Morgunblaðið - 22.03.1989, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989
23
Hafiiarborg:
Sextán félagar úr Sinfóníuhljómsveit íslands halda tónleika í Hafharborg á skírdag.
Páskatónleikar á
SEXTÁN félagar úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands halda tónleika
í Hafiiarborg á skírdag, 23. mars,
klukkan 16. Um er að ræða 14
málmblásara og 2 slagverks-
menn.
Hópurinn hélt sína fyrstu tón-
leika í Fríkirkjunni í Reykjavík á
skírdag fyrir ári og ætlunin er að
slíkir tónleikar verði árviss atburð-
ur.
Efnisskráin er ijölbreytt og
spannar fimm aldir. Elsta verkið
skírdag
er eftir Giovanni Gabrieli, sem var
organisti og tónsmiður í Feneyjum
um 1600. Ennfremur verða flutt
verk eftir J.S. Bach, W. Byrd, R.
Strauss, B. Britten o.fl.
(Fréttatílkynníng)
Brussel:
Fulltrúar atvinnuvega
funda með sendiherrum
Brussel. Frá Kristófer M.
Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÍÐASTLIÐINN laugardag hélt
Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, fúnd hér i
Brussel með sendiherrum íslands
í aðildarríkjum Evrópubanda-
lagsins (EB) og fulltrúum hags-
munasamtaka á íslandi. Fundur
af þessu tagi var síðast haldinn
í ráðherratíð Matthíasar Mathie-
sen.
Á fundinum var gerð grein fyrir
niðurstöðum Óslóarfundar leiðtoga
Fríverslunarbandalagsins (EFTA)
og þeirri vinnu sem fyrirhuguð er
í framhaldi af honum. Þá var farið
ofan í saumana á þeim tæplega 30
samstarfsverkefnum, sem eru á
döfinni mili EB og EFTA. Rætt var
um hver staða þeirra væri og hveij-
ar væru áherslur íslendinga á þeim
vettvangi.
Á fundinum var einnig rætt um
hvemig mætti sem best skipuleggja
samráð stjómarastofnana við at-
vinnulífíð. Fulltrúar atvinnuveg-
anna vöktu athygli á ýmsum mála-
flokkum innan EB sem þeir töldu
skipta íslenskt atvinnulíf miklu
máli, s.s. heilbrigðisreglugerðum
sem em í undirbúningi innan banda-
lagsins. Rætt var um reglugerðir
sem varða upprunareglur, sameig-
inlegt tollskjal EFTA/EB og reglur
sem unnið er að um útflutningstak-
markanir sem kunna að varða t.d.
útflutning íslendinga á gámafiski
til aðildarríkja Evrópubandalagsins.
Farið var yfir hugsanleg áhrif sam-
þykktar leiðtogafundar EFTA um
fríverslun með fisk og rætt var
hvaða áhrif samþykktin kynni að
hafa á ríkisstyrki til sjávarútvegs
og möguleika Islendinga til aukinn-
ar sóknar á mörkuðum innan
EFTA-landanna. Jón Baldvin sagði
að mikili áhugi væri fyrir því að
efla samstarf utanríkisþjónustunn-
ar við atvinnuvegina og hugsanlegt
væri að fundir af þessu tagi yrðu
haldnir reglulega.
Fundinn sátu, auk utanríkisráð-
herra, Einar Benediktsson, sendi-
herra í Brussel, Ólafur Egilsson,
sendiherra í London, Haraldur
Kröyer, sendiherra í París, Sverrir
Haukur Gunnlaugsson, sendiherra
í Genf, Páll Ásgeir Tryggvason,
sendiherra í Bonn, Hörður Helga-
son, sendiherra í Kaupmannahöfn,
og Hannes Hafstein, ráðuneytis-
stjóri í utanríkisráðuneytinu. Full-
PÁSKAVAKA verður haldin í
Hallgrímskirkju laugardaginn
25. mars. Þessi guðsþjónusta á
sér langa hefð að baki í kaþólsku
kirkjunni og hefúr einnig á
seinni árum rutt sér til rúms
meðal mótmælenda.
Á fyrstu öldum kristninnar vöktu
menn alla páskanóttina við lestur
og bænagjörð, en þeir hlutir eru enn
miðlægir í páskavökunni í dag.
Lesnir eru textar bæði úr Nýja og
Gamla testamentinu og tengjast
þeir hinum fyrstu páskum er Isra-
elsmenn voru leiddir úr Egyptalandi
trúar atvinnuveganna á fundinum
voru Magnús Gunnarsson, stjómar-
formaður Útflutningsráðs, Vil-
hjálmur Egilsson, frá Verslunarráð-
inu, Ólafur Davíðsson, Fél. ísl. iðn-
rekenda, Þorleifur Jónsson, frá
Landssambandi iðnaðarmanna og
Helgi Sigurðsson, frá Sambandi ísl.
sammvinnufélaga.
gegnum Rauða hafið, en í kirkju-
legri hefð er sá atburður táknmynd
um skímina.
Skímarinnar er einmitt minnst á
sérstakan hátt í páskavökunni með
endumýjun skímarheitanna.
Páskavakan hefst klukkan 23 á
laugardags og lýkur laust eftir mið-
nætti. Sr. Hjalti Hugason þjónar
fyrir altari og sr. Sigurður Pálsson
predikar. Tónlist flytja organistam-
ir Hörður Áskelsson og Þröstur
Eiríksson og félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju.
(Fréttatilkynningf)
Bifreiðaskoðun íslands:
Minni númer á bifhjól
Bifreiðaskoðun íslands hefúr
óskað eftir því við dómsmála-
ráðuneytið að gerð verði reglu-
gerðarbreyting er heimili fyrir-
tækinu að nota aðra gerð af skrá-
setningamúmerum á bifhjól en
nú tíðkast.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu á þriðjudag hafa bifhjóla-
eigendur verið óánægðir með nýju
skrásetningamúmerin vegna
stærðar þeirra. Telja þeir að af
þeim geti skapast slysahætta auk
þess sem oft sé erfitt að koma þeim
fyrir á hjólunum.
Til eru þijár gerðir skrásetning-
amúmera. Stærð A, sem er að finna
á flestum bifreiðum, stærð B,
tveggja hæða númer sem aðallega
henta bandarískum bifreiðum og
stærð C sem notuð er á minni bif-
reiðar.
í reglugerð frá dómsmálaráðu-
neytinu segir að bifhjól eigi að nota
stærð B og létt bifhjól stærð C.
Bjöm Friðfinnson, fyrrverandi
stjómarformaður Bifreiðaskoðunar
íslands, segir að stuðst hafi verið
við evrópskan staðal er þetta var
ákveðið. Nú hafi hins vegar komið
í ljós að þessi stærð er ekki hentug
í öllum tilvikum. Bifreiðaskoðun
íslands hefur því sent dómsmála-
ráðuneytinu erindi þar sem óskað
er eftir þvi að fá að nota stærð C
á bifhjól.
Páskavaka í Hallgrímskirkju
Pera dagsins í dag
DULUX EL
80% orkusparnaður dæmi:
OSRAM
Heildsölubirgðir
EJÓHANN ÓLAFSSON &C0.HF.
43 Sundaborg 13-104 Reykjavík - Sími 688 588
HÁTÍÐARMATSEÐILL
Fordrykkur Kir Royal
KjötseyðiPrintem
Reykt laxafrauð með piparrótarrjóma
EpIakraumisCalvados
Ristaður lambahryggur með perlulauk í rauðvínssósu
Kirsuberjafs með súkkulaðisósu
KafR og konfekt
EINNIG KYNNUM VIÐ NÝJAN
RETTA
SERRETT AM ATSEÐIL
OPIÐ ALLA PÁSKANA
11:00-11:30 nema 2. í páskum 06-11:30