Morgunblaðið - 23.04.1989, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.04.1989, Blaðsíða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1989 LAUS ALLRA MÁLA þýðubandalagið var gert að stjórn- málaflokki, var ég á öndverðum meiði við meirihluta í forystuliði Sósíalistaflokksins. Ég vildi ganga miklu lengra til móts við þá sem komu í Alþýðubandalagið úr Al- þýðuflokknum, þá sem voru í Mál- fundafélagi jafnaðarmanna, og gera Alþýðubandalagið að sam- stæðum flokki, en ekki reka það lengur sem samfylkingarsamtök. Alþýðubandalagið var upphaflega samfylkingarsamtök Sósialista- flokksins annars vegar og Mál- fundafélags jafnaðarmanna hins vegar, sem voru samtök á bak við þá Alfreð Gíslason lækni og Hannibal Valdimarsson og þeirra samhetja og svo ýmissa einstakl- inga sem ekki voru flokksbundnir. Það var mikið átakamál í Sósíalista- flokknum hvort að ætti að hafa þessi samfylkingarsamtök áfram, þar sem hvor aðili hafði í rauninni neitunarvald, eða hvort ætti að mynda úr þeim nýjan stjórnmála- flokk, sem starfaði á grundvelli eig- in stefnuskrár. Þegar Alþýðubandalagsfélag Reykjavíkur var loks stofnað varð ég fyrsti formaður þess og það kom m.a. í minn hlut að stýra sögulegum fundi um val manna á framboðs- lista fyrir kosningarnar 1967, sem varð til þess að fram kom I-lista framboð Hannibals Valdimarssonar og stuðningsmanna hans og ég var einn af meðmælendum þess fram- boðs, sem í rauninni var undanfari þess að Samtök frjálslyndra og vinstri manna voru stofnuð. Þarna var fyrst og fremst tekist á um stefnu og hvernig best yrði fram komið þeim vinstri málstað sem þessir menn töldu sig bera fyrir bijósti, hversu langt ætti að teygja sig til að mynda stóra stjómmála- fylkingu á vinstri væng, til dæmis með því að sameinast Alþýðu- flokknum. Ennfremur snerist þetta að nokkru leyti um afstöðuna til Sovétríkjanna, en ýmsir sem komu úr Kommúnistaflokknum vildu hafa flokksleg samskipti við Kommún- istaflokk Sovétríkjanna. Hannibal bauð fram svokallaðan I-lista og vildi fá framboð sitt viður- kennt sem sérframboð í nafni Al- þýðubandalagsins, en því var hafn- að af kjörstjórn. Hannibal starfaði þó í þingflokki Alþýðubandalagsins framan af kjörtímabilinu og fljót- lega kom í ljós að hann átti þar samheija þar sem voru Björn Jóns- son og Karl Guðjónsson. Þróunin í þingflokki Alþýðubandalagsins varð á þann veg að þar komu upp ýmis ágreiningsmál og sömuleiðis áberandi krafa, sem var komin upp víða í vinstri sinnuðum kjósendahóp á þessum tíma, um að uppstokkun ætti sér stað og að afl kæmi fram, sem gæti bundið enda á óvenju langt og samfellt valdatímabil við- reisnarstjómarinnar. Upp úr þess- um jarðvegi spruttu Samtök fijáls- lyndra og vinstri manna og þau settu sér það höfuðmarkmið að vinna að sameiningu á vinstri væng stjórnmálanna." — Trúðir þú því í fullri einlægni að Samtökin væru þess megnug að sameina vinstri menn á þessum tíma? „Auðvitað gerði ég mér vonir um það, sérstaklega eftir kosningasig- urinn. En það kom mjög fljótt í ljós, að Alþýðuflokkur og Alþýðubanda- lag voru síður en svo á þeim buxun- um að láta Samtökin tengja sig saman, heldur þvert á móti unnu að því að mylja þau á milli sín. Þessum flokkum var ekki vel við að þama væri kominn upp flokkur með svipaða stefnu og skírskotun til sama kjósendahóps og þeim tókst um síðir að bijóta Samtökin á bak aftur og koma í veg fyrir að þessi tilraun til sameiningar vinstri manna tækist. Það má því kalla það kaldhæðni örlaganna að formenn þessara tveggja flokka voru nýlega að viðra slíkar hugmyndir í funda- herferð um landið, því þetta er í raun sama hugmyndin, í örlítið breyttum búningi. Eg er hins vegar sannfærður um að með kosningasigri Samtakanna 1971 var komið ákjósanlegt tæki- færi til sameiningar. Samtökin komu inn á Alþingi með fimm þing- menn og höfðu úrslitaáhrif á mynd- un nýrrar ríkisstjórnar. Það var ákveðið að ganga til stjórnarsam- starfs með Framsóknarflokki og Alþýðubandalagi, en áhrifamiklir menn í forystu Samtakanna hefðu heldur kosið að þau kæmu inn í endurgerða viðreisnarstjórn Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokks, sem þriðja afl þar og þá fyrst og fremst með það fyrir augum að geta sam- einað Samtökin og Alþýðuflokkinn með sem skjótustum hætti. Þetta átti þó lítinn hljómgrunn meðal þorra samtakafólks. Hins vegar var Björn Jónsson hrifinn af þessari hugmynd.“ Snögg umskipti Þegar Samtök fijálslyndra og vinstri manna buðu fram í fyrsta skipti, í alþingiskosningum 1971 var Magnús Torfi efsti maður á lista flokksins i Reykjavík. Framboð hans bar að með skjótum hætti enda hafði hann ekki alveg verið sáttur við hvemig að málum var staðið á stofnfundinum og lítið skipt sér af flokksstarfinu fyrst á eftir: „Þegar leið að því að framboðs- frestur rynni út kom skyndilega upp sú staða, að Hannibal Valdimars- son, sem gert hafði verið ráð fyrir að yrði í efsta sætinu í Reykjavík, ákvað að leggja allt undir og fara í sitt gamla kjördæmi á Vestijörðum og beijast þar til sigurs. Það gerði hann með slíkum glæsibrag að á sér fáar hliðstæður í íslenskum stjórnmálum. Uppstillingarnefnd varð hins vegar ekki sammála um efsta mann listans í Reykjavík og varð að máiamiðlun hjá henni að leita til mín.“ — Heldurðu að það hafi ráðið úrslitum, að skömmu áður hafðir þú vakið þjóðarathygli fyrir frábæra frammistöðu í spurningaþætti í út- varpi, þar sem þú lagðir að velli alla helstu andans menn landsins? „Ekki skal ég segja um það, þetta voru nú allt kunningjar mínir í upp- stillingamefndinni. Hins vegar hef ég á tilfinningunni að það hafi ekki spillt fyrir í sjálfum kosningunum þótt ég geti auðvitað ekkert fullyrt í þeim efnum. Að minnsta kosti héldu Samtökin fyliilega fylginu í Reykjavík, sem Hannibal hafði náð í kosningunum 1967, hveiju svo sem það var að þakka og það komu auðvitað fleiri þar við sögu en ég.“ — Ríkisstjórn Ólafs Jóhannes- sonar var mynduð áður en þing kom saman og Magnús Torfi varð því ráðherra áður en hann settist á þing. Auk forsætisráðherraembætt- is gegndi Ólafur embætti dóms- málaráðherra, Einar Agústsson var utanríkisráðherra, Halldór E. Sig- urðsson fjármálaráðherra, Lúðvík Jósepsson sjávarútvegs- og við- skiptaráðherra, Magnús Kjartans- son heilbrigðis- og iðnaðarráðherra, Hannibal Valdimarsson samgöngu- og félagsmálaráðherra og Magnús Torfi menntamálaráðherra. „Stjórnarmyndunarviðræðurnar vom allflóknar, sér í lagi undirbún- ingur útfærslu landhelginnar í 50 mílur, sem menn gengu út frá sem vísu að ekki yrði átakalaus. Sömu- leiðis vom ýmis atriði efnahags- mála erfið viðureignar, en íslend- ingar vom þá að koma út úr sam- dráttartímabilinu í lok sjöunda ára- tugsins. í þeim efnum var sérstök áhersla lögð á að efla atvinnulífið, einkum úti á landsbyggðinni. Hvað varðar þá málaflokka sem heyrðu undir menntamálaráðuneytið þurfti fyrst og fremst að fylgja því eftir, sem forveri minn Gylfi Þ. Gíslason hafði byijað á, að koma fram þeirri endurskipan skyldunámsins sem felst í gmnnskólalögunum. í mínum huga skipti það höfuðmáli að koma grunnskólafmmvarpinu í gegn og það tókst. En margar hindranir varð að yfirstíga áður en að það varð að lögum.“ — Þegar þú metur störf þessarar ríkisstjórnar svona eftir á, hvað finnst þér helst hafa áunnist í henn- ar tíð? „Það er án efa útfærslan í 50 mílur. Auk þess beitti hún sér fyrir vemlegri eflingu atvinnulífs, sér- staklega úti á landsbyggðinni. Um það verður ekki deilt — bæði hvað varðar endurnýjun fískiflotans og endurbætur fiskvinnslustöðva. Hún fékkst við þau verkefni sem fylgdu Vestmannaeyjagosinu, sem voru mjög erfið, en leystust á farsælan hátt. Hins vegar átti hún í höggi við verðbólguþrýsting, sem að síðustu varð henni að falli. Hún fann ekki þau ráð sem dugðu til að halda verðbólgunni í skefjum og því fór sem fór. Ólafur Jóhannesson var rögg- samur forsætisráðherra og ég kunni mjög vel við hans stjórnarhætti. Hann var yfirleitt ekki afskiptasam- ur um verk meðráðherra, en sýndi þeim traust og stuðning þegar á þurfti að halda. Hann var óumdeild- ur foringi framsóknarmanna á þess- um tíma, en honum tókst ekki að halda þessari stjórn saman út kjörtímabilið. Það var fyrst og fremst vegna ágreinings um efna- hagsmál. Björn Jónsson, sem hafði tekið við ráðherraembætti af Hannibal Valdimarssyni, lýsti yfir andstöðu við frumvarp sem forsæt- isráðherra hafði undirbúið vegna efnahagsástandsins, og við hinir ráðherrarnir studdum. Þetta frum- varp var um aðhaldsaðgerðir í efna- hagsmálum, þar á meðal, eins og oft áður og síðar, um íhlutun í kjara- atriði. Bjöm, sem var forseti ASI, gat ekki sætt sig við það og vegna þeirrar andstöðu baðst forsætisráð- herra lausnar fyrir hann. Við það missti stjórnin starfhæfan meiri- hluta á Alþingi og þar sem ljóst var enginn borðleggjandi meirihluti var fyrir hendi ákvað Ólafur Jóhannes- I son og ríkisstjórnin að leggja til við forseta að þing yrði rofið og efnt til nýrra kosninga og það var gert. Með þessu var ekki einungis kominn upp klofningur í ríkisstjórn- inni heldur vom Samtökin nú þríklofin því Bjarni Guðnason hafði sagt skilið við þau fyrr á kjörtíma- bilinu og myndað Fijálslynda flokk- inn. Það var út af ágreiningi um efnahagsmál, fyrst og fremst vegna gengisfellingar sem stjórnin hafði gripið til, en hann var óánægður með margt fleira. Hannibai fylgdi Birni Jónssyni að málum og þeir tveir sögðu sig úr Samtökunum og gengu til liðs við Alþýðuflokkinn. Karvel Pálmason var einhvers stað- ar mitt á milli. Hann fylgdi Hanni- bal að málum í þessum ágreiningi, en síðan bauð hann sig fram í nafni Samtakanna á Vestfjörðum og hann einn af frambjóðendum þeirra náði kosningu 1974, en ég varð uppbótarþingmaður. Bæði Björn og Hannibal vom á framboðslista Al- þýðuflokksins í kosningunum 1974, Bjöm í baráttusæti, en Hannibal ekki og hans ferli sem virkur stjórn- málamaður lauk í rauninni með þessu uppgjöri í Samtökunum." — Hvernig leist þér á þá stöðu sem þarna var komin upp? „Mér þótti þetta að sjálfsögðu mjög miður. En þar sem enn var hópur fólks sem stóð að baki Sam- takanna taldi ég mér skylt að halda þeim málstað áfram, þrátt fyrir erfíðar aðstæður. Eftir þessi átök hafði fylgi flokksins riðlast og við sem eftir stóðum höfðum ekki pólitískt bolmagn til að standast atlögur þeirra afla sem vildu Sam- tökin feig. Við náðum ekki manni á þing í kosningunum 1978 og síðan Ríkistjórn Ólafs Jóhannessonar á fyrsta ríkisráðsfundinum á Bessastöðum í júlí 1971. Talið frá vinstri: Halldór E. Sigurðsson, fjármála- og landbúnaðarráðherra, Hannibal Valdimarsson, félagsmála- og samgönguráðherra, Einar Ágústsson utanríkisráðherra, Guðmundur Benediktsson ríkisráðsritari, Kristján Eld- járn forseti íslands, Ólafur Jóhannesson forsætis- og dómsmálaráðherra, Lúðvík Jósepsson sjávarútvegs- og viðskiptaráðherra, Magnús Kjartansson iðnaðar- og heilbrigðisráðherra, Magnús Torfi Ólafsson menntamálaráð- herra. lagðist starfsemi Samtakanna nið- ur.“ Skákmaðurinn og stöðumatið Eftir kosningarnar 1971 lét þekktur stjórnmálafræðingur svo ummælt að Magnús Torfí væri tákn nýrra tíma í íslenskum stjórnmál- um: Maður sem tæki málefnalega afstöðu án tillits til flokkshagsmuna auk þess sem hann tæki ekki þátt í marklausu orðaskaki og persónu- legum svívirðingum um andstæð- ingana, sem svo algengt hefur ver- ið í íslenskum stjómmálum. Stjórn- málafræðingurinn líkti Magnúsi Torfa við skákmann, sem horfði yfirvegað yfir taflborðið og tæki síðan ákvörðun um næsta leik í ljósi stöðunnar hveiju sinni. Ég spyr hann hvað honum finnist sjálfum um þessa samlíkingu: „Hún kitlar auðvitað hégóma- girnina og svo sannarlega vildi ég eiga þessa einkunn skilið. Hins veg- ar held ég að þetta tal um tákn nýrra tíma hljóti að orka tvímælis í ljósi þeirrar þróunar sem orðið hefur í íslenskum stjórnmálum. í kosningunum 1971 gerðist það í vaxandi mæli að þingmannsefni vohi valin í prófkosningum og það er í mínum huga enginn efi á því að prófkosningar skila inn á þing töluvert annarri manngerð en þar var algengust áður, meðan uppstill- ingarnefndir fjölluðu um framboð og lögðu þau svo fyrir kjósendur. Nú er það fólkið með persónufylgið sem skipar sér í meira mæli en áður í efstu sætin á framboðslistun- um og ég verð tæplega talinn full- trúi þess hóps. Hins vegar þykir mér vænt um að fá þau ummæli að hafa verið málefnalegur. Hvað varðar marklaust orðaskak og ávirðingar pólitískra andstæðinga hvers í annars garð fæ ég nú ekki séð að slíkar manngerðir hafi horf- ið með öllu úr íslenskum stjórn- málum.“ — En svo ég haldi mig við samlíkinguna við skákmanninn. Sumir pólitískir andstæðingar þínir snéru út úr þessu og héldu því fram að þú hefðir tekið þér of langan umhugsunartíma fyrir hvern leik og fallið á tíma. Hver er þín skýr- ing á því að Samtökunum tókst ekki að halda kjörfylgi sínu, til dæmis í í Reykjavík? „Meginskýringin er sundrungin sem upp kom í forystuliðinu. Fimm manna þingflokkur klofnaði í að minnsta kosti þijá hluta þegar á fyrsta kjörtímabili. Slíkt hlaut að fæla kjósendur frá nýjum flokki, sem hafði sett sér það megin- markmið að verða sameinandi afl gagnvart öðrum flokkum og öflugri. Keppinautamir notfærðu sér svo þetta út í æsar. Til að mynda var dr. Bragi Jósepsson gerður út til að valda ýmsum uppákomum, til þess löguðum að sýna ástandið í Samtökunum í sem dekkstum litum, fyrir alþingiskosningarnar 1974. Ég læt svo öðmm eftir að dæma um, hver hafi verið minn hlutur í atburðarásinni, jafnt í meðlæti og í mótlæti fyrir Samtökin.“ Þegar Magnús Torfi hvarf af þingi 1978 tók hann við starfi blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar, sem þá var undir forsæti Ólafs Jó- hannessonar. Því starfi hefur hann gegnt síðan þótt ríkisstjórnir hafi komið og farið og hann kveðst ekki vilja gera upp á milli þeirra sex forsætisráðherra, sem hann hefur starfað fyrir sem blaðafulltrúi: „Þetta starf hefur verið breyti- legd- eftir óskum hvers og eins. Það hefur ekki aðeins falist í upplýs- ingadreifingu heldur einnig í upp- lýsingaöflun og auk þess hef ég verið fundarritari á ríkisstjórnar- fundum mest allt þetta tímabil. Ég hef aldrei sóst eftir skipun í þetta starf því ég álít að það sé þess eðlis, að vilji einhver forsætisráð- herra skipta þar um mann og velja annan, eigi hann að geta það um- svifalaust. Enginn þeirra sex for- sætisráðherra sem ég starfaði fyrir sá ástæðu til að skipta um mann í starfínu og fyrir það er ég auðvitað þakklátur. Hins vegar er það ósköp þægileg tilfinning að vera nú laus allra mála.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.