Morgunblaðið - 06.06.1989, Síða 39
MtfRKa-ÐXíO&f
Kann*
þú n^amPriD?
síina"un,e '
/3/67
676767
HEFUR ÞU EKKI
EITTHVAD AÐ SELJA
í KOLAPORTINU?
{FALKINN)
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI84670
39
itír
fíUaa&A VARVEL RENOLB
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989
Síðasti kossinn
Sogblettir II; mars 1988.
í Kolaportinu á laugardögum er tilvaliö tækifæri
fyrir fjölskyldur, saumaklúbba, vinnufélaga
og aöra hópa aö sameinast um sölubása og selja
gamla dótiö úr kompunni, eöa nánast allt
milli himins og jarðar (veitingar þó undanskildar
nema meö sérstöku leyfi).
Það er auðvelt að vera meö.
Hringið í síma 621170 (á kvöldin í síma 687063)
eöa komið við á skrifstofunni, að Laugavegi 66,
virka daga kl. 16-18.
____ Og nú má panta sölubása símleiðis ^
[%-} með Euro- eða Visakortsgreiðslu.
Viö tökum nú við pöntunum fyrir næstu níu laugardaga
(út júlímánuð).
Mundu að „eins manns drasl er oft annars manns
fjársjóður" og þú ert í góðum og hressum hópi
seljenda í Kolaportjnu.
Sjáumst í Kolaportinu!
KOLA PORTIÐ
Drifbúnaður er sérgrein
okkar. Veitum tæknilega
ráðgjöf við val á drifbúnaði.
Það borgar sig að
nota það besta.
RAFMÓTORAR
GÍRMÓTORAR
SNEKKJUDRIF
Þekking Reynsla Þjónusta
Morgunblaðið/Júlíus
um breytingarnar sem urðu á tón-
listinni en það urðu engar stórbreyt-
ingar á sveitinni þegar Jón hætti,
því á tónleikum sveitarinnar sumarið
1987 mátti heyra að sveitin var að
þróast frá frumstæðri, kraftmikilli
rokktónlist í flóknari útsetningar
sem þurftu meiri hlustun. Fyrstu
tónleikar Sogbletta með nýjum
söngvara voru svo í Hótel íslandi í
mars 1988. Eftir það bar nánast
ekkert á sveitinni þar til í júní og
síðan í september að hún hélt
ágæta tónleika í Bíókjallaranum,
sem voru um leið lokatónleikarnir.
Sogblettir sendu svo frá sér aðra
plötu sína um síðustu jól, plötuna
Fyrsti kossinn.
Fyrsti kossinn er um margt ólík
fyrstu plötu Blettanna og líka þeirra
laga sem sveitin átti á Snarl-spólun-
um tveimur sem út komu 1987. Eins
og áður sagði er tónlistin útsettari
og þyngri en áður, en ekki er ég frá
því að það sé nokkuð á kostnað
kraftsins. Það breytir því þó ekki að
Fyrsti kossinn er um margt betri
plata en fyrsta platan, þó hún krefj-
ist meiri hlustunar og hugsunar.
Textarnir eru eftir ýmsa, en Ari El-
don, sem leikur nú á bassa með
danshljómsveitinni Bless, á þrjá
texta, sem standa njóta sín betur
en aðrir textar á plötunni; kannski
vegna þess að þeir eru samdir í
umgjörð sveitarinnar. Bestu lögin
eru Vampíran og Ættjarðaróður, en
Rauða brosið þitt er einnig gott lag,
með skemmtilegum texta.
Þó nokkuð sé nú liðið sfðan
Sogblettir héldu sína síðustu tón-
leika og sendu frá sér sína síðustu
plötu, þá er full ástæða til að minn-
ast sveitarinnar, sem var, þegar
best lét, ein kraftmesta rokksveit
seinni tíma.
Soblettir komu fyrst fyrir sjónir
þess sem þetta ritar sem upphitun-
arhljómsveit á tónleikum Rauðra
flata í Hótel Borg í lok mars 1987.
Þá þegar fór ekki á milli mála hvert
stefndi og Blettirnir fóru létt með
að stela senunni frá hljómsveitinni
sem þeir hituðu upp fyrir. Á hverjum
tónleikum sveitarinnar eftir það
þéttarvarð hún þéttari og lagasmíð-
arnar markvissari. Sú útgáfa Sog-
bletta sem fram kom í upphafi náði
sínum hápunkti haustið 1987 á eftir-
minnilegum tónleikum í Hótel Borg
í enduðum júlí og í Duus; í október
og í byrjuðum desember. Fyrir jólin
1987 sendi sveitin frá sér plötu og
Jón söngvari sveitarinnar hætti. Þá
fannst mörgum sem sveitin hefði
misst kraft og tilgang og þegar nýr
TESLA:
Rafmagnað, en
hrekkur þó ekki til
The Great Radio Controversy
HRAÐABREITAR
Sogblettir I; maí 1987.
o
*
söngvari, Grétar, tók við fór vegur
Blettanna minnkandi. Margur varð
til að kenna hinum nýja söngvara
★ ★ ★
TESLA he'rtir bandarfsk hljómsveit,
sem sver sig í ætt við þungarokk.
Fyrsta plata sveitarinnar, Metallic
Resonance, sem út kom 1986,
þótti lofa mjög góðu og satt best
að segja hefur sjaldan liðið sú vika,
sem undirritaður hefur ekki stung-
ið disknum f spilarann.
Hijómsveitin heitir eftir júgóslav-
nesk-bandaríska vísindamanninum
Nikola Tesla, en hann er talinn eiga
heiðurinn að uppgötvunum þeim og
uppfinningum, sem liggja að baki
útvarpssendingum. Upphaflega
eignaði Marconi sér uppgötvanirn-
ar, en árið 1942 úrskurðaði hæsti-
réttur Bandaríkjanna að Tesla væri
hinn raunverulegi uppfinningamað-
ur útvarpsins. Réttarhöldin voru
nefnd „The Great Radio Contro-
versy" (Útvarpsþrætan mikla) og af
þeim dregur platan nafn.
The Great Radio Controversy er
ekki jafnþung Metallic Resonance
hvað hrá- og þéttleika áhrærir, en
þess í stað er mun meira af „popp-
lögum“ í líkingu við það sem Bon
Jovi hefur gert. Gallinn er bara sá
að Tesla hefur ekki sama eyra fyrir
góðum rokkpopplögum og Richie
Sambora og ættu piltarnir því að
láta það vera.
Hvað sem öðru líður þá hefur
Tesla ekki tekið upp léttari hljóm
svo neinu nemi. Lög eins og „Flight
to nowhere" taka af allan vafa um
það, en „sándið" (ef nota má það
óyrði) nægir til þess að fylla Ás-
byrgi tuttugu sinnum (á við 20.000
Laugardalshallir).
Þrátt fyrir að slíkt kunni að fæla
suma frá Teslu held ég samt að
platan eigi eftir að ná nokkrum vin-
sældum, a.m.k. vestanhafs. Þunga-
rokkið virðist eiga mikið eftir enn
ef marka má vinsældir Bons Jovis,
Whitesnake, Def Leppard, Guns ’n’
Roses, Poison og White Lion.
Hvort sem þú, lesandi góður,.
hirðir um að kaupa þessa plötu eða
ekki, þá er hér með skorað á þig
að festa fé í fyrri plötu hljómsveitar-
innar við fyrstu hentugleika, en á
henni má finna eitt hið ágætasta
dæmi um bandarískt þungarokk á
seinni árum.
Andrés Magnússon