Morgunblaðið - 06.06.1989, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ: ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989
44
Heildarupphæð vinninga
kr. 4.310.810,-.
Enginn var með 5 rétta,
sem var kr. 1.984.477,-.
Bónusvinninginn fengu 5
og fær hver kr. 69.016,-.
Fyrir 4 tölur réttar
fær hver kr. 6.265,-
og fyrir 3 réttar tölur
fær hver um sig kr. 381,-.
Sölustaðir loka 15 mínút-
um fyrir útdrátt í Sjón-
varpinu.
Bylting á brauðfótum
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóborgin:
Setið á svikráðum — Betrayed
Leikstjóri og handritshöfiindur
Costa-Gavras. Aðalleikendur
Tom Berenger, Debra Winger,
John Mahoney, John Heard,
Betsy Blair. Bandarísk, gerð
1988.
Hinn heimskunni, vinstrisinnaði
kvikmyndagerðarmaður Costa-
Gavras heldur hér áfram krossferð
sinni um hana veröld, gegn róttæk-
um hægrimönnum og öðrum ótrosa-
lýð, og er nú kominn á merkan
áfangastað, sem hann hefur verið
að smá-færast nær — hjarta Banda-
ríkjanna. Winger leikur stjórnarer-
indreka sem send er til smábæjar
Hótel, sjúkrahús, mötuneyti,
fisk- og kjötvinnslur o.fl. Hjá
RV fáiö þið létta vinnuklossa
(hvíta eöa svarta) og hvít
stígvél sem ekki veröa hál.
REKSTRARVÖRUR
Draghalsi 14-16 • 110 Rvik • Simar: 31956 - 685554
í landbúnaðarhéraði í Miðríkjunum
til að reyna að fletta ofanaf öfga-
sinnum sem viðriðnir hafa verið
hryðjuverk gegn gyðingum og
negrum. Forsprakkinn er talinn
Berenger, gömul Víetnam-stríðs-
hetja og kunnur kynþáttahatari.
Þau Winger verða ástfangin og sér
til skelfingar kemst hún að raun
um að grunur hennar manna er
réttur...
Mjög fagmannlega framleidd,
áferðarfalleg og sjaldnast leiðinleg.
Hinsvegar er söguþráðurinn svo
meingallaður og ótrúlegur áð með
eindæmum má telja af svo dýrri
og vandaðri mynd. Strax í upphafi
byija megn ólíkindin. Hvemig á
áhorfandinn að kaupa það að jafn
harðsoðinn og veraldarvanur bylt-
ingarmaður og Berenger dragi
Winger inná gafl í hinum há-leyni-
legu samtökum sínum eftir jafn
örstutt kynni (það kemur hinsvegar
ekki á óvart þó ástin blómstri við
fyrstu sýn þar vestra). Bjóði henni
Regnboginn
Syndagjöld/Auga fyrir auga 4 —
„Death Wish 4 — The Crack-
down“
Leikstjóri J. Lee Thompson.
Handrit Gail Morgan Hickman.
Aðalleikendur Charles Bronson,
Kay Lenz, John P. Ryan.
Bandarísk. Cannon Group Inc.
1989.
Engu líkara en þeir Cannon- menn
hafi ætlað sér að kreista síðasta
blóðdropann úr Bronson gamla.
Skyldi engan undra þar sem fyrr-
nefndur gamlingi var megin blóð-
gjafi fyrirtækisins, ásamt öðrum,
umdeildum garpi, Chuck nokkmm
Norris. Haltir leiða blinda. Því þrátt
fyrir að Cannon hafi tjaldað því sem
til var, m.a. ginnt Bronson, næstum
sjötugan, að leika eina ferðina enn
hinn ódrepandi, hugumstóra vöku-
mann, Paul Kersey, þá dugðu þess-
ar hæpnu björgunaraðferðir ekki
eftir svo örstutt ástarsamband í
jafn óhugnanlega lífsreynslu og
veiðiferðina, sem þar fyrir utan er
svo sóðalegt tæki leikstjórans að
vekja andúð áhorfenda á öfgamönn-
um, að það einsog fleira snýr vopn-
inu í höndum hans. Og hvernig á
maður að trúa því að Winger geti
elskað þetta skrímsli eftir að hafa
kynnst honum nánar, og ekki ættu
uppeldisaðferðir hans að bæta sam-
búðina. Þannig mætti lengi telja.
Svo upptekinn er leikstjórinn við
að útmála öfgana að hann gleymir
raunsæinu heima. En hin upphaf-
lega harðskeytta ádeila smá dofnar
og í lokin er myndin orðin róm-
antísk endaleysa, pólitískt niðurlag
hennar vantar.
Það er erfitt að vera trúverðugur
í öllum þessum ólíkindum, Winger
spjarar sig þó furðu vel, Berenger
glatast. Þá passa þeir engan veginn
í hlutverk sín þeir Mahoney og
Heard.
til, Cannon er nú komið undir græna
torfu.
Svo er ekki um gamla steinfés
og hann verður ekki sakaður um
galla Syndagjalda nema að litlu
lejrti. Vissulega er karlinn orðinn
alltof gamall til að vera sannferðug-
ur í hlutverkinu, andlitið, sem aldr-
ei hefur talist smáfrítt, nú orðið
skorpið einsog sólbrunnið moldar-
flag. En hann er enn sprækur, sval-
ur og illvígur skratti og kann rull-
una utanað. Og óhætt að bóka að
myndin á eftir að ná miklum vin-
sældum á myndbandi. Gallamir
liggja í gjörsamlega metnaðarlausu
handriti sem byggir eingöngu á
endurtekningum og staðnaðri leik-
stjóm annars gamalmennis, J. Lee
Thompsons. Og fyrir hönd þessara
fomfrægu hörkutóla og kvik-
myndahúsgesta ætla ég að vona
að Syndagjöld verði hinsta dráps-
fantasía Pauls vökumanns Kerseys.
Morgunblaðið/Guðrún L. Ásgeirsdóttir.
Tolli sýnir nú Dönum 20
stór olíumálverk í Gallerí
SCHAG.
Kaupmaimahöfh:
Tolli í Gall-
erí SCAG
Jónshúsi.
FJÓRÐA sinni sýnir Tolli nú
Dönum kraftmikla listtúlkun
sína í olíu á striga. Er sýning-
in hjá Gallerí SCAG og stend-
ur aðeins í 2 vikur.
Þar gefur að líta 20 stór olíu-
mmálverk, ný af nálinni og
nokkuð litsterkari en fyrr og öll
liður í baráttu listamannsins
fyrir betri heimi.
Nýmæli hjá Galleríinu er að
hafa „Happy Hour“ síðdegis á
föstudegi, en annars eru opnan-
ir þar á laugardögum. íslenskar
sýningar em orðnar 9, síðan
galleríið var opnað 4. febrúar í
ár.
Tolli hefur sýnt víða í Evrópu,
enda lærður á listaakademíunni
í Vestur-Berlín. Sýning hans á
Ballerup Festivalnum 1987 fékk
mikið lof gagnrýnenda hér og
hægt er að spá því sama um
þessa sýningu.
Næstu sýnendur hjá SCHAG
em Jón Reykdal og Hringur
Jóhannesson og em opnunar-
dagar 3. og 17. júní.
- G.L. Ásg.
Ellin hallar öllum leik
Aðalfundur
Vinnuveitendasambands íslands verður haldinn
þriðjudaginn 6. júní í Súlnasal Hótels Sögu.
DAGSKRÁ:
Kl. 10.40 Kjörfundur beinna meðlima.
Kl. 11.00 Fundarsetning. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
Kl. 11.15 Ræða formanns VSÍ, Gunnars J. Friðrikssonar.
Kl. 11.45 Ræða forsætisráðherra, Steingríms Hermannssonar.
Kl. 12.30 Hádegisverður aðalfundarfulltrúa og gesta.
Kl. 13.15 SAMKEPPNISSKILYRÐIÍSLENSKRA ATVINNUVEGA
- Afkoma í atvinnurekstri: Ólafur Nilsson, endurskoðandi.
- Samkeppnishæfni ísl. atvinnurekstrar:
Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur.
- Evrópa og atvinnulífið:
Kristján Jóhannsson, rekstrarhagfræðingur.
- í samkeppni um sumarfrí: Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri.
- Það eru fleiri í heiminum: Friðrik Pálsson, forstjóri.
Kl. 15.00 Skýrsla framkvæmdastjóra yfir liðið starfsár og
önnur aðalfundarstörf.
Kl. 16.00 Fundarslit.
Allir félagsmenn eiga rétt til setu á aðalfundi.
GUNNARJ.
FRIÐRIKSSON
STEINGRÍMUR
HERMANNSSON
HANNES G.
SIGURÐSSON
tKI'JA
HAUKSDÓTTIR
ÓLAFUR
NILSSON
KRISTJAN
JÓHANNSSON
FRIÐRIK
PÁLSSON