Morgunblaðið - 07.05.1989, Síða 11

Morgunblaðið - 07.05.1989, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAI 1989 11 g borga móttökustjóranum viku fyrirfram — 7.000 krónur. Venjulega kostar Enóttin 1.600 krónur, en ég fæ ríflegan staðgreiðsluaf- slátt. Handarlausi maðurinn á næsta orð. Hann vantar framan á vinstri handlegg og er hvort tveggja í senn: nývaknaður og drukkinn. Hann er með mikla bauga undir augum, með rytjulegt yfirvarar- skegg og tveggja daga gamla skegg- brodda á vöngum. Hann er reikull í spori, en virðist samt vera með tilver- una nokkuð á hreinu. Ég álykta að hann njóti langrar reynslu á þessu sviði — þ.e.a.s. að stíga ölduna í lífsins ólgusjó, ekki síst þegar farið er að gefa á bátinn. Vart þarf að taka fram að öldurnar hafa fyrir . löngu breyst í vín. Hann býður mér upp á herbergi til skrafs og ráða- gerða og ég þigg það. Mér virðist helst að herbergi hans hafi orðið fyrir loftárás. Óhreinir fataleppar eru út um allt, sígarettu- stubbar prýða gólfteppið og tómar brennivínsflöskur liggja sem hráviði hvert sem litið er. Á borðum eru tóm pilluglös, spilastokkar og snældur með Elvis. Það er sest að teiti. Ég á nokkra bjóra og ég býð. Hann er allslaus, „vinir“ hans spörkuðu upp hurðinni fyrr um daginn meðan hann lá dauð- ur í koju og stáiu flestu fémætu. Hann þykist vita hveijir voru a ferð- inni og heitir hefndum. í rúminu liggur sofandi maður, sem síst sefur svefni hinna réttlátu, enda er klukkan orðin hálffímm á miðvikudagseftirmiðdegi. Gestgjafi minn býðst til þess að visa mér til herbergis míns. „Flott herbergi — svita,“ segir hann um leið og við hrindum upp hurðinni eftir nokkur átök við lásinn. „Svítan" er óásjálegt herbergi, en þó þrifalegra en það og hurðarskell. Hann kallar á eftir henni, kallar hana elskuna sína og biður hana bjarga sér um sígarett- ur. Hún birtist aftur eftir drykklanga stund og er með nokkrar sígarettur af hinum og þessum tegundum. Hann þakkar henni fyrir og biður hana kyssa sig, hvað hún gerir. Hann lítur brosandi á mig um leið og hann strýkur henni um rassinn og segir: „Svona eiga stelpur að vera.“ Ég tek því líklega og hrein- gemingadrottningin svífur á braut. Sem við hefjumst handa við þriðja bjórinn segir sá handarlausi mér í óspurðum fréttum að gistiheimilið sé ekki svipur hjá sjón miðað við það sem var, því helstu ribböldunum hafi verið hent út um morguninn. Ég samsinni því og muldra að nú sé hún Snorrabúð stekkur. Þeirri athugasemd er tekið með þögninni einni. Móttökustjórinn er eitthvað að væflast frammi á gangi og sá hand- arlausi fer fram og ræðir við hann. Ekki heyri ég hvað þeim fer á milli, en greini þó að þeim handarlausa er ráðlagt að halda kyrru fyrir í dyngju sinni, þar sem frúin (eigandi gistiheimilisins) vilji fá hann út af gistiheimilinu eins og skot. Raunar sé það fyrir misskilning, sem hann er ennþá innandyra. Sá handarlausi kemur aftur inn fyrir og lokar á eftir sér. Hann staldrar þó stutt við, því hann æðir aftur fram á gang og ætlar niður. Ég elti hann og reyni að fá hann ofan af ráðagerð sinni, því hann er farinn að velta því fyrir sér hvort hann eigi að vitna til gamals og náins vinskapar síns og frúarinnar. Ég reyni að benda honum á hversu fráleit þessi ætlan hans er og segi honum að allar. fullyrðingar hans um slíkt — sannar eða lognar — séu sist til þess fallnar að friða frúna. Til þess kemur þó aldrei að á það sé reynt, því við erum ekki fyrr í mig og áréttar bónina. Ég lofa enn og aftur að láta hann vita við fyrsta tækifæri, en frúin sýnir ekki á sér neitt fararsnið og situr sem fastast í sjónvarpsherberginu dáleidd af Hermanni Gunnarssyni, sjónvarps- stjörnu. Reyndar hlera ég það að hún ætli ekki að víkja af vaktinni næstu daga þar sem lögreglan fylg- ist svo rækilega með staðnum. ' Þegar ég er orðinn úrkula vonar um að frúin yfirgefi staðinn arka ég niður í Abracadabra, sem enginn virðist reyndar kalla sínu opinbera heiti. Nöfn eins og „Abraham“ eða „Brabra“ virðast mun vinsælli. Ég sætti mig við „Brabra“ þar sem það lætur best í eyrum, þó það gefi enga hugmynd um tómstundaiðjuna inn- andyra. Mér hafði skilist á gistiheimilinu að í „Brabra" sé alltaf stuð — jafn- vel í miðri viku. Þegar þangað er komið er ekki búið að opna niður á dansgólf, en á jarðhæð er langur bar og vígalegur og gestir hans eru líka langir og vígalegir. Þarna eru komnir um 30 gestir, en þeim fer ört fjölgandi eftir því sem líður á kvöldið. Þeir ræða lands- ins gagn og nauðsynjar að eigin áliti. Mér er sagt að meðal umræðu- efna hafi verið í hvaða sjoppu skuli brotist inn í og upp hafi komið deil- ur samkeppnisaðila um hvor hafí fengið hugmyndina að tilteknu „djobbi" fyrst. Enn virðist einhver sómatilfinning vera til meðal þjófa. Hvort af þessum fyrirætlunum verð- ur fæ ég aldrei að vita. Þegar gengið er niður í kjallara „Brabra" breytast kringumstæðurn- ar að mun. Mest áberandi húsgagn kjallarans er dansgólfíð. Ljósin blikka til skiptis á glansandi leður- buxum gervikappa staðarins og sokkabuxum menntaskólastúlkna sem fínnst staðurinn spennandi. I skúmaskotum staðarins er rætt um nýjasta „böst“ bæjarins (hand- sem við vorum í. Þarf ekki mikið til. Égtel ekki nema fjóra sígarettu- stubba á gólfinu. Öll borð eru örum sett eftir logandi sígarettur. Það sem gerir herbergið að „svítu“, er að í því eru hjónarúm og salerni, en sal- ernið reynist reyndar stíflað af ein- hveiju, sem ég kæri mig alls ekki um að vita hvað er. Þá er á skenki ónýtt sjónvarpstæki, sem myndi fyllilega sóma sér á tækniminjasafni í Sovétríkjunum. Fram á gangi glymur öðru hveiju í innanhúskallkerfi, sem virðist helst vera notað til ganghlerana af mót- tökustjóranum. Hann nýtur einnig falinna sjónvarpsmyndavéla til þess að átta sig á umferðinni þar efra. Ég merki helst að í kallkerfinu ómi fyrirskipanir um góða hegðan, en ég virðist sá eini sem heyri í því. Við förum aftur inn í herbergi til þess handarlausa. Sá dauði í rúminu virðist vera að rakna úr rotinu. Tal hans er fullkomlega samhengislaust, en af einhveijum óljósum ástæðum virðist hann býsna ánægður með sig. Því til sönnunar dregur hann upp ökuskírteini sitt og kveðst aldr- ei hafa misst það. Ég samgleðst honum vegna þess og órakað og nefbrotið andlitið ljómar af ánægju. Eftir nokkrar umræður handar- lausa mannsins og mín, sem aðallega snúast um markaðsmál — þ.e.a.s. stöðu eiturlyfjamarkaðarins — kem- ur hreingerningadrottningin inn. Sá handarlausi heimtar ryksugun á her- berginu, en fær þess í stað fúkyrði komnir fram á stigapall þegar radd- ir berast að neðan. Þar er móttöku- stjórinn kominn og er greinilega á tali við einhvern, sem á að koma þeim handarlausa út. Þeir koma upp og reynist viðmæl- andi móttökustjórans vera beljaki mikill úr vaxtarræktinni í næsta húsi. Hann er ekki einn á ferð, því fylgdarlið hans er sex manna sveit úrÆskulýðsfylkingu íslenskra vöðvabúnta. Fara nú að renna á mig tvær grímur um ágæti þess að vera á bandi hins handarlausa, því hann hefur það orð á sér að vera kjarkmik- ill og hika ekki við að neyta hnefa- réttar þó að við ofurefli sé að etja. Á daginn kemur að ótti minn við handalögmál er með öllu ástæðu- laus, því yfírbeljakinn reynist hið mesta ljúfmenni, sem forðast vill áflog í lengstu lög. Fer svo eftir nokkrar samræður að sá handarlausi fellst á að hafa sig á brott gegn því að hann fái ráðrúm til þess að taka hafurtask sitt meðferðis. Við snúum afturtil herbergis hans. Hann er síst að flýta sér og fer ekki fyrr en eftir tvo tíma, en þá höfðu menn verið sendir upp á herbergi honum til aðstoðar. Hann fer samt með friði. Áður en hann kveður tekur hann mig afsíðis og segir að fyrrverandi kona sín sé að ná í sig, lætur mig hafa símanúmer hennar og segir mér að hringja „um leið og nornin erfarin". Klukkustundu síðar hringir hann tökur), og þaðan af athyglisverðari hluti. Gestirnir skiptast mjög í hópa. Þarna eru krakkar um og undir lög- aldri, leðurtöffarar og aldurhnignir áfengissjúklingar. Alkarnir halda sig tiltölulega út af fyrir sig, nema þeg- ar þeir reyna að kynnast smápíunum nánar, sem reyndar virðist ekki ganga vel. Mér er sagt að 90% af þeim, sem þama sitja, séu fastagest- ir. Þetta kvöldið eru stúlkur í miklum meirihluta krakkanna. Ég er ekki lengi búinn að sitja þegar sú fyrsta kemur og spyr hvort ég vilji ekki endilega kaupa henni glas. Ég kveð nei við og það nær ekki lengra. Hún er þó ekki sú síðasta sem gengur bónleið til búð- ar. Ég velti því fyrir mér hvort hér sé á ferðinni vændi eða ákaft félags- lyndi. Þar sem ég sit leðurklæddur órakaður og ógæfulegur á ég bágt með að trúa að það sé kynþokki minn, sem laði stúlkurnar að. Áður en langt um líður gefur stúlka sig á tal við mig án þess að gera glasakaup að kröfu. Við spjöll- um saman talsverða stund og upp úr dúmum kemur að hún er í menntaskóla og er einfaldlega að drepa tímann ásamt nokkrum göml- um vinkonum, en þar á meðal eru nokkrar þeirra, sem sóst höfðu eftir glasi fyrr um kvöldið. Hún kynnir mig fyrir nokkrum þeirra og af tali þeirra innbyrðis sem og við aðra gesti staðarins ræð ég að þær séu fastagestir. Ofarlega á baugi er orð-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.