Morgunblaðið - 06.06.1989, Page 38
íö
33
9áðí ÍVlOt .& JIUOAU JlGUW (lltlAjUviuOáÖM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989
Hús Bemörðu Alba
á flalir LA í haust
Titilhlutverkið leikur Sigríður Hagalín
ÆFINGAR á Húsi Bernörðu Alba eftir Garcia Lorca, fyrsta verkefiii
Leikfélags Akureyrar á næsta leikári, heflast 1. september næstkom-
andi, en frumsýning er áætluð um miðjan október. Titilhlutverkið í
sýningunni, Bernörðu Alba leikur Sigríður Hagalín, leikari hjá Leik-
félagi Reykjavíkur, en hún verður gestaleikari hjá LA.
Hús Bemörðu Alba er tvímæla- leikmynd og búninga í rómaðri sýn-
laust eitt magnaðsta leikverk sem
samið hefur verið á þessari öld og
Garcia Lorca eitt af öndvegisskáld-
um heimsbókmenntanna, segir í
frétt frá LA. Allar persónur verks-
ins eru konur og fjallar leikurinn
um hömlulausar tilfinningar, ástir,
afbrýði, ástríður og vald. „Þótt nátt-
úran sé lamin með Iurk leitar hún
út um síðir,“ segir í verkinu.
Einar Bragi Sigurðsson skáld
þýddi verkið á íslensku og var það
fýrst sýnt hérlendis af Leikfélagi
Reykjavíkur árið 1966. Leiksjóri
sýningarinnar hjá LA verður Þór-
unn Sigurðardóttir leikstjóri og leik-
skáld, en hún hefur áður leikstýrt
flórum verkefnum hjá Leikfélagi
Akureyrar.
Leikmynd og búninga gerir
dönsk kona, Charlotte Klason, en
hún er reyndur og mikils metinn
listamaður f Danmörku, hefur m.a.
unnið mikið hjá Konunglega danska
þjóðleikhúsinu og þar gerði hún t.d.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Stúdentar dimmitera
„Aukakílóin, aukakílóin út um allt á mér,“ sungu verðandi stúdent-
ar við Menntaskólann á Akureyri fyrir Bryndísi Þorvaldsdóttur
leikfimikennara er þeir kvöddu hana með virktum síðasta föstu-
dag, en þá dimmiteruðu stúdentar. Fóru þeir að venju um bæinn
þveran og endilangan á þar til gerðum kerrum dregnum af trakt-
orum og kvöddu kennara sína með söng og blómum.
ingu á Húsi Bemörðu Alba síðasta
vetur.
Tónlistin í sýningunni verður
flutt af Pétri Jónassyni gítarleikara
og mun hann leika á gítarinn á
sýningum. Pétur mun m.a. leika
tónlist eftir spánska leikskáldið De
Falla, sem er guðfaðir Garcia Lorca.
Lýsingu annast Ingvar Bjömsson
ljósameistari LA.
Titilhlutverkið, Bernörðu Alba
leikur Sigríður Hagalín og er hún
gestaleikari í sýningunni, en hún
er fastráðinn leikari hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Griðkonuna Ponziu
leikur Sunna Borg og Mariu Josefu
móður Bemörðu leikur Sigurveig
Jónsdóttir. Dætur Bemörðu em
fimm og eru það allt viðamikil hlut-
verk, en þær leika Ingunn Jens-
dóttir, Guðbjörg Thoroddssen, Guð-
laug María Bjamadóttir, María Sig-
urðardóttir og Elva Ósk Ólafsdótt-
ir, nýútskrifaður leikari frá Leiklist-
arskóla íslands.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Bjórir sjómenn voru heiðraðir á sjómannadaginn, f.v.: Guðjón Jónsson, Baldvin Þorsteinsson, Vilhelm
Þorsteinsson og Benedikt Sæmundsson.
Sjómannadagurinn á Akureyri 50 ára:
Mikið um dýrðir
á afmælisdaginn
S J ÓMANN AD AGURINN á Akur-
eyri var haldinn í fimmtugasta
sinn nú á sunnudaginn og var
mikið um dýrðir alla helgina
vegna afinælisins. Ahafiiir skipa
reyndu með sér í knattspyrnu
og í kappróðri á laugardag. Á
sunnudag var afhjúpaður minnis-
varði við Glerárkirkju um týnda
og drukknaða sjómenn, Óskar
Vigfússon formaður Sjómanna-
sambands íslands flutti ávarp og
lagði blómsveig að minnisvarð-
anuin. Sjómenn aðstoðuðu við
sjómannamessur og eftir hádegið
var dagskrá við Sundlaug Akur-
eyrar þar sem flutt voru ávörp,
sjómenn heiðraðir og sjómenn
kepptu um Atlastöngina. Þá var
bæjarbúum boðið í siglingu í til-
efiii dagsins.
Alls kepptu 22 sveitir í kappróðr-
inum, en það var C-sveit Akureyrar-
innar sem hregpti verðlaunin f
flokki sjómanna. í flokki landmanna
Oddí hf. kaupir rekstur
Kæli- og firystivéla hf.
Erum að útvíkka þjónustunet okkar, segir forstjóri Odda
VÉLSMIÐJAN Oddi hf. á Akureyri yfirtók um síðustu mánaðamót
rekstur Kæli og frystivéla hf. í Kópavogi. Torfi Guðlaugsson for-
stjóri Odda segir að með samruna fyrirtælqanna náist meiri hag-
kvæmni í rekstri og betri þjónusta fyrir viðskiptavini fyrirtækjanna.
Eftir sameininguna mun fyrirtækið sjá um þjónustu fyrir marga
þekkta framleiðendur frystivéla, m.a. Sabroe, Bock og Henry Soby.
Fyrirtækið Kæli og frystivélar þjónustunet sitt og koma sér upp
hf. hefur undanfarin 30 ár haft
aðsetur í Kópavogi og þjónað fyrir-
tækjum með stór og smá kæli- og
frystikerfi. Starfsvettvangur fyrir-
tækisins hefur aðallega verið Suð-
vestur-, Vestur- og Norðvestur-
landið. Kælideild Vélsmiðjunnar
Odda hf. var stofnuð fyrir um 20
árum og hefur að mestu starfað á
Norðurlandi, Vestljörðum og á
Austfjörðum. Torfi segir að með
kaupunum sé Oddi hf. að útvíkka
aðstöðu til að þjóna Suður- og Vest-
urlandi. Hann segir bæði fyrirtækin
hafa sérstöðu hvað varðar reynslu
í smíði stærri frystiklefa.
Starfsemi Kæli og fiystivéla
verður áfram í Kópavogi og undir
sama nafni. Torfi segir að Oddi hf.
hafí lengi ætlað sér að hafa mann
á sínum snærum á suðvesturhorn-
inu, en umræður um kaup á Kæli
og frystivélum hafi komið upp fyrir
um tveimur vikum og það hafi ver-
ið ágætis leið til að byggja upp
markað á því svæði. Kælideild Odda
hafi verið vaxtarbroddurinn í starf-
seminni undanfarið og því hafí ver-
ið leitað stærri markaða.
Þrír menn munu starfa við fyrir-
tækið í Kópavogi og að jafnaði
vinna fimm til sex við Kælideild
Odda. Um 50 manns vinna hjá fyrir-
tækinu. Torfi segir að með samein-
ingunni verði fyrirtækið með þeim
stærri á þessum markaði á lands-
vísu. Hann segir fyrirtækið munu
kappkosta að tileinka sér nýjustu
tækni, eiga góðan varahlutalager
og hafa á að skipa sérhæfðum
starfsmönnum sem reiðubúnir væru
að fara hvert á land sem er þegar
þörf krefur.___________
Tekið á í kappróðri.
vann sveit Fiskhúss ÚA og í
kvennaflokki voru það konur úr sal
ÚA sem fóru með sigur af hólmi.
Sveit Hrímbaks sigraði er sjómenn
reyndu með sér í knattspymu.
Fróði Oddsson skipveiji á Harð-
bak sigraði í björgunarsundi, en
Almar Bjömsson skipveiji á Snæ-
felli sigraði í stakkasundi. Almar
hlaut einnig Atlastöngina að þessu
sinni, en hann fékk flest stig er
lögð em til grundvallar við veitingu
hennar, þ.e. björgunarsund, stakka-
sund, róður, reiptog og knatt-
spyma.
Fjórir sjómenn voru heiðraðir,
bræðurnir Vilhelm og Baldvin Þor-
steinssynir, Guðjón Jónsson og
Benidikt Sæmundsson. Benidikt er
fæddur á Stokkseyri árið 1907 og
fór fyrst á sjó um fermingu. Hann
flutti til Akureyrar 1947 og var
einn af þeim sem sótti Svalbak
nýsmíðaðan árið 1949 og var á
honum næstu þijú árin. Þá var
hann á flóabátnum Drangi um sex
ára skeið, en frá 1958 hefur hann
unnið hjá ÚA. Guðjón Jónsson er
fæddur í Reykjavík árið 1929, en
hann byijaði á sjó árið 1946. Hann
flutti til Akureyrar tíu ámm síðar
og réð sig á Kaldbak og var þar
um nokkurt árabil en fór síðan á
Súluna. Um áramót 1966-67 vann
Guðjón á skrifstofu ÚA, en hafði
nokkru áður verið kjörinn í trúnað-
armannaráð Sjómannafélags Eyja-
fjarðar. Hann varð varaformaður
félagsins 1974 og tveimur áram
síðar formaður, en því starfi gegndi
hann þar til í apríl síðastliðnum.
Tvíburabræðumir Baldvin og
Vilhelm Þorsteinssynir em fæddir
að Hléskógum í Höfðahverfi árið
1928, en fluttust ungir í Hrísey þar
sem þeir ólust upp. Vilhelm var
tólf ára gamaller hann réð sig fyrst
til sjós. Hann varð háseti á Kaldbak
árið 1947 til 1951 er hann fór yfír
á Harðbak þar sem hann síðar varð
skipstjóri. Því starfi gegndi hann
þar til hann var ráðinn forstjóri
ÚA um áramót 1964-65, en þeirri
stöðu gegnir hann enn í dag. Bald-
vin Þorsteinsson hóf sína sjósókn
árið 1947 er hann réð sig á bát sem
gerður var út frá Hrísey. Hann var
um 12 ára skeið á Snæfellinu og
var skipstjóri þar, ýmist á sfld- eða
togveiðum. Þá var Baldvin einnig á
Kaldbak og Harðbak og í 12 ár var
hann skipstjóri Súlunnar, en þar
hætti hann árið 1978 og gerðist
hafnarvörður Akureyrarhafnar.
Við Sundlaugina flutti Gunnar
Ragnars ávarp fyrir hönd útgerðar-
manna og fyrir hönd sjómanna
flutti Rúnar Jóhannsson ávarp. Að
lokinni dagskrá við Sundlaugina
buðu útgerðarmenn bæjarbúum í
skemmtisiglingu og létu tíu skip
úr höfn með fjöldann allan af fólki
innanborðs. Siglt var út á Fjörðinn
og síðan í röð einn hring um Pollinn
þar sem flautur vom þeyttar af
kappi miklu.