Morgunblaðið - 22.03.1989, Síða 4
4
MORGUNBLÁÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989
Margt líkt með Þórs-
6 félög BHMR
felldu verkfall
FIMM aðildarfélög Bandalags háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna
felldu í gær að boða til verkfálls 6. apríl næstkomandi, til viðbótar
við Félag fréttamanna, sem hafði áður fellt það. Samtals 11 félög
samþykktu verkfallsboðun frá 6. aprfl og skfluðu inn gögnum þar
að lútandi i gærkveldi, en frestur til þess rann út á miðnætti i nótt.
Stéttarfélag íslenskra félagsráðgjafa varð síðast til þess að sam-
þykkja verkfall með minnsta mun 17 atkvæðum gegn 16. 38 voru á
kjörskrá og 33 greiddu atkvæði. Fjögur félög hafa ákveðið að hafa
ekki atkvæðagreiðslu, í einu félagi verður talið í dag og í einu fé-
lagi verður atkvæðagreiðsla síðar, en samtals eru aðildarfélögin 23.
Hjá Félagi fréttamanna var verk-
fallsboðunin felld með 28 atkvæð-
um gegn 9, en 3 seðlar voru auðir.
Félag tækniskólakennara felldi
einnig verkfallsboðun, 9 sögðu já,
17 sögðu nei og 2 seðlar voru auð-
ir. Félag þjóðfélagsfræðinga felldi
verkfallsboðun með 9 atkvæðum
gegn 4, og auðir seðlar voru 4.
Kjarafélag arkitekta felldi með 9
atkvæðum gegn_ 5, Kennarafélag
Kennaraháskóla íslands felldi einn-
ig verkfallsboðun og verkfall féll á
jöfnum atkvæðum í Útgarði - Fé-
lagi hákólamanna.
„Ef dæma má af þeim röddum
sem heyrðust á fundum sem við
efndum til, þá virðist fyrir það
fyrsta sitja mjög í mönnum verk-
fallið og stöðvunin 1984," sagði
Broddi Broddason, formaður Félags
fréttamanna, aðspurður um niður-
stöðu atkvæðagreiðslunnar í félag-
inu. „í öðru lagi geta menn verið
með efasemdir um gildi þessarar
baráttuaðferðar, en það sem er
mjög ríkt í mörgum og kom skýrt
fram er að menn að gera sér grein
fyrir að fréttastofumar á útvarpinu
og sjónvarpinu eru lykilstofnanir
og verði einhver umtalsverð röskun
á starfsemi þeirra, ég tala nú ekki
MorgunblaðiðBjami
Þau ellefu aðildarfélög BHMR, sem samþykkt hafa að fara í verk-
fall frá og með 6. april næstkomandi hafi samningar ekki tekist,
afhenntu ríkissáttasemjara og stjömvöldum boðun þessa efiiis á átt-
unda tímanum i gærkveldi, en frestur til þess rann út á miðnætti.
A myndinni má sjá Indriða H. Þorláksson, formann Samninganefiid-
ar ríkisins, kvitta fyrir móttöku. Honum til vinstri handar situr
Páll Halldórsson, forma,ður BHMR.
um ef þær stöðvast í langan tíma
þá er afskaplega illa komið fyrir
Ríkisútvarpinu. Við getum ekki litið
framhjá því að fréttastofur RÚV
og raunar sérhver fréttamaður er
í daglegri samkeppni við starfs-
menn annarra flölmiðla. Þetta þýð-
ir engan vegin að við sættum okkur
við þau launakjör sem við búum
við, heldur hafnar meirihlutinnm
þesaari tilteknu leið til að ná bætt-
um kjörum, að minnsta kosti að svo
stöddu," sagði Broddi ennfremur.
Morgunblaðið/Bjami
Poul Michelsen, borgarstjóri í Þórshöfii, ásamt Sólrúnu konu sinni
á Hótel Sögu, þar sem færeysku gestimir gista.
Borgarstjórn Þórshafhar í opinberri heimsókn:
Heimild: Veðurstofa (slands
(Byggt áveðurspá kl. 16.15 i gaer)
Verðlækkun
á skinnum
VERÐ á minkaskinnum lækk-
aði um allt að 10% á marsupp-
boðinu sem lauk nýlega í Kaup-
mannahöfii miðað við verð á
uppboðinu þar í febrúar. Svip-
uð verð fengust fyrir minka-
skinn sem seld vom á uppboði
í Osló um síðustu helgi. Refa-
skinn sem seld vom á upp-
boðinu í Osló lækkuðu um allt
að 10% frá síðasta uppboði.
Á uppboðinu í Kaupmanna-
höfn voru að þessu sinni ein-
göngu seld minkaskinn og áttu
íslenskir bændur þar um 33
þúsund skinn, en alls voru seld-
ar um 3,6 milljónir skinna á
uppboðinu. í Osló voru boðin
364 þúsund refaskinn frá ís-
landi, Danmörku, Svíþjóð og
Noregi og 694 þúsund minka-
skinn frá sömu löndum.
Meðalverð á minkaskinnum á
uppboðunum í Kaupmannahöfti
og Osló voru á bilinu 863 til
1392 krónur eftir tegundum.
Meðalverð blárefaskinna á upp-
boðinu í Osló var 1820 krónur,
skuggarefaskinna 1457 krónur,
silfurrefaskinna 3632 krónur og
bláfrostskinna 2864 krónur.
VEÐUR
I/EÐURHORFUR í DAG, 22. MARS
YFIRLIT í GÆR: Um 200 km austur af landinu er hægfara 968
mb lægð og þaðan lægðardrag vestur með s-strönd landsins. Á
suðvestanverðu Grænlandshafi er kyrrstæð en heldur vaxandi 975
mb lægð. Yfir Grænlandi er 1018 mb lægð.
SPÁ: Norð og noröaustan-átt, allhvöss vestanlands en hægari
annars staðar. Úrkomulaust sunnan- og suðaustanlands en annars
staðar él.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SKÍRDAG OG FÖSTUDAGINN LANGA: Norðanátt,
strekkingur og éljagangur um landið norðanvert en hægari og bjart
vetur sunnantil. Frostlaust að deginum sunnanlands en annars 1—6
stiga frost.
a Norðan, 4 vindstig:
x Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Siydda
r * r
* * #
* * * * Snjókoma
# * *
10 Hitastig:
10 gróður á Celsíus
\J Skúrir
V É'
~E Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
VEBUR VÍBA UMHEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hKI veður
Akureyri 0 snjókoma
Reykjavlk 1 snjókoma
Bergen 3 skýja*
Helslnki 8 þokumóða
Kaupmannah. 6 skýjað
Nareearssuaq +27 léttekýjað
Nuuk +16 snjófcoma
Osló 6 skýjað
Stokkhótmur 8 þokumóða
Þórshöfn 4 skýjað
Algarve 20 Mttakýjað
Amsterdam 6 skýjað
Barcelona 16 hálfskýjsð
Barlln 12 sk^að
Chicago +8 lóttskýjeð
Feneyjar 12 þokumóða
Frankfurt 9 skýjað
Glasgow 4 snjóél
Hamborg 8 rignlng
Las Palmae 18 skýjað
London 8 rigning
Los Angeles 16 heiðsklrt
Lúxemborg 6 skýjað
Madrld 16 lóttskýjað
Malaga 21 heiðskírt
Mallorce 17 lóttskýjað
Montreal +3 tnjókoma
New York 6 rignlng
Oriando 17 skýjað
Paris 10 skýjað
Róm 18 þokumóða
Vfn 8 þokumóða
Washington 8 rigning
Wlnnlpeg +18 léttskýjað
höfti og Reykjavík
- segir Poul Miehelsen, borgarsljóri
POUL Michelsen, borgarstjóri í Þórshöfti, höfiiðstað Færeyja, kom
til Reykjavíkur í gær í opinbera heimsókn í boði borgarstjórnar.
Michelsen er að endurgjalda heimsókn Davíðs Oddssonar, borgar-
stjóra, sem sótti Þórshöfit heim á síðastliðnu sumri, en samskipti
höfúðstaðanna eru mikil. í fylgd með borgarstjóranum er borgar-
stjórn Þórshafiiar og sjötíu tónlistarmenn, sem halda munu tónleika
í dymbilvikunni. Heimsókninni lýkur á laugardag.
„Þetta er líklega í tuttugasta
sinn, sem ég kem til Reylcjavíkur,
en borgarstjórnin er nýlega kjörin
og sumir borgarfulltrúar hafa aldr-
ei skoðað Reykjavík áður,“ sagði
Michelsen. „Það er margt líkt með
Reykjavík og Þórshöfn og ég held
að Reykvíkingar og Þórshafnarbúar
geti margt lært hvorir af öðrum.
Þórshöfn er ekki stór, en hún hefur
sömu stöðu _ í Færeyjum og
Reykjavík á íslandi; hún er mið-
punktur alls þjóðlífsins og því fylgja
sömu vandamál og Reylcjavík á við
að glíma. Það er athygiisvert að sjá
hvemig Reykvíkingar hafa leyst
þessi vandamál."
Michelsen og fylgdarlið hans
munu meðal annars skoða Borgar-
skipulag Reykjavíkur, skipulagnýju
hverfanna í Grafarvogi, aðbúnað
aldraðra, útivistarsvæði, skíða-
svæðið í Bláfjöllum og fleiri ffam-
kvæmdir á vegum Reykjavíkur-
borgar.
„Reykjavík og Þórshöfn hafa
skipzt á heimsóknum að jafnaði
annað hvert ár. Davíð kom með
myndasýningu ffá Kjarvalsstöðum
þegar hann heimsótti okkur í fyrra
og við vildum koma með einhvem
menningarviðburð með okkur líka,"
sagði Michelsen. Hann gekkst sjálf-
ur fyrir samningu tónverksins, sem
færeysku tónlistarmennimir hyggj-
ast flytja í Langholtskirkju á
skírdag, en það nefnist „Jesús og
maðurinn frá Makedóníu". Mich-
elsen sagði að tónlistarlíf hefði eflzt
mjög í Þórshöfti á undanfömum
árum og hann vonaðist til að höfuð-
staðimir tveir gætu auðgað hvor
annars menningarlíf, eins og rejmd-
ar ætti að vera á öllum Norðurlönd-
unum.
Auk þess að gegna embætti
borgarstjóra situr Michelsen einnig
á færeyska Landsþinginu fyrir
Fólkaflokkinn. Miklar hræringar
eru nú í færeyskum stjómmálum
og sagðist Michelsen hafa átt erfítt
með að komast frá, þar sem flárlög
lægju fyrir þinginu þessa dagana,
en hann hefði sent varamann fyrir
sig til þess að geta sótt Reyk-
víkinga heim.