Morgunblaðið - 23.04.1989, Page 16

Morgunblaðið - 23.04.1989, Page 16
16 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1989 4- JARDFRÆDI ÍSLANDS Á TÖLVUMYNDUM Brotalina Suöurlands- skjálftanna Upplýsingar úr þyngdarmæling- um, segulsviðsmælingum og jarð- skjálftamælingum á Suð-Vestur- landi, eru samankomnar á þessari tölvumynd. Stefnugreining og stefnusíun á segulkortinu hefur leitt í Ijós skörp skil í segulsvið- inu, þar sem græna línan er dreg- in þvert yfir myndina. Segulsvið er yfirleitt hærra sunnan við þessa línu en norðan hennar. Þyngdar- og segulfrávik eru klippt sundur um þessa iínu og hreyfist nyrðri brúnin til austurs (hægri hliðrun), öfugt við það sem al- mennt hefur verið talið. Þessi lína er túlkuð sem brotalína Suður- landsskjálftanna. Skjálftarnir núna verða sunnan línunnar, með- an verið er að spenna bogann, en stóru skjálftarnir verða trúlega á brotalínunni sjálfri. mW’ Morgunblaðið/Sverrir Litmyndir crf lai / ‘Hekla Vestmannaeviar ATHUGUNARSVÆÐIÐ ILágt þyngdarsvið sýnt með rauðum lit og jarð- skjálftar frá árunum 1974 til 1987 í gulum lit. Þyngdarlægðin endur- speglar eðlislétt berg í jarðskorpunni og er talin benda til gliðnunarbeltis í landrekinu. Stærsta skjálftaþyrpingin er á Hengils- og Hellisheiðar- svæðinu. Aðrir skjálftar eru annars vegar í þyngdarlægðinni, og hins vegar þeir sem nefndir eru Suðurlands- skjálftar og dreifast um suð-austurhluta myndar- innar. Þeir hryggir í segulsviði, sem snúa nokkurn veg- inn SV-IMA eru dregnir f ram með bláum lit. Þetta er gert með því að stefn- usía segulhæðirnar frá öðrum þáttum í segul- korti. Stór segulhæð fylgir Hengilsvæðinu og önnur byrjar ■ Grímsnes- inu og teygir sig norður eftir öllu kortinu. Segul- hæðirnar tengjast eld- virkni síðustu 700 þús- und ára, og eru hluti af því sem venjulega er nefnt vestara gosbeltið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.