Morgunblaðið - 22.03.1989, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989
Til vamar „einu“ tré
eftir Guðrúnu
Jónsdóttur
Eins og flestum mun enn í fersku
minni var staðfest á síðasta ári skipu-
lagsáætlun fyrir Kvosina í Reykjavík.
í þeirri áætlun er gert ráð fyrir
mikilli uppbyggingu víða á svæðinu
eða 36.000 fermetrum og eru þá
ekki meðtalin bílastæðahús nyrst í
Kvosinni. Nú er það svo hér í bæ
að auknu byggingarmagni fylgir
aukin bílaumferð, enda er í deili-
skipulagstillögunni gert ráð fyrir að
umferð aukist þar.
Þetta á t.d. við um Vonarstræti.
Um þá götu segir í skipulagsáætlun-
inni að gert sé ráð fyrir að Vonar-
stræti breikki annars vegar austast
við gatnamót Lækjargötu og hins-
vegar vestast við gatnamót Suður-
götu.
I síðara tilvikinu er gert ráð fyrir
að svonefndri beygjuakrein verði
bætt við götuna og á hún að vera
fyrir bíla, sem aka í vesturátt eftir
Vonarstræti og leið eiga til norðurs
um Suðurgötu. Nú vita allir sem til
þekkja að erfitt er um vik á þessum
stað og hreint ekki auðvelt að breikka
götuna án þess að það gangi út yfir
annað sem þama er fyrir. I þessum
greinarstúf ætla ég að staldra við
þetta atriði og afleiðingar þess fyrir
hlyninn sem þar stendur norðan gö-
tunnar og gleður augu vegfarenda
og annarra sem eru svo lánsamir að
hafa hann fyrir augunum daglega.
Mér er sagt að hlynir geti orðið 300
ára.
Þessi hiynur mun hafa verið gróð-
ursettur árið 1918 af Nicolaj Bjarna-
son eða flölskyldu hans sem þá bjó
í húsinu nr. 5 við Suðurgötu, en á
þeirri lóð stendur hlynurinn. Hann
er því aðeins 70 ára. Christian Zims-
en, sem bjó í næsta húsi segist muna
eftir trénu um 1925, en þá var það
farið að gægjast yfir axlarháa girð-
ingu, sem þama stóð. Nú er hlynur-
inn orðinn a.m.k. 10 metra hár og
ummál greinanna ólaufgaðra um 13
m. „Þetta er ugglaust eitt fallegasta
tré borgarinnar og margir sem
mundu spjma við fótum ef því jrði
fómað," segir garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar í viðtalj við Morg-
unblaðið 22.janúar 1988. í sama við-
tali segir garðyrkjustjóri að tréð sé
friðað og allt verði gert til þess að
það fái að njóta sín. Þá er rætt um
væntanlega nýbyggingu Happdrætt-
is Háskóla íslands á þessum stað sem
sagt er að verði löguð að trénu og
byggð í stómm boga þannig að trénu
sé óhætt.
Þótt ekki sé við góðan og velviljað-
Guðrún Jónsdóttír
„Hlynurinn fágri gæti
því orðið fyrsta raun-
verulega fórnarlamb
óyfirvegaðra ákvarð-
ana varðandi þetta
svæði. Fréttin frá 22.
janúar ’88 um að hlyn-
urinn fái að standa kom
í kjölfar þess að margir
þóttust þá þegar sjá
fyrir þessa hættu og
margar aðrar, sem
flokka má undir um-
hverfisspjöll. Reyk-
víkingar eru leiddir eitt
skref í einu í þessu
máli, án þess að tæki-
feeri gefist til að ræða
hvort rétt sé stefiit.“
an garðjrkjustjóra að sakast þá er
það svo, að með þessu er ekki nema
hálf sagan sögð, því eins og ég hef
þegar minnst á er í skipulagsáætlun-
inni gert ráð fyrir viðbótarakrein á
þessum stað, enda nýbyggingar og
áform þar um_í fullum gangi einmitt
á svæðinu. Ég hef athugað allar
aðstæður á staðnum töluvert gaum-
gæfilega og niðurstaða mín er sú,
að tréð sé í stórhættu. Nú fyrir
skömmu óskaði skipulagsstjóm ríkis-
ins eftir upplýsingum frá Reykjavík-
urborg um það, hvemig háttað yrði
útfærslu gatnamótanna við Suður-
götu. Fyrirspum þessi var fram kom-
in vegna yfirstandandi umQöllunar
stjómarinnar um nýbyggingu Happ-
drættis Háskóla íslands norðan Von-
arstrætis. Þau svör bárust að gatan
ætti að breikka um rúma 2_ m til
norðurs frá núverandi legu. Á upp-
drætti, sem fylgdi með svarinu, er
sýnd kröpp beygja (radíus 5 metrar)
á götunni við tréð. Þessi beygja er
svo kröpp að einungis fólksbílar geta
náð henni, en ekki strætisvagnar,
rútur eða stærri bílar. Ef beygjan
væri gerð þannig úr garði að stærri
bílar gætu náð henni (radíus 10—15
metrar) þá gengur línan gegnum
tijástofninn eða fer jafnvel inn fyrir
hann. Nú kjmni einhver að spyija
hvort nauðsjm beri til að strætó,
rútur og stærri bílar noti þessa ak-
rein.
Því er til að svara að Vonarstræti
er aðalumferðargatan í suðurhluta
Kvosarinnar skv. Kvosarskipulagi.
Það er því óvarlegt að áætla að slíkt
sé hægt að útiloka, enda beinlínis í
ósamræmi við þær framkvæmdir,
sem þama standa í dag, svo sem
fyrirhugað ráðhús.
Það má því segja að í þessu máli,
sem svo mörgum öðram, leiði hvað
af öðra. Uppbyggingin kallar á
aukna umferð, aukin umferð kallar
á breikkun gatna, breikkun gatna
felur í sér eyðileggingu á umhverfi
gamla borgarkjamans, sem ekki get-
ur aðlagað sig hveiju sem er.
Hljmurinn fagri gæti því orðið
fyrsta raunveralega fómarlamb
óyfirvegaðra ákvarðana varðandi
þetta svæði. Préttin frá 22. janúar
’88 um að hljmurinn fái að standa
kom í kjölfar þess að margfir þóttust
þá þegar sjá fyrir þessa hættu og
maigar aðrar, sem fiokka má undir
umhverfisspjöll. Reykvíkingar era
leiddir eitt skref í einu í þessu máli,
án þess að tækifæri gefist til að
ræða hvort rétt sé stefnt.
Vegna þess að þetta tré er vinur
minn taldi ég óhjákvæmilegt að vekja
athygli á þeirri hættu sem að því
steðjar. Þetta tré hefur glatt mig svo
oft og því vil ég leggja eilítið lóð á
vogarskál trénu til bjargar. Orð garð-
yrkjustjóra frá 22. janúar 1988 end-
urspegla viðhorf borgarbúa. f fullri
vissu um það að borgaryfírvöld séu
sama sinnis vil ég vekja athygli á
því, að sú útfærsla á skipulaginu sem
hingað til hefur verið sýnd tryggir
ekki að tréð sé hólpið. Nýjar lausnir
verða að koma til.
Höfundur er arkitekt.
s §&f|$ 1 M mmt
Frá leikmannastefnunni.
Leikmannastefaa kirkjunnar:
Rætt um breytingu
á embættaskipunum
Leikmannastefiia Þjóðkirkjunnar var haldin fyrir skömmu að
Kirkjuhvoli í Garðabæ. Þetta var þriðja leikmannastefha sem haldin
hefur verið síðan að ákveðið var að halda þær árið 1987.
Margt var rætt á stefnunni, en
aðalmálefni hennar var erindisbréf
sóknamefnda, framvarp kirkju-
þings 1988 til laga um skipan full-
trúa í prófastdæmi og embætta inn-
an þjóðkirkjunnar. Leikmanna-
stefnan taldi ekki óeðlilegt að í sam-
ræmi við brejrttar aðstæður í þjóð-
félaginu væri athugað gaumgæfí-
lega hvort ekki væri ástæða til að
gera breytingar í sambandi við
umræddar embættisskipanir. En
senda bæri frumvarpið í prestaköll-
in um land allt til nánari athugunar
og umfjöllunar þannig að tekið
væri tíllit til allra aðstæðna hjá ein-
stökum söfnuðum.
í ályktun stefnunnar kemur auk
þess eftirfarandi fram: Hér er verið
að fjalla um viðkvæm mál sem
snerta trúar- og tilfínningalíf fjölda
manns. Kirkjunnar menn mega því
ekki gera þær brejrtingar á aldar-
gamalli skipan mála, að þær breyti
afstöðu fólks til kirkjunnar til hins
verra. Kirkjan má síst við því miðað
við stöðuna í dag.
Leikmannastefnan tók því ekki
afstöðu til umrædds framvarps að
svo komnu máli, taldi ekki tíma-
bært að gera svo fyrr en það hefur
verið rætt í prestaköllunum.
Leikmenn kallast í þessu tilviki
allir óvígðir menn sem skírðir hafa
verið til kristinnar trúar. Á leik-
mannastefnu koma tveir þáttakend-
ur frá hveiju prófastsdæmi nema
þrír frá Reykjavík. Þeir era kosnir
til ijögurra ára á Héraðsfundum í
hvetju prófastsdæmi. Þá sátu fund-
inn tveir þátttakendur frá Kirkju-
ráði og áheyrnarfulltrúar frá
KFUM, KFUK, íslenska Kristni-
boðssambandinu og samtökunum
Ungt fólk með hlutverk.
SigluQörður:
22.000 tonnum
afloðnu landað
frá áramótum
Siglufirði.
BÚIÐ er að landa hér 22.000
tonnum af loðnu frá áramótum.
Togarinn Stálvík SI landaði hér
122 tonnum af góðum fiski, aðal-
lega þorski, á fimmtudag og föstu-
dag og togarinn Sigluvík SI landaði
hér 100 tonnum í gær, mánudag.
Hins vegar er alltaf sami dauðinn
hjá netabátunum sem gerðir era
út héðan frá Siglufirði.
- Matthías
Skírdagsmessur
ÁRBÆJARKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónusta skírdag með altar-
isgöngu kl. 14. Sr. Guömundur
Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Guðsþjónusta
með altarisgöngu skírdag kl.
20.30.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl.
20.30. Sr. Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Útvarps-
guðsþjónusta kl. 11 skírdag, á
vegum samstarfsnefndar kris-
tinna trúfélaga. Prédikun kaf-
teinn Anne Marie Reinholdsen.
Sr. Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL:
Guðsþjónusta skírdag kl. 14. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Jáessa skirdag
kl. 11. Altarisganga. Sr. Hjalti
Guðmundsson.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðs-
þjónusta skírdag kl. 10. Altaris-
Sanga. Sr. Guðmundur Óskar
Hafsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Ferm-
ing og altarisganga kl. 11. Sr.
Guðmundur Karl Agústsson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavfk: Guðs-
þjónusta skírdag kl. 20.30. Reyn-
ir Guðsteinsson syngur einsöng.
Altarisganga. Sr. Ceci! Haralds-
son.
GRENSÁSKIRKJA: Altarisganga
skírdag kl. 14. Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Guðsþjón-
usta skírdag kl. 20.30. Altaris-
ganga. Sr. Sigurður Pálsson pre-
dikar.
HÁTEIGSKIRKJA: Tónleikar kl.
17. Flutt tónlist J.S. Bach. Orgel,
sembal og fiðla Sean Bredley.
Messa kl. 20.30. Sr. Tómas
Sveinsson.
HJ ALLAPRESTAKALL, Kópa-
vogi: Kvöldguðsþjónusta skírdag
kl. 20 í messuheimili Hjallasóknar
í Digranesskóla. Sr. Kristján E.
Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Sunnuhlíð kl. 16. Altar-
isganga. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA, Kirkja
Guðbrands biskups: Altaris-
ganga skírdag kl. 18. Sóknar-
nefndin.
LAUGARN ESKIRKJ A: Kvöld-
guðsþjónusta kl. 20.30. Altaris-
ganga. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Messa skírdag kl.
20. Sr. Ingólfur Guðmundsson
predikar. Sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson.
SELJAKIRKJA: Fermingarguðs-
þjónustur kl. 10.30 og kl. 14.
Miðnæturguðsþjónusta kl.
20.30. Altarisganga. Kór undir
stjórn Margrétar Pólmadóttur
syngur. Sr. Valgeir Ástráðsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa skírdag ki. 20.30. Sr. Sol-
veig Lára Guðmundsdóttir.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti: Skírdag: Tilbeiðsla
hins allra heilagasta altarissakra-
mentis kl. 18 til miðnættis.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Til-
beiðsla skírdag kl. 18.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sam-
kirkjuleg útvarpsguðsþjónusta
skírdag í Bústaðakirkju. Kafteinn
Anne Marie Reinholdtsen talar.
FÆREYSKA sjómannaheimilið:
Samkoma á skírdag kl. 17.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa skírdag í Reykjalundi kl.
20.30. Altarisganga. Sr. Birgir
Ásgeirsson.
GARÐAPRESTAKALL: [ Garða-
kirkju kl. 20.30, skírdag, altaris-
ganga. Sr. Gunnlaugur Garöars-
son. Bessastaðakirkja: Guðs-
þjónustur skírdag kl. 10.30 og
kl. 14. Ferming og altarisganga.
Sr. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐASÓKN: Altarisganga
í Hrafnistu kl. 14 skírdag og altar-
isganga í Víðistaðakirkju kl.
20.30. Kór Víðistaðakirkju. Org-
anisti Kristín Jóhannesdóttir. Sr.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Helgistund skírdagskvöld kl.
20.30 með altarisgöngu. Kór
Öldutúnsskóla syngur undir
stjórn Egils Friðleifssonar. Prest-
ur sr. Gunnþór Ingason.
KAPELLA St. Jósefssystra f
Garðabæ: Kl. 17 skírdag til-
beiðsla.
KAPELLAN st. Jósefsspftala:
Tilbeiðsla hins allra heilagasta
sakramentis skírdag frá kl. 18 til
miðnættis.
KARMELKLAUSTUR: Tilbeiðsla
skírdag kl. 17.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Fermingarguðsþjónusta skírdag
kl. 10.30. Altarisganga. Organisti
Gróa Hreinsdóttir.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Ferming-
arguðsþjónusta skirdag kl. 10.30
og kl. 14. Kór Keflavikurkirkju
syngur. Organisti Örn Falkner.
Sóknarprestur.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa
með altarisgöngu skírdag kl.
20.30 á stofndegi heilagrar
kvöldmáltíðar. Kór Grindavíkur-
kirkju syngur undir stjórn organ-
istans Önnu Guðmundsdóttur.
Sr. Örn Bárður Jónsson.
HVERAGÉRÐISPRESTAKALL:
Skírdag: Fermingarmessa í
Hveragerðiskirkju kl. 11 og
messa í Kotstrandarkirkju kl. 14.
Sr. Tómas Guðmundsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta skírdag kl. 10.30.
Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa
skírdag kl. 21. Sóknarprestur.
GAULVERJABÆJARKIRKJA:
Messa annan páskadag kl. 14.
ÞINGVALLAKIRKJA: Altaris-
ganga skírdag kl. 21. Sóknar-
prestur.
AKRANESKIRKJA: Messa
skírdag kl. 14. Altarisganga.
Messað í sjúkrahúsinu kl. 13.
Aitarisganga og messa kl. 15.30
dvalarheimilinu Höfða. Organisti
og kórstjóri Jón Ól. Sigurðsson.
Sr. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Ferm-
ingarguðsþjónustur skírdag kl.
11 og kl. 14. Sóknarprestur.
SIGLUFJARÐARKIRKJA: Guös-
þjónusta skírdag kl. 14.15. Altar-
isganga. Samkoma í kirkjunni kl.
20.30 á vegum Þorvalds Hall-
dórssonar og Ungs fólks með
hlutverk. Sr. Stína Gísladóttir.
GLERÁRKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónustur skírdag verða
þrjár: Kl. 10, kl. 12 og kl. 14.