Morgunblaðið - 11.03.1989, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARZ 1989
Morgunblaðið/Árni Sœberg
Ríkísstjórnin fundar með ASÍ
Forsvarsmenn Alþýðusam-
bands íslands funduðu með
þremur ráðherrum ríkisstjórn-
arinnar í gær í fyrsta sinni um
ýmis mál, sem tengjast gerð
kjarasamn, inga, sem nú fara
í hönd. Rætt var um atvinnu-
mál, vaxtamál, ýmis félagsleg
réttindamál, skattamál, kaup-
mátt og kaupmáttartryggingar
og fleira. Ákveðið var að setja
niður hópa til að ræða tiltekin
atriði nánar og gert ráð fyrir
öðrum fúndi síðar með ráð-
herrunum. Myndin var tekin á
fúndinum í gær.
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 11. MARS
YFIRLIT í GÆR:Á Grænlandshafi er kyrrstæð 965 mb víðáttumikil
lægð, og þaðan lægðardrag norðaustur af Vestfjörðum. Suðvestan
og sunnan kaldi í kvöld en síinningskaldi í nótt og á morgun. Élja-
gangur.
SPÁ: Fremur hæg sunnan og suðvestanátt um mest allt land. Él
eða slydduól suðvestan og vestanlands, en úrkomulaust annars
staðar.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðvestlæg átt með élj-
um á Suður- og Vesturlandi, en bjart veður á Norðaustur- og Aust-
urlandi. Hiti nálægt frostmarki að deginum en víðast næturfrost.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
httl veður
Akureyri +1 léttskýjað
Reykjavík snjóól
Bergen 7 skýjað
Helslnki vantar
Kaupmannah. 8 hálfskýjað
Narssarssuaq +20 léttskýjað
Nuuk +16 háKskýjað
Osló 7 þokumóða
Stokkhólmur 3 rlgning og súld
Þórshöfn vantar
Algarve 19 heiðskírt
Amsterdam 12 skýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Beriín 8 rígning
Chicago 2 alskýjað
Feneyjar 14 hálfskýjað
Frankfurt 11 léttskýjað
Glasgow 7 skýjað
Hamborg 13 skýjað
Las Palmas 27 skýjað
London 11 súld
Los Angeles 12 skýjað
Lúxemborg 12 hálfskýjað
Madrid 1S heiðskírt
Malaga 15 þokumóða
Maliorca 16 háffskýjað
Montreal 13 heiðskírt
New York +1 léttskýjað
Orlando 9 mistur
Parfs 13 skýjað
Róm 17 heiðskírt
Vín 10 alskýjað
Washlngton 0 heiðskfrt
Winnipeg 0 þokumóða
Starfsfólki Þjóð-
viljans sagt upp
STARFSMENN Þjóðviljans, nema ritstjórar og framkvæmdastjóri,
fengu í gær uppsagnarbréf, og gilda uppsagnirnar frá og með næstu
mánaðamótum. Flestir starfsmennirnar, sem eru 40-50 talsins, hafa
þriggja mánaða uppsagnarfrest, þannig að þeir ljúka störfúm að
óbreyttu 31. júní. I uppsagnarbréfúnum er látin í Ijós von um að sem
flestir starfsmenn verði endurráðnir eftir að rekstur blaðsins hefur
verið endurskipulagður.
Uppsagnarbréfíð var undirritað
af framkvæmdastjóra Þjóðviljans,
en hann og ritstjórar blaðsins, sem
ráðnir eru af stjóm útgáfúfélags
blaðsins, fengu ekki uppsagnarbréf.
Tveir ritstjóranna, Silja Aðalsteins-
dóttir og Mörður Ámason, voru
hins vegar í desember sl. ráðin til
sex mánaða, og rennur sá tími út
í maílok. Þriðji ritstjórinn er Ámi
Bergmann. Þá hefur Hallur Páll
Jónsson framkvæmdastjóri einnig
sagt upp störfum á blaðinu.
Ritstjómnum þremur og fram-
kvæmdastjóra hefur verið falið að
gera tillögur um hagræðingu í
rekstri Þjóðviljans. Verður frekar
fjallað um þau mál á fundi stjómar
útgáfufélagsins á þriðjudag. Mörð-
ur Ámason sagði við Morgunblaðið,
að verið væri að skoða ýmsar leið-
ir, sem miðuðu að þvf að komast
hjá að minnka blaðið meira en orð-
ið væri.
Stílverðlaun Þórbergs
Þórðarsonar afhent
HINN 12. mars hefði Þórbergur Þórðarson rithöfundur orðið 100
ára. í minningu afmælisbarnsins og sérstakra áhugamála hans hafa
bókaútgáfa Máls og menningar, sem á útgáfúrétt á verkum hans,
og Háskóli íslands fyrir hönd Styrktarsjóðs Þórbergs Þórðarsonar
og Margrétar Jónsdóttur, sem er eigandi höfúndarréttar á verkum
hans, komið sér saman um að veita stflverðlaun Þórbergs Þórðarson-
ar.
Þessir aðiljar skipa hvor mann í
dómnefnd til þess að fínna verðugan
viðtakanda, og þeir leggja fram 50
þúsund krónur hvor til verðlaun-
anna. Mælst hefúr verið til þess við
menntamálaráðuneytið að skipa
þriðja manninn í dómnefndina og
leggja einnig fram skerf til verð-
launafjárins. Menntamálaráðherra
hefur orðið við þessum óskum.
Verðlaunahafinn er því nú valinn
af þriggja manna dómnefnd og hlýt-
ur 150.000 krónur í verðlaun.
Verðlaunin skulu veitt fyrir
óvenjulega vel unnin verk sem fólg-
in eru í framsetningu hvers konar
efnis á íslensku máli, í riti eða ræðu,
þannig að réttmætt er að telja þau
stflafrek.
Stjóm Styrktarsjóðsins og bóka-
útgáfa Máls og menningar stefna
að því að veita verðlaunin annað
hvert ár.
í fyrstu dómnefndinni sitja Þórir
Óskarsson f.h. Háskóla Islands,
Páll Valsson f.h. Máls og menning-
ar og Þórður Helgason f.h. mennta-
málaráðherra.
Verðlaunin verða afhent í hófi
sem menntamálaráðherra heldur á
sunnudag í Borgartúni 6.
(Fréttatilkynning)
Átta íslenskar kvik-
/
myndir til Moskvu
ÍSLENSK kvikmyndahátíð
verður haldin í borgunum
Moskvu og Odessu í Rússlandi
dagana 17.-23. april næstkom-
andi. Sýndar verða átta íslen-
skar myndir á hátíðinni.
Myndimar sem Rússum verða
sýndar á hátíðinni eru Eins og
skepnan deyr eftir Hilmar Odds-
son, Skyttumar eftir Friðrik Þór
Friðriksson, Nýtt líf eftir Þráin
Bertelsson, Punktur punktur
komma strik eftir Þorstein Jóns-
son, Húsið eftir Egil Eðvarðsson,
Foxtrott eftir Jón Tryggvason,
Hrafninn flýgur eftir Hrafn Gunn-
laugsson og ein rnynd eftir Ágúst
Guðmundsson. Ágúst dvelur nú í
útlöndum og forráðamenn hátí-
ðarinnar höfðu ekki náð sambandi
við hann, en ef vilyrði Ágústar
fæst er ætlunin að sýna söng- og
gleðimyndina Með allt á hreinu
ytra.
Fílharmonía flytur
„Requiem“ eftir Mozart
SÖNGSVEITIN Fílharmonía
flytur „Requiem“ eftir Wolfgang
Amadeus Mozart í Kristskirkju,
Landakoti, dagana 17. og 18.
mars næstkomandi undir stjórn
Ulriks Olasonar.
Fyrri tónleikamir verða á föstu-
daginn, þann 17. og hefjast kl.
20.30, en þeir seinni laugardaginn
18. mars og hefjast þeir kl. 17.00.
Einsöngvarar á tónleikunum verða
Signý . Sæmundsdóttir, sópran,
Þuríður Baldursdóttir, alt, Jón Þor-
steinsson, tenór, og Guðjón Oskars-
son, bassi. Konsertmeistari kamm-
ersveitar er Szymon Kuran. Forsala
aðgöngumiða er í versluninni Istóni
við Freyjugötu og við innganginn.
„Requiem" er eitt þekktasta verk
Mozarts og jafnframt það síðasta,
en hann vann að gerð þess er hann
lá banaleguna. Enn eru menn ekki
á eitt sáttir um hvort honum hafí
tekist að ljúka verkinu og ef ekki
hver það hafí gert.
Þetta verk Mozarts hefur áður
verið flutt á Islandi, þá fyrir fullu
húsi í Hallgrímskirkju. Mótettukór-
inn flutti verkið ásamt Sinfóníu-
hljómsveitinni skömmu eftir að
kirkjan var vígð. Hörður Askelsson
stjórnaði, en einsöngvarar vom þau
Sigríður Gröndal, Sigríður Ella
Magnúsdóttir, Garðar Cortes og
Kristinn Sigmundsson.
<