Morgunblaðið - 23.04.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.04.1989, Blaðsíða 31
i jMÖRGUNBLAÐIÐ SAMSAÍFIMIÐ SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1989.............. ............., , , , ,, C 31 Bjarni Guðmundsson, blaða- fulltrúi ríkisins, tekur innkast. Sá meiddi borinn af leikvelli við mikinn fögnuð áhorfenda, sem voru fjölmargir eins og sjá má. SÍMTALIÐ... ER VIÐ VALGEIR GUÐJÓNSSON TÓNLISTARMANN Gaman væriað bijota hefðina „Halló.“ - Góðan dag. Valgeir? „Það er hann.“ - Þetta er á Morgunbiaðinu Friðrika Benónýs heiti ég. Mig langaði að ræða við þig um ferð- ina til Sviss. „Eg ætlaði nú ekki að hafa neinn hamagang í kringum þetta...“ - Leggst þetta eitthvað illa í þig? „Nei, nei, en ég er búinn að prófa þetta einu sinni og held að hamagangur og læti séu ekki það sem koma skal. Annars leggst þetta ágætlega í mig. Þetta er í sjálfu sér mjög áhugavert fyrir- bæri þessi tröllaukna sjónvarpsút- sending og ýmsir stælar í kringum þetta sem gaman er að fylgjast með, þótt maður sé ekki endilega sammála. Það er áhugaverður staður Eurovision vígvöllurinn.“ - Vígvöllur? Er mikil barátta bak við tjöldin? „Það eru ýmsir sem leggja mik- ið upp úr því að vinna og eiga meira undir því en við íslending- ar.“ - Væri ekki alveg skelfilegt ef við ynnum? „Ja, það minnsta kosti nógu gaman, en ég held nú ekki að íslendingar þurfi að hafa áhyggjur af því.“ - Stefnirðu á sextánda sætið eins og hefðin býð- ur? „Nei, við skul- um segja að ég stefni að því að bijóta hefðina til annarar hvorrar áttarinnar." - Nú hefur kom- ið fram að það sé von á fjölgun í fjöl- skyldunni hjá þér um svipað leyti og keppnin fer fram... „Já, um það bil hálfum mánuði seinna svo þetta er engin óskatími fyrir mig og ef fæðingin hefði staðið til á sama tíma og keppnin hefði ég fengið einhvern annan til að fara fyrir mig.“ - Hvers vegna valdirðu nánast óþekktan söngvara til að flytja lagið? „Eg vissi af því að Daníel er góður söngvari og hafði verið að gera góða hluti með hljómsveit- inni Nýdönsk, en hann er lítið þekktur og það var nánast skil- yrði frá minni hálfu.“ - Hvers vegna? „Það eru ekki það mörg tæki- færi fyrir nýtt fólk að láta að sér kveða. Við eigum fullt af hæfi- leikafólki sem hefur löngun og getu til þess en kemst ekki að. Og mér finnst ekki að þessi keppni eigi að vera elítukeppni gamalla poppara.“ - Varstu óhress með fyrirkomu- lag kepninnar núna? „Já. Og er enn. Fyrirkomulagið sem verið hefur er miklu skemmti- legra fyrir fólkið stofu og gefur aukna möguleika á því að eitthvað nýtt komi fram.“ - Heldurðu að þú sendir lög í Eurovisionkeppn- ina oftar? „Nei, ég á ekki von á því. Ég held þetta sé orðið gott í bili.“ - Jæja, Valgeir. Ég þakka þér fyrir spjallið og óska þér góðrar ferðar. „Takk. Bless- uð.“ - Blessaður. væri að Valgeir Guðjónsson i egar alþingi tók til starfa haustið 1978 voru ungu menn- irnir úr Alþýðuflokknum áberandi, og var rætt um það manna á með- al að ný kynslóð hefði lagt undir sig þingið. Einn þessara ungu manna var Finnur Torfi Stefáns- son, 31 árs lögfræðingur úr Hafn- arfirði. Hljótt hefur verið um Finn Torfa síðustu árin, enda þingmaðurinn fyrrverandi búsettur í Los Angeles í Bandaríkjunum. Þar hefur hann dvalið ásamt íjölskyldu sinni, Eddu Þórarinsdóttur leikkonu og synin- um Fróða, í þrjú ár og lagt stund á tónsmíðar. En hvað var það sem fékk stjórnmálamann til að snúa við blaðinu og gerast tónskáld? Finnur Torfi sagði í símtali við Morgunblaðið, að hann hefði á sínum tíma verið ákveðinn í að gerast stjórnmálamaður og því lagt stund á stjórnmálafræði við Háskólann í Manchester í tvö ár, eftir að þann lauk lagaprófi frá Háskóla íslands. Þegar heim kom setti hann á stofn lögfræðiskrif- stofu í Reykjavík og var einnig varabæjarfulltrúi í Hafnarfirði áð- ur en hann fór á þing. „Ég sat á þingi í tvö ár, en tapaði þá þingsæt- inu í kjölfar þingrofs. Síðan fékk ég umdeilda stöðu í dómsmála- ráðuneytinu sem umboðsfulltrúi almennings, en þegar til lengdar lét þá átti ekki við mig að vinna þar. Ég var á báðum áttum hvort ég ætti að snúa mér að stjórn- málum aftur eða fara að gera eitt- hvað allt annað. Komst svo að þeirri niðurstöðu að mín manngerð væri ekki sérlega eftirsótt í stjórn- málum um þessar mundir og sneri mér því að tónlistinni." Fiðla i stað flugvélar Finnur Torfi var enginn ný- græðingur á tónlistarsviðinu því hann hafði spilað með mörgum rokkhljómsveitum hippatímans, var lengst í Óðmönnum, þar sem hann spilaði á sólógítar. „Ég undibjó það hægt og rólega að gerast tónskáld, var í einkatíma hjá Jóni Þórarinssyni og lauk BA- prófi frá Tónlistarskólanum. Keypti síðan fiðlu sem Helga Þór- arinsdóttir kenndi mér á, þá orðinn 35 ára gamall, og var því stundum kallaður í gamni undrakarlinn." Guðmundur Árni Stefánsson, bróðir Finns og bæjarstjóri í Hafn- arfirði, sagði reyndar að Finnur hefði selt flugvélina sína og keypt sér fiðlu í staðinn. Finnur Torfi er með atvinnuréttindi sem flugmað- HVAR ERU ÞAU NÚ? ALÞINGISMAÐ URINN FINNUR TORFI STEFÁNSSON Þingmaður- inn sem varð tónskáld ur og fylgdist gjarnan úr lofti með sprettunni hjá bændum þegar hann var þingmaður Norðulandskjör- dæmis vestra. Með meistara Finnur Torfi hefur nú lokið mastersgráðu frá Kaliforníuháskó- lanum í Los Angeles og í fyrrasum- ar var mastersverkefni hans valið úr hópi verka til flutnings þar í borg. Hann er nú kominn í doktors- nám og kennir jafnframt með nám- inu, en mestur tími hans fer þó í að semja. Segist hann hafa verið stálheppinn, því hann hafi farið með tónsmíðar sínar til Bretans Brians Ferneyhough, sem er einn eftirsóttasti tónsmíðakennari í hópi evrópskra tónskálda, og hann hafi strax boðið honum að koma í eink- atíma. í framtíðinni hefur Finnur Torfi hugsað sér að semja góða tónlist og bæta þar með örlitlu við íslenska menningu. STAPI ÓÐMENN leika og syngja í kvöld. Nýir ÓÐMENN Kynnist ny'rri Tónskáldið „Mín manngerð var ekki sérlega eftirsótt í stjórnmálum um þessar mundir og því ákvað ég að snúa mér að tónlist- inni.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.