Morgunblaðið - 23.04.1989, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1989
C 3
skjálftarnir, sem orðið hafa á Suð-
urlandi síðustu árin, eiga upptök
sín sunnan við hana.
Ef tekið er einfalt dæmi þá væri
hægt að láta sér detta í hug, með
því að líta á tölvumyndimar, að
stóru jarðskjálftarnir verði á þess-
ari grænu línu. Skjálftarnir, sem
verða á gosbeltinu em ekki svo stór-
ir. Þar er landið bara togað í sund-
ur og það er enginn vandi að toga
jarðskorpuna í sundur. Þarna, um
þessa línu, er hins vegar verið að
klippa landið í sundur eins og með
skærum. Og landið svignar ótrúlega
mikið áður en það brotnar, og mik-
il spenna byggist upp. Þess vegna
verða skjálftarnir svo stórir þegar
brotið loksins kemur.“
Freyr sagði að þessi lína hefði
ekki verið nákvæmlega staðsett
fyrr. En það sem mest hefði komið
á óvart við hana, væri að mis-
gengið virtist ganga í öfuga átt við
það sem áður hefur verið talið.
„Jarðskorpuna rekur frá gos-
beltunum eins og færiband þar sem
hjólið sem knýr færibandið er í
gosbeltinu. Þessi lína er mót
tveggja færibanda sem ganga mis-
hratt. Ef rekvirknin er að færast
yfir á eystra gosbeltið, þá ætti mis-
gengið að ganga til vinstri. En
þarna kemur í ljós greinileg hægri
hliðrun. Og það er erfitt að skýra
það öðruvísi en svo, að gosbeltið
Hengill-Langjökull sé enn í gangi.
Við erum hins vegar ekki enn
búnir að skoða segulgögnin nema
austur að Eyjafjallajökli og það er
sjálfsagt best að bíða með fullyrð-
ingarnar þangað til. Þegar við fær-
um okkur austur á land, þá mun
sjálfsagt ýmislegt koma í ljós. Á
næstu árum, þegar við förum í
gegnum þessi 20 ára gagnasöfn,
munum við sjá svo margt nýtt, að
við skiptum um skoðun vikulega,
og mátum nýjar kenningar reglu-
lega eins og tískuföt. Elstu hug-
myndirnar, sem ég er að viðra núna
eru aðeins mánaðargamlar, og eiga
sjálfsagt eftir að breytast veru-
lega,“ sagði Freyr.
Innlegg í jarðskjálftaspá
Freyr sagði að væri kenningin
um Suðurlandsskjálftalínuna er
rétt, sé hægt að nota hana til að
segja til um hvar stóru Suðurlands-
skjálftarnir verða, sem taldir eru
yfirvofandi. Hins vegar væri erfið-
ara að segja til um hvenær þeir
verða.
„Staðsetning þessara stóru
skjálfta er á reiki. Það er reynt að
vinna úr annálum, sendibréfum og
munnmælum um hvar bæir hrundu,
en við höfum aldrei mælt stóra
Suðurlandsskjálfta. Nú er talsverð-
ur viðbún'aður á Suðurlandi, og
Veðurstofan verður í sumar með
miklar rannsóknir þar, til að reyna
að segja til um upptökin. Þetta er
dijúgt framlag í þá átt.
Hvenær þeir verða er svo annað
mál. Það hefur tekist í nokkrum
tilfellum að spá fyrir um jarð-
skjálfta, en þessir atburðir, sem nú
hafa verið kortlagðir, gerðust allir
á síðustu 10 milljónum ára. Svo er
spurt hvað gerist á næstu 10 árum.“
Freyr sagði að næsta skref væri
að fá botn í það sem sæist á kortun-
um sem þegar hafa verið unnin og
tengja við það sem vitað er um
svæðið. Síðan væri markið sett
mjög hæfilega hátt: að taka allt
landið fyrir á sama hátt, vinna úr
kortunum, túlka þau jarðfræðilega
og gefa út fyrir aldamót.
„Þetta snýst allt um þá spurn-
ingu sem leitar á flesta: af hveiju
er þetta svona? Af hveiju gýs þarna,
af hveiju rifnar landið þarna. í jarð-
fræði eru ekki til endanleg svör,
og oft verður að svara: af því bara.
Þetta snýst um að geta svarað
nokkrum spurningum í viðbót, áður
en kemur að svarinu, af því bara,“
sagði Freyr Þórarinsson.
Sjá tölvumyndir
og kort/C16
Mctllorkaferðir
á makalaust
góðum kjörum
í maí
Nú býður Ferðaskrifstofan Atlantik 7-13
daga ferðir til Mallorka í allt sumar, samhliða
hefðbundnum lengri ferðum. Þetta er nýr
möguleiki sem nýtist afar vel. Að sjálfsögðu
er aðeins gist á fyrsta flokks fbúðarhótelum Royaltur og allur aðbúnaður
. og þjónusta með Atlantik sniði. Eins og best verður á kosið.
Verð frá kr. Verð frá kr.
21.800,- 0^26.100,-
Verð frá kr.
Miðaö við 4 í íbúð. 2 fullorðna og 2 börn 2-12 ára.
Miðað við 2 í stúdíói
Verð frá kr. Verð frá kr.
31.450,-tS^*37.200,'
Miðað við 4 í íbúð. 2 fullorðna og 2 börn 2-12 ára.
Miðað við 2 í stúdíói
Verð frá kr. Verð frá kr.
30.550,- 39.600,-
Miðað við 4 ((búð. 2 fullorðna og 2 börn 2-12 ára. Miðað víð 2 I stúdlói
Brottfurir í þessar eftirsóttu ferðir sem senn eru að fyilast:
maí júní júlí ágúst sept. okt.
5. /8dagar 12. /12 dagar 23. /11 dagar 2./13 dagar 14. /10 dagar 23. /13 dagar 5. /10 dagar 14. /13 dagar 26. /10 dagar 4./13 dagar 16. /10 dagar 25./13dagar 6. / 10dagar 15. /13 dagar 25. / 7 dagar 31. / 8 dagar
Ferðagetraun Atlantik er í Leiðarvísi Atlantik 1989. Fáið eintak
og freistið gæfunnar. Stórglæsilegir ferðavinningar.
FERÐASKRIFSTOFAN
HTCOVTIK
HALLVEIGARSTlG 1 SlMI 28388 OG 28580