Morgunblaðið - 23.04.1989, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.04.1989, Blaðsíða 21
C 21 Skytturnar borga 200 dali fyrir stykkið Um það leyti sem vorsólin býr sig undir að bræða snjóinn á sléttunum í Montana í Bandaríkjunum er kom- inn ferðahugur í ameríska vísund- inn. Hann vill leita í norður — beint í flasið á byssumönnunum hvítu. * Aður fyrr var vísundurinn drepinn svo miskunnarlaust, að hann var nærri útdauður, en nú hefur honum fjölgað aftur í þeim griðareit sem er Yellowstone-þjóðgarðurinn. í skógar- eldunum miklu, sem þar geisuðu sl. sumar, eyðilögðust hins vegar vetrar- hagarnir og því leitar nú hjörðin, 2.700 dýr, upp með Yellowstone-ánni og út úr jjarðinum. I lögum Montana-ríkis segir, að utan garðsins eigi að skjóta alla vísunda til að koma í veg fyrir, að þeir geti smitað aðra nautgripi með sjúkdómum. Sjá sérstakir eftirlits- menn um veiðarnar, sem stundaðar eru á tveimur vöktum daglega, en veiðileyfið kostar um 10.000 kr. ísl. „Þetta eru ekki veiðar, heldur slátr- un,“ segir Dan Tyers, sérfræðingur í vistkerfi skóglenda, um þessar mestu vísindaveiðar síðan 20 milljón dýr voru drepin á amerísku sléttunum á síðustu öld. Veiðimennirnir nálgast vísundina á jeppum og skjóta þá oft í sex eða sjö metra íjarlægð. Ef dýrið, sem getur vegið meira en eitt tonn, fellur ekki við fyrsta skot, eru það elt á bíl þar til það örmagnast. „Þau horfa stórum augum á veiði- manninn, jafnvel eftir að makinn hef- ur verið drepinn, og vita augljóslega ekkert hvað um er að vera,“ segir John Cada, yfirmaður veiðimálastofn- unarinnar í Montana, en það er hann, sem skipuleggur veiðarnar. Líffræðingar eru raunar ekki á einu máli um hvort nokkur smithætta stafi af vísundunum en ríkisstjórnin í Mont- ana segist ekki vilja eiga neitt á hættu. Fyrir fjórum árum var ákveðið að einkavæða vísundadrápið utan þjóðgarðsins og selja aðgang að því en þá var heldur ekki mikið um, að vísundarnir færu á flakk. Skógareld- arnir í fyrra hafa hins vegar valdið því, að nú er öll vísundaþjóðin á far- aldsfæti í fæðuleit og það, sem af er árinu, hafa 422 dýr verið drepin. Náttúruverndarsamtök hafa höfðað mál og reynt að fá eftirlitsmennina til að reka dýrin aftur inn í garðinn en það hefur engan árangur borið hingað til. „Þjóðgarðsstjórnin ætti ekki að láta sér nægja að sitja með hendur í skauti og vitna til þessara fáránlegu laga,“ segir Cleveland Amory, formaður einna dýraverndunarsamtakanna. „Veiðimennirnir í Montana er svo blóð- þyrstir, að þeir dræpu sína eigin móð- ur gengi hún á fjórum fóturn." -MARTIN WALKER BÍLASTÆÐASJÓÐUR Velkomin í Kolaport Kolaport er opið frá 07.30 - 19.00 mánudaga til föstudaga. Gjaldið er 40.- kr. fyrir hverja klukkustund. Mánaðarkort pru seld í varðskýli á 4.000.- kr. einn mánuður í senn. Skilatrygging mánaðarkorts er 1.000.- kr. Hægt er að fá bíla geymda fyrir kr. 1.600.- pr. viku. Unnt er að fá peningum skipt í varðskýli. Símasjálfsali er á staðnum. Gatnamálastjóri. 1) 29. maí: Skútusigling frá Tyrklandi 2) 6. júní: Veraldarreisa 1 til Suður-Ameríku 3) íjúní: Sérstök Sikileyjarferð 4) 4. nóvember: Eyjahopp í gríska Eyjahafinu. Ævintýralegar ferðir. HiÁ VERÖLD FÆRDU HtEIRA FYRIR PENINGANA - Ó-JÁ! nmmimiflii AUSTURSTRÆTI 17, II hæó. SÍMI622200 Adidas markmannsbuxur Nr. 2-8. Púðará hnjám og mjöðmum. Verð kr. 3.950,- Puma legghlífar Nr. Junior Nr. Senior Póstsendum SPORTVÖRUVERSLUNIN______ Laugavegi49 - Sími 12024 Adidas Special S.L. Fyrir möl og gervigras, úrmjúku leðri. Verð kr. 6.170,- Patrick Brest Nr. 36-46. Malarskór. Adidas markmannstreyjur Nr.XS-S-M-L- XL Litir: rautt, gult, grænt. Verð kr. 3.670,- Teg.: 0Z3 Fyrir möl og gras. Nr. 8-101/2 Verð kr. 2.540,- Liverpool galli Nr. 128 til 176 kr. 3.595,- Nr. 3 til 9 kr. 3.980,- Litur: dökkblár m/ljós- bláum röndum. Ath. einnig stakar bux- ur. Nr. 116-176, kr. 1.640,- Nr. 3-10 kr. 1.850.- Adidas Bamba Nr. 31/2-11V2. Skór fyrir gervigras. Verð kr. 3.590,- Adidas Match Besti skórinn á gervi- gras. Nr. 36-47. Verð kr.5.130,- Adidas Manchester Skór úr mjúku leðri fyrir möl. Verð kr. 3.020,- Adidas Youngster Fyrir möl og gervigras. Nr. 30-39. Verð kr. 2.290,- Reusch Eike Immel Topphanski fyrir möl og gras. Nr. 8-1OV2. Verð kr. 3.100,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.