Morgunblaðið - 11.03.1989, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR ll. MARZ 1989
Skiptafiindur í þrotabúi Ávöxtunar:
228 kröfur að upp-
hæð 504 milljónir
Misfellur í rekstri tilkynntar ríkissaksóknara
FYRSTU sklptafundir í þrotabúum Ávöxtunar sf. og eigenda þess,
Péturs Björnssonar og Armanns Reynissonar, voru haldnir í gær.
228 kröfúm hefúr verið lýst að upphæð tæpar 504 miiljónir króna.
Flestar kröfúr eru frá eigendum svokallaðra ávöxtunarasamninga,
hin stærsta þeirrar tegundar upp á rúmar 10 milljónir króna. f grein-
argerð bústjóra segir að vegna gjaldþrotanna hafi komið fram mis-
fellur sem skylt sé að tilkynna ríkissaksóknara um og að miðað við
ársreikninga undanfarinna ára megi ráða að fyrirtækið hafi verið
rekið í langan tíma eftir að það var í raun orðið gjaldþrota. Saman-
lágðar eignir búanna þriggja eru metnar á 56 milljónir króna en
bústjórar gera mikla fyrirvara um endanlega niðurstöðu. Sigurmar
Albertsson hrl, bústjóri, segir að 1—2 ár muni enn líða uns úthlutun
til lánardrottna hefst.
Fyrsti skiptafundur samþykkti
kröfur fyrir rúmar 220 milljónir
króna, en sú tala gæti hækkað eftir
annan skiptafund, sem haldinn verð-
ur 31. mars næstkomandi. Rúmlega
37 milljónir af heildarkröfum í búin
þijú eru kröfur sem lánardrottnar
lýsa í fleiri en eitt þrotabúanna. Kröf-
ur utan skuldaraðar nema 25,3 millj-
ónum króna og forgangskröfúr 3,9
milljónum króna. Stærsta krafan sem
hafhað var er frá Skilanefnd Verð-
bréfasjóðs Ávöxtunar hf., fyrir hönd
eigenda Ávöxtunarbréfa, og hljóðar
upp á um 161,5 milljónir króna.
I yfirliti sem bústjórar þrotabú-
anna hafa gefið um hag þeirra segir
meðal annars að rekstri Ávöxtunar
sf. hafi verið í ýmsu ábótavant.
Lítillar fyrirhyggju hafi verið gætt
við val á skuldunautum og oftar en
ekki hafí veirð takmarkaðar ábyrgð-
ir á bak við skuldaviðurkenningar.
Fjárreiður og umgengni við bókhald
er sagt hafa verið ruglingsleg og
stundum sé ógemingur að átta sig
á hver kaupi hvað og hver selji hvað.
Eigendum ávöxtunarsamninga hafi
verið lofað áxöxtun sem best gerðist
úr rekstri, sem engan veginn stóð
undir slíkum kjörum.
Þá segir að eigendur Ávöxtunar
hafi átt hluta í fyrirtækjum sem
hafi verið fjárfrek án þess að það fé
hafi skilað sér til baka. Þessi fyrir-
tæki séu nú flest orðin gjaldþrota
eða mjög illa stæð og eignahlutir í
þeim verðlausir.
Eignir sameignarfélagsins eru
metnar á um 35 milljónir króna en
bústjórar gefa þá upphæð upp með
miklum fyrirvara, meðal annars um
niðurstöðu væntanlegra riftunarmála
á hendur skilanefnd sjóðanna vegna
eigna að verðmæti um 25 milljónir
króna. Aðrar helstu eignir félagsins
eru 7,1 milljóna nettóeign í fasteign-
um og 2-4 milljónir í útistandandi
kröfum og skuldabréfum. Þá eru
einkaeignir Péturs Bjömssonar
metnar á 15 milljónir króna og einka-
eignir Ármanns Reynissonar á um
5,3 milljónir króna.
Húsnæðisbréfin:
Jóhanna viH meira en
fimmhundruð millj-
ónir á ári í kerfið
Reynt til þrautar í dag að ná samkomulagi
NIÐURSTAÐA sérstaks þingflokksfúndar Alþýðuflokksins um hús-
næðisbréfakerfið og ágreininginn i þeim efnum við Framsóknar-
flokk, varð sú að þingflokkurinn telur sig geta samþykkt sex af sjö
skilyrðum Framsóknarflokksins, fyrir þvi að húsnæðisbréfakerfinu
verði hleypt af stokkum. Skilyrðið sem flokkurinn getur engan veg-
inn fallist á, er að fjármagn það sem lagt verður í kerfið, verði að
hámarki 500 milljónir á ári, næstu tvö árin. Heimildir Morgunblaðs-
ins herma, að þau Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og
Jóhanna Sigurðardóttlr félagsmálaráðherra, muni í dag reyna til
þrautar að ná samkomulagi um þetta atriði.
Framsókn gerir, eins og greint var að gerð verði tilraun með húsbréfa-
frá í Morgunblaðinu í gær, kröfu um kerfið, til hliðar við núverandi kerfi,
og að húsbréfadeild verði deild innan
Húsnæðisstofnunar. Þá er skilyrði
um það að húsbréfakerfið varði að-
eins skipti á eldri íbúðum og að vext-
ir af húsbréfunum verði ekki hærri
en á ríkisskuldabréfum, kaupskylda
lífeyrissjóðanna verði óbreytt og að
þeir sem eru í biðröð eftir húsnæðis-
láni gangi fyrir, kjósi þeir ffernur
að nota húsbréfin.
Líklegt er talið, verði niðurstaða
fundar þeirra Steingríms og Jóhönnu
sú að Framsóknarflokkurinn verði
reiðubúinn að hækka árlega fjárveit-
ingu til húsbréfanna, að samþykkt
verði að félagsmálaráðherra leggi
fram frumvarpið um húsbréfin sem
stjómarfrumvarp. Þó ekki þannig að
ekki megi hrófla við því, því Fram-
sóknarflokkurinn mun að öllum
líkindum verða að gera kröfu um að
einstökum stjómarþingmönnum
verði heimilt að bera upp breytingar-
tillögur. Ástæða þessa er sú, að Alex-
ander Stefánsson, og a.m.k. tveir
aðrir þingmenn Framsóknarflokks-
ins, eru því gjörsamlega andvígir að
upphæðin verði hærri.
Hlutabréfasjóðurinn:
Helgi Bergs
formaður
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í
gær reglugerð sem hefúr verið
í smiðum um hlutabréfasjóð-
inn, sem á að taka við þar sem
skuldbreytingar Atvinnu-
tryggingasj óðs útflutnings-
greinanna ná ekki til.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins er gert ráð fyrir að
Helgi Bergs, fyrrverandi banka-
stjóri Landsbankans, verði for-
maður stjómar þessa sjóðs, með-
stjómendur hans verði Helgi G.
Þórðarson, verkfræðingur og
Guðmundur Malmquist. Ekki er
frágengið hveijir verða vara-
menn stjómarinnar, en jætt er
um að það verði Jón Armann
Héðinsson, Þröstur Ólafsson og
Bogi Þórðarson.
Selfoss:
Innbrot á tveimur stöðum
Selfossi.
BROTIST var inn I Fjölbrautaskóla Suðurlands og inn á efri hæð
SG-einingahúsa aðfaranótt föstudags. Á báðum stöðum voru dyr
sprengdar upp og rótað í hirslum í leit að peningum.
í Fjölbrautaskólanum vom fjórar
hurðir eyðilagðar en engum ijár-
munum stolið enda eru, að sögn
skólameistara, _ engir fjármunir
geymdir þar. Á efri hæð-SG ein-
ingahúsa voru hurðir brotnar og
farið inn í nokkur fyrirtæki og um
20 þúsund krónum stolið. Undir
morgun fór viðvörunarkerfi Selfoss
Apóteks í gang þegar þar var brot-
in rúða á bakhlið hússins en ekki
vr farið inn.
Innbrot þessi eru í rannsókn hjá
lögreglunni á Selfossi.
Fyrir viku síðan var brotist inní
Gagnfræðaskólann á Selfossi með
sömu ummerkjum en engum fjár-
munum stolið enda ekki eftir neinu
að slægjast.
—Sig. Jóns.
Gunnar Bjarki VestQörð. Skarphéðinn Rúnar Ólafsson
Leit ennþá árangnrslaus
LEIT var haldið áfram i gær að mönnunum tveimur, sem lentu
I siyóflóði í Óshlíð að morgni miðvikudagsins, en hún hefúr
ekki borið árangur.
Mennimir sem saknað er, eru 25 ára. Gunnar Bjarki á unnustu
Gunnar Bjarki Vestfjörð, vélsmið- og tvö böm og Skarphéðinn á
ur, og Skarphéðinn Rúnar Ólafs- unnustu og eitt bam.
son, lögregluþjónn. Þeir eru báðir
Sambandið og kaupfélögin:
Taprekstur síðasta árs
nálgast tvo milljarða
HALLINN á rekstri Sambands íslenskra samvinnufélaga og kaup-
félaganna í landinu á liðnu ári nálgast 2000 milljónir króna, sam-
kvæmt upplýsingum Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra Sambands-
ins. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið I gær að þau úrræði
sem Sambandið og kaupfélögin hefðu væri innri hagræðing, svo
sem lokun ákveðinna eininga og sameining annarra. Þetta gæti
þýtt lakari þjónustu í ákveðnum tilvikum, en það væri deginum
Ijósara að engri þjónustu yrði haldið uppi, sem ekki stæði undir
sér.
„Mér sýnast tölur þær sem eru
að berast til okkar hér hjá Sam-
bandinu frá kaupfélögum landsins
benda til þess að samanlagður halli
Sambandsins og kaupfélaganna í
landinu á liðnu ári nálgist tvo millj-
arða króna,“ sagði Guðjón. Hann
sagði að meðal þeirra talna sem
væru að berast frá kaupfélögunum,
væru hallatölur upp á 30, 50, 70,
100 milljónir og þaðan af meira.
„Nei, ég get ekta sagt að þetta
komi mér á óvart. Ég þykist hafa
séð þetta í allmarga mánuði, og er
reyndar búinn að vara við þessum
gífurlega fjármagnskostnaði allt frá
miðju ári 1987,“ sagði Guðjón.
Hann kvaðst telja að endanlegt
uppgjör síðastliðins árs hjá Sam-
bandinu myndi liggja fyrir um eða
upp úr næstu mánaðamótum. Hann
sagðist ekki geta upplýst hver
skipting tapsins væri á milli SÍS
og kaupfélaganna, né hversu mikið
tap hefði verið á einstökum kaup-
félögum.
„Það eru innri aðgerðir og breyt-
ing á efnahagsstefnu," svaraði Guð-
jón, er hann var spurður hvað væri
til ráða. Hann var spurður hvort
hann ætti þar með við það, að
ákveðnum kaupfélögum yrði lokað,
rekstrareiningar lagðar niður og
önnur kaupfélög sameinuð í stærri
einingar: „Ég á við það að auka
hagræðingu í öllum rekstri, sem í
sumum tilvikum þýðir lokun ein-
inga, sameiningu eininga og sam-
einingu kaupfélaga og niðurskurð
á kostnaði eftir því sem frekast er
unnt.“