Morgunblaðið - 22.03.1989, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989
49
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRSLITAKEPPNIN
Keflavík fær KR í heimsókn:
„Pressuvöm
geri r leikinn
miklu
skemmtilegri"
7 segir Pálmar Sigurðsson, fyrirliði
íslandsmeistara Hauka, sem spáir
miklum spennuleik í Keflavík
ÞAÐ þarf ekki að fara mörgum
orðum um það að mikil barátta
verður í íþróttahúsinu í
Keflavík - þegar Kefivíkingar
taka á móti KR-ingum í kvöld.
Þeir sem standa uppi sem sig-
urvegarar hampa Islandsbik-
arnum. Það eru tíu ár síðan að
KR-ingar urðu íslandsmeistar-
ar, en þeir Jón Kr. Gíslason og
Axel Nikulásson, leikreyndustu
leikmenn Keflavík, segjast hafa
beðið eftir að geta handfjatlað
íslandsbikarinn ítíu ár, eða
síðan þeir byrjuðu að leika með
Keflavikurliðinu.
Geysileg stemmning hefur verið
í úrslitaleikjum liðanna - fyrst
í Keflavík, þar sem heimamenn fóru
með sigur af hólmi og síðan í Haga-
skólanum, þar sem KR-ingar stóðu
uppi sem sigurvegarar.
Pálmar Sigurðsson, fyrirliði Is-
, landsmeistara Hauka, segir að
þriðji leikur liðanna - í Keflavík,
verði án efa gífurlega spennandi.
. „Bæði liðin leika hraðan körfu-
knattleik og barátta leikmanna sé
mikil. Keflvíkingar eru sigurstrang-
legri - þar sem þeir leika á heima-
velli. Það hefur mikið að segja í
úrslitaleikjum, að leika heima,“
sagði Pálmar.
Laszlo Nemsth og Wobstor
hafa gert góða hluti
„Það er greinilegt að ívar Webst-
er hefur gert góða hluti hjá KR -
hann á stóran þátt í því að KR-
liðið er að leika um meistaratitilinn.
Þá hefur þjálfarinn Laszio Nemeth
gert stórgóða hluti. Hann hefur náð
að þjappa leikmönnum KR-liðsins
saman og komið með ýmislegt nýtt.
Það er nýtt að íslensk félagslið leiki
grimma pressuvöm frá byijun til
leiksloka, eins og KR-Iiðið gerir.
Þessi ieikaðferð gerir leikinn
skemmtilegri - hraðin er mikill og
baráttan eftir því. Þessi vamarleik-
ur hefur stundum ekki farið að
virka fyrr en seinni hluta leiksins
- og þá gengið sem smurð vél,“
sagði Pálmar.
Guöjón er lyldlmaöur
„Keflvíkingar eiga skemmtilegt
lið. Gengi liðsins hefur þó verið upp
og niður, en heimavöllurinn hefiir
mikið að segja í hinum þýðinga-
mikla leik. Það háði Keflavíkurlið-
inu í leiknum í Reykjavík, að Guð-
jón Skúlason gat ekki beitt sér -
vegna meiðsla. Guðjón hefur leikið
mjög vel í vetur og verið geysilega
ógnandi í sókn. Vamarmenn hafa
þurft að hafa góðar gætur á hon-
um. Það veikir Keflavíkurliðið
óneitanlega ef Guðjón getur ekki
leikið með á fullu,“ sagði Pálmar.
Mikill áhugi er fyrir leiknum á
Suðumesjum og er reiknað með að
uppselt verði á leikinn þegar hann
hefst kl. 20.
íkvfild
KörfuboHi
Úrslitaleikur ÍBK og KR í íslands-
rtiótinu í körfuknattleik fer fram t
Keflavík I kvöld og hefst kl. 20.
Handbolti
1. deild karla:
Stjaman-ÍBV.....Digranesikl. 19
UBK-KA........Digranesi kl. 20.15
FH-KR.......Hafnarfirði kl. 20.15
Fram-Grótta.....Laugardal kl. 20
Valur-Vikingur.Valsheimili ki. 18.15
1. deild kvenna:
Haukar-Fram.....Hafnarflrði kl. 19
FH-Valur....Hafnarfirði kl. 21.30
Morgunblaðið/Einar Falur
Matthfas Elnarsson hefur leikið vel gegn Keflvíking-
um. Hér sést hann skora í Keflavík á laugardaginn, en
hann skoraði þá 20 stig.
Morgunblaöið/Einar Falur
Jón Kr. Gfslason hefur stjómað sínum mönnum eins
og herforingi gegn KR-ingum. Jón Kr. er einn leiknasti
körfuknattleiksmaður íslands.
KNATTSPYRNA / V-ÞÝSKALAND
Beckenbauer kallar á
leikmenn frá Ítalíu
V-Þýskaland leikurfimmtugasta landsleikinn undir hans stjórn í Sofíu
FRANZ Beckenbauer, lands-
liðsþjálfari V-Þýskalands, hef-
urkallað á leikmenn sem leika
á ítaliu, til að leika vináttu-
landsleik gegn Búlgaríu í Sofíu
íkvöld. Leikurinn erfimmtug-
asti landsleikur V-Þýskalands
undir stjórn Beckenbauers.
Astæðan fyrir því að hann kall-
ar á leikmennina á Ítalíu í vin-
áttuleik er að mikið er um meiðsli
hjá landsliðsmönnum sem leika í
V-Þýskalandi. Olaf Thon og Stefán
Reuter hjá Bayem eru meiddir og
einnig Frank Mill, miðherji Dort-
,mund og Jiirgen Klinsmann, mið-
heiji Stuttgart. Þá gefur Klaus
Allofs, fyrrum fyrirliði liðsins, ekki
kost á sér.
Fjórir leikmenn koma frá Ítalíu.
Lothar Matthaus og Andreas
Brehme, sem leika með Inter
Mílanó, Rudi Völler, sem leikur með
Róma og Thomas Berthold, sem
leikur með Veróna.
Leikurinn í Sofíu er upphitunar-
leikur fyrir heimsmeistaraleik
V-Þjóðverja gegn Hollendingum í
Rotterdam 26. apríl. Þjóðimar
gerðu jafntefli í V-Þýskalandi -
þær hafa báðar þrjú stig eftir tvo
leiki, en markatala V-Þýskalands
er betri.
Beckenbauer tók við landsliði
V-Þýskalands eftir Evrópukeppnina
í Frakklandi 1984. Undir hans
stjóm hefur landsliðið leikið 49
leiki, unnið 25, gerð 13 jafntefli og
tapað 11 leikjum. Markatalan er -
74:46.
Sextíu og einn leikmaður hafa
tekið þátt í þessum leikjum. Flesta
landsleiki undir stjóm Beckenbauer
hafa þessir leikmenn leikið: Matt-
háus 41, Völler 37 ogBrehme 34.
í
$
J
r
MorgunblaÖið/Sverrir
ísiandsmolstarar UBK Innanhúss
Breiðablik úr Kópavogi varð íslandsmeistari kvenna f innanhússknattspymu, en íslandsmótið fór fram í Laugar-
dalshöli fyrir nokkru. Á myndinni eru meistararnir, aftari röð frá vinstri: Ingibjöm Hinriksdóttir liðsstjóri, Jón
Þórir Jónsson þjálfari, Jóhann K. Helgadóttir, Sigrún S. Óttarsdóttir, Kristrún Daðadóttir, Kristrún Hermanns-
dóttir, Ásta María Reynisdóttir, Sigfriður Sóphusdóttir og Héðinn Sveinbjömsson aðstoðarliðsstjóri. Fremri röð frá
vinstri: Einarína Einarsdóttir, Sigríður Tryggvadóttir, Þjóðhildur Þórðardóttir, Ásta B. Gunnlaugsdóttir fyrirliði
með dóttur sína Hólmfríði Ósk, Ágústa Jónsdóttir, Sara J. Haraldsdóttir og Katrín Oddsdóttir.
FIMLEIKAR / ÍSLANDSMÓTIÐ
Guðjón hampaði
sex gullpeningum
GUÐJÓN Guðmundsson, fim-
leikakappi úr Ármanni, tryggði
sér sex gullpeninga og einn úr
silfri á meistaramóti íslands í
fimleikum. Guðjón, sem varð
meistari í fjölþraut, tryggði sér
fimm gullpeninga í keppni á
einstökum áhöldum.
Guðjón varð sigurvegari í æf-
ingum á gólfi, svifrá, tvíslá, í
stökki og hringjum. Hann var f
öðru sæti í keeppni á bogahesti, en
sigurvegari var Jóhannes Nfels Sig-
urðsson.
Fjóla Ólafsdóttir var sigurvegari
í keppni á tvíslá og gólfi. Ingibjöm
Sigfúsdóttir varð sigurvegari f
stökki og Bryndís Guðmundsdóttir
á slá.
Stigahæstu menn í einstokum greinum,
voru:
Gólfæfingar: Guðjón Guðmundsson 9.00,
Guðmundur Þór Brynjólfsson 8.25, Jón
Finnbogason 8.15.
Bogahestur: Jóhannes Nfels Sigurðsson
7.85, Guð^ón Guðmundsson 6.60, Jón Finn-
bogason 5.80.
Hringir: Guðjón Guðmundsson 8.00, J6-
hannes Nfels Sigurðsson 7.30, Guðmundur
Þór Brynjólfsson 6.00.
Stökk: Guðjón Guðmundsson 8.80, Guð-
mundur Þór Brynjólfsson 8.55, Jéhannes
Nfels Sigurðsson 8.45.
Tvíalá: Guðjón Guðmundsson 8.26, Jóhann-
es Nfels Sigurðsson 7.60, Skarphéðinn Hall-
dórsson 6.45.
Svifrá: Guðjón Guðmundssson 8.80, Jó-
hannes Níels Sigurðsson 6.65, Jón Finn-
bogason 8.20.
Konur
Stökk: Ingibjörg Sigfusdóttir 8.949, íjóla
Ólafsdóttir 8.881, Linda St. Pétursdóttir
8.725.
Tvfafá: Fjóla Ólafsdóttir 8.300, Lánda St.
Pétursdóttir 8.037, Bryndfs Guðmunds-
dóttir 7.900.
Sfá: Bryndfs Guðmundsdóttir 8.787, Linda
St. Pétursdóttir 8.662, Fjóla Ólafsdóttir
8.450.
Gólf: Fjóla Ólafsdóttir 8.562, Linda St.
Pétursdóttir 8.275, Linda B. Logadóttir
7.675.