Morgunblaðið - 22.03.1989, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 22. MARZ 1989
Fjármálaráðherra:
Loftleiðaarm-
urinn vildi selja
ÓLAFUR Ragnar Grímsson Qármálaráðherra segir að það hafi verið
að frumkvæði ákveðinna hluthafa Flugleiða að viðræður hófiist um
kaup ríkisins á um 20% hlut i Flugleiðum.
„Við höfðum ekki frumkvæðið að
viðræðum við þessa aðila. Þegar í
ljós kom að þeir voru reiðubúnir þá
ræddum við við þá sem oft eru nefnd-
ir „gamli Loftleiðahópurinn"," sagði
Ólafur Ragnar Grímsson flármála-
ráðherra í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Fjármálaráðherra var spurður
hvort ríkið væri á leiðinni inn í Flug-
leiðir á nýjan leik. Hann sagði of
snemmt að dæma um það. Viðræður
væru ekki komnar í strand. Hann
sagði jafnframt að það væri ekki
ákveðinn hópur talsmanna sem kæmi
fram fyrir hönd þeirra, sem hugsan-
lega vildu selja sinn hlut í félaginu,
heldur fulltrúar ólíkra hagsmuna-
hópa.
„Ég hef alltaf verið þeirrar skoð-
unar að ríkið ætti að eiga hlut að
fyrirtæki sem þessu, einkum og sér
í lagi ef það væri eitt um rekstur á
millilandaflugi," sagði Ólafur Ragn-
ar. Hann sagði að hann ætti von á
að umræður um þessi mál hæfust á
nýjan leik eftir páska.
Lögreglumaður sekt-
aður af Hæstarétti
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt fyrrverandi lögreglumann til greiðslu
30 þúsund króna sektar fyrir að hafa af gáleysi valdið þvi að ungur
maður, sem verið var að færa i fangageymslur lögreglunnar, handleggs-
brotnaði. Lögregluvarðstjóri, sem ákærður var fyrir að hafa ákveðið
fangelsun mannsins að nauðsynjalausu, var sýknaður af ákærum. Hér-
aðsdómur hafði fallið á sömu leið nema þar var sektargreiðsla talin
hæfileg 20 þúsund krónur.
Sonur lögreglumannsins kærði
unga manninn fyrir að hafa skemmt
bifreið sína og sinnti faðirínn þessu
útkalli q'álfur. í niðurstöðum Hæsta-
réttar segir að með tilliti til starfs-
Fullt hús
Margeirs
MARGEIR Pétursson vann
tvær fyrstu skákir sinar á
opna skákmótinu i New York
sem nú stendur yfir. Hann
vann filippeysku stórmeistar-
ana Balinas og Reyes, en átti
að tefla við Smyslov í gær-
kvöldi.
Helgi Ólafsson vann Carl-
esson frá Svíþjóð í fyrstu um-
ferð en tapaði fyrir Gelfand. Jón
L. Ámason gerði jafntefli í báð-
um skákum sínum.'Karl Þor-
steins gerði jafntefli fyrst en
tapaði síðan fyrir Dorftnan og
Hannes Hlífar Stefánsson tapaði
í fyrstu umferð en vann svo
Cariesson.
Akureyrí:
Fjórar Fokkervélar veðurtepptar
FJÓRAR af fimm Fokker-vélum Flugleiða gistu Akureyrarflug-
vöU í fyrrinótt, en þær komust ekki suður til Reykjavíkur vegna
veðurs. Fyrsta vélin komst i loftið laust fyrir hádegi f gær og
kl. 14.00 höfðu þær aUar yfirgefið völlinn.
Fyrsta vélin til Akureyrar kom velli í gærkvöld var ekki vitað
svo rétt fyrir kl. 17.00 í gær og
önnur hálftíma síðar. Tvær vélar
aðrar voru væntanlegar um kvöld-
ið, en þegar Morgunblaðið hafði
samband við Bergþór Erlingsson
afgreiðslustjóra á Akureyrarflug-
hvort vélamar kæmust norður. í
dag, miðvikudag, eru sjö Fokker-
vélar á áætlun milli Akureyrar og
Reylqavíkur og ein Boieng-þota.
Alls em um 650 farþegar bókaðir
á þessari leið í dag, en straumur-
inn liggur norður, að sögn Berg-
þórs og ætla 450 þessara farþega
að eyða páskunum á Akureyri.
„Nú er bara að sjá hvort bænim-
ar dugi til, svo flug verði með
eðlilegum hætti,“ sagði Bergþór,
en veðurútlit er ekki með besta
móti.
Sjá nánar frétt
veður á bls. 22.
um færð
og
reynslu lögreglumannsins hefði hon-
um átt að vera ljóst að ekki væri við
hæfi að hann byði sig fram til að
sinna kæm sonar síns. Misráðið hafi
verið af varðstjóra í fjarskiptamið-
stöð að leyfa þetta og séu afskipti
lögreglumannsins af þessu máli
ámælisverð.
Þá segir að ekki verði talið að lög-
reglumennimir hafi hándtekið unga
manninn fyrr en hann leitaði útgöngu
úr lögreglubifreiðinni áður en
skýrslutöku hafi verið lokið. Hafi þá
verið heimilt að hefta for hans. Þar
sem maðurinn hafi orðið æstur og
veitt mótþróa hafi lögreglumönnun-
um verið heimilt að handtaka hann
og færa til yfírheyrslu á lögreglu-
stöð. Þá segir að fyrirhuguð vistun
mannsins í fangageymslum hafi ekki
verið að nauðsynjalausu. Var því
sýknað af ákæm um ólöglega hand-
töku og fangelsann. Hins vegar þótti
sannað að handleggsbrotið mætti
rekja til gáleysis lögreglumannsins
er hann reyndi með valdi að færa
unga manninn úr yfirhöfn.
Hæstaréttardómaramir Guð-
mundur Jónsson, Guðrún Erlends-
dóttir, Benedikt Blöndal og Hrafn
Bragason kváðu upp dóminn ásamt
Amljóti Bjömssyni settum hæsta-
réttardómara.
Verkfall lögfræðinga hjá ríkinu:
Dregur mjög úr allri
vinnu í dómkerfinu
VERKFALL Stéttarfélags lögfræðinga S ríkisþjónustu, ef af verður,
mun draga mjög úr allri almennri vinnu i dómkerfinu. Hjalti Zóphón-
íasson skrifstoíustjóri dómsmálaráðuneytisins segir að kerfið þoli
það í nokkrar vikur þar sem hægt verður að sinna brýnustu málum
efltir sem áður. Jón Skaftason borgarfógeti segir að sum starfsemi
embættisins muni leggjast niður og hægja mun á þeirri sem hægt
verður að halda gangandi.
ar.
Meðal þeirra embætta sem verk-
fallið kæmi hvað þyngst niður á
má nefna borgarfógeta, bæjarfó-
getaembættin, lögreglustjóraemb-
ættin og skattstofuna.
Jón Skaftason borgarfógeti segir
að sum starfsemi embættisins muni
alveg leggjast. niður og annarri
seinka mjög mikið. Hann tekur sem
dæmi þinglýsingar en þar vinna nú
þrír lögfræðingar, sem færu í verk-
fall, og einn fógeti. Ljóst er að ef
Hjalti Zóphóníasson segir að þar
sem fógetar, héraðsdómarar og
aðalfulltrúar eru undanþegnir verk-
falli muni ekki skapast neyðar-
ástand hjá hinum ýmsu embættum
dómskerfisins fyrst um sinn. Þetta
starfsfólk geti sinnt bráðustu verk-
efnum eins og t.d. gæsluvarðhalds-
úrskurðum. Um áhrifín af lang-
vinnu verkfalli er erfítt að segja til
um, segir Hjalti. Þetta stéttarfélag
hafí aldrei áður farið í verkfall
þannig að fordæmi eru ekki til stað-
til verkfalls kemur mun hægja mjög
á afgreiðslu þinglýstra skjala. Sami
fyöldi lögfræðinga vinnur við skipta-
rétt og þar yrði sama sagan upp á
teningnum. Um áhrifin af lang-
vinnu verkfalli lögfræðinganna seg-
ir Jón Skaftason að slíkt hefði í för
með sér algert öngþveiti.
Ekkjur og ekklar greiða 125%
hærri eignarskatt en hjón
EKKJUR og ekklar, sem eiga f kringum 8-10 milljóna króna skuld-
lausar eignir, þurfa nú að jafiiaði að greiða 125% hærri eignar-
skatt en ef maki þeirra væri á lífi, ef aðrar forsendur eru ekki
teknar með í reikninginn. Samkvæmt lögum um eignarskatta, sem
samþykkt voru um síðustu áramót, er skattfrjáls eignarskattstofii
hjóna 5 milljónir. Af næstu 9 milljónum greiða þau 1,2% eignar-
skatt en 2,7% eignarskatt eftir það. Árið eftir fráfall maka skatt-
Ie8Rst ekkill og ekkja sem einstaklingur, og þá helmingast þess-
ar upphæðir.
Hér á eftir fara Ijögur dæmi
um raunverulegar eignarskatt-
greiðslur ekkna eða ekkla, borið
saman við skatta ef makinn væri
á lífi.
Ekkja á 111 fermetra íbúð og
bíl, og er eignarskattstofn hennar
7,4 milljónir króna. Fyrstu 2,5
milljónimar eru skattfrjálsar en
af næstu 4,5 milljónum greiðist
1,2% eignarskattur, eða 54 þús-
und krónur. Á þær 400 þúsund
krónur sem eftir era bætist 1,5%
stóreignarskattur, 2,7% skattur
alls, eða 10.800. Ekki er reiknað
með 0,95% eignarskattsauka
vegna Þjóðarbókhlöðu, þar sem
hann er ekki lagður á fólk 67 ára
og eldra. Eignarskatturinn er því
samtals 64.800 krónur.
Ef makinn væri á lífí, væra
fyrstu 5 milljón krónumar skatt-
frjálsar (2 x 2,5 milljónir). Af
þeim 2,4 milljónum sem eftir era
greiddust 1,2% eignarskattur, eða
28.800 krónur. Ekkjan greiðir því
125% hærri upphæð.
Annað dæmi er 120 fermetra
íbúð með bflskúr og bfl, og er eign-
arskattstofn 9 milljónir. Af fyrstu
2,5 milljónunum er enginn skatt-
ur, en af næstu 4,5 milljónum
greiða ekkja eða ekkill 1,2% skatt.
Á þær 2 milljónir sem umfram
era leggst 2,7% skattur. Samtals
greiðir ekkja eða ekkill 108 þús-
und krónur f eignarskatt.
Ef makinn væri á lífí greiddu
hjónin 1,2% skatt af 4 milljónum,
eða 48 þúsund krónur eða 125%
lægri upphæð.
Þriðja dæmið er af eign sem
er gamalt timburhús og bíll. Eign-
arskattstofn er 9,9 milljónir
króna. Hjón myndu greiða 1,2%
skatt af 4,9 milljónum, eða 58.800
krónur. Ekkill eða ekkja greiðir
eignarskatt af 7,4 milljónum, þar
af 1,2% af 4,5 milljónum og 2,7%
af 2,9 milljónum. Samtals er eign-
arskatturinn 132.300 krónur, eða
125% hærri en hjónanna.
Fjórða dæmið er 35 ára gam-
alt 95 fermetra hús með bflskúr
og bfl. Eignarskattstofn er 10,79
milljónir. Hjón greiddu 1,2% skatt
af 5,79 milljónum, eða 69.480
krónur. Ekkill eða ekkja greiðir
skatt af 8,29 milljónum. Af 4,9
milljónum greiðist 1,2% skattur
og af 3,79 greiðist 2,7% skattur,
samtals 156.480 krónur, eða
125,2% hærri upphæð en hjónin
greiða.
Tekið skal fram, að möguleikar
eru á lækkun eignarskattstofns
vegna fráfalls maka. Einnig ef
menn láta af störfum vegna ald-
urs, eða þegar ellihrörleiki, veik-
indi og slys hafa skert gjaldþol.
Fjármálaráðherra:
Ekki mikið
um þetta
að segja
„ÞAÐ er ekki mikið um þetta
að segja. Það var yóst að það var
nokkur áhugi á því hjá ýmsum
félögum að fylgja eftir sínum
kröfum með verkfallsboðun,
þannig að þessi ákvörðun breytir
ekki miklu um það sem áður var
vitað,“ sagði Ólafur Ragnar
Grimsson, fíármálaráðherra.
Um hvort að verkfallsboðunin setti
ekki tímapressu á viðræðumar, sagði
hann að það færi eftir því hvemig á
það væri litið, sjónarmiðin réðu
mestu um atburðarásina. „Þar þurfa
menn auðvitað bæði að hafa í huga
hvað er að gerast hjá öðrum samtök-
um launafólks og hvað er að gerast
í þeim viðræðum sem ríkið stendur
fyrir. Síðustu daga hafa verið að
koma upp ýmsar hugmyndir um
samninga til skemmri tíma, sem þó
væri liður í formlegum aðdraganda
að samningum til lengri tíma, þar
sem hægt væri að taka inn í ýmis
kjarajöfnunaratriði, sem þurfa lengri
undirbúning. Það er verkefnið á
næstunni að skoða þá þætti og gera
sér grein fyrir því hvert samhengið
á milli samninganna og sérstakra
langtíma kjarajöfnunaratriða á að
vera. Það eru lífskjörin sjálf sem
skipta höfuðmáli og sérstaklega þær
aðgerðir sem stefna að jöftiun
lífskjara," sagði Ólafur Ragnar.