Morgunblaðið - 07.04.1989, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 07.04.1989, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989 SÚLAN EA-300 landaði um 800 tonnum af loðnu í Krossanesi í gær, fimmtudag. Þetta var síðasta veiðiferð Súlunnar á loðnu, en hún hefur fengið rúm 19.000 tonn á vertiðinni. Það var nóg að gera í Krossanesi í gær, á meðan landað var úr Súl- unni beið Keflvíkingur löndunar, en hann var með fullfermi, um 570 tonn. í fyrrinótt var landað um 900 tonnum úr Höfrungi og var því lokið í gær- morgun. Geir Zoéga forstjóri Krossanes- verksmiðjunnar sagðist vonast til að fá þijá til fjóra farma til viðbótar. „Þetta eru dauðateygjumar, en við eigum von á nokkrum bátum í við- bót,“ sagði Geir. Krossanesverk- smiðjan hefur fengið um 45.000 tonn af loðnu og síld á þessari vertíð; þar af er síldin rétt rúm 2.000 tonn. Þetta er sama magn og á síðustu vertíð. Meiri afli hefur borist að landi eftir áramótin heldur en fyrir og sagði Geir menn hafa verið seiga að bijótast í gegnum veður og vinda útmánaðanna. MÝVATNSSVEIT Nú erþað beitan Morgunblaðið/Rúnar Þór Akureyrskir trillukarlar voru svo sannarlega upp við landsteinana í fyrrakvöld, en þar voru þeir að ná sér i beitu. Þeir fengu talsvert af loðnu og síld þarna upp við landið og er þá líklega ekkert að vanbúnaði að heija róðra. Útlendir kylfingar áhuga- samir um Arctic Open Þýskir aöilar vilja styöja mótið BÚIST er við að ríflega helmingi fleiri útlendir kylfingar taki þátt i Arctic Open-móti Golfklúbbs Akureyrar nú í sumar miðað við fyrra ár. Keppnisdagarnir eru tveir, 30. júní og 1. júlí. Siðasta sumar tóku um 30 útlendir keppendur þátt í mótinu og segir Gunnar Sólnes formaður Golfklúbbsins að gera megi ráð fyrir tvöfaldri þeirri tölu. Arctic Open-mótið er nú haldið í þriðja sinn og segir Gunnar að ekki nafi verið leitað eftir ákveðn- um stuðningsaðilum að mótinu á meðan verið er að byggja það upp. Þýskir aðilar hafa hins vegar sett sig í samband við Golfklúbb- inn og lýst yfir ánægju sinni með það og segir Gunnar að þessir aðilar vilji gjaman gefa verðlaun á mótinu. Erlendu kylfingamir sem keppa ætla á mótinu í sumar eru hvað- anæva að úr heiminum frá megin- landi Evrópu, Bretlandi, Banda- ríkjunum og einnig frá Norður- löndunum. Þá er einnig hugsan- legt að hingað komi hópur golf- leikara frá Astralíu til þátttöku í mótinu. „En Japansmarkaðurinr. er enn óplægður," sagði Gunnar, en næstu helgi á eftir verður Mitsubishi Open haldið á golf- vellinum á Jaðri og er fyrirhugað að koma Arctic Open-mótinu á framfæri við Japani með þátttöku þeirra í huga. í næstu viku skýrist hvort af opnu móti evrópskra atvinnu- kvenna verður, en þar er um að ræða stórt og mikið mót. Gunnar sagði að gera mætti ráð fyrir um 150 manns í kringum það og því yrði nokkuð blóðugt að missa af því. Leitað hefur verið eftir stuðn- ingi við kvennamótið, en endanleg svör ekki borist. Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna mótsins nemi um 10 milljónum króna. „Ef við fáum ekki jákvæð svör á næstu dögum um stuðning við mótið, þá verðum við að gefa það frá okkur í bili. Það er vissulega leiðinlegt, því við teljum það góða auglýs- ingu fyrir landið og það fólk sem um er að ræða í kringum þetta mót skilur eftir sig mikið fjár- magn,“ sagði Gunnar. Keppnis- dagar mótsins eru 10.-13. ágúst næstkomandi. K. Jónsson og Co: Sérstök markaðs- og söludeild í imdirbúmngi Framkvæmdastjóri Sanitas ráðinntil fyrirtækisins FYRIRHUGAÐAR er nokkrar breytingar hjá Niðursuðuverksmiðju KJónsson og Co. á næstunni og hefúr Baldvin Valdimarsson verið ráðinn til að vinna að skipulagsbreytingum og einnig mun hann undirbúa stofhun sérstakrar sölu- og markaðsdeildar. Baldvin hefúr verið framkvæmdastjóri Sanitas á Akureyri síðustu tvö árin, en mun taka til starfa hjá Niðursuðuverksmiðjunni þann 1. júní næstkom- andi. Baldvin tekur væntanlega við starfi framkvæmdastjóra Niður- suðunnar að loknum skipulagsbreytingxim, sem verður að likindum um næstu áramót. Baldvin hefur lokið prófi frá út- vegsdeild Tækniskóla íslands og hann hefur einnig lokið prófi af framleiðslu- og stjórnunarsviði við- skiptadeildar Háskóla íslands. Baldvin sagði þetta spennandi verkefni, greinin væri að ganga í gegnum miklar þrenginar, sem því miður væru að hluta til heimatilbún- ar. „Það hefur verið mikill sam- dráttur í greininni vegna hvalamáls- ins og ég tel að við íslendingar höfum ekki svarað nægilega vel fyrir okkur varðandi það mál. Ann- að hvort á að láta undan, eða gefa skýr afdráttarlaus svör, ekki láta reka á reiðanum,“ sagði Baldvin. Hjá Niðursuðunni vinna að jafn- aði 80-100 manns og er fyrirtækið með þeim stærri á Akureyri. „Fyrir- tækið er fjárhagslega vel sterkt, það velti um 700 milljónum á síðasta ári, þetta er stórt og öflugt atvinnufyrirtæki í bænum. Nú steðja erfiðleikar að í þessari grein, en það eru margir möguleikar fyrir hendi, bæði á innanlands- og utan- landsmarkaði. Samkeppnin í þessari grein er að harðna og við því verða öll fyrirtæki að bregðast. Eg lít því svo á að um sé að ræða verulega spennandi verkefni,“ sagði Baldvin og bætti því við að vissulega kveddi hann Sanitas með mikilli eftirsjá, en þar hefur verulegur uppgangur verið á síðustu árum. Baldvin Valdimarsson fram- kvæmdastjóri Sanitas hf. á Akur- eyri tekur innan skamms til starfa hjá Niðursuðuverksmiðju K.Jónsson og Co. Hans fyrsta verkefni verður að vinna að skipulagsbreytingum og mark- aðsmálum. Einbýlishús til sölu Húsið er 140 fm ésamt 60 fm bílskúr. Núnori upplýsingor í síma 96-44219. Morgunblaðið/Rúnar Þór Súlan EA-300 kom úr sínum síðasta loðnutúr í gærmorgun. Síðasti loðnutúr Súlunnar Ingjaldur Arnþórsson hjá SÁÁ-N: Biðraðir mynduðust eftir að bjórinn kom INGJALDUR Arnþórsson ráð- gjafi hjá SÁÁrN á Ákureyri seg- ir að i kjölfar þess að bjórinn var leyfður hafi ásókn manna eftir þjónustu hjá samtökunum aukist verulega. Nú séu farnar að myndast biðraðir manna sem Ruth Slencz- ynska með tónleika Bandaríski píanóleikarinn Ruth Slenczynska heldur tónleika í íþróttaskemmunni á Akureyri sunnudaginn 9. apríl kl. 17.00, á vegum Tónlistarskólans á Akur- eyri. Á tónleikunum á sunnudaginn leikur Slenczynska m.a. 32 tilbrigði í c-moll eftir Beethoven, allar fjórar ballöður Chopins og Sinfónískar etýður eftir Schumann. Fjölskyldu- hátíð Tón- listarskólans Tónlistarskólinn á Akureyri efiiir til fjölskylduhátíðar í íþróttaskemmunni laugardaginn 8. apríl. Á hátíðinni verða deildir, hljóm- sveitir og einstök hljóðfæri kynnt á stuttum tónleikum nemenda og þess á milli gefst gestum tækifæri á að kynnast hljóðfærum og námsgrein- um í sérstökum sýningarbásum. Aðgangur er ókeypis. Kynning í Mynd- listarskólanum Laugardaginn 8. apríl verður opið hús í Myndlistarskólanum á Akureyri, á Kaupvangsstræti 16 frá kl. 14.00-18.00. Gestum gefst kost- ur á að skoða hin nýju húsakynni skólans og kynnast starfsemi hans. Nemendur og kennarar verða að störfum þennan dag, líkt og um venjulegan vinnudag væri að ræða. leitað hafa eftir aðstoð vegna drykkju. í viku hverri sækja um 60 manns ýmis konar þjónustu á vegum samtakanna; í stuðnings- hópum eða á fræðslunámskeið- um. Samtökin opnuðu skrifstofu á Akureyri skömmu eftir síðustu ára- mót og á þriggja mánaða reynslu- tíma hennar, segir Ingjaldur að ótrúlega margir hafi notfært sér þá þjónustu sem boðið er upp á á hennar vegum. Fullbókað er á öll námskeið sem í boði eru og komast færri að en vilja. Fljótlega verður gengið frá ráðningu annars starfs- manns á skrifstofuna og myndi sá hafa með höndum fræðslu fyrir aðstandendur, en Ingjaldur segir að þeim þætti hafi hingað til ekki verið hægt að sinna. „Eg bjóst satt að segja ekki við að ásóknin yrði svo mikil sem raun hefur orðið á. Þegar ég byijaði átti ég allt eins von á að þetta yrðu svona tveir þrír á röltinu, en frá því skrifstofan var opnuð hefur verið yfrið nóg að gera. Frá því bjórinn var leyfður hefur svo ásókn- in enn aukist og því hafa myndast biðraðir; fólk þarf að bíða upp í viku eftir að komast að. Bjórinn er lúmskur fyrir mitt fólk,“ sagði Ingj- aldur. Hann sagði að talsverður hópur fólks sem hefði lengi verið edrú hefði farið að drekka bjór. „Þetta fólk á það sameiginlegt að sennilega hefði það farið að drekka hvort eð var aftur, en kannski seinna. Annað sem líka er einkennandi fyrir þenn- an hóp er að hann hefur tekið ýmsa þætti bindindisins lausum tökum; fólk er að ögra sjálfu sér með því að drekka pilsner við þorsta og þá þykir mörgum stökkið yfir í þann sterkari afar lítið," sagði In- gjaldur. Skrifstofu SÁÁ-N á Akureyri sagði hann hafa sannað gildi sitt og kvaðst hann einkar ánægður með þau úrræði sem hún byði upp á. Nú kostaði um tíu þúsund krónur að vista einn mann á sólarhring á sjúkrastofnunum, en þriggja vikna stuðningsnámskeið sem í boði eru á vegum SÁÁ-N gætu virkað eins vel og lega á sjúkrastofnun um tíma, en væri mun ódýrari. „Það gerast hér lítil kraftaverk á hveijum degi.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.