða- lagðir aðmírálar falla algerlega í skuggann af austur-evrópskum „sjarmörum" og „gentilhommes". Já, það er einsog ég segi — sitthvað er karlmaður og karl- maður. Faðir Melkíors þvingar móðurina til þess að senda hann á betrunar- hæli. Fanney Sigurðsdóttir og Bogi Birgisson. Thalía, leikfélag Menntaskólans við Sund, er um þessar mundir að sýna í Hlaðvarpanum leikritið „Vorið kallar“ eftir þýska rithöf- undinn Frank Wedekind, í þýð- ingu Hávars Siguijónssonar. Saga verksins gerist fyrir síðustu aldamót og fjallar um ungt fólk, ástir þeirra og örlög. Tekist er á við stórar spumingar en er fátt um svör hjá manneskjum sem eru rétt að vakna til lífsins og skynja að holdið hafi eigin sál ... og ekki er samúðin mikil hjá þeim eldri. í leit að tilgangi lífsins verða átök feg- urðar og ljótleika, ljóss og myrkurs andstæður leiksins, þar sem ógæfan tekur völd. En vonin lifír, meðan vorið kallar. Verk Wedekinds voru ekki flutt óritskoðuð meðan hann var á lífí. „Vorið kallar“ var til dæmis bannað í Bretlandi til ársins 1963. Leikritið er skrifað árið 1890 er Wedekind er aðeins 26 ára að aldri. Ástin, kynlíf, fóstureyðing, fordæming, sjálfsmorð og dauði eru meðal áhersluþátta verksins. Sum atrið- anna þóttu bæði nærgöngul og op- inská á þeim tíma og þykja jafnvel enn í dag. Leikstjóri er Þórdís Amljótsdóttir leikari og er þetta hennar fyrsta uppfærsla. Hun var spurð að því hvemig hafi gengið að æfa þetta umdeilda verk. „Leitin að verkefni stóð stutt því ég vissi af þessu leik- riti og það komst aldrei úr huga mér. Eg hafði verið með átta vikna leiklistamámskeið í skólanum og var því búin að kynnast krökkunum áður, og átti því auðveldara með að velja í hlutverk. Það var þrauta- vinna fyrir þau að ná þessu í byij- un, þeim fannst þetta erfítt og skildu ekki allt en þau hafa öll náð persónulegum árangri. Nemend- umir sem leika unga fólkið era á hárréttum aldri, þeir hafa ennþá æskuna í sér,“ segir Þórdís. Um fjórtán leikarar taka þátt í sýningunni og leika sumir fleiri en eitt hlutverk. Upphafsatriði verks- í lok leikrits ásakar Melkíor sjálfan sig fyrir dauða ástmeyjar sinnar. En vorið kallar ... ins er spunnið af leikhópnum og er textinn í sýningunni töluvert styttur, þar fyrir utan sem aðeins brot úr tveimur nærgöngulum atrið- um er leikið. Aðalleikarar era þau Eiríkur Sigurðsson, í hlutverki Mel- kíors, sem ástfangið ungmenni, Halldór Gylfason leikur hinn kúg- aða og bælda og Jónína Þórólfs- dóttir leikur Wendlu, fómarlamb sakleysis. Tónlistin er þýsk og frá sama tíma og verkið er skrifað. „Vorið kallar" var sýnt hérlendis er leikfélag Menntaskólans í Kópa- vogi setti það á ijalirnar fyrir sex áram. SKEMMTIKRAFTUR OG FATAHÖNNUÐUR Alltaf í farar- broddi Elsa Lund, búningahönnuður með meiru, er orðin þjóðfræg persóna. Um þessar mundir hef- ur hún mörgum hnöppum að hneppa og er meðal annars á leið á sviðið í Þórscafé. Sumir halda því fram að hún sé að stæla Ragnhildi Gísladóttur, söngkonu, aðallega hvað hárgreiðslu varð- ar, en þá ekki síst sönginn sem Elsa segist leggja stund á þessa dagana. Nei, Guð,“ skrækir Elsa sár- ff móðguð. „Ég var komin með þessa greiðslu löngu á undan Röggu, ég er sko alltaf á undan í öllu, ég er aðalpæjan. Ég er að læra að syngja, það er rétt, eða sko auðvitað kann ég að syngja, þetta er bara smá raddbeiting, ekkert stórmál, ég er með það fallega rödd,“ segir Elsa pæja. En hvað með hönnunina? „Nú, ég er auðvit- að að hanna búninga á allt liðið sem á að skemmta í Þórscafé. Oh, mér finnst svo gaman þegar mikið er að gera.“ Elsa Lund í essinu sinu. Heyrst hefur að Elsa hafí lent í smáævintýri þama í Færeyjum á dögunum, og jafnvel orðið fyrir ein- hveijum vonbrigðum. Vill hún tjá sig um það? Það koma vöflur á aðalpæjuna. „Ha, já, það var bara smárómans. Nei, ég læt ekkert uppi — þetta var soldið framhlaup hjá mér. Æ, ég er alltaf svo snögg til og fljótfær. Ég ætla að vera,’ varkár á næstunni, svona/ í smátíma." En er hún nokkuð skotin í Hemma Gunn? „Nei, það er gam- alt bara — ja, það er kannski eitt- hvað pínu — en hann er öragglega— skotinn í mér,“ segir Elsa pempíu- lega og skrækir með óvenju kven- legum tilþrifum. Morgunblaðið/Bjami „Komdu með nokkrar vorrósir næst þegar þú kemur.“ Jónína Þór- ólfsdóttir í hlutverki Wendlu biður systur sína ínu (Ingibjörg Stefáns- dóttir) þessarar bónar. Ljósmyndastofa Gunnars Irigimarssonar BRÚÐHJÓN VIKUNNAR Andleg’ verðmæti eru mikilvægust Brúðhjón vikunnar að þessu sinni eru Garðár Jóhannsson og Fríður Sólveig Hannesdóttir, búsett í Hafnarfirði. Þau vora gefín sam- an í Bessastaðakirkju þann 7. jan- úar síðastliðinn. Séra Bragi Frið- riksson gaf saman. * Eg sá hana fyrst í dansskóla fyrir mörgum árum. Hún dró að sér athygli mína strax þá, það var eitthvað öðruvísi við hana,“ segir sá nýgifti. „Mér fannst hann svo traustvekjandi og myndarleg- ur,“ segir Fríður um sama atburð. Leið síðan langur tími fram að því að þau fóra að hittast reglu- lega. „Hjónabandið tengir okkur saman. Það má ekki gleyma því að presturinn blessaði okkur og heimilið og þeim orðum gleymir maður aldrei," segir Garðar. „Það virðist vera voða mikið feimnismál að vera trúaður í dag. Ég hef orðið vör við að fólk haldi að eitt- hvað sé að — sem þarf alls ekki að vera — ef maður er leitandi í trú sinni. Ég les stundum hluta í Nýja testamentinu, kristin trú er okkar trú. En við föram sjaldan Brúðhjón vikunnar Garðar Jóhannsson og Fríður Sólveig Hannesdóttir. - Þau giffcu sig Garðar Jóhannsson og Fríður Sólveig Hannesdóttir Hér með er óskað eftir nöfhum þeirra sem gengið hafa í hjónaband nýverið. Vinsamlegast hringið í sima 691162 á skrifstofu- tíma eða sendið upplýsing- ar um nöfa brúðhjóna og brúðkaupsdag, ásamt símanúmeri. Umslagið skal merkt: Morgunblaðið „Fólk í fréttum" Pósthólf 1551, 121 Reykjavík. í kirlqu og eram alls ekki neitt ofstækisfólk," segir Fríður. Það hefur sem sagt atvikast þannig að við eram komin yfír í hreinar trúaramræður og því er rétt að spyija um trúarlegt gildi kirkjubrúðkaups. „Við vildum gera þetta með pompi og prakt, það er reyndar svolítið tískufyrir- brigði núna. En af hveiju er fólk að gifta sig í kirkju ef það kveðst ekki vera trúað? Það finnst mér vera rangt. Maður er að staðfesta heit sitt, hjónaband í kristinni trú. Sumt við kirkjubrúðkaup okkar á svo sem ekkert skylt við kristna trú, til dæmis sá siður að henda gijónum yfir brúðhjónin. Það er strangheiðið fyrirbæri og eru gijónin fijósemistákn," segir Fríður. „Trúin boðar meðal annars samheldni, hún skiptir miklu máli. Fólk þarf að gefa sér tíma fyrir hvort annað. Fólk ætlar sér allt of mikið af veraldlegum gæðum og týnir kannski sjálfu sér og hæfileikanum til þess að tala sam- an á þeim áram sem það baslar fyrir húskofa og tækjum. Oft vill maður falla í þá gry§u að hugsa um veraldleg gæði — en andleg verðmæti era mikilvægust," sagði Fríður og ekki skal efast um þau lokaorð. eftír Bryndísi Schram LEIKLIST Færðu mér vorrósir næst...

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.