Morgunblaðið - 23.04.1989, Blaðsíða 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ MANNUFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1989
Anna
Soffía Hauksdóttir
Adda
Bára Sigfúsdóttir
Sigrún
Stefánsdóttir
Gerður
Pálmadóttir
Sigrún
Eldjárn
lETTTTUEÐl/Frami kvenna œttgengur?
Kvenprófessor af Urðaætt
eftir Guðjón
Friðriksson
Það hefur vakið töluverða at-
hygli að undanförnu að korn-
ung kona, Anna Soffía Hauks-
dóttir (f. 1958), hefur verið sett
sem prófessor i vélaverkfræði við
■"■■^^^* Háskóla íslands.
Ekki er það að-
eins afar fátítt að
konur komist í
prófessorsstöður
hér á landi heldur
þykir vélaverk-
fræði kannski
einna ólíklegust
til frama fyrir
konur. Hér verður gerður að um-
talsefni frændgarður Önnu Soffíu
í föðurætt, svokölluð Urðaætt, sem
talinn er frá Sigurhirti Jóhannes-
syni (1855—1926) á Urðum í
Svarfaðardal, langafa hennar.
Meðal skyldmenna hennar af þess-
ari ætt er mjög margt þjóðkunnra
manna, og ekki síst kvenna. Með-
al þekktra kvenna sem eru ná-
skyldar Önnu Soffíu af þessari
ætt eru Adda Bára Sigfúsdóttir
veðurfræðingur og fyrrv. borgar-
fulltrúi, Sigrún Stefánsdóttir
fréttamaður og doktor, Gerður
Pálmadóttir kaupmaður og Sigrún
Eldjám myndlistarmaður og rit-
höfundur.
Sigurhjörtur á Urðum var
tvígiftur. Fyrri kona hans var
Soffía Jónsdóttir (1854—1894) og
eignuðust þau fimm dætur. Seinni
kona hans var Friðrika Sigríður
Sigurðardóttir (1858—1914) og
varð þeim tveggja bama auðið sem
upp komust. Hér verða bömin tal-
in upp og nokkrir þekktir afkom-
endur.
1. Þorbjörg Sigurhjartardóttir
ljósmóðir á Dalvík, átti Björgvin
Vigfússon sjómann.
2. Arnfríður Anna Sigurhjart-
ardóttir, kona Jóns Gíslasonar
bónda á Hofi í Svarfaðardal. Son-
ur þeirra er Gísli Jónsson mennta-
skólakennari á Akureyri og íslens-,
kupistlahöfundur Morgunblaðsins.
3. Elín Sigurhjartardóttir, kona
Ármanns Sigurðssonar bónda á
Urðum. Þau áttu sex börn, þar á
meðal Friðriku Sigríði, móður Ár-
mans Björgvins Gunnarssonar
dýralæknis, og Sigurð Kristin end-
urskoðanda í Reykjavík.
4. Sigrún Sigurhjartardóttir,
kona Þórarins Eldjárns Kristjáns-
sonar hreppstjóra á Tjörn í Svarf-
aðardal. Af börnum þeirra má
nefna: a) Kristján Eldjárn forseta
íslands en meðal barna hans eru
Þórarinn Eldjárn rithöfundur og
Sigrún Eldjám sem fyrr er nefnd.
b) Hjört E. Þórarinsson hrepp-
stjóra á Tjörn og formann Búnað-
arfélags íslands. Meðal barna hans
er Árni Hjartarson jarðfræðingur.
c) Petrína Soffía Þórarinsdóttir.
Meðal barna hennar er Sigrún
Stefánsdóttir fréttamaður.
5. Þórunn Sigurhjartardóttir,
kona Péturs Jónssonar gjaldkera
í Reykjavík. Þau áttu átta börn
og meðal þeirra voru Sigurhjörtur
Pétursson lögfræðingur og Pálmi
Pétursson, faðir Gerðar Pálma-
dóttur kaupmanns í Flónni.
6. Soffía S. Sigurhjartardóttir,
kona Pálma Einarssonar lands-
námsstjóra í Reykjavík. Meðal
barna þeirra eru Sigurhjörtur
Pálmason verkfræðingur, Anna
Pálmadóttir, móðir Einars Más
Guðmundssonar rithöfundar,
Haukur Pálmason verkfræðingur,
faðir umræddrar Önnu Soffíu
prófessors og Sigríður Pálmadótt-
ir, kona Kristjáns Sæmundssonar
jarðfræðings.
7. Sigfús Sigurhjartarson al-
þingismaður og ritstjóri, kvæntur
Sigríði Stefánsdóttur. Börn þeirra
eru Adda Bára Sigfúsdóttir veður-
fræðingur og fyrrv. borgarfulltrúi,
móðir Kolbeins Bjarnasonar
flautuleikara, Hulda Heiða Sigfús-
dóttir, kona Flosa Hrafns Sigurðs-
sonar veðurfræðings og Stefán
Hilmar Sigfússon búfræðikandid-
at.
oo
CO
=5
X
œ
8
Tveir nýir í Bernhöftstorfunni
MATUR OG DRYKKUR //i tv
daufur, vatnskenndur ogfitusnaudur
en cettstór íýmissa kykvenda líki?
Kúrbítur
fyrirliggjandi
„Kúrbítarnir eru komnir!
Eigum fyrirliggjandi
bandaríska, franska og
ítalska kúrbíta af öllum
stærðum og gerðum.
Slöngukúrbíturinn slær öllu
við. Komið og lítið á úrval-
ið.“
Svona gæti hljómað aug-
lýsing firá einhverjum stór-
markaðinum.
Kúrbítur er nefhilega
ekki tremmi sem grípur
fólk í upphafi áfengismeð-
ferðar og þaðan af síður
megrunarkúrsofskynjanir
eins og einhveijir kynnu að
ætla samkvæmt orðsins
hljóðan, einkúm ef kúrbí-
turinn er sagður vera fyrir-
Iiggjandi, heldur mjög stór
og Qölbreytt grænmetisætt
(curcurbita á latínu). Þekkt-
ustu fjölskyldumeðlimirnir
hafa verið sýnilegir hér í
metnaðarfullum matvöru-
verslunum um nokkurt
skeið og fer fjölgandi.
Meðal þeirra eru zucchini
(ítalska), courgette
(franska), hvort tveggja smá-
kúrbítur eða möndlukúrbítur,
squash (úr indíánamáli), go-
urd, pumpkin
(grasker) og
marrow
(enska). Hinn
síðastnefndi,
mergkúrbítur,
er af sama
tagi og
möndlukúrb-
ítur, nema
stærri.
Sumir kúrbítar minna á
gúrku eða melónu enda eru
þessar tegundir allar náskyld-
ar. Bragðið er milt eða fremur
dauft og dálítið vatnskennt
og því daufara því stórvaxnari
sem tegundin er. Ef ein teg-
und fæst ekki má oftast nota
aðra í staðinn.
Kúrbíta má fylla, gufu-
sjóða, léttsteikja eða baka,
auk þess má nota þá í súpur
og salöt. Það er yfirleitt óþarfi
að afhýða kúrbíta nema þeir
séu mjög stórir. Kúrbítar eru
mismunandi að lit, stærð og
lögun. Nokkrar fleiri tegundir
eru akarnkúrbítur, app-
elsínukúrbítur, slöngukúrbí-
tur, smjörhnetukúrbítur,
rjómakúrbítur (hvítur, kringl-
óttur og flatur), spaghettík-
úrbítur (aldinlqotið minnir á
spaghettí), dhudi, chayote og
karella. Kúrbítar eru afar fítu-
snauðir og auðugir að bíótíni
og C-vítamíni.
Hér má að staðaldri fá í
verslunum (Hagkaup t.d.)
smákúrbítinn courgette,
pumpkin eða grasker og squ-
ash. Hér koma nokkrar
kúrbítsuppskriftir. Enn fleiri
er að finna í bókinni Grænt
og gómsætt eftir Colin Spen-
cer sem út kom í íslenskri
þýðingu Helgu Guðmunds-
dóttur í fyrra. Þar er einnig
að finna fallegar litmyndir af
kúrbítsfjölskyldunni og grein-
argóðar upplýsingar.
Graskerssúpa
Uppskrift handa fjórum.
2 litlir laukar
700—800 g grasker (eða squ-
ash)
1 hvítlauksgeiri
1 I mjólk
4 msk. hveiti
2 dl ijómi
2 steinseljukvistir
Saxið laukinn, meijið
hvítlaukinn og skerið afhýdd-
an kúrbítinn í litla teninga eða
rífið hann gróft. Sjóðið þetta
í mjólkinni í 8 mínútur.
Hrærið hveitinu saman við
ijómann, hellið út í súpuna
og látið malla við vægan hita
í nokkrar mínútur. Stráið sax-
aðri steinselju yfir rétt áður
en hún er borin fram.
Squash með hrísgrjónafyll-
ingu
Uppskrift handa fjórum.
2 squash, u.þ.b. 300 gr stykkið
Fylling:
1 lítill laukur
4 dl soðin hýðishrísgijón
4 msk. kúrenur
sítrónupipar, timjan, meijam
og sellerísalt
rifínn ostur
Skerið kúrbítana eftir endi-
löngu og skafið kjamhúsin úr
(þau má svo nota í salat).
Hrærið saman hrísgijónum,
söxuðum lauk, kúrenum og
kryddið eftir smekk. Fyllið
kúrbítshelmingana, stráið
rifnum osti yfir og bakið við
225 gráður þar til osturinn
er hæfilega bakaður.
Squash með ostasósu
Uppskrift handa fjórum.
2 squash, u.þ.b. 200 gr stykkið
2 litlir laukar
100 g nýir sveppir
Ostasósa:
2 msk. smjör
4 msk. hveiti
5 dl mjólk og grænmetiskraft-
ur
2 tsk. þurrkuð salvía
1 hvítlauksrif
4 dl rifinn ostur
4 msk. ijómi
Skerið kúrbítana í sneiðar,
sveppina í fjórðuparta og sax-
ið laukinn. Leggið þetta í
smurt, eldfast fat.
Bræðið smjörið, hrærið
hveitinu saman við og þá
grænmetiskrafti og mjólk.
Kryddið sósuna og látið hana
malla í nokkrar mínútur. Tak-
ið þá pottinn af hellunni og
hrærið saman við osti og
ijóma.
Hellið sósunni yfir græn-
metið og bakið við 250 gráður
í 20 mínútur eða þar til sósan
hefur fengið fallegan lit.
eftir Jóhönnu
Sveinsdóttur