Morgunblaðið - 11.03.1989, Síða 11
gerðiraf LADA bílum
helgina 1 1. og 12. mars
frákl. 10-17.
Mikið úrval skrásettra bíla
til afhendingar strax.
Tökum gamla LADA bílinn upp í nýjan
og semjum um eftirstöðvar.
Veitingar verða á boðstólum.
lAP*
- góður kostur í bílakaupum
Ármúla 13 - 108 Reykjavik - ® 681200
LADA 89
MORGUNBLAÐIÐ LAUGÁRDAGUR 11,,MARZ1989
Þeim finnst þetta voða gam-
an - en það er grátt gaman
Eyjólfur Konráð Jónsson
„En svo að skotist sé
úr einu í annað, hvað
halda menn að eftir sé
af laununum þegar
ríkið hefiir tekið sitt.
Fyrst tekur það beinu
skattana og allra handa
pinkla eins og sveitar-
félögin. Þá eru í besta
falli eftir 3/4 hlutar
launanna. Með það ríki-
dæmi fara menn svo í
búðina, þar tekur ríkið
svo sem eins og þriðj-
ung þess sem eftir er í
söluskatt, tolla o g önn-
ur gjöld.“
hagur launafólks og sívaxandi
óréttlæti.
Við verðum að játa, forustusveit
eftir EyjólfKonráð
Jónsson
Einstaklingar og fyrirtæki hafa
undanfamar vikur verið að huga
að skattframtölum og eru enn.
Hvort sem menn eru með smánar-
laun eða góð laun rennur það nú
upp fyrir þeim að gripdeild ríkis-
valdsins er ennþá meiri en þeir ótt-
uðust og miklu meiri en við verður
unað. Ég held að allir séu sammála
um að hér ríki skattþján.
Við erum stundum mötuð á þeirri
sepki að heildarupphæð skatt-
heitmu „miðað við mannfjölda" sé
minni hér en í nálægum löndum,
hér sé alltaf betra og betra að búa
eftir því sem áhrif félagshyggju-
fólks og sósíalista aukast, og best
verði það þegar bæði fyrirtæki og
fjölskyldur hafa tapað öllum eigum
sínum í ríkishítina. Hít þýðir eftir
orðabók Menningarsjóðs stór skinn-
belgur, stórt ílát, átvagl. Þessi fyrir-
bæri sjá menn fyrir sér í aðskiljan-
legum myndum.
Þrátt fyrir heimatilbúna kreppu
og ofbeldi ríkisvalds á flestum svið-
um búum við í lýðfrjálsu landi.
Fólkið í landinu hefur vald. Það
vald er að vísu hverfandi í daglegri
baráttu við Kerfið. Valdið er á kjör-
degi en líklega verðum við að játa
að það nær ekki öliu lengra. En í
kosningum er það samt úrslitavald
ef flokkar og frambjóðendur eru
knúnir til að gefa um það skýlaus
svör hvar þeir standa.
Menn og flokka má raunar líka
meta eftir gjörðum þeirra. Hvaða
dóm fá þá stjómarflokkamir hjá
þér þegar þú gerir skattskýrsluna
þína og heimilisbókhaldið, færð
rukkanimar eða ferð út í búð.
Hvemig væri að hugleiða hvers
vegna saman fara minnkandi áhrif
Sjálfstæðisflokksins, versnandi
sjálfstæðismanna eins og það hét í
gamla daga þegar við bjuggum við
innbyggða dreifingu valds og trún-
aðar, að okkur hafi hent mörg slys.
Báknið er t.d. kjurt. Um það tjóar
ekki úr þessu að fárast. Nú verða
sjálfstæðismenn að taka í hnakka-
drambið á sjálfum sér.
En svo að skotist sé úr einu í
annað, hvað halda menn að eftir
sé af laununum þegar ríkið hefur
tekið sitt. Fyrst tekur það beinu
skattana og allra handa pinkla eins
og sveitarfélögin. Þá eru í besta
falli eftir 3A hlutar launanna. Með
það ríkidæmi fara menn svo í búð-
ina, þar tekur ríkið svo sem eins
og þriéjung þess sem eftir er í sölu-
skatt, tolla og önnur gjöld.
Gripdeild ríkisvaldsins er alls
staðar. Samt er halli ríkissjóðs stöð-
ugt vaxandi. Flnu stjómarherrun-
um finnst þetta voða gaman, fólk-
inu finnst það grátt gaman. Þess
vegna býst það til að heimta rétt
sinn. En ráðherramir skilja ekkert,
þeir virðast ekkert hugboð hafa um
hvað í aðsigi er.
Höfundur er einn afalþingis-
mönnum Sjálfstæðisflokks fyrir
Reykjavikurkjördæmi.
Dagnr Þórbergs Þórðarsonar í MIR
Valdimar Öm Flygenring og Gunnar Eyjólfsson taka lagið í sýningu
LR á Sveitasinfóníu Ragnars Arnalds. Leikritið er nú komið út á bók.
Sveitasinfónía á bók
Sveitasinfónía Ragnars Arnalds
er komin út á bók i kiljubroti,
prýdd myndum úr sýningu Leik-
félags Reykjavíkur. Leikritið
hefúr verið sýnt sjötíu sinnum
og er aðsóknin einhver hin besta
í sögu félagsins, að sögn Hall-
mars Sigurðssonar, leikhús-
stjóra. Útgefandi bókarinnar er
Leikur s.f.
í kynningarorðum að bókinni,
segir að Sveitasinfónía, sé eitt fárra
íslenskra verka, sem stjóm Leik-
félagsins hafí tekið ákvörðun um
að kaupa svo að segja um leið og
hún leit það augum. Sveitasinfónía
sé einfaldlega vel samin þjóðlífs-
mynd þar sem ljósi sé brugðið á
pótitíska viðburði og umhugsunar-
efni samtímans, um leið og megin-
áhersla sé lögð á hið manneskjulega
og skoplega. Höfundur hafi ekki
aðeins hitt íslenska leikhúsgesti í
hjartastað með Sveitasinfóníu, hon-
um hafi lánast að semja verk sem
henti flestum leikhúsum og leik-
hópum.
Ragnar Amalds hefur áður sam-
ið leikritið, Uppreisn í ísafirði, sem
var frumflutt í Þjóðleikhúsinu.
Á AFMÆLISDEGI Þórbergs
Þórðarsonar rithöfundar, sunnu-
daginn 12. mars, verður aldaraf-
mælis hans minnst í félagsheim-
ili MÍR, en Þórbergur var einn
af frumkvöðlum að stofhun fé-
lagsins og varaforseti þess í 19
ár, frá stofiiun MÍR 1950 til árs-
ins 1969.
í dagskrá helgaðri Þórbergi mun
Helgi Sigurðsson sagnfræðingur,
sem manna best hefur kannað dag-
bækur meistarans, flytja spjall um
hann og störf hans.
Baldvin Halldórsson leikari les
upp úr verkum Þórbergs og Einar
Kristján Einarsson leikur einleik á
gítar. Einnig verður kvikmyndasýn-
ing, m.a. sýnd mynd Ósvaldar
Knudsens um Þórberg.
Dagskráin hefst klukkan 15.00
Kaffíveitingar verða. Aðgangur að
fyrirlestrinum í Norræna húsinu,
umræðufundinum og Þórbergs-
dagskránni í húsakynnum MIR,
Vatnsstíg 10, er öllum heimil meðan
húsrúm leyfir.
- Frétt frá MÍR.