Morgunblaðið - 06.06.1989, Síða 28
28
MORGUNBLAÍ>IÐ ÞRIBJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989
FJÖLDAMORÐIN í PEKING:
Frásagnir sjónarvotta:
Frömdu grimmdar-
verkin hlæjandi og
kveiktu í líkunum
Peking. Reuter.
Kínversku hermennimir, sem sendir voru inn á Torg hins himneska
friðar á aðfaranótt sunnudags að kínverskum tíma, frömdu grimmdar-
verk sín hlæjandi að sögn sjónarvotta, sem fréttamaður Reuters-frétta-
stofunnar ræddi við í gær. Þeim sem urðu vitni að fjöldamorðunurn
ber saman um að árasin hafi verið þaulskipulögð en talsmenn náms-
manna segja að fólkinu á Torgi hins himneska friðar hafi ekki verið
gefið tækifæri til að hverfa þaðan eftir að yfirvöld höfðu haft í hótun-
um við námsmennina. Þúsundir manna voru á torginu er Qöldamorðin
voru framin.
Reuter
Lik kinversks námsmanns er borið af Torgi hins himneska friðar eftir að hermenn höfðu ráðist inn
á torgið. Margir námsmenn létust þegar skriðdrekar óku á fullri ferð yfir tjöld á torginu, sem
þeir voru sofandi í.
„Fyrst skutu hermennimir upp í
loftið en síðan tóku þeir að miða á
höfuð manna,“ sagði ónefndur náms-
maður í samtali við fréttamann Reut-
ers-fréttastofunnar í gær. „Þeir voru
hlæjandi og það var engu líkara en
þeir tækju þetta ekki alvarlega,"
bætti hann við. Annar heimildamað-
ur fréttastofunnar lýsti því er skrið-
Torg hins himneska Mð-
ar blóði drifinn vígvöllur
Óstaðfestar fréttir herma að allt að 7.000 manns hafí verið myrt
Peking’. The Daily Telegraph, Reuter.
SKRIÐDREKAR óku um götur í miðborg Peking snemma í gærdag að
kínverskum tima. Skothvellir kváðu við og eldar loguðu í strætisvögnum
og farartálmum sem námsmenn og stuðningsmenn þeirra höfðu reist
til að hindra árás hermanna sem talin var yfirvofandi. Slagorð höfðu
verið máluð á strætisvagnanna áður en eldur var lagður að þeim og á
einum þeirra sagði „Hefnum blóðbaðsins 4. júní“. Tæpum sólarhring
áður höfðu kínverskir hermenn gráir fyrir jámum og studdir skriðdrek-
um látið til skarar skríða gegn umbótasinnum, sem haldið hafa til á
Torgi hins himneska friðar í miðborg Peking undanfamar vikur og
krafist lýðræðis og upprætingu spillingar í landinu. Án sýnilegs tilefnis
hófii hermenn vopnaðir hríðskotabyssum skothríð á fólkið á torginu.
Blóðbaðið var óskaplegt en fréttir
herma að 3.000 til 7.000 manns hafi
verið á torginu er íjöldamorðin voru
framin. Stjómvöld hafa enn ekki
skýrt frá því hversu margir féllu, en
erlendir sendimenn telja að a.m.k.
eitt þúsund manns hafi verið myrtir
á Torgi hins himneska friðar og í
nærliggjandi götum. Aðrar heimildir
herma að talan sé mun hærri. Frétta-
ritari Reníers-fréttastofunnar í Pek-
ing kvaðst í gær hafa heyrt óstað-
festar fregnir þess efnis að 7.000
manns hefðu verið myrtir á laugar-
dag. Dagblað hersins í Kína lýsti
árásinni sem miklum sigri yfir „gagn-
byltingarmönnum".
Fjöldamorðin voru framin á að-
faranótt sunnudags að kínverskum
tíma en fyrstu fréttir af atburðum
þessum bárust til Vesturlanda um
klukkan 16 að íslenskum tíma á laug-
ardag. Að sögn sjónarvotta hófst árás
hersins klukkan 4 á aðfaranótt
sunnudags að kínverskum tíma.
Skyndilega Varð miðborg Peking
ljóslaus. Námsmennirnir á torginu
ákváðu að fara hvergi og hófu að
syngja „Intemationalinn", baráttu-
söng kommúnismans. Skömmu síðar
þustu hermenn vopnaðir hríðskota-
byssum út úr Alþýðuhöllinni miklu
við Torg hins himneska friðar. Um
leið birtust brynvarðir liðsflutninga-
bflar á torginu. Segja sjónarvottar
að ijöldi manns hafi látist og særst
er vagnamir óku yfír tjöld náms-
manna sem þeir höfðu komið þar upp.
í fréttaskeytum Reuters-frétta-
stofunnar segir að talið sé að 6.000
til 7.000 manns hafi verið á torginu
er herliðið hóf skothríð. Sjónarvottar
segja að hermennimir hafi skotið á
fólkið, sem var óvopnað, og lítt hirt
um hvar byssukúlumar lentu. Fólkið
lagði á flótta í átt að götum í ná-
grenninu. Hermennimir tóku einnig
á rás og hleyptu af vopnum sínum á
hlaupunum. Fólkið hrópaði: „glæpa-
menn, glæpamenn". Skipulögð
Qöldamorð hafa ekki verið framin í
Peking með þessum hætti í þau 40
ár sem kommúnistar hafa ráðið
ríkjum í Kína.
Fótum flör að launa
Um klukkan 5.30 að kínverskum
tíma birtust sex skriðdrekar og óku
þeir yfir farartálmana í átt að torg-
inu. Að sögn Grahams Hutchings,
fréttaritara breska dagblaðsins The
Daily Telegraph í Peking, lögðu þús-
undir manna á flótta er biyndrekam-
ir birtust. Sjálfur átti hann fótum
fjör að launa. Fólkið hljóp inn í hliðar-
götur en skriðdrekamir fylgdu á eft-
ir. Ærandi vélbyssuskothríð kvað við
og eldglæringamar úr byssuhlaupun-
um sáust greinilega í myrkrinu.
Skriðdrekamir óku í röð að torginu
og komu inn á það úr austri en áður
höfðu hermenn haldið inn á torgið
úr norðri og vestri. Fréttaritari The
Daily Telegraph telur að þá hafi um
3.000 umbótasinnar verið á torginu.
Bryndrekamir óku yfir allt það sem
fyrir þeim varð og herma sjónarvott-
ar að flöldi manns hafi orðið undir
þeim er þeir óku niður Changan-
breiðgötuna framhjá Peking-hóteli og
inn á torgið. Um 15 brynvarðir liðs-
flutningavagnar fýlgdu skriðdrekun-
um. Einn skriðdrekinn ók á fullri ferð
að eftirlíkingu að bandarísku Frelsis-
styttunni, sem námsmenn höfðu kom-
ið upp á torginu. Styttan, sem gerð
var af listnemum í Peking-háskóla
og kölluð „Lýðræðisstyttan" féll til
jarðar og tættist í sundur undir jám-
beltum skriðdrekans.
Hollir forsetanum
Talið er að herliðið sem framdi
fjöldamorðin heyri undir 27. herinn
en hann er að jafnaði staðsettur í
Hubei-héraði í miðhluta landsins.
Herinn er sagður vel þjálfaður og
agaður en hann er talinn hollur Yang
Shangkun, forseta Kína. Vitað er að
Yang sem er 82 ára að aldri hvatti
til þess að mótmæli námsmanna yrðu
barin niður af fullri hörku og virðist
svo sem hann hafi nú náð að treysta
stöðu sína innan valdakerfisins.
Hugsanlegt er talið að hann komi til
með að beijast um völdin við Deng
Xiaoping, hinn eiginlega leiðtoga
kínverska kommúnistaflokksins.
drekar birtust á torginu. „Skriðdrek-
amir óku yfir námsmenn sem voru
sofandi í tjöldum sínum á torginu"
sagði hann en bætti við að flestir
þeirra sem létust hefðu verið verka-
menn og óbreyttir borgarar. Talið
er að um 10.000 hermenn hafi tekið
þátt í árásinni.
Stjómvöld segja að ótilgreindur
fjöldi manna hafi fallið er herliðið
hélt að Torgi hins himneska friðar
en í tilkynningum yfirvalda hefur
verið fullyrt að ekki hafi komið til
blóðsúthellinga á torginu sjálfu.
Námsmenn hafa aðra sögu að segja.
Að sögn þeirra vömðu stjómvöld
umbótasinna á torginu tvívegis við
því að vera þar áfram. Talsmenn
námsmanna segja að strax eftir að
seinni aðvörunin var birt hafi her-
menn gráir fyrir jámum birst á torg-
inu og hafíð skothríð. Þúsundum
manna hafi þannig ekki verið gefið
tækifæri til að yfirgefa torgið áður
en herliðið lét til skarar skríða. Heim-
iidarmaður Reuters-fréttastofunnar
telur að um 4.000 til 5.000 manns
hafi yfirgefíð torgið en segir að ajls
hafi um 7.000 manns verið þar. „Ég
veit ekki hversu margir féllu. Við
gerðum ráð fyrir því að táragasi yrði
beitt og blóði yrði úthellt. En við
gátum ekki ímyndað okkur að eitt-
hvað í líkingu við þetta myndi ger-
ast. Enginn gat búist við því her-
menn myndu myrða landa sína.“
„Hermenn skutu á námsmenn sem
voru við jaðar torgsins og kveiktu í
líkunum," sagði 21 árs námsmaður.
„Við ætluðum að fjarlægja líkin en
þeir sem það reyndu voru barðir til
dauða."
„Fólkið söng en þá kváðu byssu-
hvellimir við,“ sagði vestrænn frétta-
maður sem var á Götu hins eilífa
friðar sem liggur að torginu. „Við
köstuðum okkur til jarðar og byssuk-
úlur hvinu yfir höfðum okkar. Fólk
féll til jarðar og aðrir létu lífið í troðn-
ingunum."
Hugrekki og eining
svar Pekingbúa við
íjöldamorðuni hersins
Peking, Reuter.
BORGARAR Peking beijast nú gegn skríðdrekum og vélbyssum
með miðaldavopnum og helsta vopnið er ótrúlegt hugrekki. Margir
hætta ekki einungis lífi sínu, heldur virðast þeir beinlínis bjóða
kúlunum byrginn með líkömum sínum, likt og um fómarathöfn
væri að ræða.
Þegar Alþýðuherinn ruddist inn
í miðborg Peking í dögun á sunnu-
dag leit allt út fyrir að fjöldamorð
hersins myndu kæfa allt andóf.
Þess í stað þyrptist almenningur —
verkamenn, langömmur og kær-
ustupör — út á götur og gerðu
hróp að hermönnunum.
A Torgi hins himneska friðar
höfðu félagar í “Dauðastorkunar-
herdeildinni" — ungir einhleypir
verkamenn, sem hafa heitið því að
veija stúdenta allt tii dauðans —
vopnast stuttum kylfum og steinum
kvöldið áður en herinn breytti torg-
inu í blóði drifinn vígvöll.
Sjónarvottar sáu strætisvagn
fullan af mótmælendum þeysa að
torginu eftir að hermennimir höfðu
hafið fjöldamorðin og sögðust þeir
ætla að bjarga hinum særðu. Vagn-
inum var ekið í gegn um véibyssuk-
úlnahríð og staðnæmdist ekki fyrr
en hann var gersamlega sundur-
skotinn.
Nú, tveimur dögum síðar, heldur
manníjöldinn áfram að koma. Vest-
rænir sjónarvottar hafa lýst því
hvemig hundruð hjólreiðamanna
hafa þokast nær herflokkum og
skriðdrekum á torginu, hrópandi
„Villidýr, villidýri", þrátt fyrir að á
Reuter
Ungur Pekingbúi grýtir lögreglubifreið, sem hefur verið velt á
hliðina.
þá væri skotið hvað eftir annað og
sífellt fleiri féllu í valinn.
Seinna, þegar hermenn hófu
sókn á ný til þess að ryðja Breið-
götu hins eilífa friðar, gékk maður
fram fyrir skjöldu og stiilti sér upp
með útrétta handleggi í vegi
fremsta skriðdrekans. Þegar skrið-
drekinn var í þann veginn að aka
yfir hann, stökk hann upp á fall-