Morgunblaðið - 11.03.1989, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARZ 1989
Vestur-Berlín:
Samið um
skiptingu
embætta
Vestur-Berlín. Reuter.
Jafnaðarmenn og græningjar
í Vestur-Berlín komust að sam-
komulagi um skiptingu embætta
í gær og bjuggu í haginn fyrir
samvinnu flokkanna I borgar-
stjórn. Þar með lauk samninga-
viðræðum milli forystumanna
flokkanna sem staðið hafa yfír i
sex vikur.
Borgarstjóri hinnar nýju sam-
steypustjómar verður Walter Mom-
per, leiðtogi jafnaðarmanna, að því
tilskildu að báðir flokkar samþykki
skiptingu embætta á fundum yfir
helgina.
Græningjar fá embætti borgar-
skipulags- og umhverfísmála,
skóla- og kvennamála og æskulýðs-
og Qölskyldumála. Öll önnur emb-
ætti falla í skaut jafnaðarmanna.
j Iq'ölfar úrslita borgarstjómar-
kosninganna í Vestur-Berlín hafa
kristilegir demókratar, CDU, undir
stjóm Helmuts Kohls, kanslara
Vestur-Þýskalands, og systurflokk-
urinn í Bæjaralandi, CSU, lýst því
yfír að samstarf jafnaðarmanna og
græningja í stjóm landsins myndi
hafa afdrifaríkar afleiðingar í för
með sér.
George Koskotas.
Grikkland:
Reuter
Tillaga um
vantraust á
Papandreou
Aþenu. Reuter.
TILLAGA um vantraust á stjórn
sósíalista í Grikklandi var lögð
fram á þingi í fyrrakvöld og
sögðust talsmenn stjómarand-
stöðunnar vonast til að hún yrði
samþykkt og að fljótlega yrði
efht til nýrra þingkosninga.
Vantrauststillagan er fram kom-
in vegna bankahneykslisins, sem
nú skekur grískt þjóðfélag. Stjóm-
arandstöðuflokkamir allir hafa
hvatt Andreas Papandreou, forsæt-
isráðherra, til að segja af sér vegna
þess. Hefur hann sagt að ekki komi
til greina að flýta kosningum, sem
fyrirhugaðar eru 18. júní næstkom-
andi.
Papandreou hefur sætt vaxandi
gagnrýni í eigin flokki vegna
bankahneykslisins, en í síðustu viku
komu fram ásakanir um að stjóm
hans hefði lagt blessun sína yfír
fjármálastarfsemi George Koskot-
as, höfuðpaursins í bankahneyksl-
inu, sem talinn er hafa svikið jafn-
virði 200 milljóna dollara, eða 10
milljarða íslenzkra króna, út úr
gríska ríkinu. Papandreou hefur
haldið því fram að hneykslismálið
væri tilræði af hálfu Bandaríkja-
stjómar við sig og stjóm sína.
Reuter
Líkamsrækt Rósu
Richard Hayward, starfsmaður hjá Regent Park-dýragarðinum í
London, ýtir af festu á bakhluta nashymingsins Rósu, sem er 15
vikna gömul. Rósa fæddist í dýragarðinum og kippir sér ekki upp
við nærveru tvífætlinga. Á hveijum degi verður hún að yfirgefa
stíuna og hreyfa sig, hvort sem henni líkar betur eða verr.
Gro Harlem Brundtland:
Aðild Noregs
að EB útilokuð
- myndi EB og EFTA tollabandalag
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fi*éttaritara Morgunblaðsins.
GRO Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, sagði á fundi
með belgískum blaðamönnum í Ósló að kæmi til þess að Fríverslunar-
bandalag Evrópu (EFTA) myndaði tollabandalag með Evrópubanda-
laginu (EB) væri umsókn Norðmanna að EB úr sögunni. Brundtland
kvaðst þeirrar skoðunar að einfalda ætti ákvarðanir innan EFTA
t.d. með atkvæðagreiðslum þar sem meirihlutinn réði úrslitum. Jafii-
framt væri æskilegt að koma á fót gerðardómi sem hefði það hlut-
verk að skera úr ágreiningsefiium sem upp kæmu í samskiptum
bandalaganna tveggja.
Norski forsætisráðherrann lagði
áherslu á að þetta væru persónuleg
viðhorf hennar og að hún væri ekki
að spá fyrir um niðurstöður leið-
togafundar EFTA sem verður í
Ósló í næstu viku. Hún sagði að
EFTA yrði á einhvem hátt að koma
til móts við þær hugmyndir sem
Jacques Delors, formaður fram-
kvæmdastjómar EB, setti fram í
ræðu á Evrópuþinginu 17. janúar
sl. þar sem hann sagði m.a. að
EFTA yrði að tala með einni rödd
í samskiptum við EB í stað sex.
Brundtland sagði að EFTA stæði
Sovéskur njósnari rekinn frá Bandaríkjunum:
Bein ögrun af hálfti
Bandaríkjastjórnar
- segir talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins
Moskvu. Washington. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum vísuðu á fimmtudag hermálafúll-
trúa við sovéska sendiráðið í Washington úr landi. Maðurinn var
handtekinn á miðvikudagskvöld, sakaður um njósnir. Gennadíj Ger-
asímov, talsmaður sovéska utanrikisráðuneytisins, sagði í gær að
Bandaríkjamenn væru ábyrgir „fyrir framhaldi málsins“ og bætti
við að brottvísunin væri bein „ögrun“ af hálfú Bandarikjastjórnar.
Hermálafulltrúinn Júrí Pakht- var handtekinn. Embættismenn
úsov var handtekinn eftir að hann sem starfa á vegum bandarísku
hafði reynt að komast yfír gögn sem
varða geymslu á leynilegum upplýs-
ingum í tölvukerfí Bandaríkja-
stjómar. Fylgst hafði verið með
Pakhtúsov frá því í ágústmánuði
er hann reyndi að vingast við starfs-
mann fyrirtækis sem hefur aðgang
að leynilegum samningum banda-
rískra stjómvalda. Starfsmaðurinn
lét yfírvöld þegar í stað vita af
þessu en hélt áfram að hitta Pakht-
úsov þar til á miðvikudag er hann
alríkislögreglunnar sögðu í gær að
Sovétmenn hefðu ekki komist yfír
þær upplýsingar sem þeir sóttust
eftir.
Gennadíj Gerasímov, talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins,
sagði á fundi með blaðamönnum í
Moskvu í gær að Pakhtúsov hefði
ekki gerst sekur um athæfi sem
„ekki hæfði stöðu hans“ og kvað
Bandaríkjamenn ábyrga fyrir þeim
afleiðingum sem málið kynni að
hafa í för með sér. Ljóst væri að
hér væri um „beina ögrun" að ræða
af hálfu stjómvalda í Bandaríkjun-
um en áður höfðu starfsmenn sov-
éska sendiráðsins í Washington lát-
ið sams konar jrfirlýsingu frá sér
fara.
Ónefndir starfsmenn bandaríska
utanríkisráðuneytisins kváðust í
gær ekki búast við því að mál her-
málafulltrúans kæmi til með að
skaða samskipti Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna, sem farið hafa
batnandi að undanfömu. „Náung-
inn var staðinn að verki og Sovét-
menn vita fullvel að við bregðumst
hart við þegar öryggi okkar er ógn-
að,“ sagði einn þeirra.
Efiiahagsmál í Kína:
Þjóðaríramleiðsla eykst
en blikur eru samt á lofti
RÚMUR áratugur er liðinn frá því að Kínverjar hleyptu af stokkun-
um áætlun um.víðtækar efnahagsumbætur, opnuðu landamærin í
rfkari mæli fyrir erlendum Qárfestingaraðilum og juku utanrfldsvið-
skipti sin stórlega. Á þessum árum hefúr efnahagslífíð tekið stakka-
skiptum, ef marka má skýrslu um efnahagsframfarirnar sem birtist
í kínverska vikuritinu Beijing Review í lok janúar og gerð var af
Efnahagsrannsóknarstofnun ríkisins. Þar kemur fram að verg þjóð-
arframleiðsla i Kína varð meiri en meðaltalsaukning i heiminum á
árunum 1980-86 og jókst hún meira en f þróunarlöndunum og í
vestrænum iðnrikjum.
Meðaltalsaukning vergrar þjóðar-
framleiðslu í heiminum á þessum
árum var 2,6 af hundraði en aukn-
ingin í Kína nam 9,2 af hundraði.
Engu að síður hrannast óveðurský
á lofti í efnahag Kínveija. Talsmað-
ur Tölfræðistofnunar ríkisins,
Zhang Zhongji, lýsti því yfír á
þriðjudag að kínverska ríkisstjómin
væri að missa tökin á efnahags-
stjóm landsins því verðbólgan í
landinu, sem slegið hefur öll met,
virðist hreint ekki á undanhaldi.
Zhang sagði við fréttamann Re-
uters-fréttastofunnar að vanda-
málin yrðu æ flóknari og erfíðari
viðfangs. Jafnframt væri allt útlit
fyrir að lífskjör meira en þriðjungs
borgarbúa landsins, sem em yfír
200 milljónir, myndu versna sökum
hinnar miklu verðbólgu. Hann
sagði að tekjur 34,9 af hundraði
þeirra sem búa í borgum myndu
minnka vegna hækkunar á smá-
söluverði.
Embættismenn leg-gj-
ast gegn aðgerðum
Kínverskir ráðamenn efndu til
mikilla aðhaldsaðgerða í september
á síðasta ári til að slá á þenslu í
landinu. Þeir hafa ítrekað sagt að
verðbólgan 1989 verði mun lægri
en á árinu 1988, en þá sló verð-
bólguhraðinn öll met og hafði ekki
verið meiri frá því í byltingunni
1949. Opinberar tölur sýna hins
vegar fram á að framfærslukostn-
aður borgarbúa í janúar síðastliðn-
um var 30,4% hærri en fyrir ári
síðan.
Iðnframleiðsla jókst á hinn bóg-
inn í Kína um 17,7% á síðasta ári.
Utanríkisverslun jókst um 24,4%,
í 103 milljarða dali, um 5.253 millj-
arða ísl. króna, og fjárfestingar
erlendra aðila jukust um 16 af
hundraði.
{ aðalfrétt kínverska dagblaðsins
Economic Daily á þriðjudag segir
að mörgum aðgerðum ríkisstjóm-
arinnar sem ákveðið var að grípa
til í september á síðasta ári hafi
ekki verið hrundið í framkvæmd
vegna andstöðu embættismanna
og fyrirtælqa. í fréttinni var vanda
ríkisstjómarinnar líkt við aðstöðu
fískimanns sem veit hvar fískurinn
heldur sig en hefur ónýt net til að
veiða.
frammi fyrir því í næstu viku að
ákveða framtíð fríverslunarbanda-
lagsins m.a. hvemig samskiptum
við EB eigi að vera háttað og hversu
langt eigi að ganga í samstarfí og
samræmingu við bandalagið.
EFTA-þjóðirnar gætu ekki fallist á
lögsögu Evrópudómstólsins í Lúx-
emborg í ágreiningsmálum sem upp
kynnu að koma. Hins vegar kæmi
til greina að setja á fót sérstakan
gerðardóm sem gegndi því hlut-
verki.
Brundtland kvaðst efast um að
vikið yrði að hugsanlegu tolla-
bandalagi í yfirlýsingu leiðtoga
EFTA-ríkja í næstu viku en vafa-
Iaust yrði fjallað um ýmis atriði í
tengslum við það mál. Norðmenn
sitja í forsæti á fundinum sem hefst
á þriðjudag en þeir eru talsmenn
EFTA fram á haust; þá taka íslend-
ingar við. Þeir verða því í forsvari
á meðan líkur eru á því að til tíðinda
dragi í sögu bandalagsins.
Rafsanjani um
Söngva Satans:
Eina lausnin
er að brenna
hvert eintak
Nikósía, Helsinki. Reuter.
RAFSANJANI, forseti
íranska þingsins, sagði í gær
að eina leiðin til að lægja
ófriðaröldur vegna útgáfii
bókarinnar Söngvar Satans,
væri að brenna öll eintök
bókarinnar. Ella yrðu deilur
milli múhameðstrúarmanna
og stuðningsmanna rithöf-
undarins, Salmans Rushdies,
ekki leystar.
„Eina færa leiðin er að gefa
út ströng fyrirmæli þess efnis
að öll eintök bókarinnar hvar-
vetna í heiminum verði gerð
upptæk og þau brennd," voru
skilaboð Rafsanjanis við bæna-
hald í Teheran og íranska
fréttastofan Irna greindi frá í
gær.
Ekki var ljóst hvort Rafsanj-
ani hygðist draga til baka
dauðahótanir yfír Salman
Rushdie, höfundi bókarinnar,
ef fyrirmæli um bókabrennur
yrðu gefín út.
Rafsanjani sagði að Vestur-
landabúar væru í úlfakreppu.
Með því að stöðva útgáfu bók-
arinnar brytu þeir gegn lögum
um tjáningarfrelsi en leyfðu
þeir útgáfu hennar á hinn bóg-
inn kyntu þeir enn undir ólgu
á meðal múhameðstrúar-
manna.
Útgefandi bókarinnar í Finn-
landi lýsti því yfír í gær að
hann ætlaði að láta ágóða af
sölu bókarinnar renna til PEN,
alþjóðasamtaka rithöfunda.
Vestur-þýski rithöfundurinn
Giinther Grass sagði sig úr
Listaakademíu Vestur-Beriínar
í gær þegar ljóst var að samtök-
in ætluðu ekki að leyfa upplest-
ur úr Söngvum Satans i húsa-
kynnum sínum. Grass hefur
verið félagi í akademíunni frá
1963 og var forseti hennar á
árunum 1983-86.
..... nn ..... .