Morgunblaðið - 06.06.1989, Síða 49
. MQEGU2JKLAÐ1D. ÞEIÐiní)AGUR&:JÚíá 1989
349
<IH M - " * « . « * ir l - - -
Fyrirlestur
á vegum
vísinda-
o g rann-
sóknaráðs
Dr. Richard S. Williams flytur
fyrirlestur á vegum Vísindaráðs
og Rannsóknaráðs rikisins í dag,
þriðjudaginn 6. júní. Fyrirlestur-
inn sem nefnist „U.S. Govem-
ment Planning for Research on
Global Change" verður haldinn
í stofu 101 í Odda, Hugvísinda-
húsi Háskóla íslands, og hefst
klukkan 17.15.
Dr. Williams lauk doktorsprófi í
jarðfræði frá Ríkisháskólanum í
Pensilvaníu og vann frá 1971 hjá
bandarísku jarðfræðistofnuninni
(U.S. Geological Survey) við að þróa
samstarfsverkefni Landsat-áætlun-
arinnar um að kortleggja yfirborð
jarðar, auðlindir hennar og breyt-
ingar á þeim, með Qarkönnun.
Um þessar mundir sér hann um
að samræma verkefni er lúta að
jarðfræðilegum rannsóknum á þeim
breytingum sem eiga sér stað á
yfírborði jarðarinnar og umhverfí
hennar. Bæði þeim sem gerast af
náttúrulegum ástæðum og af
mannavöldum. Sem dæmi má nefna
svokölluð gróðurhúsaáhrif. En sér-
svið dr. Williams er einmitt hvemig
nota megi flugvélar og gervihnetti
til fjarkönnunar þannig að hægt sé
að skoða og rannsaka þessar breyt-
ingar.
Auk skyldna hans sem vísinda-
manns hefur Dr. Williams unnið
síðastliðin tvö ár við að þróa áætlun
um hvemig rannsaka skuli um-
hverfísbreytingamar og þau vanda-
mál sem þeim fylgja. Að áætluninni
standa sjö aðilar, þ.e. bandaríska
geimvísindastofnunin (NASA) og
þær bandarísku stofnanir sem sinna
hafrannsóknum (NOAA), umhverf-
isvemd (EPA) og fjárveitingum til
vísindaverkefna (NSF). Einnig
bandarísku orkumála-landbúnaðar-
og innanríkis-ráðuneytin, ásamt
þeirri ráðgjafarstofnun Bandaríkja-
forseta sem fer með mótun vísinda-
og tæknistefnu.
Dr. Williams er íslendingum að
góðu kunnur. Um 23 ára skeið hef-
ur hann rannsakað jarðhitasvæði,
eldfjöll og jökla á íslandi, m.a. með
því að taka myndir úr lofti með
innrauðum geislum og hefur ásamt
22 íslenskum jarðvísindamönnum
skrifað fjölda greina um jarðfræði
Islands.
í fyrirlestrinum mun dr. Williams
ijallá um þær umhverfísbreytingar
sem nú eiga sér stað á yfírborði
jarðar, hvemig Bandaríígamenn
ætla að bregðast við þeim og á
hvaða hátt það kemur íslandi og
íslendingum við. Fyrirlesturinn fer
fram á ensku og er öllum opinn.
Leiðrétting
í frétt blaðsins síðastliðinn laug-
ardag um að 50 ár væm liðin frá
því fyrsta vinabæjasambandinu var
komið á á Norðurlöndunum var
ranglega sagt að bronskeflið hefði
verið afhent í fyrsta skipti á milli
bæjarfélaga hérlendis síðastliðinn
föstudag. Það var afhent fyrsta
bæjrfélaginu, ísafírði, 18. maí og
fór síðan til Blönduóss, Akureyrar,
Egilsstaða, Selfoss og var síðast
afhent frá Kópavogi til Mosfells-
bæjar. Þaðan fer keflið til Thisted
í Danmörku. Morgunblaðið biðst
velvirðingar á mistökunum.
Cterkurog
k J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
'Z&zwzió afá'iecflttya'iefaU c &í£ct*Pt.
„Ferðumst i góðu skapi“
segjum við og bendum fjölskyldufólki m.a. á að syngja i bílnum.
Okkar var því ánægjan að ganga til samstarfs við Birgi Gunn-
laugsson og félaga og gefa út snældu með vinsælum barnalög-
um. Krakkarnir úr Seljaskóla syngja lögin eins og best verður
á kosið og ekki spillir Eddi frændi spólunni með sínum góðu
ráðum í umferðinni.
Umferðarráð óskar ungum sem gömlum góðrar og slysalausrar
ferðar.
Óli H. Pórðarson
framkvæmdastjóri.
A hlió B hlió
SIGGI VAR ÚTI 1,45 3ÍLALAG 1,45
Lag: Norskt þjóölag. Lag: N.N. Texti: N.N.
HJÓLIN Á STRÆTÓ 1,17 AFI MINN OG AMMA MÍN 2,05
Óþekktur höfundur. UPP Á GRÆNUM HÓL 1.45 FINGRALEIKUR 1,45
Lag: ólafur Gaukur. Texti: Hrefna Tynes. Lag: Erlent. Texti: B. Gunnlaugsson. UM LANDIÐ BRUNA
ÚT UM MELA OG MÓA 2,44 BIFREIÐAR 1,07
Þjóðvisa. Magnús Pétursson.
RAUTT, RAUTT, RAUTT 1,00 RÚLLANDI, RÚLLANDI 2,37
Lag: Hæ. hæ. hæ. höldum burt úr bæ. Þjóðlag
SÉRTU GLAÐUR 2,22 HÖFUÐ, HERÐAR ... 1,00
Lag: Erlent. Texti: Val. Óskars. Hermann Ragnar Stefánsson.
FINGRASÖNGUR 2,06 HORFA Á BÁÐAR HENDUR 0,50
Þjóðlag. Lag: Riðum heim til Hóla.
TÍU GRÆNAR FLÖSKUR 2,48 Texti: Þorsteinn Valdimars.
Þjóðlag. FUGLADANSINN 1,20
LETIDANSINN Lag: Tómas F/Rendal.
(HUBBA HULLE) 2,07 DAGARNIR 1,05
Lag: Erlent. Texti: B Gunnlaugsson Þjóðvisa. MINKURINN í HÆNSNAKOFANUM 4,42 ómar Ragnarsson
Undirleik og útsetningar annosf hljómsveit Birgis Gunnlaugssonor.
12 krakkar úr kór Seljaskóla syngja. Þau heilD: Sædís Magnúsd., Sigurborg Hjólmorsd., Bragi Þóf V alsson, Gunnoi Örn Siqvoldo-
son, Sigurður Bjarni Gíslason, Þorsteinn Mar Gunnlaugsson, Dröfn Ösp Snorrad., Hildur
Agústsd., Elso Karen Jónosd., Sólveig Guðniundsd., lindo Leifsd. og Þórdis Benediktsd. Utgefondi og dreifing: Hljómplötuútgófa Birgis Gunnlougssonor, Skeiíunni 19, Reykjovik
simi 91-689440.
HAC
"W U
UMFERÐAR
RÁÐ
Tryggingafélag bindindismanna
Lágmúla 5, Reykjavik.
0
Olíufélagið hf