Morgunblaðið - 22.03.1989, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989
17
í framhaldi af
kj ötfar skönnun
eftirJóhannes
Gunnarsson
Gerlakönnun Neytendasamtak-
anna á nautahakki og kjötfarsi hef-
ur vakið mikla athygli og umtal.
Fjölmargir neytendur hafa haft
samband við samtökin og fagnað
þessu frumkvæði um leið og þeir
hafa lýst yfir óánægju sinni með
ástand mála.
Gerðu sýnatökumenn
mistök?
I Morgunblaðinu 18. mars sl. lýsa
forráðamenn kaupfélaganna í Vest-
mannaeyjum og á Akureyri „efa-
semdum við sýnatöku í þessari
könnun og töldu að óvönduð vinnu-
brögð gætu. skýrt óeðlilegan gerla-
fjölda í farssýnum, þar sem kjötfars
sé mjög viðkvæm vara sem þolir
geymslu í mjög skamman tíma."
Um þetta er margt að segja. í
fyrsta lagi má benda á að öll sýni
sem komu frá öðrum stöðum en
höfuðborgarsvæðinu fengu sömu
meðferð. Þau voru keypt seinni
part dags og send næsta morgun
til Reykjavíkur og síðan beint í
rannsókn. Þama var farið nákvæm-
lega eftir þeim reglum sem rann-
sóknarstofa Hollustuvemdar ríkis-
ins lagði. Enda kemur í ljós að sýni
frá t.d. Egilsstöðum, þar sem staðið
var eins að sýnatöku og frá öðrum
stöðum utan af landi, reyndust öll
í lagi.
I öðru lagi má benda á að sum
sýnin, bæði frá Akureyri og Vest-
mannaeyjum, reyndust í lagi, þ.e.
neysluhæf. Ef þeir sem sýnin tóku
á þessum stöðum hafa klúðrað
málum eins og haldið er fram,
hvemig stendur þá á því að nokkur
sýni þaðan reyndust í mjög góðu
lagi?
Neytendas^mtökin vísa því full-
yrðingum seljenda í Vestmannaeyj-
um og á Akureyri á bug. Staðið var
að sýnatöku á eðlilegan hátt.
í áðumefndri frétt í Morgun-
blaðinu segir fulltrúi Kaupfélags
Vestmannaeyja að „það er alveg
sjálfsagt mál að láta sýni af hendi
við rétta aðila en þá þarf að kvitta
fyrir að svo sé gert.“ Hveijir eru
réttir aðilar að mati hans? Eru það
kannski ekki fulltrúar neytenda?
Hroki af þessu tagi nær engri
átt. í stað þess að viðurkenna mis-
tök, er reynt að sannfæra almenn-
ing um klúður þeirra sem að rann-
sókninni stóðu. Þeir eru meiri menn
sem viðurkenna að hlutirnir hafi
ekki verið í lagi og „biðja afsökunar
á að þetta skuli hafa komið fyrir“
eins og forsvarsmenn Fjarðarkaupa
í Hafnarfírði gerðu.
Því má við bæta að samkvæmt
upplýsingum frá rannsóknarstofu
Hollustuvemdar ríkisins eru niður-
stöður þessarar könnunar síst lak-
ari, ef miðað er við meðaltal þeirra
sýna sem berast til rannsóknarstof-
unnar frá heilbrigðisfulltrúum á öllu
landinu.
Neytendur eiga kröfu á
betri vöru
Fulltrúar heilbrigðiseftirlits í
Reykjavík og í Vestmannaeyjum
hafa tjáð sig um þessar niðurstöður
í fjölmiðlum. Neytendasamtökin
hljóta að lýsa vonbrigðum vegna
viðbragða þessara aðila. Það var
helst á þeim að skilja að svona
væru hlutimir, ekkert væri því að
gera.
Neytendasamtökin em metnað-
arfyllri fyrir hönd framleiðenda
unnra kjötvara. Það hlýtur að vera
hægt að framleiða betri vöm en
könnunin sýnir. Er t.d. eitthvað sem
réttlætir að sum sýnanna reynast
gölluð eða óneysluhæf vegna of
mikils fjölda saurkólígerla? Við
skulum hafa það á hreinu að tilvist
saurkólígerla gefur tilefni til að
ætla að þar leynist einnig sjúk-
dómsvaldandi gerlar, enda eiga
saurkólígerlar uppmna sinn í iðmm
manna eða dýra og eiga aðeins eina
leið út. Ef þessir gerlar fínnast í
slíkum sýnum, er einfaldlega um
sóðaskap að ræða á einhveijum
stigum framleiðslunnar. Þó svo að
fulltrúar heilbrigðiseftirlits á sum-
um stöðum sætti sig við það, þá
gera neytendur það ekki.
Lokaorð
Könnun Neytendasamtakanna
hefur m.a. verið gagnrýnd fyrir það
að sýni hafí ávallt verið keypt í
verslunum, en ekki í kjötvinnslum
í þeim tilvikum þar sem kjötfarsið
er framleitt þar (oftast er það þó
framleitt í verslununum sjálfum).
Þessu er til að svara að neytendur
kaupa kjötfarsið úti í búð en ekki
í viðkomandi kjötvinnslu. Kjötfars,
sem er í góðu lagi er kjötvinnslan
sendir það frá sér, getur verið ósölu-
hæft þegar neytandinn kaupir það
vegna mistaka í verslun.
-Á það skal lögð áhersla að ekki
er endilega verslun um að kenna
þegar farsið er jafn lélegt og í sum-
um tilvikum í könnuninni. Eflaust
má í einhveijum tilvikum rekja það
allt til viðkomandi sláturhúss. Eftir
Jóhannes Gunnarsson
„Á það skal lögð
áhersla að ekki er endi
lega verslun um að
kenna þegar farsið er
jafii lélegt og í sumum
tilvikum í könnuninni.
Eflaust má í einhverj-
um tilvikum rekja það
allt til viðkomandi slát-
urhúss.“
stendur sem áður, að varan sem
neytandinn fær í hendurnar er í of
mörgum tilvikum stórgölluð og með
nánast ekkert geymsluþol. Því er
afar brýnt að úrbætur verði gerðar.
Þess vegna hafa Neytendasamtökin
farið þess á leit við heilbrigðisyfir-
völd að þetta verði rannsakað til
hlítar. Tilgangurinn með þessari
gerlakönnun er að fá betri vöru, svo
einfalt er það.
Höfundur er formaður Neytenda-
samtakanna.
Athugasemd vegna gerla-
könnunar Neytendasam-
takanna á hakki og farsi
hvergi nálægt framleiðslu né pökk-
un þessarar vöru. Einnig skal á það
bent að kjötfarsið er merkt því kjöt-
vinnslufyrirtæki, sem framleiðir
kjötfarsið og er því algerlega á
þess ábyrgð.
Það er galli við annars nauðsyn-
lega úttekt á þessum málum af
hendi Neytendasamtakanna, að
taka ekki fram ef vörur þær, sem
samtökin taka í slíka rannsókn, eru
í sérstökum neytendaumbúðum og
merktar öðrum en söluaðila.
Að öðru leyti fagna ég þessari
úttekt neytendasamtakanna, vegna
þess að slíkar úttektir koma af stað
nauðsynlegri umræðu um gæðamál
almennt í íslenskri matvælafram-
leiðslu.
F.h. íslensku Matvælaráðgjafar-
VEGNA niðurstöðu gerlakönn-
unar Neytendasamtakanna vil ég
fyrir hönd íslensku matvælaráð-
gjafarinnar sf. taka fram eftir-
farandi:
Starfsmaður fyrirtækisins hefur
með höndum reglulegt innra eftirlit
með vinnslu matvæla í Miklagarði
við Sund, sem felur í sér bæði
fræðslu um gæðamál almennt auk
þess sem fylgst er reglulega með
öllum þeim þáttum, sem geta haft
áhrif á framleiðsluna. Slíkt eftirlit
hefur verið framkvæmt í Mikla-
garði við Sund í eitt og hálft ár.
Á það skal lögð áhersla að Mikli-
garður hvorki framleiðir né selur
kjötfars úr kjötborði fyrirtækisins,
og hefur ekki gert í nokkra mán-
uði. Mikligarður kaupir allt Iqotfars
tilbúið í neytendapakkningum,
þannig að Mikligarður kemur
innar sf.
Gunnar Kristinsson,
matvælafræðingur.
2486.-kr
sparnaður
OSRAM
* með Dulux El sparnaðar
perunni.
Til dæmis Dulux El 15w
• Sparar 2486 kr. í orkukostnaöi
miðað viö orkuverð Rafmagns-
veitu Reykjavíkur 5,18 kr/kw.st.
• Áttföld ending miöað við venju-
lega glóperu.
i
í PÁSKAVIKUNNI
VERÐA VERSLANIR OPNAR
SEMHÉRSEGIR:
Þriðjudaginn 21.mars frá kl. 10-19
Miðvikudaginn 22.mars frá kl. 10-20
Matvöruverslun frá kl. 10-21
Laugardaginn 25.mars frá kl. 10-16
KRINGWN
- VERSLUN OG SKEMMTUN í EINNIFERÐ!
í KRINGLUNNI ER ALLTAF GOTT VEÐUR OG ÞAR
ERU NÆG ÓKEYPIS BÍLASTÆÐI. ÞAÐ GERIR
PÁSKAINNKAUPIN AUÐVELD OG ÁHYGGJULAUS.