Morgunblaðið - 07.04.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989
27
Þingmenn Sjálfstæðisflokks:
Sérstakt ráðuneyti
vamar- og* öryggismála
Atburðir síðustu daga knýja á um þetta efhi
Fjórir þingmenn Sjálfstæðis-
Qokks, Guðmundur H. Garðars-
son, Halldór Blöndal, Birgir
ísl. Gunnarsson og Ólafur G.
Einarsson, hyggjast Qytja til-
lögu til þingsályktunar, sem
felur ríkisstjórninni, verði hún
samþykkt, „að he§a undirbún-
ing að stofnun sérstaks varnar-
og öryggismálaráðuneytis, er
lúti sérstökum ráðherra".
í greinargerð segir m.a.:
„A undangengnum árum hafa
oft komið upp hugmyndir um að
nauðsyn bæri til að sett yrði á
laggir sérstakt ráðuneyti, sem svo
til eingöngu fjallaði um vamar-
og öryggismál íslands. Flestum
er ljóst að vamar- og öryggismál
em veigamikill þáttur í vemd
nútíma lýðræðis og þingræðis.
Nægir í því sambandi að minnast
á að hinn 4. apríl 1989 vom liðin
40 ár frá stofnun Atlantshafs-
bandalagsins, sem hefur það að
meginmarkmiði að tryggja frið
°g öryggi í þeim hluta heims, sem
bandalagið nær til. í þeim efnum
hefur vel til tekist."
Síðan segir efnislega að þótt
margt hafi breytzt í samskiptum
þjóða hin síðari árin og virða beri
viðleitni til að opna sovézkt þjóð-
félag og þoka því í lýðræðisátt
þá sé enn þörf á varðstöðu lýðræð-
isþjóða um fullveldi sitt, lýðræði,
þingræði og mannréttindi.
Orðrétt ségir:
„Þá hafa atburðir síðustu daga
á Alþingi íslendinga, þar sem
fram hefur komið að forsætisráð-
herra, utanríkisráðherra og jafn-
vel ríkisstjómin í heild, virðast
ekki hafa haft tök á að fýlgjast
með þessum mikilvægu málum,
sannað þörf þess, að sérstakur
vamar- og öryggismálaráðherra
með tilheyrandi ráðuneyti og
starfsliði fjalli um þessi mál. Ör-
yggis- og vamarmál íslands eru
alltof mikilvæg og viðkvæm mál
Guðmundur H. Garðarsson
fyrir íslendinga og bandamenn
þeirra til þess að þau séu einhver
homreka tækifærissinnaðra
stjómmálamanna.
íslendingar krefjast þess að á
þessum málum sé haldið af festu
og öryggi. Það varðar frelsi, frið
og öryggi allra ríkja Atlantshafs-
bandalagsins."
*
Olafur G. Einarsson um Framsóknarflokkinn:
Ekkí treystandi í utanríkismálum
Yfirlýsingum forsætisráðherra safiiað saman
Umræðu utan dagskrár um fyrirhugaðar heræSngar hér á landi i
júnf var fram haldið á fundi sameinaðs Alþingis f gær. Þingmenn Sjálf-
stæðisQokks deildu hart á meint óábyrg ummæli forsætisráðherra.
Einn þeirra krafðizt þess að þingforseti léti safna saman ummælum
ráðherrans í Qölmiðlum um þetta efiii. Þingmenn ættu kröfu á því
þegar jafin valdamikill maður talaði jafii ógætilega um jafii þýingarmik-
il mál og öryggismál þjóðarinnar að fá greiðan aðgang að þeim. Þing-
forseti hét því að við þeim tilmælum yrði orðið. Utanríkisráðherra
vfsaði á bug gagnrýni þingmanna Alþýðubandalags og Framsóknar-
Qokks á varnarmáldeild og sagði skrifstofustjóra hennar f hópi sam-
vizkusömustu embættismanna þjóðarinnar.
Ólafiir G. Einarsson tók fyrstur þeirra ekkert muna eða vita um
til máls í umræðunum í gær. Sagði
hann að af málflutningi Steingríms
Hermannssonar forsætisráðherra
mætti ráða, að hann hefði í þessu
máli verið plataður af Jóni Baldvin
Hannibalssyni utanríkisráðherra,
vamarliðinu og starfsmönnum vam-
armálaskrifstofu utanríkisráðuneyt-
isins þann tíma er hann gegndi emb-
ætti utanríkisráðherra. Spurði þing-
maðurinn hvort ráðherrann ætlaðist
til þess að þingmenn tryðu þessu eða
hvort þeir ættu að afsaka minnis-
leysi hans.
Ólafur vék að ræðu utanríkisráð-
herra á mánudaginn og benti á að
ráðherrann hefði rakið sögu málsins
og byggt á upplýsingum úr utanríkis-
ráðherratíð 4 manna. Nú virtist einn
málið. Þó hefði hann ýmist verið for-
sætisráðherra eða utanríkisráðherra
allan þann tíma er hér um ræddi.
Þingmaðurinn vitnaði til þess, að
Páll Pétursson hefði talið ræðu ut-
anríkisráðherra vera samfelldan
áfellisdóm yfir vamarmálaskrifstof-
unni og komist að þeirri niðurstöðu
að skrifstofan þyrfti að gefa út
fréttatilkynningar um það sem helst
væri á döfinni í vamarmálum. Sagði
Ólafur þetta furðulegt sjónarmið. Að
vísu mætti með þessum hætti auka
líkumar á því að forsætisráðherra
fylgdist með þessum málum en einn-
ig gætu erlendar þjóðir, til dæmis
Sovétmenn, nýtt sér þessar upplýs-
ingar og gætu þá sennilega fækkað
sendiráðsstarfsmönnum sínum vem-
Menntamálaráðherra:
Strangar reglur
um handritalán
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra segir það vafasamt að
leggja blátt bann við þvi að
íslensk handrit séu lánuð á sýn-
ingar erlendis. Hann sagði að
þörf væri á að setja strangar
reglur um slíkt, og ættu þær að
mótast af íhaldssemi.
Þetta kom fram i svari ráðherr-
ans við fyrirspurn frá Sighvati
Björgvinssyni (A/Vf) á Alþingi í
gær. Spurði hann hvaða reglur giltu
um lán á handritum úr eigu Stofn-
unar Áma Magnússonar á sýningar
erlendis, hvort ráðherra teldi rétt
að ómetanlegir dýrgripir meðal
íslenskra handrita væm lánaðir með
þeim hætti sem gert hefði verið og
hvort ráðherra væri tilbúinn að setja
reglur til að hindra það. í máli þing-
mannsins kom fram að til stendur
að lána nokkur handrit til sýningar
í Tórínó á Ítalíu í sumar og lýsti
hann yfir andstöðu sinni við þá
ákvörðun.
Menntamálaráðherra sagði í
svari sínu að engar ákveðnar reglur
giltu í þessum efnum. Handrit hefðu
áðeins einu sinni verið lánuð á sýn-
ingu erlendis, annars staðar en í
Kaupmannahöfn. Það hefði verið á
íslandssýningu í New York árið
1982 og þá hefði sú ráðstöfun ver-
ið borin undir ríkisstjórnina. Sami
háttur hefði verið hafður á síðasta
sumar, er samþykkt var að lána
handrit til sýningarinnar í Tórínó.
Ráðherra sagði að lokum, að sér
þætti vafasamt að leggja blátt bann
við því að lána handrit úr eigu Áma-
stofnunar til útlanda. Hins vegar
teldi hann að hvað' þetta varðaði
væri þörf á-Ströngum reglum, sem
mótuðust _af íhaldssemi.
Birgir ísleifur Gunnarsson fyrr-
verandi menntamálaráðherra sagð-
ist telja þörf á að kynna íslenska
menningu erlendis með skipulögð-
um hætti. í því sambandi væri rétt
að hafa í huga, að fyrir hendi væri
vaxandi áhugi á því að fá handrit
lánuð á sýningar. Setja þyrfti reglur
hvað þetta varðaði og ættu þær að
mótast af hæfilegri íhaldssemi og
hæfilegu fijálslyndi. Til dæmis væri
rétt að tryggja að sumir dýrgripir
íslenskra handrita fæm ekki úr
lánan
lega. Taldi Ólafur málflutning Páls
þjóðhættulegan og að ljóst væri, að
Framsóknarflokknum væri ekki
treystandi í utanríkismálum frekar
en Alþýðubandalaginu.
Að lokum minnti Ólafur G. Einars-
son á, að ráðherra gæti ekki firrt
sig ábyrgð á athöfnum eða athafna-
leysi með því að kenna starfsmönn-
um sínum um mistök.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra tók næstur til máls.
Hann sagðist telja, að hann hefði
þegar sagt allt sem hann vildi segja
um það mál sem væri til umræðu,
auk þess sem hann hefði fengið stað-
festingu á orðum sínum frá vamar-
málaskrifstofunni. Rakti hann síðan
gang málsins og sagði meðal ann-
ars, að því hefði hann aldrei mót-
mælt, að í heimsókn hjá vamarliðinu
í ágúst 1987 hefði sér verið greint
frá heræfingunni í júní næstkomandi
og að meira en 1.000 manns myndu
taka þátt í henni. Sér hefði ekki
þótt það óeðlilegt þar sem í vamarlið-
inu væm 3.000 manns. Hins vegar
minntist hann þess ekki að minnst
hefði verið á aðflutta hermenn eða
fjölda þeirra í sambandi við æfing-
una. Forsætisráðherra sagðist ekki
hafa séð þær fundargerðir vamar-
málanefndar, þar sem fjallað var um
umfang heræfinganna í sumar og
hefði skrifstofustjóri vamarmála-
skrifstofunnar staðfest það.
Forsætisráðherra sagði að aldrei
hefði komið fram, að heræfingamar
ættu að hefjast í framhaldi af þjóð-
hátíðardegi íslendinga, en það þætti
sér ósmekklegt. Sagðist hann að lok-
um vona, að þótt menn litu svo á
að gengið hefði verið frá þessu máli
1986, þá viðurkenndu þeir að hvetj-
um utanríkisráðherra væri heimilt
að breyta niðurstöðunni.
Ragnhildur Helgadóttir (S/Rvk)
sagði að þetta mál væri farið að
snúast um það að muna eða muna
ekki og tala eða tala ekki. Sagði hún
að engar tvær yfirlýsingar forsætis-
ráðherra í fjölmiðlum hefðu verið
samhljóða. Ragnhildur sagði að það
skipti miklu máli, að ríkisstjórn ís-
lands væri trúverðug í öryggismál-
um. Það hefði greinilega verið mis-
skilningur hjá sér og fleirum að ör-
yggishagsmunum þjóðarinnar hefði
verið vel borgið í tíð síðustu ríkis-
stjómar. Þáverandi utanríkisráð-
herra og núverandi forsætisráðherra
hefði látið undir höfuð leggjast að
afla sér upplýsinga um mál, sem
hann hefði talið svona alvarlegt.
Halldór Blöndal (S/Ne) fór fram
á það við forseta þingsins að fjöl-
skrúðugum yfirlýsingum forsætis-
ráðherra um öryggis- og vamarmál
í fjölmiðlum undanfarið yrði safnað
saman til nánari athugunar fyrir
þingheim. Forseti hét því að svo yrði
gert.
Þorstein Pálsson (S/Sl) sagði það
lágmadcslcröfU Álþingis til þeirra,
sem gegndu ráðherraembættum, að
þeir segðu satt og rétt frá framvindu
mála. Ekki væri við hæfi forsætisráð-
herra eða ríkisstjóm væri ótrúverðug
i orðræðu um jafn mikilvæga þjóð-
málaþætti og vamar- og öryggismál
væru.
Steingrfmur J. Sigfusson, sam-
gönguráðherra, sagði herinn hér
staddan til að veija kjamorkuvíg-
búnaðaraðstöðu Bandarflcjanna hér á
landi. Dæmigert væri að talsmenn
Sjálfstæðisflokks tækju afstöðu með
hemum gegn forsætisráðherra
landsins. Ráðherrann sagðist hafa
lagt það til í ríkisstjórn að ráðgerð
vamarliðsæfing yrði felld niður.
Matthías A. Mathiesen (S/Rn)
las upp úr greinargerðum nokkurra
fyrrverandi utanríkisráðherra, m.a.
Steingríms Hermannsonar, þar sem
fjallað var um ráðgerðar vamarliðs-
æfingar fram til 1993.
Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, sagði að ráðherra
þessa málaflokks bæri að sjálfsögðu
ábyrgð á vinnulagi í sínu ráðuneyti,
þar með í vamarmáladeild, meðan
hann hefði þar húsbóndavald. Hann
vísaði á bug ómaklegri gagnrýni á
deildina. Skrifstofustjóri hennar væri
í hópi beztu og samvizkusömustu
embættismanna þjóðarinnar.
Júlíus Sólnes (B/Rn) sagði karpið
um hefðbundna vamarliðsæfingu
ærið orðið. Svo væri að heyra sem
þingheimur vissi ekki af því, hvað
væri að gerast í atvinnu- og efna-
hagsmálum, m.a. að alvarlegt verk-
fall hafi skollið á á miðnætti sl.
Fleiri töluðu þó ékki verði frekar
rakið.
OLIS-málið:
Landsbanka-
stjórar ekkí
feirið út fyrir
verksvið sitt
— segir viðskipta ráð-
herra í svari við fyrirspum
„Ekki verður séð að banka-
stjórar Landsbankans hafi farið
út fyrir verksvið sitt eða valdsvið
í viðskiptum þeirra við OLÍS.
Þeir eiga að gæta hagsmuna
bankans gagnvart viðskiptavin-
um og að þvi markmiði hafa að-
gerðir þeirra í OLÍS-málinu
beinst.“ Þetta segir Jón Sigurðs-
son viðskiptaráðherra í svari við
fyrirspum frá Hreggviði Jóns-
syni (B/Rn).
Fyrirspumin var í þremur liðum.
í fyrsta lagi var spurt hvort ráð-
herra telji að meðferð bankastjóra
Landsbankans á OLÍS-málinu hafi
verið í samræmi við lög um banka-
starfsemi. í öðm lagi hvort banka-
eftirlit Seðlabankans hafí gert at-
hugasemdir við útlán Landsbank-
ans til fleiri fyrirtækja en OLÍS og
í þriðja lagi óskar þingmaðurinn
eftir upplýsingum um það, hve
mörg fyrirtæki skuldi Landsbank-
anum meira en 50 milljónir og hve
háar fjárhæðir þau 10 fyrirtæki
skuldi, sem skulda bankanum mest.
í svári sínu við fyrstu spuming-
unni segir viðskiptaráðherra, að
ekki verði séð að bankastjórar
Landsbankans hafi farið út fyrir
starfsvið sitt eða valdsvið í viðskipt-
um við OLÍS. Aðgerðir þeirra í
málinu hafi beinst að því að gæta
hagsmuna bankans, eins og þeim
beri skylda til. Að sjálfsögðu geti
verið skiptar skoðanir um einstök
atriði, en hafa beri I huga, að erfitt
sé fyrir utanaðkomandi aðila að
dæma um viðskipti þessara aðila,
sem um langt skeið muni hafa
gengið heldur erfiðlega.
Viðskiptaráðherra segir í svari
við annarri spumingunni, að sam-
kvæmt upplýsingum frá bankaeftir-
litinu hafí það gert athugasemdir
við útlán til viðskiptaaðila Lands-
bankans. Gerð hafi verið skýrsla
um málið og stjómendum bankans
gerð grein fyrir efni hennar. Ekki
sé hægt að greina opinberlega frá
efni skýrslunnar í einstökum atrið-
um, enda gildi þagnarskylda um
slík mál.
Sama segir ráðherra í svari við
þriðju spumingu Hreggviðs Jóns-
sonar. Þar kemur fram að banka-
stjórar Landsbankans telji sér
óheimilt að veita umbeðnar upplýs-
ingar með tilvísun til ákvæða um
bankaleynd í lögum um viðskipta-
banka.
sm étauglýsingar
KfNNSIA
Lærið vélritun
Aprílnámskeið eru að hefjast.
Vélritunarskólinn, s: 28040.
Vélagslíf
O St.: St.: 5989484IX kl. 16.00
I.O.O.F. = 170478'h = 9.0 *
I.O.O.F. 12 = 1704078 ’/z =
Bibliufræösla á morgun, laugar-
dag, kl. 10.00 i Grensáskirkju.
Flaakon Andersen, biskup frá
Tönsberg í Noregi annast
fræðsluna. Bænastund kl.
11.30. Allir velkomnir.
V
KFUM
h
Frá Guöspeki-
fólaginu
Ingólfsstrœtl 22.
Áskrtftsrsíml
Ganglera ar
39573.
I kvöld kl. 21: Samræðufundur.
Á morgun kl. 15.30: Svava Fells.
KTUMaWMKISW-BSS
90 Ar fyrir eubu lslands
KFUM og KFUK
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30 á Amtmannsstig 2b. Upp-
hafsorð: Kristin Sverrisdóttir.
Ræðumaður: Haakon Andersen.
Tónlist: Bjarni Gunnarsson og
Guðrún Jóna Þráinsdóttir.
Allir velkomnir.