Morgunblaðið - 22.03.1989, Síða 13

Morgunblaðið - 22.03.1989, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989 13 hins vegar skemmtilega sögu og mikilsverða. Þau segja okkur að málnotendur láta sig málið jafnan miklu varða. Á það hefur svo marg- oft verið bent að til úrskurðar um hvað sé gott mál eða vont mál, jafn- vel rétt mál eða rangt, verður ekki leitað til neinnar mállögreglu, um það eru ekki til nein viðunandi fyrir- mæli, enda ekki til nein stofnun sem bær sé að gefa slík fyrirmæli. Þetta skiptir meira máli en kann að virð- ast við fyrstu sýn, einfaldlega vegna þess að það er almenn og skiljanleg ósk málnotenda að til séu afdráttar- laus svör við hveijueina. Það sýna allar þær fyrirspumir sem berast til þáttarins Daglegt mál í ríkisút- varpinu eða til Orðabókar Háskól- ans og íslenskrar málstöðvar. Er þá allt jafiigott? Nú er vitanlega eðlilegt að spurt sé hvort það sé þá skoðun mín að allt mál sé jafngott, uppfylli það þau einföldu skilyrði að vera merk- ingarbært og þjóna málnotendun- um. Þessari spumingu get ég vel svarað játandi frá einum sjónarhóli en neitandi frá öðmm. Það getur orðið dálítið erfíð afstaða en mér þykir hún samt þess virði að skýra hana ofurlítið. Vitanlega á hver sá málnotandi sem telst hafa lært sitt móðurmál, þ.e.a.s. tungutak þess umhverfís þar sem hann óx upp, fullan rétt á að vera tekinn gildur sem málnot- andi. Hann á fullan rétt á því að menn umgangist tungutak hans með virðingu rétt eins og tungutak annarra. Þetta em einföld mann- réttindi, einföld þegnréttindi í sam- félagi siðaðra. Enginn ætti að eiga það yfír höfði sér að vera kallaður „þágufallssjúkur" eða sakaður um „kunnáttuleysi" í eigin tungu. Hins vegar eiga líka allir rétt á að fá þá fræðslu sem nauðsynleg er til að gera sér grein fyrir að hér ríkir ekki fijálslyndi í þessu efni. Þrátt fyrir það að ekki er til nein formleg stofnun sem hafi vald til að setja lög og reglur um mál og málnotkun er ljóst að til er óeiginleg stofnun sem sumpart er sjálfskipuð, sum- part sjómskipuð. Eg kýs að kalla hana málstofnunina og skal reyna að skýra hvað við er átt. Málstofnunin er ekki til húsa á einum stað. Hún býr víða. í henni sitja kennarar og lærðir menn á öllum skólastigum, í henni sitja flytjendur leiðbeiningaþátta um málnotkun, í henni sitja leiðbein- endur um gott og fagurt mál, hvar sem þeir em staddir. Þessi stofnun er ekki einlit en hefur þó komið sér upp ákveðnum reglum um eitt og annað. Málstofnunin hefur t.d. komið sér saman um að beijast gegn hverskonar breytingum á fall- beygingu orða (ær, mær, kýr, Vísir, læknir, faðir, móðir, systir, bróðir o.s.frv.). Hún hefur líka sett sér að vinna gegn „þágufallssýki" og „flá- mæli“, svo eitthvað sé nefnt. Og málstofnunin hefur einsett sér að hreinsa tunguna af erlendum „orð- skrípum", eins og gjama er sagt um tökuorð, ef þau era yngri en frá því um 1400. Þannig sleppur útlenska eins og prestur og biskup í gegn, jafnvel lektor og dósent, en hins vegar ekki sjoppa og bíslag, punktering og drossía hvað þá flass- ari og sánd. Þessi viðleitni málstofnunarinnar er einkum mikilvæg í þrennu tilliti: Hún stuðlar að því að halda málinu einsleitu, hamlar gegn óþörfum mállýskumun, tryggir eftir föngum að allir skilji alla, hvaðan sem þeir koma af landinu eða hvert sem þeir fara á landi hér. í annan stað stuðlar barátta málstofnunarinnar að því að halda tengslunum við eldri málstig þannig að við skiljum rit- mál fyrri tíðar. Og í þriðja lagi styð- ur hún að því að halda uppi §ömg- um umræðum um einstök áþreifan- leg atriði í málnotkuninni. En hún er líka varasöm. Ekki einasta vegna þess að hún stimplar málfar íslend- inga, skipar einum skör lægra en öðmm, segir jafnvel: „Ekki er hann nú mikil mannvitsbrekka hann Gunnsi: hann sagði „mér vantar að tala við læknirinn!““ heldur einnig vegna hins að hún stuðlar að því að samræðumar um tunguna snúist um aukaatriði og um leið skapast sú hætta að við sjáum ekki það sem mestu skiptir. Um þetta skal ekki fjölyrt að sinni en staðhæfíngin og viðvömnin látnar standa og bíða betri tfma. Lokagrein birtist á morgun. Höfundur er cand.mag. iíslensku ogstarfaði við framhaldsskóla og ■ Háskóla frá 1970—1987og ernú deildarstjóri kennslubókadeildar hjá Bókaforlaginu Iðunni. Þau leiðu mistök urðu í grein Heimis Pálssonar í blaðinu í gær að orðið mótaka misritaðist og brenglaði merkingu setningarinnar. Rétt mun hún vera svona: Hvomg- ur okkar Valdimars mun hafa á hraðbergi mikinn orðaforða tengd- an mótöku, hvað þá rauðablæstri. Morgunblaðið biðst velvirðingar á mistökunum. hins vegar sá að á sjúkrahúsum í Reylqavík einni er áætlað að loka m.a. 50 rúmum á öldrunarlækn- ingadeildum i 3 mánuði i sumar. Á sama tima standa einnig 57 fullbúin ný rúm fyrir sjúka aldr- aða á Borgarspítalanum og Skjóli sem stjórnvöld leyfa ekki að séu tekin í notkun. Samt er viðurkennt að yfír 200 sjúkrapláss vantar nú þegar til að sinna sár- ustu neyð aldraðra. Félagshyggjustjómin hefur fund- ið nýja spamaðarleið: Með því að fækka námsferðum lækna og reka sjúklinga heim, eða hindra þá í að komast í sjúkrastofnun, má í nafni félagshyggju spara stórfé. Raunhæfiim lausnum er hafiiað Fyrir nokkmm ámm vom það sömu félagshyggjuöfl með Alþýðu- bandalagið í broddi fylkingar sem hrópuðu í angist „sjúklingaskattur" og klómðu augun úr hveijum þeim sem vildi ræða hugmyndir um leið- ir til þess að auka kostnaðarvitund notandans og starfsfólksins. Þeir réðust harkalega gegn hugmyndum um að tryggja áfram vandaðan rekstur með möguleikum á aukinni kostnaðarhlutdeild þeirra notenda, sem á því hefðu efni. Þó var öllum ljóst að í engu skyldi ráðast gegn þeim sem ekki hefðu bolmagn til að taka aukinn þátt í kostnaði. Hefðu slíkar hugmyndir fengið að þróast, stæðum við ekki frammi fyrir svo ómannúðlegum fram- kvæmdum sem raun ber vitni. Reyndar er mér kunnugt um að innan ríkisstjómarinnar fínnast menn sem sýna meiri stjómvisku og sanngirni en fram kemur í hegð- un þríeykisins. Slíkir menn hljóta nú að rísa upp og mótmæla vinnu- brögðunum. Félagshyggjuöflin hafa sýnt lítinn áhuga á því að heyra hvað starfsfólk hefur um málin að segja. En það skyldi þó aldrei vera að starfsfólk hefði hugmyndir um spamaðarleiðir sem ekki tefldu heilsu manna í hættu? Er mögulegt að það þekki til reksturs deilda sinna og óski sjálft eftir bættum aðferðum til þess að auka kostnað- araðhald og hagræðingu í rekstri? Varla, ef dæma má af vinnubrögð- um félagshyggjuaflanna. Sú skoðun virðist vera ríkjandi hjá vinstristjóminni að ekki þurfí að tefja tímann við vangaveltur og vandaðan undirbúning að hagræð- ingarátaki. Félagshyggjuöflin hafa fundið aðra lausn. Hún er eitthvað á þá leið að sópa sjúklingum og starfsfólki af sjúkradeildum og líma spjald á hurðina þar sem stendur: Lokað — Allir sjúklingar snúi heim — Þar bíða ykkar vinir og vandamenn á atvinnuleysisbót- um — Allir una glaðir við sitt — í nafini félagshyggjunnar. Höfundur er borgarfulltrúi og formaður Sambands ungra sjálf- stæðismanna. Kartöfluvandinn: TINDUR JAKANS eftirÞorvald Gylfason Lífskjör almennings í landinu em miklu lakari en efni standa til. Þetta blasir við, hvert sem litið er. Vinnu- laun flestra starfsstétta em mun lægri hér en í mörgum nálægum löndum, og verðlag er yfirleitt miklu hærra hér en í útlöndum. Fjöldi fólks á erfitt með að ná endum saman, jafnvel þótt við séum ein ríkasta þjóð heims, ef þjóðarfram- leiðsla á mann er höfð til marks. Hvemig stendur á þessu? Ein ástæðan er sú, að stjórnmálamenn leggja þungar byrðar á herðar al- mennings í landinu, ýmist í hugsun- arleysi eða af ásettu ráði til að þóknast þröngum sérhagsmunum á kostnað þjóðarheildarinnar. Þeir bera stjómarfarslega ábyrgð á gegndarlausri sóun almannafjár á mörgum sviðum þjóðlífsins, til dæmis í landbúnaði. Þessi óráðsía hefur viðgengizt í landinu um ára- tugaskeið undir vemdarvæng ríkis- valdsins, en varla með vitund og vilja almennings. Það er mjög mikil- vægt að mínum dómi, að fólkið í landinu geri sér fulla grein fyrir því, hversu mikill vandinn er að vöxtum, því að annars er engin von til þess, að sóunin verði stöðvuð í tæka tíð. Kartöflur: 800 til 1.000 milljónir Kartöfluvandinn nú segir sína sögu. Eins og ég hef skýrt frá í grein hér í blaðinu nýlega (sjá Morgunblaðið, 15. marz 1989), greiða heimilin í landinu 800 milljónum króna meira fyrir kartöflur á hveiju ári en þau þyrftu, ef innflutningur erlendra kartaflna væri fijáls. Skýringin er einföld. Hvert kíló af kartöflum kostar nú um 115 krónur í búðum, meðan kaupmenn hafa sagzt mundu geta selt innfluttar kartöflur fyrir 35 krónur hvert kíló. Verð- munurinn er því 80 krónur á hvert kíló. Heildameyzla kartaflna í landinu er um 10.000 tonn á ári. Þess vegna greiða neytendur 800 milljónum króna meira fyrir kartöfl- ur á ári en þeir þyrftu að greiða, ef innflutningur væri fíjáls. Síðan fyrri greinin var skrifuð fyrir nokkr- um dögum, hefur kartöfluverðið verið hækkað upp í allt að 135 krón- ur fyrir hvert kfló að meðaltali, svo sem komið hefur fram í fréttum, þannig að neytendur greiða nú allt að 1.000 milljónum meira fyrir kart- öflur á ári en þeir þyrftu. Hvað býr undir? Svarið er ein- falt: Stjómmálamennimir fórna hagsmunum almennings um allt land fyrir hagsmuni um 100 kart- öflubænda, en þá er átt við fjölda ársverka við kartöflurækt, þótt fleiri einstaklingar en svo komi við sögu. Innflutningsbann, sem kostar neytendur 800 til 1.000 milljónir króna á hveiju ári, kostar því 8 til 10 milljónir króna á ári á hvert ársverk kartöflubænda. Með þessu er auðvitað ekki verið að gefa það í skyn, að hver bóndi hagnist um 8 til 10 milljónir króna á ári, heldur vekja athygli á því, að kostnaður almennings vegna innflutnings- bannsins er úr öllu skynsamlegu samhengi við fjölda þeirra bænda, sem er ætlað að njóta vemdarinnar. Hvers vegna gera stjómmála- menn annað eins og þetta? Það stafar af þvi, að miklir, einbeittir og augljósir hagsmunir em bundnir við kartöflurækt, en hagsmunir neytenda em dreifðir. Þess vegna sjá bændur sér hag í því að beijast fyrir áframhaldandi innflutnings- banni, án þess að almenningur sjái sér hag í því að streitast á móti, jafnvel þótt skaði almennings sé margfalt meiri en ávinningur bænda. Þess vegna eiga fijáls við- skipti yfirleitt undir högg að sækja. Árnór Ragnarsson blaðamaður hefur fullyrt það hér í blaðinu, að grein mín sé „byggð á sandi“ og Þorvaldur Gylfason „Það er makalaust, að stj órnmálamönnum skuli haldast það uppi ár effcir ár og áratug eftir áratug að halda lífskjörum almennings niðri með þessum hætti, hvort sem það er gert í hugsunarleysi eða af ásettu ráði til þess að þjóna þröngum sér- hagsmunum á kostnað þjóðarheildarinnar.“ „til þess eins að slá lyki í augu neytenda“ og líkir málflutningi mínum við “blekkingapólitík eins og Greenpeace-samtökin stunda gegn okkur“. Amór gerir tvær efn- islegar athugasemdir. Annars vegar rengir hann þær upplýsingar, að kaupmenn geti boðið kartöflur fyrir 35 krónur hvert kíló. Sigurbjartur Pálsson kartöflubóndi tekur í sama streng í sama blaði. Um þetta er ekki annað að segja en það, að for- stjóri Hagkaupa, Jón Ásbergsson viðskiptafræðingur, hefur lýst því yfír opinberlega oftar en einu sinni, að Hagkaup geti boðið neytendum þetta verð, 35 krónur hvert kfló. Úr því að Hagkaup segjast geta boðið neytendum þetta verð með því að gera hagstæða kaupsamn- inga erlendis og halda flutnings- kostnaði, dreifíngarkostnaði og álagningu í lágmarki, virðist það mjög sennilegt, að aðrar verzlanir geti gert það líka. Hins vegar reng- ir Amór þær upplýsingar Hagstofu íslands, að fyöldi ársverka við kart- öflurækt sé um 100. Ég sé enga ástæðu til þess að rengja upplýsing- ar Hagstofunnar. Mér er ekki kunn- ugt um, að Hagstofan hafí nokkum tíma gefið rangar upplýsingar. Kjúklíngar og egg: Sama saga Kartöfluvandinn er ekki eins- dæmi. Svipuðu máli gegnir um kjúklinga og egg. Kjúklingar kosta nú um 550 krónur hvert kíló í búð- um. Kaupmenn hafa sagzt mundu geta boðið erlenda kjúklinga fyrir 160 krónur hvert kfló, ef innflutn- ingur væri fijáls. Verðmunurinn er 390 krónur á hvert kfló. Heildar- neyzla kjúklinga í landinu er um 1.400 tonn á ári. Þess vegna greiða neytendur næstum 550 milljónum króna meira fyrir kjúklinga á ári en þeir þyrftu, ef innflutningur væri fijáls. Og hvað em þeir marg- ir kjúklingabændurnir, sem inn- flutningsbanninu er ætlað að vemda gegn erlendri samkeppni? Þeir em 40 til 45 samkvæmt upp- lýsingum Hagstofunnar, en þá er átt við fjölda ársverka við kjúkl- ingarækt eins og í kartöfludæminu. Vemdin kostar sem sagt 12 milljón- ir króna að minnsta kosti á hvert ársverk kjúklingabænda! En eggin? Þau kosta nú um 330 krónur hvert kíló í verzlunum. Kaupmenn hafa sagzt mundu geta selt innflutt egg fyrir 95 krónur kflóið. Verðmunurinn er því 235 krónur á hvert kíló. Heildameyzla eggja í landinu er um 3.200 tonn á ári. Þess vegna greiða neytendur rösklega 750 milljónum króna meira fyrir egg á ári en þeir þyrftu, ef innflutningur væri fijáls. Fjöldi ársverka við eggjaframleiðslu er 85 til 90 samkvæmt upplýsingum Hag- stofunnar. Vemdin kostar því rösk- lega 8 milljónir króna á hvert árs- verk! Samtals nemur kostnaður al- mennings vegna einokunar kart- öflu-, eggja- og kjúklingaframleið- enda þess vegna 2.100 milljónum króna á ári að minnsta kosti eða næstum 34.000 krónum á hveija fjögurra manna fjölskyldu í landinu að meðaltali. Með þessu er reyndar ekki öll sagan sögð, því að neyzla kartaflna, eggja og kjúklinga væri áreiðanlega mun meiri og hagur almennings betri eftir því, ef þessar vömr væm ódýrari, en látum það vera. Til samanburðar kostar rekst- ur ríkisspítalanna 4.500 milljónir króna á þessu ári samkvæmt fjár- lögum. Það væri sem sagt hægt að spara fjárhæð, sem nemur næst- um helmingi af öllum rekstrar- kostnaði ríkisspítalanna, með því einu að afnema bann við innflutn- ingi kartaflna, eggja og kjúklinga! Þetta væri hægt með einu penna- striki á Alþingi. Sérhagsmunahollusta Það er makalaust, að stjóm- málamönnum skuli haldast það uppi ár eftir ár og áratug eftir áratug að halda lífskjömm almennings niðri með þessum hætti, hvort sem það er gert i hugsunarleysi eða af ásettu ráði til þess að þjóna þröng- um sérhagsmunum á kostnað þjóð- arheildarinnar. Önnur eins sér- hagsmunahollusta þekkist óvíða í veröldinni nema í einræðisríkjum, til dæmis í Austur-Evrópu og Afríku. Stjómmálamenn, sem leggja blessun sína yfir þvílíka sóun eða eiga jafnvel beinlínis frum- kvæði að henni, bera ekki glöggt skynbragð á fé, svo að ekki sé meira sagt. Er nokkur furða, að Qármál þjóðarinnar og efnahagsmál yfírleitt séu i kaldakoli? En það er auðvitað ekki við stjómmálamennina eina að sakast. Við lifum í lýðræðisríki. Við getum kennt sjálfum okkur um, þegar öllu er á botninn hvolft. Og hvemig væri umhorfs í okkar þjóðfélagi, ef aðrar þjóðir svöraðu okkur í sömu mynt? Hvemig skyldi okkur reiða af, ef bandarískir og evrópskir stjómmálamenn gættu hagsmuna þarlendra sjómanna af sama harðfylgi eða hugsunarleysi og islenzkir stjómmálamenn vemda hagsmuni kartöflu-, eggja- og kjúklingabænda? Þá væri okkur íslendingum fyrirmunað að flytja út físk. Þá myndi þessi þjóð lepja dauðann úr skel. ' Höfúndur erprófessor íhagfræði við Hiskóla Islands. Hafrifr í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI A JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁDHÚSTORGI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.