Morgunblaðið - 06.06.1989, Page 2
2
MÓRGUNBLAÐED ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989
„VIÐ bæði hlökkuðum til og
kviðum dálítið fyrir heimsókn
páfans," sögðu nokkur börn sem
hittu Jóhannes Pál páfa Q um
helgina i samtali við Morgun-
blaðið. Þau Anna Lilja Odds-
dóttir, Berglind Jóhannsdóttir
og Stefán og Tómas Bjamasynir
voru öll í hópi kaþólskra bama
sem fóm til Keflavíkurflugvallar
síðastliðinn laugardag til að
bjóða páfa velkominn til lands-
ins. Berglind, Tómas og Anna
Lijja gengu í fyrsta sinn til altar-
is f páfamessunni daginn eftir
ásamt hátt í sextíu öðmm böm-
um. Stefán var hins vegar messu-
þjónn í athöfhinni á Landakoti.
Bömin tala um móttökuathöfn-
ina á flugvellinum og segja að bið-
in á fjugvellinum hafi verið löng
og margir krakkanna orðnir óþolin-
móðir. „Okkur var mjög kalt á flug-
vellinum en það gleymdist þegar
páfinn kom. Hann heilsaði sumum
með handabandi og blessaði aðra,
og svo kom kardináli og gaf okkur
öllum talnabönd," segir Anna Lilja.
En hvað er félögunum minnis-
stæðast úr heimsókn hans heilag-
leika? Berglind, Anna Lilja og Tóm-
as segja að þeim þyki altarisgang-
an til páfa merkilegasti atburður
helgarinnar. Bæði af því að þau
þáðu altarissakramentið í fyrsta
sinn að loknum löngum undirbún-
ingi og enn frekar af því að sjálfur
páfmn veitti þeim það. Stefán seg-
ir að messa páfa á sunnudaginn
sé stærsti viðburðurinn fyrir hann.
„Þá var ég messuþjónn í fyrsta
Morgunblaðið/Einar Falur
Þessi börn voru meðal þeirra sem hittu páfann um helgina. Frá
vinstri: Anna Lifja Oddsdóttir, Amar, Tómas og Stefán Bjamasyn-
ir, Berglind Jóhannsdóttir. Bræðumir og Anna Lifja era afkom-
endur fyrsta kaþólikkans á hér á landi eftir siðaskipti.
Fjögur börn sem hittu páfa um helgina:
Hefði átt að vera í mánuð
skipti og eiginlega vissi ég ekkert
hvað ég átti að gera. Svo að ég
hermdi bara eftir hinum og þetta
gekk allt saman vel,“ segir hann.
Þegar bömin eru spurð hvort
þeim þyki tómlegt þegar páfinn sé
farinn, hika þau dálítið en svara
svo játandi. „Mér finnst svo skrítið
að hann hafi bara verið hér nokkra
kiukkutíma," segir Anna Lilja og
Berglind hnýtir við: „Helst hefði
ég viljað að hann væri hér heilan
mánuð."
Amar Bjamason, fjórtán ára,
aðstoðaði páfa við messuna á
Landakotshæð á sunnudag. Raun-
ar hitti Amar páfa alls fjórum sinn-
um á þeim tæpa sólarhring sem
hans heilagleiki hafði hér viðdvöl.
Amar er bróðir Stefáns og Tómas-
ar Bjamasona sem einnig hittu
páfann um helgina, en bræðumir
em afkomendur Gunnars Einars-
sonar, fyrsta kaþólska íslendings-
ins eftir siðaskipti. Að auki var
fyrsti íslendingurinn sem var bisk-
up kaþólskra hérlendis langafa-
bróðir bræðranna. Amar býr sig
nú undir fermingu um næstu helgi.
„Fyrst hitti ég páfann við komu
hans til Keflavíkurflugvallar, því
ég var í krakkahópnum sem fagn-
aði honum þar,“ segir Amar. „Svo
aðstoðaði ég við borðhald páfans
og fleiri manna á laugardagskvöld-
ið. Þá sýndist mér páfinn vera
mjög þreyttur, enda engin furða
eftir allan þeytinginn á laugardeg-
inum. Síðan hjálpaði ég til við
máltíðina sem páfinn átti eftir
messuna á sunnudeginum, rétt áð-
ur en hann fór út á flugvöll. Mér
fannst hann miklu hressilegri þá
heldur en kvöldið áður. Við krakk-
amir sem þjónuðum þama vomm
kynnt fyrir honum, hann reyndi að
hafa eftir nöfnin okkar, spurði í
hvaða skóla við væmm og gerði
að gamni sínu.“
Amar kveðst hafa verið messu-
þjónn í Kristskirkju síðan hann
gekk fyrst til aitaris fyrir sex ámm.
Siðameistari Páfagarðs hafi komið
hingað nokkra fyrir heimsókn páfa
og valið sig og þijá aðra til að þjóna
í páfamessunni. Amar segir að
auðvitað hafi þetta verið heiður
fyrir sig og ógleymanlegt að hitta
Jóhannes Pál páfa.
Páfi setti öryggis-
verði út af laginu
ÞAÐ varð uppi fótur og fit hjá öryggisvörðunum, sem gættu páfa,
er hann settist ekki upp í einkabifreið sína eftir bænastundina í
Þingvallakirkju á laugardag, heldur tók sér sæti í rútubflnum, sem
flutti biskupa og kardínála tfl messustaðarins.
„Bænastundinni í kirkjunni var Rútan hafði verið fullskipuð á
lokið og við Ebba vomm á leið upp leiðinni að kirkjunni, og þar sem
í rútuna. Þegar við ætlum að fara
að stíga inn kemur páfi skyndilega
aðvífandi og segir: „Er pláss fyrir
mig?““ sagði sr. Ólafur Skúlason,
vígslubiskup og verðandi biskup
íslands, er Morgunblaðið bað hann
að lýsa atvikinu. „Við sögðum að
auðvitað væri pláss, og hann væri
velkominn. Hann settist svo ásamt
Jolson biskupi í fremsta sætið, þar
sem við höfðum setið, og við færð-
um okkur aftur fyrir,“ sagði sr.
Ólafur. Ekki sagðist hann vita hvað
páfa hefði gengið til.
páfi og Jolson biskup höfðu nú
bætzt í förina urðu þeir sr. Heimir
Steinsson, Þingvallaprestur og
þjóðgarðsvörður, og sr. Kristján
Búason að taka sér far með
páfabílnum ásamt hringjaranum á
Þingvöllum. „Öryggislögreglan
varð klumsa. Páfinn var skyndilega
horfinn," sagði sr. Ólafur. Nokkur
bið varð á því að bílalestin legði
af stað frá Þingvallabænum vegna
þessa atviks, á meðan öryggisverð-
imir vora að koma öllu heim og
saman.
Sljórn Fiskveiðasjóðs um endurskipulagningu:
Tillögum um Olafsflörð
og Stöðvarflörð hafiiað
STJÓRN Fiskveiðasjóðs befúr
hafiiað tillögum Hlutafiársjóðs um
þátttöku sjóðsins í (járhagslegri
endurskipulagningu Hraðfrysti-
húss Ólafsfiarðar og Hraðfrysti-
húss StöðvariQarðar með því að
hann tæki við hlutdeildarbréfum
Hlutafjársjóðs. Hins vegar voru
tillögur um endurskipulagningu
Búlandstinds hf. á Djúpavogi sam-
þykktar. Halldór Blöndal alþingis-
maður segir að þetta hafi verið
ákveðið á fúndi sjóðsstjómarinnar
í gær.
„Þetta em mikil ótíðindi. Það er
í samráði við stjómvöld, sijóm At-
vinnutryggingasjóðs og stjóm Hluta-
fjársjóðs, sem unnið hefur verið að
endurskipulagningu og sameiningu
frystihúsanna í Olafsfirði, og þeir
Ólafsfirðingar vissu ekki annað en
stjómvöld hefðu í grófum dráttum
fallizt á hana. Af þeim sökum var
frysting hafin á nýjan leik í Ólafs-
firði nú eftir páska með fulltingi
Byggðastofnunar og hefur gengið
mjög vel,“ sagði Halldór. „Það er
greinilegt að það eru allar forsendur
fyrir því að hraðfrystihúsin og út-
gerðarfélagið á Ólafsfirði geti gengið
miðað við tillögur Hlutaflársjóðs."
Halldór sagðist óttast að synjun
Fiskveiðasjóðs fæli það í sér, að Ól-
afsfirðingar stæðu nú á nýjan leik á
upphafsreit. „Ég tel það um leið
augljóst að stefna ríkisstjómarinnar
hvað varðar endurskipulagningu
fískvinnslunnar er hmnin. Hlutaljár-
sjóður er úr sögunni í mínum huga
eftir þessa afgreiðslu stjómar Fisk-
veiðasjóðs," sagði Halldór,-— ------
Áskorun ASÍ og BSRB:
Fólk kaupi ekki
mjólk í þijá daga
Á FUNDUM miðstjómar ASÍ og stjórnar BSRB í gærdag var sam-
þykkt að hvetja almenning til þess að kaupa ekki mjólk og nýólkurvör-
ur næstu þijá daga þ.e. í dag, miðvikudag og fimmtudag. Þetta var
ákveðið til að knýja á um að ríkisstjórnin dragi hækkanir á land-
búnaðarvörum til baka í samræmi við gefin loforð í síðustu kjarasamn-
ingum. Mjélk og mjólkurvörur hækkuðu um mánaðamótin um 13-15%.
Þeir Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ og Ögmundur Jónasson, formað-
ur BSRB, kynntu aðgerðimar síðdeg-
is í gær og kom fram í máli þeirra,
að frekari aðgerðir væm ekki áform-
aðar að sinni. Framhaldið yrði metið
er árangur þessara aðgerða lægi
fyrir. Bæði Ásmundur og Ögmundur
vildu taka það skýrt fram að þessum
aðgerðum væri ekki beint gegn
bændum og samtökum þeirra. As-
mundur sagði að það væri sameigin-
legt hagsmunamál neytenda og
bænda að hinar miklu hækkanir sem
orðið hafa á landbúnaðarvömm
gengju til baka.
Asmundur og Ögmundur leggja
áherslu á alvömna sem býr að baki
aðgerða ASÍ og BSRB. Þeir furða
sig á því að hafa engin svör fengið
enn frá ríkisstjóminni eins og þeir
áttu von á í kjölfar útifundanna í
síðustu viku. Svör við þeim kröfum
að ríkisstjómin standi við þau loforð
sem gefín vom við síðustu Iq'ara-
samninga.
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra sagði í gær að það væri
ekki rétt að ríkisstjórnin hefði ekki
svarað kröfum ASÍ og BSRB. Hann
vitnar til fréttatilkynningar sem
ríkisstjómin sendi frá sér fyrir helg-
ina. í henni komi m.a. fram að verð-
hækkanir á þjónustu ríkisfyrirtækja
verði ekki umfram forsendur fjár-
laga, aðhaldi verði beitt við verð-
ákvarðanir einokunar- og markaðs-
ráðandi fyrirtækja og að 5-600 millj-
ónum króna verði varið til aukinna
niðurgreiðslna á landbúnaðarvöram.
Við þetta hafi verið staðið.
Steingrímur vildi að öðm leyti ekki
tjá sig um málið að svo stöddu.
Vilhjálmur Jónsson forstjóri Olíufélagsins:
SÍS nær sér ekki út úr
þessu ófremdarástandi
- ef óhróður er bormn ut um starfsmenn
í UMRÆÐUM um skýrslur forstjóra og formanns Sambandsstjómar á
aðalfúndi Sambandsins í gær sagði Gunnar Kristmundsson, Kaupfélagi
Árnesinga, að vart hefði verið búið að ráða núverandi forstjóra Sam-
bandsins, Guðjón B. Ólafsson, þegar ákveðnir menn innan Sambandsins
hefðu byrjað að rægja hann. Þetta hefði kostað Sambandið óbætanlegt
tjón. Ásakaði Gunnar bæði Erlend Einarsson, fyrrverandi forstjóra og
Val Amþórsson, fyrrverandi stjór
Kliður fór um ftmdarsal nýja Sam-
bandshússins þegar Gunnar hóf máls
á þessu, enda hafði verið reiknað
með að viðkvæm ágreiningsefni
lægju í láginni á þessum fundi. „Hver
hefði trúað því á Erlend Einarsson,
sem við vomm búnir að þjóna af trú
og dyggð í nokkra áratugi, að láta
hafa sig í það, að rægja nýjan for-
stjóra,“ spurði Gúnnar og bætti við:
„Sama má kannski segja um fyrrver-
andi formann Sambandsstjórnar. “
Gunnar sagði að þessir menn hefðu
aldrei átt að samþykkja ráðningu
forstjórans, fyrst þeim var á annað
borð svona innanbijósts.
Undir lok máls síns kvaðst Gunnar
vera þeirrar skoðunar að aðalfundur
Sambandins ætti að fara að fordæmi
Kvennalistans, sem hefði boðað að
hann myndi skipta út nú í sumar.
rformann, í þessu efiii.
„Það skulum við líka gera,“ sagði
Gunnar.
Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Olíu-
félagsins, tók undir orð Gunnars í
ræðu sinni. Hann sagði að ákveðnir
forystumenn Sambandsins mættu
ekki láta það á sig sannast að þeir
bæm út óhróður um starfsmenn
Sambandsins, hvorki um forstjóra
né aðra. Væm starfsmenn óhæfir,
bæri einfaldlega að reka þá. Tækju
menn sig ekki á í þessu efni, næði
Sambandið sér ekki út úr því ófremd-
arástandi sem nú ríkti.
Ekki náðist samband við Val Am-
þórsson eða Erlend Einarsson í gær-
kvöldi.
Sjá fréttir af aðalfúndi Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga
bls. 27.
Togari Súgfirð-
inga kyrrsettur
Sýslumaðurinn á ísafirði hef-
ur kyrrsett og innsiglað togar-
ann Elínu Þorbjamardóttur ÍS
700 frá Suðureyri við Súganda-
flörð vegna vangoldinna stað-
greiðsluskulda Hlaðsvíkur hf.,
sem gerir skipið út.
„I Fiskiðjunni Freyju og þorpinu
sem heild er togarinn uppistaðan
í hráeftnsöfluriinni," sagði Svein-
bjöm Jónsson, oddviti á Suðureyri,
í samtali við Morgunblaðið. Hann
sagði að skipið veitti 60-80 manns
atvinnu.
Pétur Kr. Hafstein, sýslumaður,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að sömu eigendur væm að mestu
leyti að Fiskiðjunni Freyju og
Hlaðsvík. Freyja hefði undanfarið
verið í athugun hjá Hlutafjársjóði
og Byggðasjóði. Freyja hefði feng-
ið greiðslustöðvun 21. maí, en
Hlaðsvík ekki. Eigendum hefði
verið gerð grein fyrir því að ganga
þyrfti frá_ skuldum Hlaðsvíkur,_ en.
ennþá hefði ekki verið greitt.
Togarinn Hafþór ÍS, sem Útgerð
Hafþórs hf. á ísafirði gerir út, var
einnig innsiglaður í gær vegna
skulda fyrirtækisins. Þær vom hins
vegar greiddar og innsiglið rofið.
Mikill verð-
munur á fiski
MIKILL verðmunur er á fiski í
verslunum á höfúðborgarsvæðinu,
samkvæmt verðkönnun Verðlags-
stofiiunar. Heil rauðspretta kost-
aði til dæmis frá 125 til 280 krón-
ur, og er því 124% munur á lægsta
og hæsta verði.
Siginn fiskur, roðlaus, kostaði á
bilinu 230 til 450 krónur og munar
þar 96%. Á eldislaxi í sneiðum var
86% verðmunur, 73% á kinnum og
72% á smálúðuflökum. Minnstur
yerðmunar var á ýsuflökum.
I