Morgunblaðið - 22.03.1989, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 22.03.1989, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐŒ) MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989 Fjárhagsáætlun Kópavogs: Rekstur bæjarfélags- íns stendur í jámum -segir Krislján Guðmundsson bæjarstjóri en þróast í rétta átt þegar á leið. VQ) afgreiðslu Qárhagsáætlunar Kópavogs kom fram að tekjur bæjarsjóðs árið 1988 fóru rúm- lega 29 milljónum króna fram úr áætlun, þar af varð innheimta útsvara 43,3 milljónum króna hærri en gert var ráð fyrir. Er það fyrst og fremst að þakka staðgreiðsiukerfinu að sögn Kristjáns Guðmundssonar bæjar- stjóra. Áætlaðar tekjur ársins 1989 eru 1.098 milijónir króna, þar af er útsvar rúmar 666 millj- ónir króna en útsvarsprósentan hefur verið ákveðin 6,7% og eru fjórir aðrir kaupstaðir með sama prósentuhlutfall. Gert er ráð fyr- ir að greiða niður skuldir bæjar- sjóðs um 92 milljónir króna, en bæjarsjóður skuldar nú liðlega 800 milljónir króna og eru eignir bæjarsjóðs metnar hátt á sjðunda milljarð. Meðal fyrirhugaðra framkvæmda á þessu ári er vinna við byggingu nýrrar sundlaugar, sem áformað er að taka í notkun á næsta ári. Áframhald verður á framkvæmdum við byggingar aldraða í Vogatungu og nýtt dag- vistarheimili mun rísa í Suður- hlíðum. Til félagsmála er áætlað að veija um 379 milljónum króna og er það sem fyrr stærsti liður áætlunarinnar. „Þrátt fyrir auknar tekjur á árinu 1988 virðist sem rekstur bæjarfé- lagsins standi í jámum og er ástæð- an sú að stofnkostnaður við ýmsar framkvæmdir fór töluvert fram úr áætlun á síðasta ári þannig að nei- kvæður jöfnuður varð um 20 til 25 milijónir," sagði Kristján. Sagðist hann vera ánægður með stað- greiðslukerfi skatta, að vísu hefði það verið laust í reipunum í fyrstu „Staðgreiðslan skilar sér fljótt og vel til bæjarfélagsins og ekki má gleyma að þetta eru verðtryggðar Qárhæðir," sagði Kristján. „Ég get ekki betur séð en að fólk leggi sig meira fram um að standa í skilum nú en áður og það er líka mun auðveldara fyrir alla að skipuleggja öll Qármál þegar menn vita hvar þeir standa." Skuldir lækkaðar um 92 milljónir Sagði Kristján að við gerð fjár- hagsáætlunar fyrir árið 1989 væri lögð áhersla á að lækka skuldir bæjarfélagsins um rúmar 92 millj- ónir. Til að ná því marki er beitt kerfisbundnu aðhaldi og hagræð- ingu og hefur reglum um notkun bifreiða verið breytt. Ræstingar voru endurskipulagðar í skólum og eru auk þess í athugun annars stað- ar. Þá hefur yfirvinnu verið komið í fastar skorður og nánast engin ný stöðugildi leyfð. „Þá ætlum við að endurmeta ýmis þjónustutilboð, til dæmis eru uppi hugmyndir um að bæjarfélagið hætti að reka siglingaklúbbinn en sérstakt félag taki þar við," sagði Kristján. „Við höfum einnig verið að kanna hvort ekki megi breyta rekstri dagvistarheimila, með því að bjóða upp á sveigjanlegri vistun- artíma fyrir bömin. Rekstur gæslu- valla verður einnig endurskoðaður og svo eru uppi hugmyndir um að tengja betur saman tómstundastarf bama og unglinga, sem fram fer í skólum og á vegum bæjarfélagsins. Ný sundlaug á næsta ári Helstu framkvæmdir verða við nýju sundlaugina og verður það forgangsverkefni hjá okkur að koma henni í notkun á næsta ári. Framlag ríkisins til þeirra fram- kvæmda á að vera um það bil fjórð- ungur af stofnkostnaði samkvæmt lögum, en á síðustu þremur ámm hafa fengist 5.000 krónur til þeirra framkvæmda ár Iivert, samtals 15 þúsund krónur. í ár er áætlað að um 14 milljónir fari til sundlaugar- innar en þegar hefur verið varið 62 milljónum til hennar." Á síðasta ári fjölgaði íbúum í Kópavogi um 500 og eru nú rúm- lega 15.500, þar af eru 1.200 67 ára og eldri. „Þama er tvennt sem kemur til,“ sagði Kristján. „Fólk sem byggði bæinn upphaflega er að komast á þennan virðulega aldur og eins hefur verið töluvert að- streymi fólks á þessum aldri." Til framkvæmda við íbúðir aldraða við Vogatungu er áætlað að verja 24 milljónum á árinu og til dagvistar- heimilis í Suðurhlíðum 8 milljónum. Til félagslegra íbúða eru áætlaðar 15 milljónir, bæði til verkamanna- bústaða og kaupleiguíbúða og 6 milljónir til þjónustukjama við byggingu aldraðra í Sunnuhlíð. Þá verður hugað að frumhönnun að heilsugæslustöð, sem reisa á í aust- urbænum og er ráðgert að veita til þess 500 þús. en heilsugæslustöðin sem er í miðbænum annar ekki Á undanfornum árum hefur lóðum verið úthlutað í Suðurhlíðum Kópavogs og er þar að rísa nýtt íbúðarhverfi. Morgunbiaðið/Emiiia Askorun til Safnaðarstjórnar Fríkirkjunnar í Reykjavík — flutt í Fríkirkjunni eftir messu á pálmasunnudag eftír Þorstein Þorsteinsson Síðla janúar í ár fór sendinefnd á vegum Safnaðarfélags Fríkirlq'- unnar í Reykjavík til Bertu Kristins- dóttur Bemburg, varaformanns og talsmanns sljómar Fríkirkjusafnað- arins, og lagði fram áskorun um að halda aðalfund hið fyrsta og eigi síðar en 15. mars, eins og gera ber lögum safnaðarins samkvæmt. Brást Berta vel við heimsókninni og sagðist vissulega skyldu halda fundinn fyrir 15. mars. Leið svo og beið og ekkert fréttist um væntan- legan aðalfund. Ákvað þá stjóm Safnaðarfélagsins að senda tveim stjómarmönnum í viðbót, þeim Magnúsi Siguroddssyni og ísak Sig- urgeirssyni, Ijósrit af sömu áskorun. Voru bréf send í ábyrgð en bréfið frá ísak var samstundis endursent óopnað. í byijun síðustu viku kom tilkynning um að bréfsins til Magn- úsar hefði ekki verið vitjað. Þegar leið að 15. mars og sýnt þótti að ekki yrði orðið við áskorun safnaðarmanna né heldur farið að lögum, fóru menn að ræða um hvemig hægt væri að ná eyrum stjómar, sem neitar að halda fundi og les ekki bréf. Ákveðið var að fara í messu á pálmasunnudag og lesa þar upp áskorun eftir messu. Tveim dögum fyrr kom svo í ljós að um fermingarmessu var að ræða. Keypti safnaðarfélagið því gjafir handa fermingarbömum. Þegar messu var lokið og ferm- ingarböm og prestur gengin út, sátu á milli 50 og 60 messugestir eftir. Er lestur eftirfarandi erindis hófst, flýttu þeir stjómarmenn, sem í kirkju voru, sér á burt. Eftir var þó endurskoðandi safnaðarreikn- inga, fyrrum formaður safnaðar- stjómar og eiginmaður Bertu, Ragnar Bemburg. Ekki vildi hann biðja konu sína varaformanninn um að koma og svara spumingum. Þama sátu svo menn í eina og hálfa klukkustund og biðu eftir ein- hveijum úr stjóminni. Þegar enginn kom, var ákveðið að láta þetta duga að sinni og í þess stað koma áskor- uninni á framfæri á annan máta, auk þess sem Cecil Haraldsson, prestur safnaðarstjómar, bauðst til að koma skilaboðiun á framfæri. Það undarlega er þó að þegar safn- aðarfólk hafði yfirgefíð kirkjuna, mætti Berta til kirkju til fundar við eiginmann sinn og prestinn, þótt ekki vildi hún ræða við okkur. Okkur þykir miður að þurfa að fara með þetta í fjölmiðla en okkur er nauðugur einn kostur. Hér á eftir fer ræða Þorsteins Þorsteinssonar. 19. mars 1989. Kæra safnaðarfólk og aðrir kirkjugestir. Ég heiti Þorsteinn Þorsteinsson og ég bið ykkur forláts og bið um gott hljóð hér í kirkjunni okkar, svo ég geti borið upp nokkrar spuming- ar og áskorun til þeirra sem telja sig vera safnaðarstjóm Fríkirkjunn- ar í Reykjavík, og nokkur orð önnur. Fyrst af öllu vil ég bjóða inni- lega velkomin í söfnuðinn bömin, sem hér voru að staðfesta skím sína og trú. Það er gott að sjá hér stóran hóp safnaðarfólks við það ljúfa skyldustarf að bjóða nýja meðlimi veikomna með nærveru sinni og fyrirbænum, og þar með einnig staðfesta að okkur er annt um kirkjuna okkar og söfnuð þrátt fyrir allt, sem hér hefur fengið að viðgangast undanfama 9 mánuði og kannski lengur. Ég get eiginlega ekki orða bund- ist um það að minnast einhverra þeirra fjölmörgu gleðistunda lífs mtns, sem tengjast á óijúfanlegan hátt tilveru Fríkirkjunnar í Reykjavík. Ég minnist fagnaðar- funda foreldra minna vestur á Þing- eyri, þegar pabbi kom heim eftir að hafa verið valinn prestur þessa safnaðar. Ást þeirra var svo áber- andi og einlæg — gleðin næstum taumlaus. Þorsteinn Þorsteinsson Ég minnist móttakanna niðri við höfn þegar söfnuðurinn tók á móti okkur á fögrum sólskinsdegi. — Ég hafði aldrei séð slíkan mannijölda fyrr. Mjmdir af móttökum þjóð- höfðingja blikna við hliðina á þess- ari minningu minni. Hér í kirkjunni fengum við bræð- umir að þenja okkur í stríðssöng æskunnar, Áfram Kristsmenn, krossmenn, í drengjakór Fríkirkj- unnar. Hér var ég fermdur. Og nú eru rúmlega 22 stutt ár síðan pabbi gaf mig og konu mína saman í heilagt hjónaband hér í þessari kirkju eftir messu á gaml- árskvöld. Þegar pabbi lét af störfum hér fyrir rúmum 10 árum eftir 29 ára starf, sagði hann m.a. í viðtali í Morgunblaðinu um Fríkirkjusöfn- uðinn: „Þetta er ákaflega elskulegt fólk og starfið hefur gengið snurðulaust fyrir sig öll þessi ár.“ — Einnig sagði hann nánast engan mun á Fríkirkjunni og þjóðkirkjunni. — „Fólk hefur lítið breyst frá því að ég hóf prestsstörf. Ég kveð þennan söfnuð með þakklátum huga og samgleðst honum að hafa nú feng- ið nýjan og valinkunnan kenni- mann.“ — Það var séra Kristján Róbertsson. En skömmu síðar dró ský fyrir sólu, að því er virðist af völdum fárra einstaklinga, sem öllu vildu ráða og má Guð einn vita hvaða tilgangi það þjónaði. Stjóm safnaðarins laumaði inn lagabreytingum árið 1981, sem gerði það að verkum að nú þyrfti aðeins aukinn meirihluta í stjóm safnaðarins til þess að geta rekið prestinn, að því er virðist án sam- ráðs við söfnuðinn eða safnaðar- fundi, sem voru þá og eru enn æðsta vald safnaðarins. Hið vandasamasta verk og ógeð- felldasta, sem nokkum tíma gæti hugsanlega þurft að vinna í þessum söfnuði var nú allt í einu komið eins og þjófur um nótt í hendur eins þúsundasta hluta safhaðar- ins. Og á einhvem óskiljanlegan hátt jafnvel eftirsótt af þeim sem að þessu stóðu. Það virðist vera samband milli þessa atburðar og þess að séra Kristján sagði starfi sínu lausu mjög fljótlega eftir þetta. Um framhaldiö þarf ég ekki að fjölyrða hér. Mikið hefur verið um það skrafað og skrifað. Hitt er öllu merkilegra að þessar uppákomur verða sífellt, þegar þetta sama fólk kemst f stjómar- meirihluta, sem stóð að lagabreyt- ingunni 1981.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.