Morgunblaðið - 11.03.1989, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.03.1989, Blaðsíða 28
( MORGUNBLAÐK) (LAUGARDAGUK llJ MARZ lð89 Hlíðarfjall: „AÐSÓKN hefur verið mjög dræm það sem af er skíðavertíðinni og er engu öðru en tíðarfarinu um að kenna. Fyrir það fyrsta var ekki hægt að opna lyftur í fjallinu fyrr en 28. janúar sl. vegna snjóleysis og hefúr aldrei verið opnað svo seint. Síðan hefúr geng- ið á með bijáluðu veðri svo við hér í Hlíðarfjalli erum ekkert yfir okkur kátir með aðsóknina,“ sagði ívar Sigmundsson, for- stöðumaður Skíðastaða, í samtali var metaðsókn í Hlíðarfjall. í gær skein sól í heiði á Akur- eyri ogveðurspáin lofar góðu næstu daga. ívar sagði að skíðafæri væri með eindæmum gott í fjallinu nú. Veður væri eins og best gæti orðið svo hann átti von á fjölmenni í flal- lið um helgina. „Við höfum ekki fengið neina heila helgi í fjallinu það sem af er. Annaðhvort hefur þurft að loka lyftum á laugardegi eða sunnudegi vegna veðurs og öll við Morgunblaðið í gær. í fyrra skíðamót hafa farið í vaskinn. Elstu menn muna vart annað eins tíðar- far. Næstu dagar lofa þó betri tíð þar sem veðurfræðingar spá vel fyrir okkur norðanmönnum um helgina og svo líður að páskum sem við bindum miklar vonir við. Spáin er reyndar alltaf góð, það er bara veðrið sem klikkar," sagði ívar Sig- mundsson að lokum. Eftirlitsmaður hefúr verið ráðinn við barna- og byrjendalyftuna í HlíðarQalIi. Morgunblaðið/Rúnar Þór Iþróttaráð kannar kaup Suzuki-nemendur á æfíngu. Krakkarnir hjálpast gjarnan að á æfíng- um. Tónaflóð á góunni TÓNLEIKAR píanó- og fiðlunemenda Tónlistarskólans á Akureyri, sem læra eftir svokallaðri Suzuki-aðferð, verða haldnir i Alþýðuhús- inu, 4. hæð, á morgun, sunnudag. Tónleikarnir hefjast kl. 15.00 og þeim lýkur um kl. 17.00. Efnisskrá tónleikanna er fjöl- um frá þriggja ára og upp að ferm- breytt, segir í frétt frá Tónlistarskól- ingaraldri. Þá verður jafnframt boðið anum, allt frá ABCD og upp í ung- upp á kaffíhlaðborð í Alþýðuhúsinu verska dansa eftir Brahms. Þeir nem- á meðan á tónleikunum stendur. endur, sem fram koma, eru á aldrin- á öruggari barnalyftu ÍÞRÓTTARÁÐ Akureyrarbæjar kannar nú með hvaða hætti hægt er að auka öryggi yngstu notenda í skíðalyftum HlíðarQalls. íþróttaráð samþykkti nýlega að kanna nú þegar kostnað við kaup og uppsetningu á nýrri barnalyftu i Hólabraut, sem tekin yrði í notkun í byijun árs 1990. Ætla má að slík lyfta og uppsetning hennar kosti um 3,5 milljónir króna. Sú lyfta, sem fyrir er í fjall- inu, er 250 metra löng. Samkvæmt kröfu Vinnueftirlits ríkisins var togbrautinni lokað þann 8. febrúar sl. vegna banaslyss við sams konar togbraut í Garðabæ skömmu áður. Til að fá heimild til opnunar aftur þurfti að staðsetja eftirlitsmann við hveija togbraut auk þess sem herða þurfti á öryggi Ríkisstjórnin fiallar um sjávarútvegsbraut: Spurningin er hvort á Akureyri eigi að vera háskóli eða ekki við lyftuna. Ákveðið var að ráðast í þær öryggisráðstafanir, sem Vinnueftirlit ríkisins gerði kröfu um, og er áætlað að kostnaður við þær nemi að minnsta kosti 400 þúsundum króna. Hugmyndir voru uppi um að selja aðgang í þessa togbraut til að mæta kostnaðinum, en að skoðuðu máli var fallið frá því. Búið er að girða lyftuna betur af en áður auk þess sem viðbótar rafbúnaði hefur verið komið fyrir við lyftuna. Áður var rafbúnaður aðeins við efra hjól lyftunnar sem rauf strauminn ef farið var of langt upp. Nú hefur slíkum rafbúnaði verið komið fyrir við neðra hjól lyft- unnar einnig. Opið er á mánudögum og föstu- dögum frá 13.00 til 19.00, á þriðju- dögum, miðvikudögum og fímmtu- dögum frá 13.00 til 20.00 og um helgar frá kl. 10.00 til 17.00. - segir Jón Þórðarson, starfsmaður Háskólans á Akureyri EKKI hefúr enn fengist leyfi fyrir rekstri sjávarútvegsbrautar við Háskólann á Akureyri. Hinsvegar hafa málefni Háskólans á Akureyri borið á góma hjá ráðmönnum að undanfömu og búast stjóraendur Háskólans við að afstaða til fyrirhugaðrar sjávarút- vegsbrautar, sem áætlað er að verði þungamiðjan I starfi skól- ans, verði tekin á ríkisstjóraarfúndi nk. þriðjudag. „Ef sjávarútvegsfræðideildin verður ekki að veruleika, þá verður engin háskóli á Akureyri mikið lengur. Eins og skólinn er nú sam- ansettur, er hann of lítil rekstrar- eining til að standa sem stofnun. Grundvallarspumingin er sú hvort hér skuli vera háskóli eða ekki og hvort vilji ráðamanna sé sá að slík menntastofnun rísi utan höfuð- borgarsvæðisins," sagði Jón Þórð- arson, sem unnið hefur að undan- fömu við undirbúning sjávarútvegs- fræðinámsins á Akureyri. Einbýlishús á Akureyri Til sölu 5 herbergja einbýlíshús á einni hæð ásamt bílskúr. Skipti á eign á Reykjavíkursvæðinu. Upplýsingar gefnar á skrifstofunni virka daga frá kl. 9-1 8. Fasteignatorgiö, Glerárgötu 28, 2. hæð, sími 96-21967. Stofnkostnaður sjávarútvegs- brautar á fyrsta ári er áætlaður 26,5 millj. kr. og fer sá kostnaður upp í 48 millj. kr. á öðm ári, en lækkar í 21 millj. kr. á Qórða ári. Þessar upplýsingar koma fram í skýrslu nefndar, sem menntamála- ráðherra skipaði til að fy'alla um markmið námsins og framkvæmd. í nefndarálitinu segir að sjávarút- vegsbrautin muni styrkja Háskól- ann á Akureyri og skapa honum nauðsynlega sérstöðu. Húsnæði er að nokkru leyti fyrir hendi, en bæta þarf við tilraunastofum og vinnuað- stöðu nemenda og kennara. Það má gera með bráðabirgðahúsnæði. Markmið námsins er að mennta einstaklinga, sem hæfír eru til þess að gegna stjómunarstörfum innan sjávarútvegsins. Sjávarútvegsfræði er fjögurra ára nám. Almenn inn- tökuskilyrði eru stúdentspróf og tólf mánaða starfsreynsla. Sam- starf milli Háskólans á Akureyri og rannsóknastofnana sjávarút- vegsins getur leitt til gagnkvæms hagræðis og spamaðar. Þá segir að Akureyri og Eyjaflörður sé ákjósanlegt umhverfi fyrir nám í sjávarútvegsfræðum. Stutt sé í margbreytilegan sjávarútveg og góðir möguleikar séu á að skapa öflug tengsl við fyrirtæki í nágrenn- inu. Akureyii Til leigu í eitt ár er snyrtilegt skrifstofuhúsnæöi 71,2 fm aö stærö á götuhæö viö Ráðhústorg. Leig- ist helst meö öllum búnaði. Upplýsizigar í sízna 96-22152 kl. 10-12 og 14-16 á virkum dögum. Þættir úr Pétri Gaut FLUTTIR verða þættir úr Pétri Gaut, þjóðarleikriti Norðmanna, eftir Henrik Ibs- en f Möðruvallakjallara nk. mánudagskvöld, 13. mars. Dagskráin he&t kl. 20.30 og er aðgangur ókeypis. Flyljend- ur verða leikaramir Gunnar Eyjólfsson, Guðrún Þ. Steph- ensen, Baldvin Halldórsson, Halldór Björnsson og Þórdis Arnljótsdóttir. Það er Norræna félagið á ís- landi sem stendur fyrir dag- skránni. Leikfélag Reykjavíkur sýndi þijá fyrstu þætti verksins árið 1944 og var þá Gunnar Eyjólfsson efstur á hlutverka- skránni. Pétur Gautur er eflaust vel þekkt verk mörgum íslend- ingum í snilldarþýöingu Einars Benediktssonar frá árinu 1901, þar sem formið er samgróið efn- inu sem svörður holdi, segir í frétt frá Norrænu upplýsinga- skrifstofunni.á Akureyri. Nægur snjór er í Hlíðarfjalli núna - segir Ivar Sigmundsson, forstöðu- maður Skíðastaða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.