Morgunblaðið - 06.06.1989, Page 26
26
Að gefnu tilefiii
- önnur útgáfa
deilurits Þorgeirs
Þorgeirssonar
DEILURIT Þorgeirs Þorgeirs-
sonar, rithöfundar, Að gefnu til-
efni, hefiir verið gefíð út í annað
sinn. Ritið Qallar um íslenzkt
réttarfar og er tilefni þess máls-
höfðun ríkissaksóknara á hendur
Þorgeiri fyrir skrif hans um lög-
regluna.
Um mál þetta segir svo í bókar-
kynningu: „Það mál er smávægilegt
í margra augum og mundi vart
þykja umtalsvert ef Þorgeir hefði
ekki kosið að láta reyna á vinnu-
brögð réttvísinnar sem virðist hafa
kolfallið á prófinu, því við blasir
hrollvelq'a sem höfundinum þó
auðnast að segja frá með undra-
verðri gamansemi og skilningi sem
hverjum manni er hollt að kynnast."
Fyrri útgáfa deiluritsins kom út
fyrir 8 mánuðum og er hún upp-
seld. Hin nýja útgáfa er 233 blað-
síður að stærð og fæst bæði í bóka-
búðum og hjá forlaginu Leshúsi.
--------------------------- Hátíðargestur virðir fyrir sér muni á listmunasýningunni.
Morgunblaðið/Þorkell
Sjálfsbjörg þrjátíu ára:
Þrjátíu manns heiðraðir
Sjálfsbjörg, Landssamband fatlaðra hélt hátíðlegt þrjátíu ára af-
mæli sitt um helgina og var margt um dýrðir. Homaflokkur Kópa-
vogs blés í upphafi, en síðan fluttu Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra og Davíð Oddsson borgarstjóri ávörp að loknu setning-
arávarpi Jóhanns P. Sveinssonar.
Eftir ávörpin sungu nemar úr
Söngskóla Reykjavíkur nokkur lög
við undirleik Hólmfríðar Sigurðar-
dóttur, en síðan fluttu innlendir og
erlendir gestir ávörp og kveðjur.
Því næst voru heiðursmerki í tilefni
dagsins afhent og voru um 30
manns heiðraðir með þeim hætti,
m. a. Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra, Davíð Oddsson
borgarstjóri, Svavar Gestsson
menntamálaráðherra, Alexander
Stefánsson alþingismaður,. Ólafur
G. Einarsson alþingismaður, Þór-
hildur Þorleifsdóttir alþingismaður
svo og fleiri embættismenn og vel-
unnarar félagsins.
Að loknum dagskráratriðum var
opnuð listmunasýning þar sem verk
þriggja félaga í Sjálfsbjörg voru til
sýnis á skrifstofugangi félagsins.
Verkin eru málverk eftir Sigþrúði
Pálsdóttur, Sissú, silfurmunir eftir
Sigmar Ó Maríusson gullsmið og
módel eftir Sigurð Þórólfsson.
Eru
þeir að
fá 'ann
?
Vaðandi á urriðasvæðunum
„Það hefur verið vaðandi veiði
um alla á og er hún þó skoluð
og köld og'umhverfið grátt og
fremur vetrarlegt," sagði Hólm-
fríður Jónsdóttir á Arnarvatni í
Mývatnssveit í samtali við Morg-
unblaðið, en stangaveiði hófst á
urriðasvæðunum í Mývatnssveit
og Laxárdal þann 1. júní. Hólm-
fríður vildi ekki nefna aflatölur
vegna þess að ýmsir sem hefðu
verið að veiðum síðustu daga
slepptu öllum sínum fiski og
væru það allt að 30 fiskar á
dag. Hins vegar mætti fljóta
með, að margir hafa veitt kvó-
tann, sem eru tíu fiskar 35 senti-
metrar eða stærri. Hólmfríður
sagði sárafáa undir 40 senti-
metrum hafa verið skráða og
allur þorri veiðinna væri með
ólíkindum vænn fiskur, 3-5
punda og feitari heldur en sést
hefði í mörg ár.
Veiðin misskipt
Veiðin hefur verið nokkuð
misskipt, einna lökust í Geld-
ingaey og Geirastöðum þar sem
vatnið er tærara, betri þar sem
gruggugt vatn úr Kráká nær
að lita Laxá hvemig sem á því
stendur. Stærstu fiskamir em
þó nokkrir 5 pundarar og hafa
flugumar Nobbler, Hólmfríður,
Black Ghost og Þingeyingur
verið drýgstar.
Að sögn Sigurbjargar Hauks-
dóttur ráðskonu í veiðihúsinu í
Laxárdal, byijaði veiðin einnig
afar vel á neðra svæði urriða-
svæðisins. „Það veiddust 35
fiskar fýrsta daginn og síðan
verið nokkur veiði dag hvem,
minnst þó þegar kólnað hefur
eins og í gær,“ sagði Sigurbjörg.
Að sögn hennar er þorri aflans
2-4 punda silungur og þeir
stærstu nokkrir 5 punda fiskar.
Hún nefndi sömu flugurnar, en
bætti við flugunum Rektor og
Dóná svo blá.
Laxinn enn tregur
Laxveiðin er enn treg, enda
ekkert lát á vatnavöxtum og
vatnskulda. Norðurá var t.d.
aðeins þriggja gráðu heit í gær
og Þverá valt áfram kolmórauð
og jökulköld. í henni hefur enn
ekkert veiðst, en tveir komið á
land úr Norðurá, síðast 14 punda
hængur á flugu úr Kaupa-
mannapolli. Þar hafa menn séð
reyting af laxi, en vitað er að
nokkur lax er genginn úr sjó,
hann fer hins vegar lúshægt í
svo miklum vatnskulda og tekur
varla agn. Reytingsveiði er í
netin, vænn lax.
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Þyrla Landhelgisgæshinnar kemur með stúlkuna sem slasaðist í
Borgarfirði á Borgarspítalann.
Borgarfjörður:
Stúlka slasað-
ist í bílveltu
UNG kona hlaut alvarlega áverka, meðal annars höfuðkupubrot, er
fólksbíll sem hún var farþegi í valt í skammt norðan við Munaðarnes
í Stafholtstungum um klukkan sjö á laugardagskvöld. Hún var flutt
til Reykjavíkur með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Fimm voru í bílnum.
Aðrir sluppu lítið meiddir.
Fólkið var á leið frá Reykjavíkur
til Akureyrar. Ökumaðurinn missti
stjórn á bflnum, Audi, við bæinn
Grafarkot. Bíllinn fór tvær veltur .
Stúlkan, sem slasasðist, sat í aftur-
sæti og kastaðist út úr bflnum.
Ferðafélagar hennar hlutu minni-
háttar áverka en voru fluttir til
aðhlynningar á sjúkrahúsið á Akra-
nesi.
Annar bíll valt í Borgarfirði á
laugardagskvöld. Það átti sér stað
við bæinn Refsstað í Hálsasvseit.
Tveir menn sem i bílnum voru
sluppu ómeiddir en bfllinn er talinn
ónýtur. Ökumaðurinn er grunaður
um ölvun.
Mjög bjartsýn á framtíð
Kennarasambandsins
- segir Svanhildur Kaaber, sem var endurkjörin formaður
„Ég er mjög bjartsýn á framtíð Kennarasambandsins og ég vona
sannarlega að nýkjörin stjóm eigi eftir að reynast samhent og dugleg
og að það sem við höfurn samþykkt á þessu þingi, meðal annars hvað
snertir virkt starf aðildarfélaga okkar um allt land, eigi eftir að ganga
eftir,“ sagði Svanhildur Kaaber í samtali við Morgunblaðið, en hún var
endurkjörin formaður KÍ til næstu tveggja ára á fimmta þingi sam-
bandsins sem lauk á laugardag.
Lögum sambandsins um stjómar-
kjör var breytt á þessu þingi og í
stað ellefu manna stjómar og sjö
manna varastjómar, var nú kjörin
ein fimmtán manna aðalstjóm. Auk
Svanhildar vom kjörin í stjóm Eirík-
ur Jónsson, varaformaður, en Loftur
Magnússon, sem gengdi embætti
varaformanns áður gaf ekki kost á
endurkjöri, Rut Guðmundsdóttir af
Suðurlandi, Rúnar Sigþórsson af
Austurlandi, Bima Siguqónsdóttir
úrKópavogi, Sigríður Jóhannesdóttir
af Reykjanesi, Ragnhildur Skjaldar-
dóttir af Norðurlandi eystra, Sigurð-
ur Ingi Andrésson frá Sambandi sér-
skóla, Ingibergur Elíasson frá Sam-
bandi sérskóla, Sigrún Ágústsdóttir
úr Reykjavík, Arthúr Morthens úr
Reykjavík, Sigríður Sveinsdóttir frá
Félagi tónlistarskólakennara, Þor-
valdur Pálmason af Vesturlandi,
Þóra Elfa Bjömsson, frá Sambandi
sérskóla og Ragna Ólafsdóttir úr
Reykjavík, en fjögur þau síðast-
nefndu koma ný inn í stjómina.
Svanhildur sagði að þingið hefði
samþykkt viðamiklar breytingar á
lögum sambandsins, auk þess sem
gengið hefði verið frá framtíðar-
stefnu KÍ í launa- og kjaramálum
og skólastefnan einnig endurskoðuð.
„Um bæði þessi mál fóru fram mikl-
ar umræður, en það vom litlar breyt-
ingar gerðar á þeim drögum sem
lágu fyrir þinginu, til dæmis hvað
launastefnuna varðar. Mér fínnst það
sýna vel að undirbúningurinn var
góður. Þetta mál er unnið með mark-
vissri umræðu í skólum um allt land.
Þama er því launastefna kennaranna
sjálfra á ferðinni, en ekki hugmyndir
lítils hóps sem mótaði stefnuna,"
sagði Svanhildur.
Hún sagði að kjaramálastefnan
lyti annars vegar að kjaramálum al-
mennt í þjóðfélaginu og hins vegar
að kjaramálum kennara sérstaklega.
í almenna hlutanum væri meðal ann-
ars fjallað um launajafnrétti milli
karla og kvenna, að hagsmuna þeirra
sem minna mættu sín væri gætt sér-
• •
Olvaður ók a staur
TVEIR ungir menn hlutu minni-
hattar meiðsli er bfll sem þeir
voru farþegar í hafhaði á þ'ósa-
staur við Amarbakka aðfaranótt
sunnudags.
Fjórir menn voru í bílnum og er
ökumaðurinn grunaður um ölvun.
Þá ók maður sem talinn er hafa
verið ölvaður á þijá bíla í Mavahlíð
aðfaranótt sunnudagsins. Hann
bakkaði út úr stæði og ók þá á tvo
bíla, síðan hugðist hann halda
áfram en hafnaði á hinum þriðja.
Þá nam hann staðar og beið á
staðnum þegar lögreglan kom að.
staklega, að öll böm ættu jafnan
rétt á dagvistun, kaupmáttur launa
yrði tryggður, dagvinnulaun nægðu
til framfærslu og að launagreiðslur
undir framfærslukostnaði einstakl-
ings verði óheimilar. Þá er fjallað
um vinnutíma, skattamál, trygginga-
mál, veikindarétt, fæðingarorlof og
fleira. Gerð er krafa um að ríkissjóð-
ur standi undir öllum kostnaði við
grunnskóla og framhaldsskóla og að
framlag ríkisins til skólamála verði
aukið. „Þetta teljum við alveg tvímæ-
alalaust eitt af verlferðarmálunum í
þjóðfélaginu," sagði Svanhildur.
í sambandi við kjör kennara sér-
staklega er lögð mikil áhersla á mat
kennarastarfsins og laun í samræmi
við það. Kennari þurfi ekki bara að
sinna kennslu, heldur sé hann að
auki bæði uppalandi og verkstjóri.
Þá eru einnig nefnd atriði í sam-
bandi við starfsskilyrði í skólunum
og stjómun þeirra.
„Við viljum vinna að launajöfnuði
innan kennarastéttarinnar og við
teljum að grundvallarforsenda launa-
jöfnunar sé hækkun dagvinhulauna
og fækkun launaflokka. Með slíku
yrði dregið mjög mikið úr yfirvinnu
og þar með auknir möguleikamir á
að ná fram jöfnuði. Hins vegar leggj-
um við líka áherslu á að framhalds-
og endurmenntun sé metin til launa,
sem og reynsla í starfi. Þá er mikil
þörf á að minnka kennsluskylduna
og við leggjum mikla áherslu á að
nauðsynlegt sé að koma til móts við
gífurlega þörf á viðhaldi kennara-
menntunar, sem sé endurmenntun,
framhaldsmenntun og símenntun.
Einmitt í starfi eins og kennslu er
óhemju mikilvægt að kennarar hafi
tækifæri til þess að auka við og þróa
sína starfsmenntun," sagði Svan-
hildur Kaaber að lokum.