Morgunblaðið - 06.06.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989
13
Verndun hafsins
__________Bækur_______________
Sigurður Jóhannesson
Nýlega kom út á vegum Bóka-
útgáfu Orators ritið Vemdun hafs-
ins eftir Gunnar G. Schram próf-
essor. Á undanfömum árum hefur
umræða um vemdun hafsins gegn
mengun aukist mjög. Hafið gegnir
mikilvægu hlutverki fyrir líf á jörð-
inni, því auk þess að fóstra allt
sjávarlíf ræður hafið miklu um
loftslag og veðurfar á jörðinni.
Vaxandi mengun sjávar ógnar því
ekki aðeins nýtingu auðlinda hafs-
ins heldur kann mengun sjávar
að hafa áhrif á loftslag og veður-
far, þegar til lengri tíma er litið.
Þannig má t.d. ætla að vaxandi
mengun sjávar muni auka svoköll-
uð gróðurhúsaáhrif, sem nú er
mikið rætt um að gætu jafnvel á
næstu öld valdið einhverri mestu
byggðaröskun, sem orðið hefur á
jörðinni, ef ekkert verður að gert.
Fyrir okkur Islendinga skipar
vemdun hafsins sérstakan sess í
ljósi þess að nýting auðlinda hafs-
ins stendur að miklu leyti undir
velferð þjóðarinnar. Það má því
segja að bók Gunnars G. Schram,
Vemdun hafsins, íjalli um málefni
sem mönnum er nú mjög hugleik-
ið, ekki aðeins hér á landi, heldur
í vaxandi mæli meðal allra þjóða
heims.
í bókinni sem skiptist í þijá
meginkafla §allar höfundur um
réttarfarslega stöðu mála er varð-
ar vemdun hafsins, og þann vanda
sem við er að glíma, einkum er
varðar mengun sjávar.
í fyrsta kaflanum er fjallað ítar-
lega um réttarreglur hér á landi,
framkvæmd þeirra og tilgang í
einstökum atriðum, ábyrgð og
skyldur einstaklinga og fyrir-
tækja. Fjallað er um athuganir á
mengun sjávar sem gerðar hafa
verið umhverfís landið og vikið að
þeim hættum sem hafsvæðinu hér
við land stafar vegna megnunar
frá öðrum löndum og hafsvæðum
og gerð er grein fyrir þætti hinna
ýmsu opinberu aðila í framkvæmd
mengunarvama.
í öðrum kaflanum er fjallað um
hina ýmsu alþjóðasamninga sem
gerðir hafa verið til vamar gegn
mengun sjávar og tilgangi þeirra
og gildissviði gerð nánari skil. Hér
er um að ræða átta alþjóðasamn-
inga sem ísland hefur gerst aðili
að og taka til hinna ýmsu þátta
sjávarmengunar. Einnig er fjallað
um verkefni og störf Alþjóðasigl-
ingamálastofunarinnar (IMO) í
vömum gegn mengun hafsins, en
á þeim vettvangi hófust fyrst al-
þjóðlegar aðgerðir til varnar gegn
mengun sjávar, fyrir rúmlega
þrjátíu árum.
í þriðja kaflanum er að fínna
ítarlega umfjöllun um þann hluta
haréttarsáttmála Sameinuðu þjóð-
anna sem ijallar um vemdun hafs-
ins. Að margra áliti er þessi hluti
sáttmálans einn sá mikilvægasti
og víst er að gildistaka sáttmál-
ans, sem hefur ekki enn orðið
vegna þess að ekki hafa nægilega
mörg ríki staðfest hann, mun
breyta vemlega réttarfarslegri af-
stöðu ríkja til mengunarvama
sjávarins frá því sem verið hefur.
Þess má geta að sérstök nefnd
undir forystu forsætisráðherra
Norðmanna, Gro Harlem Brund-
tland (Brandtlandnefndin), sem
skipuð var af Sameinuðu þjóðun-
um til að gera tillögur um úrbætur
í umhverfismálum taldi virka
framkvæmd hafréttarsáttmálans
mikilvægasta skrefið sem ríki
heims gætu tekið í verndun hafs-
ins. Það má því gera ráð fyrir að
hafréttarsáttmálinn muni í framt-
íðinni gegna lykilhlutverki við
mótun stefnu hvers ríkis í verndun
hafsins. í bókinni gerir höfundur
ítarlega grein fyrir ákvæðum sátt-
málans um verndun hafsins og
skyldum einstakra ríkja til þess
að framfylgja ákvæðunum, svo og
rétti þeirra til íhlutunar gagnvart
löglegri starfsemi á hafínu s.s.
siglingum og skipaumferð.
í bókarlok er að finna yfirlits-
skrár og tilvísanir sem auðvelda
mjög notkun bókarinnar. Þar er
að fínna heimildaskrá og lagaskrá,
þar sem talin era upp öll lög, regl-
ur og alþjóðasáttmálar í tímaröð
sem vitnað er til í bókinni. Þar er
einnig að fínna atriðisorðaskrá
yfir öll hugtök og sérheiti, sem
fram koma í bókinni, og birtur er
í heild 12. hluti afréttarsáttmálans
um vemdun og varðveislu hafrým-
isins.
Bókin Vemdun hafsins, sem er
211 tölusettar blaðsíður að stærð,
er sérstaklega vönduð að allri gerð
og allt efni skýrt og skipulega
fram sett. Þrátt fyrir að bókin
fjalli fyrst og fremst um réttar-
farslega stöðu mála varðandi
Gunnar G. Schram
verndun hafsins, er langt frá því
að hún minni á nokkum hátt á
þurrt hefðbundið lagasafn. Með
því' áð tengja saman og útskýra
annars vegar efni laga og reglna
og hins vegar þann vanda sem
þeim er ætlað að leysa, tekst höf-
undi að gera bókina skemmtilega
aflestrar og um leið fræðandi um
stöðu ýmissa mála er snerta meng-
un hafsins. Umfjöllun um ýmsa
þætti sjávarmengunar undirstrik-
ar vel að virkar vamir gegn meng-
un hafsins era alþjóðlegar í eðli
sínu og að ekki mun takast að
uppræta mengun sjávar öðru vísi
en með skilningi og sameiginlegu
átaki allra þjóða heims. Ef eitt-
hvað ætti að gagnrýna í efnistök-
um höfundar má segja að með
hliðsjón af því hvað umflöllun bók-
arinnar er yfírgripsmikil, þá hefði
mátt koma nokkuð inn á þá teg-
und sjávarmengunar, sem var
reyndar til skamms tíma ekki talin
ógna lífríki sjávarins, en hefur nú
sl. 2 ár átt stóran þátt í stað-
bundinni röskun í lífkerfi hafsins
með svonefndum þörungablóma,
en það er vaxandi losun næringar-
salta, köfnunarefnis og fosfórs í
sjó við strendur ýmissa þéttbýlla
nágrannalanda okkar. Stóraukið
fískeldi hér við land kallar einnig
á aukna varúð vegna hættu af
þessum sökum á strandsvæðum.
Tímæmlalaust verður að teija
ritið Vemdun hafsins meðal merk-
ustu rita sem gefin hafa verið út
um umhverfisrétt hér á landi, þó
þar sé ekki fjallað um nema lítið
svið þess málaflokks sem um-
hverfísmál eru í víðasta skilningi.
Auk þess að vera fróðleg aflestrar
hentar bókin afar vel til uppsláttar
hveijum þeim sem þarf að kynna
sér réttarfarslega stöðu einstakra
mála hvort sem það era áhuga-
menn um vemdun sjávarins, opin-
berir aðilar, eigendur skipa og
skipstjórar, eða einstaklingar og
fyrirtæki sem reka starfsemi, sem
háð er að einhveiju leyti takmörk-
unum vegna réttarreglna um
vemdun hafsins.
Höfundur er siglingamálastjóri.