Morgunblaðið - 22.03.1989, Side 51

Morgunblaðið - 22.03.1989, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTtR MffiVIKUDAGUR 22. MARZ 1989 51 HANDKNATTLEIKUR Sigurður með tilboð frá V-Þýskalandi SIGURÐUR Gunnarsson, lands- liðsmaður í handknattleik, hef- ur fengið tilboð frá vestur- þýska 2. deildarliðinu Fullingen um að leika með liðinu næsta vetur. Eg spái ekkert í þetta fyrr en staða ÍBV í deildinni fer að skýrast. Við erum að reyna að halda okkur uppi með öllum tiltækum ráðum og á meðan kemst ekkert annað að,“ sagði Sigurður í sam- tali við Morgunblaðið í gær, en hann þjálfar sem kunnugt er 1. deildarlið Vestmannaeyinga auk þess að leika með því. Fullingen leikur í suðurhluta 2. deildar, og er nú í 5. sæti deildarinn- ar. Sigurður sagðist ekkert þekkja til hjá félaginu. Forráðamenn þess hefðu hringt í sig eftir B-keppnina í Frakklandi og sýnt áhuga á að hann kæmi fyrir næsta vetur. „Ég er hins vegar með tveggja ára samning hér hjá ÍBV, þannig að það er alls ekki ljóst hvað verður," sagði Sigurður. Hann hefur leikið erlendis, bæði í V-Þýskalandi og á Spáni. Hann lék tvö keppnistímabil með Tres de Mayo á Spáni, en í Þýskalandi lék Sigurður fyrir nokkrum árum með Leverkusen. íslenskir landsliðs- menn undir smásiánni MÖRG v-þýsk fólðg hafa haft íslenska landsliðsmenn undir smásjánni eftir B-keppnina í Frakklandi. Sigurður Sveins- son, stórskyttan snjalla úr Val - er á förum til hins fræga félags Dortmund. Þá eru miklar líkur á að Alfreð Gísla- son gangi á ný til liðs við Essen, en Alfreð mun' fara næstu daga til V-Þýskalands og ræða við forráðamenn fé- lagsins. G ummersbach hefur haft mik- inn hug á að fá Kristján Arason, en eins og Kristján sagði í viðtali við Morgunblaðið, þá kann hann vel við sig hjá Teka á Spáni og ætlar að vera lengur í Santand- er. Sigurður Gunnarsson hefur fengið boð frá 2. deildarliðinu Fullingen. Aðrir leikmenn sem hafa verið nefndir í v-þýskum blöðum, eru Bjarki Sigurðsson úr Víkingi og FH-ingurinn Héðinn Gilsson. Þeir félagar vöktu athygli í Frakklandi fyrirt góða leiki. Héðinn Var V-Þjóðveijum erfíður i Strasbourg - hann og Sigurður Sveinsson fóru á kostum í leiknum, sem vannst - 23:21. Héðinn hefur hug á að leika með FH næsta vetur og Bjarki sagði í stuttu spjaili við Morgunblaðið að hann hafi ekkert heyrt frá félögum í V-Þýskalandi. Lemgo hefur aftur á móti haft samband við Héðinn. íslenskir handknattleiksmenn hafaverið vinsælir í V-f>ýskalandi undanfarin ár, en sl. vetur léku þeir Alfreð, Sigurður, Kristján og Páll Ólafsson þar og gerðu það gott. Þrír landsliðsmenn leika nú með liðum þar - Bjami Guð- mundsson og bræðumir Aðal- steinn og Bjöm Jónssynir. SigurAur Gunnarsson, landsliðsmaðurinn sterki, sést hér i Ieik með Eyjamönn- um. Sigurður lék með v- þýska liðinu Leverkusen á ánim áður. I KNATTSPYRNA Guðmundur Stelnsson skoraði tvö mörk gegn Þrótti. Framarar tryggðu sér aukastig Framarar tryggðu sér aukastig þegar þeir unnu Þrótt, 3:1, í Reykjavíkurmótinu í knattspymu í gærkvöldi. Guðmundur Steinsson skoraði tvö mörk fyrir Fram, sem hafði yfír, 1:0, í leikhléi. Fyrra mark Guðmundar var ódýrt, en það seinna afar glæsilegt - skot hans utan af kanti fór yfir markvörð Þróttar og f homið fjær. Það var svo Pétur Amþórsson sem tryggði Fram aukastigið með því að skora gegn sínu gömlu félögum - með viðstöðulausu skoti. HANDBOLTI / FORKEPPNI HM U-21 „Mikilvægir leikir fyrir lið í vnótunM - sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari pilta- landsliðsins, sem leikurgegn Belgíu um helgina Kjaminn úr þessu liði kemur til með að vera uppistaðan í landsliði íslands í heimsmeistara- keppninni, sem haldin verður hér á landi árið 1995 og því er mikilvægt að skapa þessum strákum næg verkefni. Þeir hafa ekki náð ár- angri sem landslið og því eru þetta mikilvægir leikir fyrir lið í mótun,“ sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari piltalandsliðsins skipað leik- mönnum tuttugu og eins árs og Þeir leika Þessir leikimn em í landsliðshópnum, sem leikur gegn Belgíu: Markverðir: Bergsveinn Bergsveinsson FH Sigtryggur Albertsson Gróttu HK Aðrir leikmenn: KR Einvarður Jóhannsson KR KR KR Finnur Jóhannsson ÍR FH Hilmar Hjaltason Sigurður Bjamason Ámi Friðleifsson .Stjömunni .Stjömunni Páll Ólafsson KR KR yngri, er hann tilkynnti hópinn í gær. Liðið leikur tvo leiki við Belga í undankeppni HM í Laugardalshöll um helgina. Á laugardag hefst við- ureignin klukkan 15, en klukkan 16 á páskadag. „Við teflum fram sterkum ein- staklingum, en þeir eiga eftir að sanna sig sem liðsheild," sagði Jó- hann Ingi. „Þeir eiga eftir að læra mikið og mótast — landslið verður ekki til á einni nóttu.“ Sigri íslenska liðið, leikur það tvivegis gegn Sviss i maí og sigur- vegararnir úr þeim leikjum taka þátt í HM, sem verður á Spáni í september. Svissneski þjálfarinn kemur til fslands til að fylgjast með leikjum helgarinnar, en Svisslendingar gera ráð fyrir að ísland sigri og hafa boðist til að greiða fargjöld og uppi- hald fyrir íslenska liðið, fari báðir leikimir í maí fram í Sviss. Að sögn Hilmars Bjömssonar, formanns unglingalandsliðsnefndar, kemur ekki til greina að taka slíku boði. „Það væri íþróttalegt sjálfsmorð. Svissneska liðið hefur leikið 12 leiki á árinu og staðið sig vel, meðal annars sigrað Vestur-Þjóðveija, en við emm að byija," sagði Hilmar. FráBob Hennessy i Englandi ÍÞRÚmR FOLK ■ RON Atkinson, fram- kvæmdastjóri Sheffield Wedi., seldi miðvallarspilarann Mark Proctor til Middlesbrough í gær á 300 þús. pund. Proctor, sem er 28 ára og hóf feril sinn hjá Middlesbro- ugh, lék síðan með^* Nott. Forest og Sunderland, áður en hann gekk til liðs við Sheffield Wed. B RON Atkinson hafði samband við Manchester United í gær og óskaði eftir að fá skoska landsliðs- manninn Gordon Strachan til Sheff. Wed. Leeds og Middles- brough hafa einnig áhuga á Strac- ham. Ef hann verður seldur frá United, er reiknað með að félagið vilji fá 250 til 300 þús. pund fyrir hann. ■ MALCOLM Ailison, þjálfar- inn góðkunni, sem hefur flakkað á milli félaga víðs vegar um Portug- al á undanfömum ámm, var rekinn frá portugalska félaginu Farense í gær. Allison var aðeins búinn að vera hjá félaginu í tvo mánuði og náði Farense, sem er í næst neðsta sæti, aðeins að vinna einn leik und- ir stjóm hans. ■ RAPHAEL Mead , fyrrum leikmaður Arsenal, sem lék með Sporting Lissabon gegn Skaga- mönnum f Evrópukeppninni, var seidur frá Dundee til Luton í gær á 250 þús. pund. ■ SOUTHAMPTON keypti i( gær velska landsliðsmanninn Barry Horne frá Portsmouth á 700 þús. pund. Horne er miðvallar- spilari. Jóhann Ingl Gunnarsson spu 91 NEWCASTLE keypti miðvall- arspilarann Paul Sweeney á 150 þús. pund frá Raith Rovers í Skotlandi. Frank Connor, fram- kvæmdastjóri Raith, sagði: „New- castle hefur tryggt sér snjallan leik- mann.“ I BRADFORD lét irska lands- liðsmanninn Mike Kennedy fara til Leicester í skiptum fyrir Jimmy Quinn, landsliðsmann N-íralands. Þessi skipti em metin á 300 þús. pund. ■ HULL keypti í gær Ian McParland frá Notts County á * 150 þús. pund. ■ BRIAN Talbot, fram- kvæmdastjóri WBA keypti tvo leik- menn frá Doncaster í gær. Þá Paul Raven, 18 ára og Ron Robin- son, 22 ára, á 180 þús. pund. ■ GRAEME Souness, fram- kvæmdastjóri Glasgow Rangers, var í gær dæmdur í bann hjá skoska knattspymusambandinu.' Hann má ekki vera á varamannabekknum út keppnistímabilið. Souness var dæmdur í bannið eftir að hafa ráð- ist að línuverði og dómara - eftir leik gegn Dimdee United. I BOCHUM vann StuttgarMA Kickers í V-Þýskalandi í gær- kvöldi, 2:1. KNATTSPYRNA / ENGLAND Jafntefli á Highbury Arsenal náði ekki að tryggja sér þijú stig í baráttunni um Eng- landsmeistaratitilinn — þegar Charlton kom í heimsókn á High- bury í gærkvöldi. Félögin skildu jöfn, 2:2. Leikmenn Arsenal hafa gefíð eftir að undanfömu og ekki fengið nema sex stig úr síðustu sex leikjum liðsins. Paul Mortimer skoraði fyrst fyrir Charlton, en David Rocastle og Paul Davis svörðuðu fyrir Arsenal. Steve MacKenzie jafnaði, 2:2, fyrir Charlton. QPR og Luton gerðu jafntefli, 1:1. Chelsea hefur ekki tapað í síðustu tuttugu og tveimur Ieikjum liðsins í 2. deild, vann, 1:2, í Sunder- land. 14.700 áhorfendur sáu Gabbidino skora fyrir heimamenn, en Graham Roberts og Kevin Wil- son skomðu fyrir Chelsea Roberts ‘ lét Tony Norman, markvörð Sund- erland veija frá sér vítaspymu. Glasgow Rangers og Dundee United gerðu jafntefli, 2:2, í skosku bikarkeppninni. 42 þús. áhorfendur sáu Kevin Drinkell og Ally McCoist skora fyrir heimamenn, en Kevin Callacher og Finninn Paatelainen skoruðu fyrir Dundee Utd. Liðin mætast aftur í Dundee á mánudag- inn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.