Morgunblaðið - 11.03.1989, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.03.1989, Blaðsíða 48
Fróðleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! LAUGARDAGUR 11. MARZ 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR. Félag íslenskra fræða fyrst til að boða verkfell FÉLAGAR í Félagi íslenskra fræða hafa samþykkt með miklum meirihluta atkvæða verkfall, sem heQast skal fimmtudaginn 6. apríl næstkomandi hafi samningar ekki tekist fyrir þann tima. Félagar vinna á ýmsúm söfiium ríkisins og munu Landsbókasafii, Þjóðskjala- safii og Þjóðminjasafii lokast, ef til verkfallsins kemur. Félag íslenskra fræða er fyrst aðildarfélaga Bandalags háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna (BHMR) til þess að samþykkja verkfall, en atkvæða- greiðsla stendur yfir í mörgum öðrum félögum. Gísli Ragnarsson, fulltrúi féiags- ins í Launamálaráði BHMR, sagðist í samtali við Morgunblaðið vænta þess að það yrði niðurstaðan hjá Jlestum félögum BHMR, að sam- þykkja að fara í verkfall. „Niður- staðan sýnir að fólk er orðið lang- þreytt á þeim kjörum sem það býr við. Þótt staða okkar til aðgerða sé ekki sterk, þá álítur fólk að þetta sé eina leiðin til þess að fá stjóm- völd til þess að ræða við okkur, en það hefur ekki gengið of vel til þessa,“ sagði Gísli. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í félaginu var sú að 28 eða 77,8% voru fylgjandi verkfallsboðun, 7 eða 19,4% voru á móti og einn seðill var auður. 36 voru á kjörskrá og 36 greiddu atkvæði. Félagið hefur einu sinni áður boðað verkfall. Það var vorið 1987, en þá tókust samn- ingar degi áður en verkfall skyldi hefjast. Nemendur úr efii bekkjum Árbæjarskóla: Misþyrmingar tekn- ar upp á myndband Malið hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins Rannsóknarlögregla ríkisins hefúr nú til meðferðar mál nokkurra nemenda í efri bekkjum Árbæjarskóla, sem talið er að hafi mis- þyrmt skólafélaga sínum og fest atganginn á myndband. Viktor Guðlaugsson skólastjóri staðfesti i samtali við Morgunblaðið að mál af þessu tagi hefði komið upp í tengSlum við ákveðna nemendur skólans og væri til meðferðar hjá lögreglu. Skólastjórinn sagði að meðal annars væri verið að kanna hvort myndbandið hefði verið sviðsett að hluta eða öllu leyti. Hjá Rannsókn- Stórslas- aður eftir árás og mis- þyrmingar Krafist gæslu- varðhalds yfir þremur mönnum MAÐUR var fluttur mikið slasaður á sjúkrahús af heim- ili sinu í Grafarvogi í fyrri- nótt eftir að þrír menn um tvítugt höfðu ráðist á hann og misþyrmt honum. Þeir hafa verið handteknir og hefúr RLR gert kröfú um að þeir verði látnir sæta gæslu- varðhaldi. Lögreglan var kölluð til á sjötta tímanum fyrrinótt og kom að manninum liggjandi í blóði sínu. Arásarmennimir voru þá enn á staðnum. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús. Hann var mikið slas- aður, en ekki í lífshættu. Rannsóknarlögreglan varð- ist í gær allra frétta af máli þessu og aðdraganda árásar- innar. arlögreglu ríkisins fengust engar upplýsingar um rannsókn þessa. Skólastjóri Arbæjarskóla sagði að engin vissa hefði fengist fyrir því hvort raunverulegur atburður hefði þama verið festur á mynd- band eða hvort um sviðsetningu hefði verið að ræða. Hann sagðist ekki vita til að áverkar hefðu sést á fómarlambinu. Skólastjórinn sagði að félagsráðgjafa skólans hefði verið falið að fjalla um mál viðkomandi nemenda. Morgunblaðið/RAX Volgur vinnustaður Bæjarstarfsmenn hafa verið vanir því að þurfa að beija, pjakka eða moka sér til hita við útivinnuna í ótíðinni undanfarið. En sumir eru heppnari en aðrir og það væsti ekki um hann þennan, sem var að gera við í hitaveitupotti á Hverfísgötunui. Sælusvipur- inn leynir sér heldur ekki, þar sem hann gægist upp úr volgri gufúnni. Skilagjald af bjórdósum: Innanlandsflugið: Flugleiðir óska eftir 20% hækkun FLUGLEIÐIR hafa óskað eftir 20% hækkun á fargjöldum í inn- anlandsflugi. Hækkunarbeiðnin verður ásamt fleiri slíkum tekin fyrir á fúndi í verðlagsráði í næstú viku, að sögn Georgs Ólafssonar verðlagsstjóra. Stéttarfélög leigu- og sendibif- reiðastjóra hafa óskað eftir 16% hækkun á aksturstöxtum og Eim- skipafélag íslands hefur óskað eftir 13% hækkun á flutningatöxt- um og þjónustugjöldum. Þá hefur Sementsverksmiðja ríkisins óskað eftir 9,6% hækkun á sementi og Kaupmannasamtökin farið fram á hækkun álagningar mjólkurvara. Margeir og Kortsnoj erujaftiir og efstir MARGEIR Pétursson og Viktor Kortsnoj eru jaftiir og efstir með 7 vinninga efltir átta um- ferðir á alþjóðlega opna skák- mótinu í Lugano I Sviss. Níunda og síðasta umferð verður tefld í dag. Andstæðingur Kortsnojs verður stórmeistarinn Knaak, sem er nú í þriðja sæti á mótinu með 6,5 vinninga, en óljóst var í gærkveldi hver yrði andstæð- ingur Margeirs, þar sem margir skákmenn voru með 6 vinninga. Áttunda umferðin var tefld í gær og þá sigraði Margeir arg- entínska stórmeistarann Barbero eftir að skákin hafði farið í bið. Kortsnoj gerði jafntefli við franska stórmeistarann Laudier. Karl Þor- steins tapaði fyrir Piket og er með 4 vinninga fyrir síðustu umferðina. Milljónir króna innheimt- ar en ekkert endurgreitt FIMM KRÓNUR af verði hverrar bjórdósar sem seld er frá ÁTVR eru vegna fyrirhugaðs skilagjalds á dósirnar. Þetta gjald er reiknað inn í álagningu ÁTVR þar til Alþingi hefúr samþykkt lög um skilagjald sem sérstakan lið í verðinu. Hins vegar er ekki hægt að fá þetta skilagjald endurgreitt fyrr en lögin hafa verið samþykkt. Af þessum sökum hafa þegar verið innheimtar milljónir króna af einnota bjórdósum og marg- nota bjórflöskum sem hluti af álagningu ÁTVR og neytendur geta ekki fengið endurgreiddar. Björn Friðfinnsson aðstoðarmaður iðnaðar- ráðherra segir að frumvarpið verði lagt fram innan skamms og að líkindum samþykkt fyrir þinglok. Fyrsta mars seldust um 340 þús- und dósir af bjór. Hlutur skilagjalds- ins í þeirri sölu er því um 1,7 milljón- ir króna. Fyrstu þijá dagana seldist bjór fyrir um það bil 60 milljónir króna og má ætla að hlutur skila- gjaldsins í þeirri upphæð sé um þijár milljónir. Gústaf Níelsson skrifstofu- stjóri ÁTVR segir að ekki hafi verið gert ráð fyrir að ÁTVR tæki við dósunum og endurgreiddi skilagjald- ið, að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Bjöm Friðfinnsson segir að frum- varpið um skilagjaldið sé afar víðtækt og taki til allra íláta, ekki aðeins bjórumbúða. Þá verður í tengslum við það stofnað fyrirtæki um endurvinnslu og ráðstöfun ílát- anna. Ákveðinn hluti umbúðanna skilar sér ekki aftur, líklega á bilinu 35%-45% og mun frumvarpið kveða á um hvemig skilagjaldstekjum af þeim hluta verður varið. Björn segir að það verði mjög sennilega til að kosta hreinsun og söinun sorps á víðavangi. Fimm krónumar sem nú em inn- heimtar eru því í reynd ekki skila- gjald, heldur tekjur ÁTVR, þar til frumvarpið um skilagjaldið hefur verið samþykkt sem lög frá Alþingi. Verði skilagjaldið samkvæmt lögun- um sama upphæð, fímm krónur á dós, mun það koma inn í verðlagning- una sem sérstakur liður og koma í stað núverandi liðar í álagningu ÁTVR. Á meðan lög eru ekki komin um skilagjald verða menn því annað hvort að henda dósunum án þess að fá endurgreiðslu, eða safna þeim og geyma þar til lög um skilagjald hafa verið sett. Dósunum er hægt að fleygja í ruslið, eða ef menn vilja, er hægt að koma þeim í endur- vinnslu. Ásgeir Einarsson forstjóri Sindra hf. segist taka við dósum til endurvinnslu, en hins vegar sjái hann sér ekki fært að greiða fyrir þær eða safna þeim saman.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.