Morgunblaðið - 11.03.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.03.1989, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B OG LESBOK 59. tbl. 77. árg.__________________________________LAUGARDAGUR 11. MARZ 1989_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Bandaríkin: Minnsta at- vinnuleysi í fímmtán ár Washington, London. Reuter. ATVINNULEYSI í Bandaríkjun- um hefur ekki verið minna í 15 ár, samkvæmt upplýsingum bandaríska atvinnumálaráðu- neytisins, sem birtar voru í gær. í febrúarmánuði voru 5,1 prósent vinnufærra manna án atvinnu og hafði sú tala lækkað um 0,3 pró- sent frá í janúar. Gengi Bandaríkjadollars hækk- aði er tölur þessar voru birtar og fengust fyrir hann 1,8640 vestur- þýsk mörk og 129,45 japönsk jen síðdegis í London samanborið við 1,8575 og 129,10 er gjaldeyrisvið- skipti hófust þar í borg í gær. Um 6,33 milljónir Bandaríkja- manna voru án atvinnu í síðasta mánuði samanborið við 6,72 millj- ónir í janúar. Tæplega 63 prósent þjóðarinnar voru á vinnumarkaðin- um og hefur það hlutfall aldrei ver- ið hærra. Samkvæmt fyrrnefndum upplýs- ingum fengu 289.000 manns vinnu í febrúarmánuði og voru öll þau störf á vettvangi þjónustugreina. Samdráttar varð hins vegar vart á sviði byggingar- og framleiðsluiðn- aðar þar sem rúmlega 55.000 manns misstu störf sín í febrúar. A síðasta ári dró ört úr atvinnuleysi í Bandaríkjunum og hafa menn haft áhyggjur af því að verðbólga gæti siglt í kjölfarið. Seðlabanki Bandaríkjanna hefur hækkað vexti af skammtímalánum um rúm þrjú prósent á undanfömum 12 mánuð- um til að slá á þensluáhrifin. Þota ferst í Kanada Óvíst um manntjón Dryden í Kanada. Reuter. ÞOTA frá flugfélaginu Air Ontario hrapaði i gær i af- skekktu, skógivöxnu og snævi þöktu landsvæði i Kanada, skammt frá smábænum Dryd- en í Ontario. 65 farþegar og Qögurra manna áhöfn voru um borð en en ekki var ljóst hve margir höfðu farist er blaðið fór í prentun. Þotan var af gerðinni Fokker F-28. Útvarpsstöð í héraðinu sagði að björgunarmenn sem komust á staðinn á vélsleðum hefðu grafíð 45 manns úr brak- inu. Talsmaður flugfélagsins sagði að eldur hefði komið upp í þotunni. Slysið varð skömmu eftir flug- tak frá fáfömum flugvelli og hrapaði þotan í um eins kfló- metra fjarlægð frá brautarenda, að sögn heimildarmanns á staðn- um, Jacqueline Saville. Hún sagði að verið væri að ryðja braut að slysstaðnum með jarð- ýtu. Þotan var á leið frá Thund- er Bay í Ontario til Winnipeg með viðkomu í Dryden. George Bush: Dick Cheney verði landvarnaráðherra Indianapolis, Washington. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjafor- I aðspurður að hann gæti ekkert tjáð seti tilneftidi í gærkvöldi fúll- sig um ummæli Quayle þar sem trúadeildarþingmanninn Dick I hann hefði hvorki séð þau eða heyrt. Cheney frá Wyoming í embætti landvarnaráðherra. Á fímmtu- dagskvöld haftiaði öldungadeild þingsins tilneftiingu Johns Tow- ers í embættið vegna ásakana um meintan drykkjuskap, kvennafar og óeðlileg tengsl við hergagnaiðnaðinn. var skrifstofustjóri Geralds Fords forseta 1975 - 1976 og var kjörinn á þing 1978. Hann er talinn njóta virðingar og vinsælda jafnt hjá repúblikunum sem demókrötum og nær fullvíst að tilnefning hans verði samþykkt af þinginu. Dan Quayle, varaforseti Banda- ríkjanna, sagði í gær að demókratar í öldungadeild Bandaríkjaþings hefðu viljað grafa undan Bush Bandaríkjaforseta með því að greiða atkvæði gegn því að John Tower yrði skipaður vamarmála- ráðherra. Aðfarir þeirra gegn Tow- er hefðu minnt á ofsóknir McCart- hys öldungadeildarþingmanns gegn meintum kommúnistum á sjötta áratugnum. Bush forseti, sem hefur mælt með sáttfysi á báða bóga, sagði Samningsdrög Samstöðu og pólskra stjórnvalda: Afstaða miðstjórnar komm- únistaflokksins enn talin óljós Talsmenn Samstöðu segja einsflokkskerfið á undanhaldi Moskva: Rakstur bannaður Moskvu. Reuter. HÁRSKERUM í Moskvu hefúr verið bannað að raka við- skiptavini sína vegna hættu á þvi að rakhnífar, sem ekki hafa verið dauðhreinsaðir, beri alnæmissmit milli manna, að sögn sovéska dagblaðsins Komsomolskaja Pravda í gær. Sovésk yfírvöld hafa æ meiri áhyggjur af útbreiðslu alnæmis og þykir þarlendum sérfræðing- um sem ekki hafí verið fundnar heppilegar aðferðir til að hefta hana. Fyrir nokkrum árum var sjúkdómurinn sagður „kapí- talfekt fyrirbrigði". Óttast er að alnæmi breiðist hratt út á næstu árum í Sov- étríkjunum vegna skorts á ein- nota lyfjasprautum og veijum. Reuter 30 árfrá uppreisn Tíbeta Lögreglumenn handtóku fjölda fólks á götum Lhasa, höfuðborgar Tíbets, í gær en þá voru liðin 30 ár frá misheppnaðri uppreisn Tíbeta gegn jrfírráðum Kínverja í landinu. Að sögn erlendra sjónarvotta, sem rætt var við símleiðis, var að öðru leyti kyrrt í borginni. Andleg- ur leiðtogi Tíbeta, Dalai Lama, hefur hvatt 40 þjóðarleiðtoga um allan heim, þ. á m. George Bush og Míkhafl Gorbatsjov, til að fá Kínveija til að aflétta herlögum í Lhasa. Á myndinni sjást tíbetskir útlagar í Nýju-Delhí hrópa slagorð gegn Kínveijum. Varsjá. Reuter. Daily Telegraph. EFTIR 45 ára einræði kommúnista í Póllandi virðast leiðtogar flokks- ins reiðubúnir að taka fyrstu skrefín í átt til lýðræðis með því að bjóða stjórnarandstöðuöflum ákveðinn fjölda sæta á þinginu og jaftiframt að kosningar til fyrirhugaðrar öldungadeildar verði lýðræðislegar. Vafi leikur enn á þvi hvort miðstjórn flokksins muni samþykkja tillög- ur þessa efnis á væntanlegum fúndi sínum í næstu viku. Leiðtogar flokksdeilda utan höfúðborgarinnar lýstu fyrr í vikunni yfír andstöðu við ftjálsar kosningar til öldungadeildarinnar. Jacek Kuron, einn af þekktustu ráðgjöfúm Samstöðu, hinna bönnuðu verkalýðssamtaka, sagði í gær að einsflokksríkið væri að víkja fyrir riki allrar þjóðarinnar. Óljóst er hvert verður valdsvið öld- ungadeildarinnar en talið að hún eigi að gegna eins konar eftirlitshlutverki og fái takmarkað neitunarvald gagn- vart þjóðþinginu, Sejm, í efnahags- og félagsmálum ásamt mannrétt- indamálum. Kveðið er á um viður- kenningu Samstöðu og gert ráð fyrir að ríkiseinokun fjölmiðla verði aflétt, sjálfstæði dómstóla aukið og lýðræði komið á í sveitarstjómum. Loks er áformað að forseti landsins fái víðtækt framkvæmdavaid og hann skuli kjörinn af báðum þingdeildun- um. Kommúnistum verður tryggður meirihluti í Sejm. Breskur sérfræðingur í málefnum Austur-Evrópuþjóða, prófessor Nor- man Davies, telur að pólski komm- únistaflokkurinn sé með samkomu- laginu að undirrita sinn eigin dauða- dóm. „Það mætti lýsa þessu sem skipulegu niðurrifí kerfísins," sagði hann. Talið er að fyrirhugaðar um- bætur séu róttækari en stefna Ung- veija, sem taldir hafa verið fremstir í flokki Austantjaldsríkja hvað snert- ir umbætur. Því fer hins vegar fjarri að tryggt sé að samkomulagið hljóti brautargengi í miðstjóm pólska kommúnistaflokksins. „Mér sýnist að flokksforystan geri sér ekki fyllilega grein fyrir því hvert hún stefnir," sagði háttsettur, er- lendur stjómarerindreki. Ýmsir heimildarmenn álíta að kommúnistar séu klofnir í afstöðu sinni og ráðvillt- ir. Efnahagslegt hrun og almenn óánægja hafi þvingað þá til að láta undan í samningum við Samstöðu í von um að fá samtökin til að styðja efnahagsumbætur. Sterk öfl innan flokksins eru sögð vona að áður- nefndar breytingar leiði til þess að völd flokksins eflist. Andrzej Gwiazda, sem áður var náinn samverkamaður Lech Walesa, leiðtoga Samstöðu, gagnrýndi samn- I ingsdrögin harkalega í gær. Sagði I að styrkja kommúnista í sessi og I hann að niðurstaðan gæti orðið til | sundra Samstöðu. Hópur finnskra hermanna í friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna á flugvellinum í Windhoek, höfuðstað Namibíu, í gær. Hlutverk þeirra og annarra gæsluliða verður að fylgjast með því að ákvæði friðar- samnings um sjálfstæði til handa Namibíu, fijálsar kosningar og brottflutning suður-afrískra hermanna frá landinu verði haldin. Skæruliðar SWAPO, frelsishreyfíngar blökkumanna í landinu, hafa um árabil barist gegn suður-afrískum yfírvöldum í Namibíu. Reuter Finnskir gæsluliðar í Namibíu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.