Morgunblaðið - 23.04.1989, Blaðsíða 11
Fyrirsjáanlegt er að þetta verði
einnig meiriháttar vandi fyrir bíla-
iðnaðinn í nánustu framtíð. En
talið er fremur skammt til þess
að bílum sé að verulegu leyti
stjórnað með rafeindatækni. Þetta
á a.m.k. við um gang vélar, heml-
un og fjöðrun. Vetði ekkert sérs-
takt að gert, má sjá fyrir sér að
þessi stjórnkerfí hætti að starfa
hvar sem er veruleg rafsegulgeisl-
un í loftinu.
Leiðir til úrbóta liggja ekki beint
við. Til er einföld leið, en dýr og
óhagkvæm. Hún er sú að loka
hvert tæki inni í málmbúri (svo-
kölluðu Faradays-búri) svo að það
verði ekki fyrir geislun. Farið er
í staðinn að athuga hvernig hvert
tæki um sig verkar sem móttakari
bylgna. Þar sem tæknimenn hafa
hingað til litið á rafleiðslu sem
boðleið rafmerkis milli tveggja
staða, er nú jafnframt farið að
taka tillit til að hún er loftnet, sem
nemur merki umhverfisins eftir
því hver er tíðni þeirra, lengd
leiðslunnar og stefna. Með því að
athuga þennan móttökuþátt tæk-
isins er að verulegu leyti hægt að
gera tæki ónæm fyrir mestum
hluta þeirra truflana sem það yrði
annars fyrir.
Með öðrum orðum nægir að
verulegu leyti að bæta nýjum
þætti inn í frumhönnun tækjanna.
Þannig er að verða til ný vísinda-
grein sem að hætti Ameríkumanna
heitir eftir skammstöfun, það er
EMC (e. electromagnetic compati-
bility), sem með mjög ónákvæmri
þýðingu mætti segja að þýddi raf-
segulhæfni.
tvö- ( sbr. tvívegis og tvöfalt). í
evrópskri talnahefð er billjón sama
og þúsund milljarðar (þ.e.
1.000.000.000.000), eða milljón
milljónir, sem sýnir tengslin við for-
skeytið bi-. í anda málræktar mætti
e.t.v. þýða billion sem tvíljón. „Tri-“
er einnig latneskt forskeyti sem
vísar til þriggja, og má þýða með
þrí- eða þre- (eins og í þrívegis og
þrefalt). Trilljón er því milljón millj-
ónir milljóna (eða
1.000.000.000.000.000), sem verða
þá þúsundir milljarða. Orðabók
Menningarsjóðs telur biljón og bill-
jón jafngilt, en „billjarður“, sem
stundum heyrist, er þessu máli óvið-
komandi, enda slanguryrði fyrir
knattborðsleik.
í pistli mínum um lífeyrismál,
sem birtist hér í blaðinu dags. varð
mér nokkuð hált á bókmenntasvell-
inu. Þar var farið rangt með tilvitn-
un í Bræðrabýti Stephans G. Step-
hanssonar og er beðist velvirðingar
á því. Kvæðið er afbragð og á er-
indi í efnahagsumræðu dagsins.
Við höllumst að sjón, ekki sögum,
oss sýnist nú örvænta um flest!
En enn mun að ákveönum lögum
við aldarhátt þroskaðri fest:
Að hugsa ekki í árum en öldum,
alheimta ei daglaun að kvöldum
- því svo lengist mannsævin mest.
Forsætisráðherra vitnaði rétt i
þessa hendingu í áramótaræðu
sinni, enda óefað mun minnugri
maður en ég.
MORGUNBLAÐIÐ
MAIMNLÍFSSTRAUMAR sunnudagur
■
23. APRIL 1989
/ ■ r / •'i .iim/—
c 11
Reykjavíkurdeild RKÍ
heldur námskeið í skyndihjálp. Það hefst miðviku-
daginn 26. apríl kl. 20 á Öldugötu 4 og stendur
yfir 5 kvöld.
Skráning í síma 28222.
Öllum 15 ára og eldri heimil þátttaka.
Athygli skal vakin á því að Reykjavíkurdeildin út-
vegar leiðbeinendurtil að halda námskeið fyrir
skóla, fyrirtæki og aðra.
RAUÐIKROSS ÍSLANDS
BREYTTUR OPNUNARTIMIISUMAR
Frá 1. maí til 15. september verður skrifstofa Rauða
kross íslands á Rauðarárstíg 18, opin frá kl. 08.00-
16.00.
RAUBIKROSSÍSLANDS
Viltu liggja marflatur á sólarströnd?
Eða fara í sólarferð á söguslóðir,
með frábærum fararstjóra.
Við bjóðum brottfarir alla
mánudaga um London eða
Amsterdam. Gisting þar er inni-
falin í verði.
Gott verð á gæðaferð 47.550 kr.
(2 vikur, 4 í íbúð, 2 fullorðnir og
2 börn).
Athugið. Söguafsláttur gildir
til 1. maí.
J Eitt símtal og þú getur bókað J
---------góða ferð!--------
| 91-62 40 40 j
FERÐASKRIFSTOFAN
Suðurgötu 7
S. 624040
fegurðin er einstök og við hvert
fótmál eru fornar minjar og
menning sem á sér enga lflca.
Á Kýpur getur þú notið lífsins
í sól og sjó. Þar er úrval góðra
hótela og íbúða, ágætis bað-
strendur, mikill fjöldi veitinga-
staða, vínkjallara, verslana og
markaða og að sjálfsögðu nætur-
líf af bestu gerð.
Verðlag á Kýpur er sériega hag-
stætt fyrir íslendinga. Sem dæmi
má nefna: Bflaleigubfll 1.700 kr.
á dag, kvöldverður fyrir 2 með
öllu 950 kr., ítalskir leðurskór
1.990 kr.
Ottó Jónsson fararstjóri Sögu
á Kýpur er líklega einn besti far-
arstjóri allra tíma. Hann leiðir
farþega okkar á vit 9.000 ára
gamallar menningar sem er vel
þess virði að kynnast nánar.
Frá Kýpur er stutt til ísrael og
Egyptalands. Kaíró og Jerúsal-
em eru engu öðru lík og þangað
bjóðast ódýrar 2-4 daga ferðir
með flugi eða skipi.
Kýpur er „sögueyjan í suðri",
oft nefnd paradís ferðamanns-
ins. Á Kýpur er besta loftslagið
við Miðjarðarhafið, gestrisni
íbúanna er engu lík, náttúru-
essemm/siA