Morgunblaðið - 07.04.1989, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989
Prufu-hitamælar
-i- 50 til + 1000 C
í einu tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
SöuiPÍlmigjiLoir
VESTURGÖTU 16 - SÍMAR 14630 - 21480
< HALOGEN
Cu BORÐLAMPI
SS ER TILVAIIN
FERMINGARGJÖF
cs oc Lamparnir eru skemmtilegir útlits og fást í svörtu og hvítu.
CQ Verð kr. 5.690,-
SBRSARI^^
SKEIFUNNI 8 SlMI 82660
íteytj 8
Hið geysivinsæla MANEX
vítamín fyrir hár, húð og
neglur er nú loksins komið
til landsins. Tilbúið til af-
greiðslu. Fæst á flestum
rakara- og hárgreiðslustof-
um um land allt.
Heildsölubirgðir:
ft.
ambrosia
JMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
Sími 91-680630.
Verkfall dýralækna
eftir MagnÚS H. Mikilvægþjónusta r
Guðjónsson
Eins og komið hefur fram í frétt-
um hafa dýralæknar í þjónustu
ríkisins boðað verkfall þann 11.
apríl nk., ef samningar hafa ekki
náðst fyrir þann tíma. Dýralæknar
ætla með þessu að fylgja eftir kröf-
um sínum um bætt vinnuskilyrði.
Sú krafa er sett á oddinn að héraðs-
dýralæknir fái stöku sinnum frí um
helgar og á stórhátíðardögum til
að sinna fjölskyldum sínum og
áhugamálum og að þeir sitji við
sama borð og aðrir opinberir starfs-
menn hvað varðar greiðslur fyrir
útkallsvaktir. Það kann að virðast
undarlegt nú á tímum, að til sé sú
stétt manna sem er á vakt allan
sólarhringinn alla daga ársins.
Þetta er engu að síður staðreynd
og á við um flest alla héraðsdýra-
lækna.
Dýralæknar hafa í síðustu kjara-
samningum við ríkið, reynt að höfða
til sanngirni og réttlætis, en með
litlum árangri. Nú er þolinmæðin
brostin og hefur yfirgnæfandi
meirihluta dýralækna í þjónustu
ríkisins samþykkt að nýta sér lög-
bundinn rétt til að leggja niður
vinnu.
Héraðsdýralæknar gegna lykil-
hlutverki í að tryggja neytendum
ómengaðar búfjárafurðir. Þeir hafa
eftirlit með heilbrigði búfjár og
gæta þess að ströngustu hreinlæt-
iskröfum sé fylgt við slátrun og
meðferð sláturafurða. Þeir vinna
gegn útbreiðslu smitnæmra sjúk-
dóma í húsdýrum, en með auknu
fiskeldi verður þessi þáttur æ viða-
meiri. Síðast en ekki síst hlúa þeir
að sjúkum dýrum og sinna dýra-
vemd.
Til þess að tryggja öllum lands-
mönnum þessa heilbrigðisþjónustu
hafa verið stofnuð 28 héraðsdýra-
læknisembætti víðsvegar um
landið, á svipaðan hátt og í ná-
grannalöndum okkar. Nauðsynlegt
þykir að hafa útkallsvakt allan sól-
arhringinn, því bráðatilfelli em tíð
í nútíma búskap.
Skertar greiðslur
I kjarasamningum opinberra
starfsmanna hefur um langa hríð
verið ákvæði um greiðslur fyrir út-
kallsvaktir og hafa aðrar heilbrigð-
isstéttir fengið greitt samkvæmt
því. Svo einkennilega vill þó til að
ijármálaráðuneytið hefur nýtt sér
samningsstyrk sinn hingað til og
Magnús H. Guðjónsson
alfarið hafnað kröfu dýralækna um
að fá greitt fyrir útkallsvaktir eftir
þessu ákvæði. Fyrir útkallsvaktir
héraðsdýralækna gilda sérstök
ákvæði þar sem greiðslur em vem-
lega skertar.
Ef kröfur um óskertar greiðslur
fyrir útkallsvaktir ná fram að
ganga, verður mun meira svigrúm
„Það kann að virðast
undarlegt nú á tímum,
að til sé sú stétt manna
sem er á vakt allan sól-
arhringinn alla daga
ársins. Þetta er engu
að síður staðreynd og á
við um flest alla héraðs-
dýralækna."
fyrir héraðsdýralæknana til að fá
afleysingar um helgar og á stórhá-
tíðardögum og létta á því mikla
álagi sem oftast hvílir á heimilum
þeirra.
Ekki bara hagsmunir
dýralækna
Bætt vinnuskilyrði héraðsdýra-
lækna em ekki bara einkamál dýra-
læknanna og fjölskyldna þeirra.
Þetta er ekki síst hagsmunamál
bænda, enda treystum við á stuðn-
ing þeirra og skilning ef til verk-
falls kemur. Það er umhugsunar-
efni að svo til engir nýútskrifaðir
dýralæknar hafa flust heim til ís-
lands sl. 3 ár. Þeir kjósa heldur að
vinna í sínu námslandi, enda starfs-
skilyrði sem hér bjóðast vægast
sagt fráhrindandi.
Höfundur er formaður Dýra■
læknafélags íslands.
Rangar staðhænngar
-formanns samninganefindar ríkisins
eftirBjarneyju
Sigurðardóttur
Gleði mín var ólýsanleg, þegar
ég las greinina um laun aðildarfé-
laga BHMR, sem birtist á baksíðu
Morgunblaðsins 23. mars síðastlið-
inn. Ég uppgötvaði að samkvæmt
útreikningum Indriða H. Þorláks-
sonar höfðu laun mín verið van-
reiknuð síðan ég byrjaði að vinna
sem hjúkmnarfræðingur við Land-
spítalann fyrir tveimur ámm.
Ég sá mig í anda fara niður á
launadeild og krefjast leiðréttingar
á launum mínum. í hyllingum sá
ég fyrir mér hvað ég ætlaði að
gera við alla peningana sem stofn-
unin skuldaði mér.
Mér datt þó sem betur fer í hug
að líta fyrst í samninginn sem gerð-
ur var fyrir tveimur ámm og at-
huga hvort þetta gæti staðist. Vitið
menn, á einhvem óskýranlegan
hátt vom staðhæfingar Indriða
rangar.
Með einhverjum undarlegum út-
reikningum fær Indriði þá útkomu
að meðallaun háskólamenntaðra
hjúkmnarfræðinga séu 62.400 kr.
og heildarlaunin 95.000 kr.
Annað kemur í ljós þegar samn-
ingurinn er skoðaður. Byijunar-
launin em 55.019 kr. og eftir 10
ára starf em launin 60.081 kr.
Mjög fáir háskólamenntaðir
hjúkmnarfræðingar hafa náð þess-
um 60.081 kr., því það em ekki
nema u.þ.b. 11 ár síðan fyrstu
hjúkrunarfræðingamir útskrifuðust
úr háskólanum.
Ég skil heldur ekki á hvaða for-
sendum Indriði fær út heildarlaun-
in. Flestir hjúkmnarfræðingar
vinna vaktavinnu og er vaktaálagið
25—30% af dagvinnulaununum.
Það sér hver heilvita maður að 30%
af 62.400 kr. em ekki 32.600 kr.
og því hafa hjúkmnarfræðingar
ekki möguleika á að ná 95.000 kr.
í heildarlaun.
Indriði hefur heldur engar for-
sendur fyrir því að yfírvinna komi
inn í heildarlaunin sem hann gefur
upp, því ef hann miðar útreikninga
sína við þær upplýsingar sem hann
segist fá úr fréttabréfí Kjaranefnd-
ar opinberra starfsmanna er þar
Bjamey Sigurðardóttir
hvergi tekið fram hve mikla yfír-
vinnu hjúkmnarfræðingar vinna.
Mér virðist að með röngum upp-
lýsingum sínum um laun félaga í
BHMR sé Indriði að reyna að skapa
neikvæða umræðu í þjóðfélaginu,
þannig að þau félög sem hafa boð-
að verkfall njóti ekki stuðnings al-
mennings.
Glerhönnun
List og hönnun
Bragi Ásgeirsson
í húsakynnum Epal að Faxa-
feni 7 stendur yfír kynning á gler-
hönnun Ingu Elínar Kristins-
dóttur.
Þetta er fyrsta sýning listakon-
unnar, sem eftir öllum sólarmerkj-
um að dæma hefur numið glerfag-
ið til hlítar. Munimir á sýningunni
bera vott um ágæta fagkunnáttu
auk tilfínningar fyrir formrænum
einfaldleika. Hér er öðm fremur
um að ræða hluti notagildis, t.d.
könnur, glös, diska, lampa o.fl.
Tvær tegundir af könnum hafa
ratað í framleiðslu hjá hinu virta
glergerðarfyrirtæki Hadeland í
Noregi, sem telst nokkur heiður.
Við blástur munanna hefur hún
notið aðstoðar Bents B. Hansen
sem ber vott um að það sé sjálf
nönnunin sem vakir fyrst og
fremst fyrir Ingu Elínu. Hér er
um ákaflega vandaða vinnu að
ræða innan sígildra forma og má
vera ljóst að stefnt er að hreinni
og klárri útlitshönnun þar sem
fegurð og notagildi fari saman.
Einfaldleikinn ræður ferðinni
hvort heldur sem um er að ræða
glerformið eða litanotkunina.
Það er mjög til fyrirmyndar að
kynna á þennan hátt íslenska
hönnun svo sem Epal hefur tekið
upp á, en satt að segja mættu
kynningamar standa miklu lengur
og vera ítarlegri. Slíkar kynningar
em mjög algengar í stórverslun-
um ytra og mikið borið í þær
enda vekja þær iðulega mikla at-
hygli og fá góða umflöllun í fjöl-
miðlum.
„Það er ekki þægileg
tilhugsun að verkfall
háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga
bitnar fyrst og fremst
á skjólstæðingum
þeirra, þ.e. sjúklingun-
um. En þótt undarlegt
megi virðast er það þó
sá hópur sem styður þá
mest.
Það fer enginn í verkfall að
gamni sínu, allra síst núna, þegar
lífskjörin hafa versnað svo mjög.
Það er ekki þægileg tilhugsun
að verkfall háskólamenntaðra
hjúkmnarfræðinga bitnar fyrst og
fremst á skjólstæðingum þeirra,
þ.e. sjúklingunum. En þótt undar-
legt megi virðast er það þó sá hóp-
ur sem styður þá mest.
I lokin langar mig að leggja eina
spumingu fyrir Indriða. Fyrst þú
varst svo vænn að upplýsa mig um
laun mín, vildir þú þá ekki vera svo
vænn að upplýsa mig um dagvinnu-
og heildarlaun þín.
Höfundur er hjúkrunarfræðingur.
Óháði söfhuðurinn:
„Bjargar-kaffi“
Á sunnudaginn kemur, þann 9.
apríl, verður guðsþjónusta í kirkju
Óháða safnaðarins, og hefst hún
kl. 14.00.
Eftir messu verður kvenfélag
safnaðarins með kaffísölu í safnað-
arheimilinu Kirkjubæ. Einu sinni á
ári, um þetta leyti, er efnt til kaffí-
drykkju til minningar um Björgu
Ólafsdóttur, konu Guðjóns Jóns-
sonar, en þau merkishjón vom í
framvarðasveit stofnenda safnaðar-
ins.
Þetta árlega kaffi er nefnt
„Bjargar-kafiS“ til heiðurs hús-
móðurinni frá Jaðri.
Þórsteinn Ragnarsson,
safnaöarprestur.